Tíminn - 02.11.1973, Síða 21
Fðstudagur 2. nóvember 1973
TÍMINN
21
VÍKINGSLIÐIÐ í
ÖLDUDAL...
— liðið er að reyna að leika kerfisbundinn
sóknarleik, sem það ræður ekki við
VÍKINGSLIÐIÐ er i
öldudul um þessar
mundir, það sást greini-
lega þegar það lék gegn
Þrótti á miðvikudags-
kvöldið. Liðið leikur allt
öðru visi handknattleik,
heldur en það lék i fyrra.
Nú er það farið að reyna
að leika kerfisbundinn
handknattleik, sem leik-
mennirnir ráða ekki við.
Það er ekki gott að
kenna gömlum hundi að
sitja, hefur verið sagt.
Það er svipað með Vik-
ingsliðið, það þýðir litið
að láta það fara að leika
kerfisbundinn hand-
knattleik núna, þegar
leikmenn liðsins eru
uppaldir við að leika
frjálsan handknattleik.
Víkingsliöiö er bezt þegar leik-
mennirnir fá að leika frjálst og
finna sjálfir út, hvenær þeir
mega brjótast i gegnum varnir
andstæöinganna, meö langskot-
um, gegnumbrotum eöa linuspili.
Guöión Magnússon lék aftur meö
Vikingsliöinu gegn Þrótti og vakti
þaö nokkra athygli, aö hann var
settur inn á linu i fyrri hálfleik.
Það fór litiö fyrir honum þar,
þaö var ekki fyrr en undir lok
leiksins, aö maöur fór aö kannast
viö Guöjón. Þá var hann kominn i
sina gömlu stööu og skoraði þá
þrjú góð mörk með langskotum.
Varnarleikurinn er höfuðverk-
urinn hjá Viking. Karl Benedikts-
son, þjálfari liösins, má beita sér
meira aö þvi aö styrkja vörn liös-
ins og láta sóknarleikinn eiga sig
um tima. Að eyða tima i að kenna
Vikingsliöinu aö leika sóknarleik,
er algjörlega á kostnaö varnar-
innar. Þaö er ekki nóg, aö Vik-
ingsliðið sé lélegt i vörn, heldur er
þetta fyrrum skemmtilega sókn-
arliö, fariö aö leika bragðdaufan
sóknarleik, sem áhangendur liös-
ins eiga erfitt meö að sætta sig
við.
Leik Vikings og Þróttar lauk
með sigri Vikings 21:13, — sigur,
sem Vikingar geta ekki hrópað
húrra fyrir. Úrslitin heföu veriö
önnur, ef Þorsteinn Björnsson,
markvörður og Halldór Bragason
heföu leikið með Þrótti á mið-
vikudagskvöldiö.
JÓN SIGURÐSSON....sést hér
stökkva inn í vitateig Þróttar og
skora.
(Timamynd Róbert)
Trimm-
fundur
í KVÖLD kl. 21.00 efnir
tþróttakennarafélag tslands
til almenns fundar um
„trimm’’ i Norræna húsinu.
Frummælendur vcröa þeir
Siguröur Magnússon, út-
breiöslustjóri KSt og Sigurdór
Sigurdórsson, iþróttafréttarit-
ari. Aö loknum ræöum frum-
mælcnda veröa almennar
umræöur um „trimm” og
einnig verður fyrirspurnum
svarað.
OLAFUR TYNDI
AUGNALINSU
STÖDVA þurfti leik Vals og Fram íleik Vals og Fram f fimm minút-
ur þegar þeir Björgvin Björgvinsson og ólafur Benediktsson mark-
vöröur úr Vai rákust saman um miðjan siöari hálfleik. Ólafur missti
augnlinsu út úr auganu og tók nokkurn tima tii aö finna hana. Altir
leikmenn Vals og dómarar leiksins ieituöu aö linsunni, sem Björn
Kristjánsson, dómari fann aö lokum. Hér á myndinni, sem Róbert
ljósmyndari tók, reynir Hermann Gunnarsson, aö setja linsuna i
auga Ólafs. Sigurbergur Sigsteinsson, lengst til vinstri, horfir á aö-
ferðir Hermanns.
Skrílslæti í Höllinni
t LEIK Fram og Vals i Reykjavikurmótinu bar mikiö á skrilslátum barna og unglinga. Sérstaklega I
siöari hálfleik, þegar spennan var mest. Þá var mikiö kastaö af klósettpappir inn á völlinn og þurfti oft
aö stööva leikinn þess vegna. Hér á myndinni, sem Róbert ljósmyndari tók, sést Björn Kristjánsson
dómari ganga meö eina rúlluna út af leikvelli. Um tima voru dómararnir aöallega I þvi, aö tina upp rúll-
ur af gólfinu.
ILEIKUR JON |
ÍEKKI MEÐ VÍK |
llNG í VETUR? I
Hann e
ha
1
r nú staddur út í Sviþjóð, þar ^
nn stundar nóm oq vinnu b
sem
\V JÓN Hjaltalin, handknatt-
§8 leiksmaöur úr Vikingi, mun
VV ekki leika meö Vikingsliöinu I
Sv bráö. Hann er nú staddur út i
S\S Sviþjóö viö nám og vinnu. Jón
«S fór beint til Sviþjóöar frá
SNS Italiu, þar sem liann var meö
s\S landsliöinu. Ekki er enn
ákveöiö, hvort Jón kemur
!SS heim i vetur — allt bendir til
þess, aö hann muni fara aö
Sx vinna i Sviþjóö, eftir aö hann
I
°9
vel hér heima, þegar hann §§
mun dvaldisl hér i haust. — SOS. S§
hefur lokiö námi um áramót-
in. Ilonum likaöi ekki allt of