Tíminn - 30.10.1973, Blaðsíða 17

Tíminn - 30.10.1973, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 30. október 1973 TÍMÍNN 17 Raddir ungra manna Ódrengileg skrif A allra vitorði er, að Morgun- blaðið tiðkar þá baráttuaðferð að leigja einstaka menn til nlðskriía, eí nauðsynlegt þykir að ófrægja pólitiska and- stæðinga. Ennþá er mönnum i fersku minni, þegar Mbl. lausréð Freystein Þorbergsson sem blaðamann til að sverta Guðmund G. Þórarinsson, þar sem of mikill ljómi þótti stafa af frammistöðu þessa borgar- stjórnarfulltrúa Framsóknar- flokksins við heimsmeistara- einvigishaldið i skák i fyrra- sumar. Ekkert var til sparað, og fór Freysteinn margar ferðir til Bandarikjanna i þeim erinda- gjörðum ,,á eigin kostnað”. Oftók Freysteinn sig þó svo á niðskrifunum, að almenningur leit á þau sem óráðshjal, enda urðu þau Freysteini einum til minnkunar. Einn . hinna fastráðnu leigu- penna, Markús örn Antonsson, tekur hins vegar upp iðjuna i Morgunblaðinu 17. okt. s.l. með greinin samsafn ókvæðisorða hans Einars á sinum stað”. Er greinin samsafn ókvæðisorða um persónu utanrikisráð- herrans. Er helzt að skilja á greinarhöfundi, að mjög hafi brugðið til hins verra um utan- rikisstefnu Islands, eftir að vinstri stjórnin kom til valda og tók nýtt frumkvæði i bæði land- helgis- og varnarmálum. I grein Markúsar Arnars segir m.a. Það skal vissulega játað, að Einar Agústsson hefur það fram yfir suma aðra utan- rikisráðherra Islenzka, að honum hefur á sinum tima verið kenndur sæmilega réttur framburður á enskri tungu, þannig að ráðherrann komst nokkurn veginn skammlaust frá flutningi hinnar hefðarbundnu árlegu ræðu sinnar á Alls- herjarþingi Sameinuðu Þjóð- anna. En leiksýning sú og upp- lestur á handriti, sem embættis- menn utanrikisráðuneytisins hafa að verulegu leyti samið, er enginn mælikvarði á hæfni ráð- herrans, þó að Timinn vilji svo vera láta. Svo er vilji Markúsar Arnars mikill til niðsins, að hann vflar ekki fyrir sér að sneiða I leiðinni einkar ósmekklega að minningu Bjarna Benediktssonar. Einnig Guðmundi t. Guðmundssyni og Emil Jónssyni, samtimis þvi að hann gefur i skyn, að þessir menn hafi ekki fengið nægileg tækifæri til að læra framburð enskrar tungu. Jafnframt má skilja skrifin svo, að Bjarni Benediktsson hafi alltaf flutt ræður sinar blaðalaust i Alls- herjarþingi Sameinuðu Þjóð- anna. Grein Markúsar hlýtur og að knýja menn til umhugsunar og samanburðar á þvi, hvað þessir fyrrverandi utanrikisráðherrar höfðust að á sinum tima i stórum málum. Varnarsamningur tslands og Bandarikjanna er verk utan- rikisráðherra sjálfstæðis- manna. Einstök ákvæði hans eru talandi tákn um undirlægju- hátt. Þar segir eingöngu, að Bandarikjamenn séu hér á landi til að verja tslendinga, en hvergi,að þeir séu hér einnig til að verja sjálfa sig. Varpar það ijósi á „raunsæi, viðsýni og um- hyggju” sjálfstæðisráðherrans fyrir þjóð sinni, þegar hann samdi fyrir hennar hönd. Þar af leiðandi er ákvæði i varnar- samningnum þess efnis, að lendi Bandarikjamenn i bar- dögum hér á landi, og t.d. leggi Keflavikurkaupstað i rúst, skuli þeir ekki bæta tslendingum það einni krónu. Kristinn Guðmundsson gerði siðar veigamiklar umbætur á samkomulagi tslands og Bandarikjanna um varnar- máiin. Á