Tíminn - 30.10.1973, Blaðsíða 19
Þriöjudagur :S0. október 1973
TÍMINN
19
þó sitja fundinn, enda ekki verið
teknir burt af iélagaskrá, en þeir
hefðu ekki atkvæðisrétt. Ýmsir
þeirra, sem þannig var meinað að
greiða atkvæði á aðalfundinum
hafa aldrei verið félagar i neinu
öðru félagi ungra framsóknar-
manna en FUF i Reykjavík. Þar
að auki skal þess getið að fram-
sóknarmönnum er heimilt að
vera i fleiru en einu flokksfélagi
og ráða þeir þvi þá sjálfir i hvaða
félagi þeir neyta atvkæðisréttar
sins, en atkvæðisréttar geta þeir
aðeins neytt i einu félagi. Þótt
meirihluti fráfarandi stjórnar
hafi ekki nefnt lögheimili
ákvörðun sinni til staðfestingar,
skal á það bent, að samkvæmt
lögum FUF i Reykjavik nær
félagssvæði þess til Reykjavikur
og nágrennis, og ennfremur geta
þeir, sem dveljast langdvölum i
Reykjavik verið félagsmenn, þótt
þeirhafi lögheimili annarsstaðar.
Einn þeirra manna, sem þannig
var sviptur atkvæðisrétti sinum
var Ólafur Ragnar Grimsson,en
hann er þó ekki i neinu öðru
félagi ungra manna i
Framsóknarflokknum.
4. Fyrir aðalfundinn hafði
meirihluti fyrrverandi stjórnar
FUF dreift út um borgina félags-
skirteinum og atkvæðaseðlum,
sem gilda áttu á félagsfundinum.
Fjöldi þeirra, sem fengu inn-
göngu á aðalfundinn, komu með
félagaskirteini sin og atkvæða-
seðla utan úr bæ. Sögðu þeir i
votta viðurvist, að þeir hefðu ekki
þurft að greiða félagsgjald til
þess að fá skirteinin og beinlinis
verið boðin þau endurgjaldslaust
að fyrra bragði. Aðrir urðu hins
vegar að ganga fyrir meirihluta
fyrrverandi stjórnar, sem sat i
anddyri fundarhússins, til þess að
krefjast sinna félagaskirteina og
atkvæðaseðla og greiða sin
félagsgjöld. Þannig hefur meiri-
hluti fyrrverandi stjórnar getað
afhent hverjum sem er félaga-
skirteini og atkvæðaseðla, þar eð
ekkert eftirlit var með þeim, sem
höfðu þessi gögn með höndum,
þegar þeir komu inn i húsið. Hygg
ég, að svona dreifing atkvæða-
seðla til hluta „félagsmanna" sé
fordæmalaus með öllu, ekki sizt
með tilliti til þess að atkvæða-
seðlarnir voru mjög einfaldir að
allri gerð.
Núverandi stjórn FUF i
Reykjavik hefur með höndum
gögn og vitnisburði, sem sanna
ótvirætt ofangreinda ákæruliði.
Meðal þeirra sönnunargagna,
sem stjórnin hefur með höndum,
er skrifleg staðfesting nokkurra
manna á þvi, að þeir hafi i vik-
unni fyrir aðalfundinn verið
teknir inn i félagið á skrifstofu
þekkts hæstaréttarlögmanns hér i
borg. Þessir menn fengu eins og
aðrir, sem eins var komið fyrir,
félagsskirteini og atkvæðaseðla,
frá meirihluta fyrrverandi
stjórnar FUF, án þess að inntöku-
beiðnir þeirra hefðu nokkurn
tima verið bornar upp i stjórn
félagsins eða á félagsfundi, enda
félagsfundur ekki verið haldinn
siðan þeir voru skrifaðir inn i
félagið á skrifstofu hæstaréttar-
lögmannsins. Þessir menn mættu
á aðalfundinn, sem og aðrir sem
eins var ástatt um, og nutu þar
fullra réttinda.
