Tíminn - 30.10.1973, Blaðsíða 12

Tíminn - 30.10.1973, Blaðsíða 12
12 TÍMINN Þriðjudagur 30. október 1973 Þriðjudagur 30. október 1973 TÍMINN 13 Það er aldrei of seint að lifa lífinu EIN aðferð til að hjálpa öidruðu fólki er að kenna þvl að hjálpa sér sjálfu. Þessi grein fjallar um það, hvað sjúkrahús I London hefur komi/.t langt i meðhöndlun og umhyggju fyrir öldruðu fólki. Einnig fjallar hún um læknana, sem trúa þvl, að lifið sé þess viröi að lifa þvl, jafnvel þótt fólk sé komið yfir áttrætt. Aö meðaltali er áttundi hver maður i Vestur-Evrópu meira en 65 ára gamall. Siðustu sjötiu árin hafa miklar framfarir orðið i læknavisindunum, hvað viðkem- ur lækningu á ýmsum algengum sjúkdómum, svo sem skarlatsótt, berklum og lungnabólgu. Þessi árangur hefur orðið til þess að meðalaldur fólks frá árinu 1903 hefur hækkað úr 49 árum upp i 68 ár hjá karlmönnum og 74 ár hjá konum. Það er nú veigamikið verkefni fyrir visindin að finna upp eitt- hvað, sem gefur lifinu gildi, eftir að meðalaldur hefur lengzt svona gifurlega mikiö. Miklar framfarir hafa orðið i meðferð hrörnunar- sjúkdóma, og er það aðallega um- hyggjan fyrir þessu fólki, sem hefur breytzt, frekar en lyfja- meðferðin. Þeir læknar, sem láta sig þess- ar spurningar skipta, vinna i heimi, þar sem andlegt og likam- legt atgervi fer siversnandi. Frumurnar eru lengur að endur- nýjast. Bati eftir sjúkdóma eins og magaveiki og kvef, kemur hægar en áður. Sjón og heyrn dofna. Það getur lika verið um að ræða erfiðleika meö hjartað eða blóðrásina. Undir svona kringumstæðum er ekki skritið, þótt margt aldrað fólk vilji helzt leggjast undir sæng. En þvi lengur sem þetta fólk er rúmliggjandi, þvi meiri hætta er á, að vandamálið versni. Mohan Kataria, hrörnunarsjúk- dómalæknir við St. Francis- sjúkrahúsið i London, segir ein- faldlega: — Rúmið á að forðast. Mikill hluti vinnutima Mohans fer i það að sannfæra gamalt fólk um, að það megi ekki halda sig of mikið við rúmið, og verði að vera sem mest iifandi og starfandi. Dr. Kataria fæddist i Indlandi. Hann starfaði sem læknir i brezka hernum, sem leiddi til þess að lokum, að hann fluttist til Stóra- Bretlands. I Indlandi er næstum alltaf til staður fyrir gamla fólkið, oftast i fjölskyldunni. Gamla fólkið þar er örvað til að gera eitthvað þarft. Hann flutti með sér hluta af þess- ari heimspeki, þegar hann fór að starfa á St. Francis, jafnvel þó að hann vissi vel, að fjölskyldur i Evrópu meðhöndluðu gamalt fólk á allt annan hátt en tiðkast i Ind- landi. 1 Vestur-Evrópu er margt gam- alt fólk, sem ekki aðeins veit, að nærveru þess er ekki óskað, held- ur er þetta fólk lika, bæði einstak- lingar og gift fólk i mörgum til- Tröppur geta veriö óyfirstlganleg hindrun, þess vegna veröur að veita sérþjálfun I að ganga upp tröppur. vikum algjörlega sniðgengið. Það getur ekki einu sinni hjálpað hvert öðru, einfaldlega þvi það veit ekki um tilveru hvers annars. Það sér engan tilgang i þvi að halda áfram að lifa. Dr. Kataria dregur hérna upp nokkrar svipmyndir af þvi, hverju gamla fólkið má búast við á spitalanum. Fyrstu dagana er fólkið vandlega rannsakað, bæði andlega og likamlega, og er i þvi sambandi auðvitað stuðzt við upplýsingar frá heimilislæknin- um. Eftir niðurstöðum þessara rannsókna er siðan byggð upp dagskrá fyrir sjúklinginn. Gler- augu, tennur og heyrnartæki þarf kannski að endurnýja — eða út- vega slikt, ef það er ekki fyrir hendi. Næsta skrefið er að fara með sjúklinginn i dagstofuna, þar sem þetta fólk fær félagsskap, og er þetta fyrsti visirinn i áttina að þvi að leyfa fólkinu að fá hreyfingu og starfa. Starfsemin þarna er byggð upp á leikjum fyrir börn. Þetta fær sjúklinginn til að hreyfa útlimina og reyna á vöðvana. Eftir nokkra