viðreisnarstjórnartim- anum var ekkert gert. Ekki fannst heldur , i skjalaskápum viðreisnarstjórnarinnar eitt einasta skjal um undirbúning nýrrar útfærslu landhelginnar. Enda sagði utanrikisráðherra þeirrar stjórnar, að siðleysi væri að færa landhelgina út fyrir hafréttarráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna. Enginn vissi þó fyrir vist, hvenær hún yrði haldin. Hér hefur verið stiklað á stóru um . „rismikla” utanrikis- stefnu viðreisnarstjórnarinar. Gefur það glögga hugmynd um, hversu stór verkefni biðu Einars Agústssonar, þegar hann tók við embætti utanrfkis- ráðherra. Hann hefur borið gæfu til að leysa þau af hendi, þannig að hann hefur hlotið lof alþjóðar, jafnt sem erlendra frétta- manna, er spurt hafa hann i þaula á blaðamannafundum. Engan skal þvi undra, þó að Morgunblaðið herði nú á leigu- penna sinum, Markúsi Erni Antonssyni. Hann sýnist og ekki vilja draga af sér við smjörið, enda liklega borgaður á yfir- taxta. Krjstján B. Þórarínsson. Jörð óskast Óska eftir bújörð á Suður- eða Vestur- landi, til leigu eða kaups frá næstu fardögum. Tilboð sendist i pósthólf 108, Keflavik. Skrifvélin Suðurlandsbraut 12 óskar að ráða: 1) Sölumann. Æskileg þekking á skrif- stofutækjum. 2) Mann til útkeyrslu og innheimtustarfa. Upplýsingar varðandi ofangreind störf ekki veittar i sima. Skrifvélin Suðurlandsbraut 12, Reykjavik. Óskum að ráða héraðshjúkrunarkonu fyrir Bolungarvikurlæknishérað frá 15. nóvember n.k. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir skulu sendar skrifstofu Hólshrepps fyrir 10. nóvember 1973. Sveitarstjóri Hólshrepps. Klukkan 9 á morgnana opnar auglýsingastofa Tímans, Aðalstræti 7. Tekið er á móti auglýsing- um, sem birtast eiga næsta dag, til klukkan 4 siðdegis. Auglýsingar í sunnudags- blöð þurfa að berast fyrir klukkan 4 á föstudögum. Þeir auglýsendur, er óska aðstoðar við gerð aug- lýsinga, eru beðnir að skila handritum tveim sólar- hringum fyrir birtingar- dag. Símanúmer okkar eru 1-95-23 & 26-500 AuglýsicT í Timanum STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS Dagana 2. og 3. nóvember kl. 9:00-12:00 og 14:00-17:00 verða haldin námskeiö i Greiðsiuáætlunum I að Hótel Sögu. Eftirfarandi atriði verða tekin fyrir: Hvers vegna gerum við áætlanir? Hver er grundvöllur greiðsluáætiana? Ennfremur verður fjallað um: Framsetningu og úrvinnslu ársreikninga. Rekstraráætlanir. Fjármagnsstreymi o.fl. Leiðbeinandi verður Benedikt Antonsson viðskiptafræðingur. Stjórnunafélagið gengst fyrir simanámskeiði fyrir simsvara 1., 2. og 3. nóvember að Skiphoiti 37. Námskeiðið hefst kl. 9:15 árdegis alla dagana og stendur yfir til kl. 12:00. Fjallað verður um starf og skyldur simsvarans, eiginleika góðra simraddar, simsvörun og slmatækni. Ennfremur fer fram kynn- ing á notkun simabúnaðar, kallkerfi o.s.frv. Leiðbeinendur á námskeiðinu verða Ilelgi Hallsson fulltrúi og Þorsteinn óskarsson simvirkjaverkstjóri. Þátttaka tilkynnist i sima 82930. Aukin þekking gerir reksturinn öflugri og arð- vænlegri. STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS Nokkrar kýr til sölu að Litlalandi, ölfusi. Simi um Hveragerði. Forðist slysin og kaupið Suðurlandsbraut 2Q * Sími 8-66-33

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.