Einnig hefur núverandi stjórn
með höndum skrá yfir þá 119
menn, sem höfðu á ólögiegan hátt
verið settir inn á félagsskrá. Þar
að auki hefur stjórnin einnig skrá
yfir löglega félagsmenn, sem
teknir hafa verið burt af félaga-
skrá og þá félagsmenn, sem
meinaður var atkvæðisréttur,
þótt þeir fengju inngöngu á aðal-
fundinn. Einnig er fyrirliggjandi
vitnisburður fjölmargra manna
um dreifingu félagsskirteina og
atkvæðisseðla út um bæinn fyrir
aðalfundinn. Núverandi stjórn
félagsins mun leggja fram þessi
sönnunargögn þegar þörf krefur.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð
fleiri að sinni. Eg hefði aldrei
trúað þvi að óreyndu, að annað
eins og þetta gæti komið fyrir i
islenzku stjórnmálafélagi. En svo
virðist að ólöglegar og siðferði-
lega óverjandi aðferðir i stjórn-
málum viðgangist viðar en i
Bandarikjunum.
Baldur Kristjánsson
Formaður KUK i Reykjavfk.
Það skal tckið fram, að titill sá,
sem Baldur Kristjánsson tekur
sér, er á ábyrgð lians sjálfs.
X, Ritstj.
„Það er rétt i viðskiptum okkar
Baldurs Kristjánssonar, að mér
var ókunnugt um, að umrædd
grein Alfreðs Þorsteinssonar yrði
i sunnudagsblaðinu, þegar ég
ræddi við Baldur. Birting
greinarinnar var ákveðin af
Tómasi Karlssyni. ritstjóra, i
fjarveru minni á föstudaginn.
Tómas taldi rétt, að Alfreð fengi
að svara ásökunum, sem liöfðu
komið fram i kæru Baldurs
Kristjánssonar, er birzt hafði i
Timanum á fiistudag.
— I> Þ.
Tveir bílar eyðilögðust í árekstri
HÖRKUAREKSTUR varð á
Reykjanesbrautinni á móts við
Kinnahverfið i Hafnarfirði s.l.
föstudagskvöld. Talsverð hálka
var á veginum. Nýlegur amerisk-
ur bill var á leið suður, er hann
rann til á hálkunni oe fór út af
veginum, en lenti á grindverki og
kastaðist þversum inn á veginn
aftur og lenti fyrir öðrum bil, sem
var á leið upp brekkuna. Svo
harður varð áreksturinn, aö telja
má að annar billinn sé gjörónýt-
ur. og iafnvel hinn lika.
Tveir menn voru i hvorum bil
og slösuöust allir, en enginn
alvarlega. Aðallega meiddust
mennirnir á andliti er þeir köst-
uðust framá rúöurnar. — Oó
Annar billinn, sem lenti i árekstri á Reykjanesbraut s.l. föstudagskvöld. Timamynd: Svavar G. Jóns-
SÍFELLDUR
ÁGANGUR
BREZKRA
TOGARA
meðan beðið er samningagerðar
VEGNA margitrekaðra yfirlýs-
inga ráðamanna um. að i engu
v'erði slakað á gæzlu i hinni nýju
fiskveiðilögsögu, þótt Bretar
sendi lierskip sin út fyrir og einn-
ig þess, að'íálið er i veðri vaka, að
ekki liafi verið látið undan þeirri
kröfu Breta, að togararnir fengju
að vera óáreittir. ef lierskipin
færu, viljum við undirritaðir
upplýsa eftirfarandi:
llinn 12. þessa mánaðar var
vélskipið Kristján Guðmundson
tS-77 að linuveiðum 33 sjómilur
austnorðaustur frá Hornbjargi.
Þá kom brezkur logari og togaði
yfir linuna. Halt var samband við
varðskip, sem ekki kom á
staðinn. En skömmu siðar hifði
togarinn og keyrði burt. Varð-
skipinu var sagt frá þessu, og lét
það þá svo ummælt, að allt væri i
lagi og eins og það ætti að vera.