daga er sjúklingur- inn svo tilbúinn aö fara inn i leik- fimisalinn. Það er stór leikfimisalur á St. Francis-sjúkrahúsinu. — Þar er til dæmis eins konar tröppupall- ur. Hér lærir sjúklingurinn bein- linis að ganga tröppur á nýjan leik. — Það er mjög gott að hafa einn góðan leikfimisal, segir dr. Kataria. En þjálfunin byrjar i rauninni á æfingum sem dr. Marjory Warren (nú látinn) setti saman i þágu hrörnunarsjúk- dóma. Þetta eru æfingar, sem sjúklingurinn getur gert hjálpar- laust við rúmgaflinn hjá sér. Sjúklingurinn situr á stól og lætur andlitiö snúa að fótgaflinum. Sið- an hifir hann sig upp og lætur sig siga niður, rær fram og aftur á gaflinum, — og til hliðanna. Það mikilvægasta við þessar æfingar Það er hægt að fara i fótbolta I hægindastólnum, og allir verða að vera með. Þaö er ekki auðvelt að búa til mat þegar hendurnar svlkja okkur, en með þjálfun og góðri hjálp getum við komið til. hjá konum og hærri hjá körlum. Konur geta hjálpað sér meira sjálfar en menn, og það leiðir til þess, að þær geta haldið sér leng- ur á lifi — þær eru vanari þvi að reyna að bjarga sér sjálfar. Menn, sem halda áfram aö vinna, og þá sérstaklega iðnaðarmenn, lifa þó oft lengur, og þá tilbreyt- ingariku lifi. En i aðra röndina er það staðreynd, að ef sjúklingur hefur bitið það i sig að deyja, er ekkert sem getur komið i veg fyrir það, segir dr. Kataria. Aldrað fólk þarfnast meiri ein- staklingsbundinnar meðhöndlun- ar og athygli en yngra fólkið. Það verður að útskýra hlutina og kannski endurtaka þá oft, þangað til maður er .viss um að það hafi skilið hvað verið er að gera fyrir það, og hvers vegna. (lauslega þýtt og endursagt, Kris) Dr. Kataria er vanur þvi frá slnu heimalandi, að hinir yngri hjálpi bæði eldra fólkinu og sjúklingum. er, að hægt er að gera þessar æf- ingar heima hjá sér. Það eina sem þörf er fyrir, er bretti við fót- gaflinn, svo sjúklingurinn renni ekki undir rúmið. I leikfimisalnum á St. Francis- sjúkrahúsinu eru fótstig af reið- hjólum fest á vegginn til að þjálfa handleggina. Einnig eru strikað- ar beinar linur yfir gólfið, og er það gert til að hjálpa sjúklingnum til að ganga eftir vissum takti, og einnig til að halda beinni stefnu. Viðarstangir ganga út úr veggj- unum, og þar geta sjúklingarnir hangið og reynt að hifa sig upp til að styrkja handleggi og axlir. Dr. Kararia telur, að margir vanmeti þá möguleika og þann vilja, sem gamla fólkið hefur til að gera allt, sem i þess valdi stendur, til aö endurheimta aftur þann styrk, sem þarf til að út- skrifast. Það sem það þarfnast, er að fá ofurlitinn stuðning i byrj- un frá lækninum og öðru starfs- fólki. Hann bendir á, að á striðs- árunum hafi Reginald Watson- Jones sýnt fram á, að það er hinn sterki vilji mannsins, samstarf huga og likama, sem hjálpaði mönnum til að komast aftur á fætur eftir verstu áföllin. Starfið hjálpar fólkinu til aö bægja frá sér hræðslunni, og við sjáum dæmi þess á hverjum degi i deild- inni hjá okkur. Dr. Kataria segir okkur frá prjónaskap eins sjúklingsins: — Hún var rúmlega áttræð,sein og yfir sig hrædd. t byrjun prjónaði hún eitthvað út i loftið, ekkert ákveðið, hún prjónaði bæði laust og ójafnt, og handavinnan hennar sýndi hvernig hún var sjálf, óör- ugg og hrædd. Þegar hún fór að fá áhuga á prjónaskapnum, varð prjónið fastara og fékk rétta lög- un, og það liðu ekki nema nokkrar vikur, þar til hún fór að prjóna al- vea rétt, bæði fast og jafnt. Mikilvægast af öllu er að veita þessu fólki nýja innsýn i lifið. Ef þetta fólk sér engan tilgang i lif- inu, er til litils að hjálpa þvi til að þjálfa sig upp likamlega. Takmark dr. Kataria er ekki aðeins að glæða lif þessa fólks til- gangi, heldur einnig að kenna þvi þá hluti, sem nauðsynlegt er að