Tíminn - 02.11.1973, Blaðsíða 11

Tíminn - 02.11.1973, Blaðsíða 11
Föstudagur 2. nóvember 1973 TÍMINN 11 (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusími 12323 — aug- lýsingasími 19523. Askriftagjald 360 kr. á mánuði innan lands, i lausasölu 22 kr. eintakið. Blaðaprent h.f. Ný jarðalög Halldór E. Sigurðsson landbúnaðarráðherra hefur lagt fram stórnarfrumvarp á Alþingi til jarðalaga. Tilgangur laganna er að tryggja, að nýting lands utan skipulagðra þéttbýlissvæða sé eðli- leg og hagkvæm frá þjóðhagslegu sjónarmiði og að eignaráð á landi og búseta á jörðum sé i samræmi við hagsmuni sveitarfélaga og þeirra, sem landbúnað stunda. Eins og kunnugt er, hefur þessi mál borið hátt i umræðum hér á landi á undanförnum árum, enda hefur það færzt i vöxt, að bújarðir séu keyptar háu verði vegna laxveiðihlunninda, og þar sem góð aðstaða er til að setja niður sumarbústaði. Verð slikra jarða er þegar orðið svo hátt, að sjaldnast er viðráðanlegt fyrir bændur að kaupa þær, og reynist oft fullerfitt fyrir sveitarfélög, þótt þau eigi lögboðinn forkaups- rétt. Afleiðingin hefur þvi orðið sú, að margar kostarikar bújarðir hafa verið skákaðar niður, en það hefur heft eðlilegan búrekstur, og á mörgum hefur föst búseta lagzt niður. Allir viðurkenna nauðsyn þess, að þéttbýlis- fólk eigi kost á þvi að fá landspildur til ræktun- ar og útivistar og til að reisa sumardvalarhús. Reynslan sýnir, að brýn þörf er á að fylgjast með slikri ráðstöfun lands og hafa áhrif á, hvar og hvernig landi er ráðstafað á þann hátt. Að öðrum kosti vofir yfir stórfelld röskun á bú- setuaðstöðu fólks á dreifbýlissvæðum umfram það, sem þegar er orðið, og óeðlileg verðhækk- un lands. Hinum nýju jarðalögum er ætlað að veita byggðarlögunum meira áhrifavald i þessum efnum, styrkja aðstöðu bænda, bændaefna og sveitarfélaga til jarðakaupa, skapa aðstöðu til að fylgjast með öllum ráðstöfunum fasteigna og fasteignaréttinda utan skipulagðra þétt- býlissvæða og hafa áhrif á verðlag þeirra. Árásum verður svarað í fréttatilkynningu frá framkvæmdanefnd svonefndrar Möðruvallahreyfingar, sem Þjóð- viljinn birti i gær, er látið að þvi liggja, að sá ritstjóri, sem skrifaði leiðara Timans sl. mið- vikudag, þar sem mótmælt var rógi þeim um Framsóknarflokkinn og forystumenn hans, sem fram kemur i bréfi framkvæmdanefndar Möðruvallahreyfingar, sé einn um þá skoðun og afstöðu. Þessi óskhyggja framkvæmda- nefndarmanna Möðruvallahreyfingar er dæmi um þá pólitisku blindu, sem þessir menn virðast haldnir. í bréfinu segir, að þeir sem ráða raunverulegri forystu Framsóknar- flokksins liti á byggðastefnu sem loforða- glamur, hlúi að varasamri gróðamyndun og fjármálaspekúlasjónum, vilji tengja Island við erlent herveldi sem lengst, og fleira af sliku tagi. Framkvæmdanefndarmenn Möðruvalla- hreyfingar mega vita það, að það er sameigin- legt álit beggja stjórnmálaritstjóra blaðsins og Ólafs Jóhannessonar, forsætisráðherra, for- manns Framsóknarflokksins, að i bréfinu sé árás á flokksstjórn Framsóknarflokksins og trúnaðarmenn hans, sem ekki megi láta ómót- mælt. Slikum árásum mun Timinn mótmæla, hvaðan sem þær koma og hverjir, sem