Tíminn - 02.11.1973, Blaðsíða 1
fóðurvörur
ÞEKKTAR
UM
LAND
ALLT
MlWjffl
255. tölublað — Föstudagur 2. nóvember — 57. árgangur.
LÆKNANEMAR i Háskóla
islands gera verkfall i dag og
á morgun. Þeir munu hvorki kom
i kennslustundir né sinna lestri
þessa daga. Verkfall þetta tekur
til um 450 stúdenta, og verður
verkfallsvörður settur til þess að
fylgjast með því, að enginn
skerist úr leik.
Læknanemarnir munu safnast
saman við Landspitalann
klukkan eitt i dag og ganga þaðan
fylktu liði niður á Arnarhól. Hafa
þeir i huga að afhenda mennta-
málaráðherra og heilbrigðis-
málaráðherra áskorun um úrbæt-
ur á þvi, sem þeim þykir óviðun-
andi og að þvi búnu verður haldið
suður að háskóla og gengið á fund
Ölafs Björnssonar prófessors,
sem nú gegnir störfum rektors.
— Með þessum aðgerðum vilja
læknanemar leggja áherzlu á
tvennt, segja forvigismenn þeirra
— i fyrsta lagi mótmæla fjölda-
takmörkun i læknadeild og i öðru
lagi leggja áherzlu á kröfur
læknadeildar um úrbætur i hús-
næðismálum.
Um fjöldatakmörkunina segja
þeir, að hún feli i sér óverjandi
mismunun árganga, og verði að
telja það mikla ógæfu að deildin
sá ástæðu til þess að tengja
saman húsnæðisskort sinn og tak-
mörkun á fjölda nemenda á þann
hátt, er gert hefur verið. Þvi
siður sé þetta réttlætanlegt, þar
sem ástandið i húsnæðismálum
læknadeildar sé að hluta sök
hennar sjálfrar og starfi af inn-
byrðis ósamkomulagi um ein-
stakar byggingar á Landspitala-
lóðinni, sem tafið hafi framgang
mála um árabil. Sé óviðurkvæmi-
legt, að deildin beiti stúdentum
fyrir sig sem vopni til þess að fá
þvi framgengt, sem hún sjálf
hefurekki borið gæfu til að leysa
vegna sundurþykkis.
Þá er það, segja lækna-
stúdentar, háskaleg ráðstöfun að
fækka læknanemum og binda
fjölda þeirra við einhverja til-
búna og órökstudda tölu samtimis
þvi, að allt er óvissu háð,
hvernig rætist úr læknaþörfinni i
landinu á komandi árum. Slikt
háttalag gæti jafnvel átt þátt i
þvi, að blómleg byggðarlög i
landinu fari i auðn sökum ófull-
nægjandi heilbrigðisbjónustu, en
Framhald á bls. 23
Hallveig Fróðadóttir liggur nú við
Ægisgarð í Iteykjavikurhöfn, og biður eftir nýjum eigendum.
(Tlmamynd: Róbert)
Hallveig auglýst til sölu
SKIP verða gömul og úrelt
og önnur ný koma i þeirra
stað. Al drei hefur þessi
endurnýjun verið örari en í
dag, þegar hver nýr skut-
togarinn kemur á fætur
öðrum, nýtízkuleg og glæsi-
leg skip. Gömlu togararnir
eru ýmist seldir úr landi og
þá oftast til niðurrifs, eða
seldir innlendum aðilum,
sem gera þá upp og jafnvel
breyta þeim til annars
konar veiða en þeim var
ætlað í upphafi. Hinn 25 ára
gamli síðutogari Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur,
Hallveig Fróðadóttir, hefur
nú verið auglýstur til sölu,
en skipið var smiðað árið
1948.
Hallveig Fróðadóttir er ný-
komin úr sölutúr til Þýzkalands,
en var auglýst til sölu i þessari
viku. Er blaðið hafði samband við
Þorstein Arnalds, sagði hann, að
ekki væri enn komið tilboð i skipið
og væri það eðlilegt, þar sem svo
stutt er siðan skipið var auglýst.
Þorsteinn sagði, að reynt yrði að
selja skipið innlendum aðilum,
með það i huga að skipið yröi
áfram i notkun. Vonuðust menn
til að einhver vildi kaupa það til
áframhaldandi notkunar t.d. að
þvi yrði breytt i loðnuskip.