kunna til að geta lifað. Sjúklingarnir fá leiðsögn i þvi að búa til mat, og það sem mikil- vægara er hvernig mat það á að búa til. Það er tilgangslaust að senda fólk heim aftur, ef hætta er á að allt fari i sama farið aftur: það liggi i rúminu mestan hluta dagsins, og staulist siðan fram i eldhús og fái sér eitthvað, sem ekkert næringargildi hefur. Margir sjúklinganna þarfnast einhverrar umönnunar i heima- húsum. Mikill hluti þessarar að- stoðar kemur frá féiagsstofnun- um, heilbrigðisþjónustu og heim- ilishjálp. Til eru klúbbar, þar sem gamla fólkið getur hitzt og fengið sér mat. Bara það, að þurfa að fara i slikan klúbb, gefur fólkinu tilefni til að hressa sig upp og klæðast. Þegar grunnurinn er lagður að starfsömu lifi, er það undraverð- ur fjöldi, sem getur útskrifazt af þessari deild. Áður fyrr, þegar meðul voru eingöngu notuð til að lækna fólk, var litill hluti þess fær um að yfirgefa þessar ellideildir eða fátækraheimili, fyrr en það var borið út i kistunni. Yfir 50% sjúklinganna á St. Francis út- skrifast. Af skiljanlegum ástæð- um er dánartalan há, 30 prósent Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélags RIT ÞAU, sem Bókaútga'fa Menningasjóðs og Þjóðvinafélags- ins gefur út I ár, eru nú i þann veginn að koma á markaðinn eða væntanleg bráðlega. Fer hér á eftir yfirlit yfir bækur þessar: Hundrað ár i Þjóðminja- safni eftir dr. Kristán Eldjárn. Þetta er ljósprentuð fjórða út- gáfa ritsins, en það kom fyrst út á aldarafmæli Þjóðminjasafnsins 1962. Efni þess er ítarleg ritgerð um sögu og þróun safnsins, svo og þættir um einstaka hluti, sem þar eru varðveittir, og myndir þeim, ennfremur útdráttur bókarinnar á ensku. Eru þættirnir hundrað talsins, einn fyrir hvert ár, sem safnið hafði starfað til þess tima, er hún var tekin saman. Kviður Hómers I-II. Þetta er ljósprentun af Ilions- kviðu og Odysseifskviðu i þýðingu Sveinbjarnar Egilssonar, en Menningarsjóður gaf þær út 1948 og 1949. önnuðust Kristinn heitinn Ármannsson rektor og dr. Jón Gislason um útgáfuna og rituðu að henni itarlegan formála. Eru Hómerskviðurnar hluti af bóka- flokki, sem flytur ýmis úrvalsrit heimsbókmenntanna. Fyrstu ritin i þeim bókaflokki eru Fást eftir Goethe og Landið týnda (Det tabte land) eftir Jóhannes V. Jensen. íslenzkt skáldatal. Þetta er fyrra bindi af tveimur og hluti af Alfræðum Menningar- sjóðs. Skáldatalið er samið af Hannesi Péturssyni og Helga Sæmundssyni. Ilefst Skáldatalið á árdögum islenzkra bókmennta og nær allt til ársins, sem er að liða. Semur Hannes þann hluta þess, sem fjallar um bókmenntir fyrri alda, en Helgi hinn hlutann,/ þar sem gerð er grein fyrir höfundum og bókum eftir 1874. Verða i Skáldatalinu skrár fyrir ljóð, skáldögur, smásögur og leikrit þeirra höfunda, sem getið er, en jafnframt upptalning á bókum og helztu ritgerðum um skáldskap þeirra, auk ævisögu- ágrips Skáldatalið verður skreytt fjölda mynda. Saga Hliðarenda i Fljótshlið eftir séra Jón Skagan. Þetta er mikið rit um hið forna og fræga höfuðból og skiptist i þrjá meiginhluta. Fyrsti hluti fjallar um búendur á Hliðarenda frá upphafi til vorra daga, annar hluti um kirkjuna þar og þriðji hluti um jörðina. Alls hafa setið Hliðarenda 43 ábúendur, svo að vitað sé með vissu. Meðal þeirra eru margir frægir menn i lslands- sögunni, enda garðurinn löngum viðkunnur. Þar fæddist Þorlákur biskup helgi Þórhallsson, en Bjarni skáld Thorarensen ólst þar upp og Þorsteinn skáld Erlings- son á afbýlinu Hliöarendakoti. Séra Jón Skagan var lengi prestur á Bergþórshvoli i Land- eyjum. Hefur hann unnið að bók- inni um hliðarenda i mörg ár. Ljóð og sagnamál eftir séra Jón Þorleifsson. Þetta er ný útgáfa af ljóðum séra Jóns og drögum að skáld- sögum eftir hann, svo og