Þennan dag voru fleiri brezkir
togarar að veiðum þarna, og
héldu þeir sig einkum nær landi.
Ekkert sást til ferða varðskips.
24. þ.m. voru vélskipið Sigur-
von, Kristján guðmundsson og
Ólalur Friðbertsson að linu-
veiðum út af Súgandafirði, nánar
tiltekið á miðunum „Spillir laus
við Gölt” og þar norðar, — Ijar-
lægð frá Gelli 10-15 sjómilur.
Sigurvon og ólalur Friðbertsson
höfðu lagt i stefnu norðaustur af
norðri, misvisandi, byrjað 9
sjómilur og lagt út á 15 sjómilur.
Bugað siðan upp aftur.
Um hádegisbilið komu þarna
tveir brezkir togarar og toguðu
þeir yfir veiðarfæri áðurgreindra
báta. Var þá haft samband við
varðskip, sem fljótlega kom á
staðinn. Sigldi það að togaranum
CF-Forrester, og hafði samband
við hann, að sögn varðskipsins.
Lofaði togarinn að fara af þessum
slóðum og láta aðra brezka tog-
ara i grenndinni vita af veiðar-
færum bátanna.
Þessi alskipti varðskipsins
munu þá hafa staðið yfir i 15-20
minútur. Þá setti það á ferð á
stefnu á Barða og hvarf. Tveimur
stundum seinna voru togararnir
svo aftur byrjaðir að hræra i lóð-
unum. Þessir atburðirskeðu rétl
við 12 milna mörkin, þ.e. 37 til 39
sjómilur innan 50 milnanna.
Nú spyrjum við, sem heyrt
höfum i fjölmiðlum um viraklipp-
ingar og séð höfum i sjónvarpi
ákeyrslur brezkra togara: Helur i
engu verið slakað á? Svari hver
fyrirsig: Ólafur. Pétur, skipherr-
arnir.
Að lokum má geta þess, að und-
anfarna daga hafa margir brezk-
ir togaror verið aveiðum skammt
út af Vestfjörðum, og föstudaginn
26. þ.m. var einn kominn i var
undir Grænuhlið i Isafjarðar-
djúpi. Varðskip kom að þeim tog-
ara i augsýn islenzkra skipa og
afskiptin tóku fáeinar minútur.
tslenzkur skipstjóri, sem var
áhorfandi, talaði við varðskipiö
og spurði. hvort ekkert ætti að að-
hafast. „Við getum ekkert gert.
Megum ekkert gera", — hljóðaði
hið einlalda svar. I samtalinu við
varðskipið kom Iram, að a'skilegt
væri. að þetta yrði opinbert Þess
vegna er þetta fest á blað, og
einnig af þvi, að Bretar hafa með
framkomu sinni hér vestra að
undanförnu sýnt tslendingum svo
mikla litilsvirðingu, að engu tali
tekur.
Margur hefur verið og er fyigj-
andi þvi að semja, en viljinn til
samninga hlýtur að minnka
óðum, þegar annar aðilinn sýnir
eingöngu ylirgang og Irekju,
meðan á samningsumleitunum
stendur.
Suðureyri 27/10 1973
Gestur Kriðfiniisson skipstjóri,
vélski|iinu Kristjáni Guðinuinls-
syni.
Kinar Guðuason skipstjóri. v.s.
Sigu rvon
Bragi ólafsson skipstjóri. v.s.
olafur Kriðbertsson.
Ung, góð kýr til sölu
Upplýsingar i sima 93-7342, Borgarnesi.
::::
Félagsfundur
:::s
:::r
::::
Verzlunarmannafélag Reykjavikur ||jj
heldur félagsfund i Hótel Esju, i dag jj|
fimmtudaginn 1. nóvember 1973 kl. Íill
20,30. 1
Dagskrá:
Kjaramál
VERÐ VIRK I
son.