Ekki vildi Þorsteinn gefa
neinar upplýsingar um ástand
skipsins, en sagði að þeir hjá
B.Ú.R. vildu að væntanlegir
kaupendur kæmu sjálfir og
kynntu sér ástand þess. Bæjarút-
gerðin á tvo aðra gamla siðutog-
ara þ.e. Hjörleif og Þormóð goða.
Þorsteinn sagði, að ekki heföi
enn komið alvarlega til tals, að
B.Ú.It. færi að gera út á annað en
togveiðar, t.d. að breyta skipum
Framhald á bls. 23
ttOTCL UOFTLÐOfí
SUNDLAUGIN
er eitt at mörgu, sem ,,Hótel Loftleiöir''
hefur til sins ágætis og umfram önnur
hótel hérlendis. En þaó býöur llka afnot
af gufubaöstofu auk snyrti-, hérgreiðslu-
og rakarastofu.
VISID VINUM . A HOTEL
LOFTLEIÐIR.
450 læknanemar gera
fall í dag og á morgun
Heilbrigðisþjónustan og menntun lækna í veði, segja þeir
Loftskeyta
stöðin í
Gufunesi
verður að
þoka
um set
OKKUIt hefur fundizt loft-
skeytastöðin i (iufuncsi vera
nokkuð afsiðis, þar scm hún
var sclt niður á sinum tima,
fjarri iillu skarkalasömu
umhverfi. En allt er breyt-
ingum undirorpið, og nú er
nálægð mannvirkja og tækja
farin að bafa truflandi áhrif
á rekstur hcnnar. Auk þess
er Rcykjavikurhorg oröin
svo aökrcppt meö land, að
hún verður að fara að teygja
anga sina lengra og lengra
upp mcð Grafarvogi.
1 umræðum á borgar-
stjórnarfundi í gær vék Guð-
mundur G. Þórarinsson að
bvi. að skÍDulagsmál
Reykjavikur voru á dagskrá,
að senn ræki að þvi, að loft-
skeytastööin yrði að vikja,
og seinna i umræðunum
staðfesti Birgir Isleifur
Gunnarsson borgarstjóri
þetta.
Þessi mál munu þegar
hafa verið rædd við póst- og
simamálastjórnina, sem nú
verður að fara að svipast um
eftir nýjum slað, sem hentar
loftskeytastöðinni.
Eins og gefur að skilja
mun verða kostnaðarfrek
framkvæmd að reiga nýja
loftskeytastöð og rifa Gufu-
nesstöðina. En það virðist
sem sagt eitt af þvi, sem ekki
verður komizt hjá að gera,
áður en mjög mörg ár liða.
Bandarískur lögfræðingur í lagadeild Hóskóla íslands:
Hafi verið hróflað við segulbönd-
unum, verður forsetinn að fara fró
í GÆR flutti bandariski lög-
fræðingurinn Kopp fyrirlestur
fyrir laganema við Háskóla
islands, og fjallaði fyrir-
lesturinn m.a. um lögfræðileg
vandamál i sambandi við
Watergatemálið.
Eftir fyrirlesturinn svaraði
hann fyrirspurnum, og var
hann m.a. spurður, um, hvaða
trygging væri fyrir þvi, að
ekki hafi verið hróflað við
segulböndum með einkavið-
ræðum forsetans við ráðgjafa
sina varðandi Watergate-
málið, Svaraði Lög-
fræðingurinn, að engin
trygging væri fyrir sliku, en
menn yrðu að taka orð forseta
Bandarikjanna trúanleg.
I öðru lagi var hann spurður
um hvað skeði, ef i ljós kæmi
að átt hefði verið við böndin
og þau rangfærð. Þvi svaraði
Knopp til, að þá yrði forsetinn
að segja af sér, eða að öðrum
kosti mundi þingið samþykkja
að svipta hann embætti, þar
sem hann hefði fyrirgert þvi
trausti, sem til forseta er
krafizt.
Rétt er að taka fram, að
Kopp var ekki búinn að frétta
um siðustu atburði i sambandi
við segulböndin, það er að
segja, að tvö segulbandanna
væru sögð glötuð og yrðu ekki
afhent enda þótt forsetinn
væri áður búinn að iofa þvi, að
svo yrði gert.
Lögfræðingurinn kom
hingað i boði lagadeildar Há-
skóla tslands fyrir milligöngu
upplýsingaþjónustu Banda-
rikjanna.