þjóð- sögunni um Tungustapa og nokkrum pistlum. Hefur Hannes Pétursson búið bókina til prentunar. Séra Jón Þorleifsson lézt ungur að árum, en vakti eigi að siður athygli fyrir skáldskap sinn þegar i lifanda lifi. Hann sat siðast Ólafsvelli á Skeiðum, en þjónaði áður i Fljótshliðar- þingum. Sögur 1940-1964 eftir Jón Óskar Jón Öskar er sennilega kunn- astur fyrir ljóðagerð, en hann byrjaði skáldferil sinn með smá- sagnasafni og hefur siðan ritað skáldsöguna „Leikir i fjörunni”. „Sögur” eru heildarsafn af smá- sögum höfundar á áraskeiðinu 1940-1964, og hafa sumar þeirra ekki birzt i bókarformi fyrri, Sögurnar eru 22 talsins, og hafa sumar þeirra vakið mikla athygli og verið prentaðar i sýnisbókum innanlands og utan. Króski og Skerðir eftir Cervantes. Þetta er stutta saga eftir hinn heimskunna höfund verksins um Don Quijote, en Guðbergur Bergsson rithöfundur hefur gert þýðinguna úr frummáJinu, spænsku. Þetta er bráðskemmti- leg prakkarasaga, og sumar per- sónur hennar hafa orðið harla langlifar i bókmenntunum. Ilaftækni- og ljósorða- safn II. Þetta er mikið rit, er flytur tækniorðasafn, sem Alþjóðlega raftækninefndin hefur samið, en Orðanefnd Rafmagnsverkfræði- deildar Verkfræðifélags Islands þýtt á islenzku. Fylgja islenzka orðasafninu þýðingar á ensku, þýzku og sænsku. Um Nýja testamentið eftir séra Jakob Jónsson. Þetta er rit um guðfræðiiegt efni, eins og naínið bendir til, en höfundur hefur lagt mikla stund á þau visindi um langt skeið, enda doktor i guðfræði. Séra Jakob er og landskunnur predikari og rit- höfundur. f bók þessari ræðir hann um ýmis þau sjónarmið, sem fram hafa komið varðandi túlkun Nýja testamentisins og um einstök kenningaratriði. Má gera ráð fyrir, að efni hennar verði hugleikið öllum, sem láta sig trúarbrögð og menningarsögu einhverju skipta. w Eignarhald og ábúð á jörðum i Suður-þing- eyjarsýslu 170:it-1930 eftir Björn Teitsson. Þetta er annað bindi bóka- flokksins Sagnfræðirannsóknir (Studia historica), en hann er gefinn út af Menningarsjóði i samvinnu við Sagnfræðistofnun Háskóia tslands. Höfundurinn er ungur sagnfræðingur og hefur lagt mikla vinnu i þetta rit sitt, sem hefur að geyma merkan fróðleik um þingeyska sögu. Myndmál Passiusálmanna eftir Helga Skúla Kjartansson. Þetta er 32. hefti af Studia Islandica, og gerir höfundur stil- fræðilegar athuganir á Passiu- sálmum Hallgrims Péturssonar en þeim er ætlað að varpa ljósi á tilurð sálmanna og samband þeirra við önnur verk. Acta botanica Islandica. Þetta er2. hefti árgangsins 1973 af grasafræðitimaritinu Acta botanica Islandica, en ritstjóri þess er Hörður Kristinsson. Meðal þess efnis þessa hcftis er itarleg ritgerð um Islenzka hatt- sveppi eftir Helga Hallgrimsson. Andvari. Timarit Menningarsjóðs og Hins islenzka Þjóðvinafélags, rit- stjóri dr. Finnbogi Guðmundsson landsbókavörður. Meðal efnis i Andvara að þessu sinni verður ævisaga Asgeirs Asgeirssonar forseta lslands, eftir Guðmund Gislason Hagalin. Aðrir höfundar, sem rita I Andvara, eru t.d. Gunnar Arnason, Þorsteinn Sæmundsson og Peter Hallberg. Almanak Hins islenz.ka Þjóðvinafélags fyrir árið 1974. Ritstjóri þess er dr. Þorsteinn Sæinundsson. Hljómplata með pianóleik Rögnvalds Sigur- jónssonar. Rögnvalur leikur hér fjögur tónverk: tvö eflir Leií Þórarins- son og sitt hvort eftir Alta Heimi Sveinsson og dr. Pál ísólfsson. Hljómplata þessi er framleidd i Danmörku. Nýskipaður NYSKIPAÐUR sendiherra Arabalýðveldisins Egyptalands hr. Gamal Naguib, afhenti I fyrradag forseta islands trúnaöarbréf sitt aö viö- stöddum utanrlkisráöherra Einari Agústssyni. Síödegis þá sendi- herrann boö forsetahjónanna aö Bessastööum ásamt nokkrum fleiri gestum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.