i hlut eiga. -TK Charles W. Yost: Ekki má glata því, sem áunnizt hefur Hvorugur aðilinn getur krafizt þjóðfélagslegra breytinga Brézjnpf <>g Nixon Charles W. Yost, seni um skeiö var sendiherra Bandarikjanna hjá Saniein- uðu þjóöunum, liefur nýlega birt i The Christian Science Monitor tvær greinar, sem hann nefnir: Ar Evrópu. t fyrri greininni ræöir hann einkum viðræöurnar milli austurs og vesturs, en f siö- ari greininni um samskipti Bandarikjanna, Vestur- Evrópu og Japans. ARIÐ 1973 átti að vera ,,ár Evrópu”. öhætt mun þó að segja, að þetta ,,ár Evrópu” hafi ekki byrjað i alvöru fyrr en i september, og muni þá vara næsta ár. Með orðunum ,,ár Evrópu” (sem Japan var stundum skeytt við sem eins konar neðanmálsathugasemd) átti rikisstjórn Nixons við, að þá væri ætlunin að rétta stefnu Bandarikjamanna nokkuð til hæfis bandamönnum þeirra i Evrópu, en þeim þótti mörg- um hverjurp,sem stefnan hefði sveigzt nokkuð vegna kapps- ins, sem Bandaríkjamenn lögðu á að bæta sambúðina við Sovétmenn og Kinverja. Stefnuréttingin átti einkum að koma fram i tvennu: Ann- ars vegar er sameiginleg við- leitni risaveldanna beggja til bættrar sambúðar, bæði með aðild sinni að öryggismála- ráðstefnu Evrópu og gagn- kvæmum samningum um minnkun fastahers i Mið- Evrópu. Hins vegar er alþjóð- leg viðskiptaaukning og breyt- ingar og úrbætur i peninga- málum, sem eiga að verða öll- um til ávinnings. Frá sjónar- hóli Bandarikjamanna er þó aðalatriðið að koma i veg fyrir árekstra við bandamenn i Evrópu og Japan. ÞETTA hefir allt verið undirbúið af kappi um alllangt skeið, en það var ekki fyrr en i september, sem tekið var til við hin alvarlegri störfin. Nefndir öryggismálaráðstefn- unnar komu þá saman i Genf til þess að reka saman samn- inga, og að þvi starfi verða þær að minnsta kosti i sex mánuði. Nú i október hefjast i Vin samningaviðræður um minnkun herafla, en þar er jafnvel við enn erfiðari og margslungnari vanda að eiga. Á fundi i Kaupmannahöfn i september komu leiötogar Efnahagsbandalags Evrópu sér fyrst saman um megin- stefnu i hinum ýmsu málum. Talsmaður þeirra, utanrikis- ráðherra Dana, og utanrikis- ráðherra Bandarikjanna hitt- ust svo i New York til þess að bera saman bækur sinar um hana og athuga, hvort nægi- lega litið bæri á milli til þess að rétt teldist, að Bandarikja- forseti legði leið sina til Evrópu fyrir áramót á eins konar toppfund þar. Mig hefir lengi grunað, að varla hentaði öllum hlutaðeig- endum, og ekki fremur Nixon forseta en öðrum, að hraða sér svo mjög i þessum efnum, enda verður ekki komið auga á neina knýjandi nauðsyn til þess. Miklar likur eru á, að sameiginlegar yfirlýsingar, sem áformað er að Vestur- veldin gangi frá i stað Atlants- hafssáttmálans nýja, og eins þær sameiginlegu yfirlýsingar Vesturveldanna og Austur- veldanna, sem vænzt er að verði á öryggismálaráðstefn- unni, verði öllu fremur i ætt við loftið en hið fasta efni. Þetta má sem bezt biða til næsta árs. Samskipti Banda- rikjamanna og Evrópumanna og vandamál Evrópu eru svo nátengd, að sérhvert ár hlýtur að verða ,,ár Evrópu” að verulegu leyti. EITT atriði, sem snertir þessi mál öll, er ákaflega við- kvæmt, og timinn skiptir þar einmitt meginmáli. Þarna á ég við sjálft loftslag hinnar bættu sambúðar, bæði bættrar sambúðar Bandarikjamanna og Sovétmanna og bættrar sambúðar Austurveldanna og Vesturveldanna innan Evrópu. Munurinn er þarna svo mikill og áberandi, bæði á félagsmálakerfunum og menningunni sjálfri, að sá sambúðarbati, sem þegar er á orðinn, gengur kraftaverki næst Framtið sambúðarbatans er ákaflega tvisýn, enda er hann i eðli sinu andstæður brýnum hagsmunum á báðar hliðar og máttugum öflum þvert um geð. Vert er i þessu sambandi að minnast þess, sem gerðist fyrir þrettán árum, þegar þeir Krústjeff og Eisenhower lögðu sig alla fram um að bæta sam- búðina. Litið atvik, U-2 málið, gerði þá viðleitni að engu á svipstundu. Nú stafar sam- búðarbatanum einna mest hætta af tvennu: illri meöferð Sovétmanna á minnihlutahóp- um og eðlilegum, en engu að siður dálitið barnalegum, við- brögðum vestrænna manna við þessari meðferð. GAT nokkur gert sér vonir um i alvöru, að stjórnar- herrarnir i Kreml ætluðu að aðhyllast lýðræðislegt frelsi árið 1973 eða 1974 til endur- gjalds fyrir aukin viðskipti og afvopnunarsamninga, sem hvort tveggja er engu siður i þágu vestrænna manna en austrænna? Reynslan af slik- um samningum kann að hafa sin áhrif, þegar fram iiða stundir, og öryggisráöstefnan kann að þoka hurð frá staf og opna ofurlitla glufu til sam- skipta. Þetta tvennt kann að draga slagbrandana frá hurð- um sovézka samfélagsins smátt og smátt. Tilraun til að opna það með afli i einu vet- langi yrði sennilega til þess eins, að hurðinni yrði skellt á hið vestræna nef, samningar um afvopnun og viðskipti færu lorgörðum og minnihluta- hóparnr yrðu enn harðar leiknir en áður. Játa verður, að Bandarikja- menn eru dálitið hlutdrægir, þegar þeir fordæma syndir Sovétmanna, en umbera eigin syndir með þolinmæði. Setjum svo sem snöggvast, að Sovét- menn lýstu yfir, að daglegur skammtur af ofbeldi i banda- risku sjónvarpi auki svo á árásarhneigð Bandarikja- manna, að þeir treystist ekki til aö semja við þá um frek ari takmarkanir vigbúnaðar fyrr en að búið er að setja of- beldissýningunum viðhlitandi skorður. Hvernig brygðust Bandarikjamenn við slikri yfirlýsingu? ÉG dreg þetta dæmi fram i þessu sambandi vegna þess, að bætt sambúð og samvinna Austurveldanna og Vestur- veldanna að vissu marki er sá grunnur, sem sérhvert nýtt ,,ár Evrópu” verður að risa upp af. Að öðrum kosti bæri árið 1974 þvi sem næst sama stjórnmálablæ og 1954 eða 1964. Vestrænir menn ættu fyrir alla muni að krefjast þess, að sérhver eftirgjöf af þeirra hálfu i hermálum, efnahags- málum, menningarmálum, eða hvaða málaflokki sem er, sé endurgoldin með sams konar eftirgjöf af hálfu Sovétmanna. En hvorugur aðilinn getur gert sér vonir um að koma fram grundvallarbreytingum á samfélagi hins i einni svip- an. Það tekur langan tima og kostar mikla þolinmæði. Setja ber ofar öllu, á ári Evrópu”, að halda þvi, sem þegar hefir áunnizt. Það er unnt að gera, og unnt ætti að reynast að nálgast enn áþreifanlegri árangur á þess- um áttunda áratug aldar- innar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.