Tíminn - 02.11.1973, Side 23
TÍMINN
23
Föstudagur 2. nóvember 1973
© Hannes
ræðis og þingræðis og þar meö
stuðla að frelsi, jafnrétti og
öryggi borgaranna innan ramma
lögbundins skipulags. Hann vill
beita sér fyrir öflugri byggða-
stefnu sem tryggi blómlega
byggð i öllu landinu, dreifingu
rikisvaldsins og efnahagslega
valdsins. Til þess aö stuöla aö
hagvexti, framleiöni, fram-
leiðsluaukningu og alhliöa fram-
förum lands og lýös, vill hann
koma á samvinnuhagkerfi á ts-
landi. Jafnframt þvi vill hann
stuðla að stoínun velferöarþjóö-
félags, félagslegu öryggi, réttlæti
og aukinni menningu I landinu.
Hann telur mikilvægt að sætta
striðandi andstæður og hags-
munahópa og leita jafnvægis I
efnahags- og stjórnmálum.
Þau megingildi, sem felast i
þessu oröalagi á kjarnanum i
gildakerfi Framsóknarflokksins,
mætti setja eitthvaö öðru visi
fram án þess að túlkunarmögu-
leikar þeirra breyttust að nokkru
verulegu leyti. En sérhver sönn
framsetning á honum, og i sam-
ræmi við stefnuyfirlýsingar
flokksins og starf i nærri 60 ár,
mundi i öllum meginatriðum vera
i samræmi við þetta.
Framsókn til hvers?
En spyrjum nú: Til hvers þessi
langtimamarkmið Framsóknar-
flokksins? Til hvers þetta gilda-
kerfi, og fyrir hvern?
Þessum spurningum svaraði
Hermann Jónasson, fyrrverandi
forsætisráöherra og formaður
Framsóknarflokksins, i raun og
veru fyrir okkur á stofnfundi
Sambands ungra Framsóknar-
manna að Laugarvatni 11. júni
árið 1938. Hann sagði, að til þess
að lifið verði einstaklingunum
þolanlegt, þurfi þeir að lifa i
félagi hver við annan. ,,Og fyrir
þessu samfélagi, sem við köllum
þjóðfélag, erum við stöðugt að
reyna að finna betri form og regl-
ur”, sagði Hermann Jónasson.
„Við vitum ýmisiegt, sem er
nauðsynlegt til þess að þjóð-
félagið sé traust og einstakling-
arnir hæfir. Við vitum m.a. að
þjóðfélagið getur þvi aöeins verið
heilbrigt og traust, að einstakl-
ingar þess séu ábyrgir og hæfir”.
Með öðrum orðum, þaö sem
Hermann Jónasson benti rétti-
lega á að væri varanlegt verkefni
Framsóknarmanna er, að við
stefnum ekki aðeins að þjóð-
félagsumbótum, heldur viljum
við jafnframt stuðla að mannbót-
um.þ.e. að byggja upp heilbrigt
og traust þjóðfélag með ábyrg-
um, hæfum og hamingjusömum
þegnum. Þetta er i raun og veru
það, sem gildakerfi og langtima-
markmið Framsóknarflokksins
miða að. Við þetta miðast hin
þjóðfélagslega afstaða Fram-
KAUPFÉLAG
VOPNFIRÐINGA
sóknarmanna, og með þetta og
langtimamarkmið flokksins i
huga eru stefnuyfirlýsingar
flokksins i dægurmálum gefnar út
á hverju flokksþingi.
Heilbrigt félagslegt siögæði
Framsóknarmanna boðar okkur
hollustu við þetta meginmark-
mið, við gildakerfi Framsóknar-
stefnunnar og langtimamarkmið,
erfðavenju og þjóðfélagslega af-
stöðu Framsóknarflokksins.
Jákvætt uppbyggilegt starf á
þeim grundvelli ætti að vera öll-
um Framsóknarmönnum ljúft.
Jafnframt boðar heilbrigt félags-
legt siðgæði okkur að slá skjald-
borg um forystumenn okkar og
tilveru og vaxtarmátt flokksins
sem fastmótað, leiðandi stjórn-
málaafl. Það boðar okkur enn-
fremur aö snúast til varnar
hvenærsem hópar tækifærissinna
efnatil neikvæðrar niðurrifsstarf-
semi meö félagslegum ber-
serksgangi á grundvelli mál-
efnalegra sápukúlna. En umfram
allt boöar það okkur jákvætt og
uppbyggilegt starf i málefna-
baráttu og framfarasókn flokks-
ins til hags og heilla fyrir land og
lýð.
0 Alþingi
bæjarins og rekstur. Okkur var
svarað, að ákvörðun um staðar-
val yrði ekki tekin að sinni og
Alþingf yrði að taka ákvöröun um
fjárframlag.
Ekki er hægt að rekja hér allan
ganga málsins. Forsætisráðherra
fær það til athugunar. Er málinu
visað til aögeröa þjóðhátiðar-
nefndar Arnsesýslu 14. mars 1972.
Nefndin bregður skjótt við og
boðar til fundar með þjóðhátiðar-
nefnd 1974 og nokkrum aðilum
innan héraðs hinn 30. mars 1972.
Þar var m .a. ákveðið að láta gera
áætlun um kostnað. Var hún gerð
af hinum færustu mönnum og
mjög nákvæmlega og vandlega.
Bauðst þjóðhátiðarnefnd Arnes-
sýslu til þess aö sjá um 6 millj. kr.
til byggingarinnar og rekstur að
verulegu leyti.
Einhverjum mun hafa vaxið i
augum kostnaður við þetta
mannvirki. En hér var allt tekið
með: vegagerð til bæjarins, full-
komin hreinlætisaðstaða, og allur
frágangur umhverfis.
Þess skal og getið hér, að tilboð
mun hafa borist um mjög mikil-
vægan stuðning við þetta fyrir-
tæki erlendis frá og tæknilega
aðstoð. Er hér átt við Norðmenn,
sem rennur hér blóðið til skyld-
unnar, og eru þeir þaulreyndir i
þessum efnum. Varla er þar i
landi byggö án fornminja, sem
vegleg rækt er lögð við”.
Þjóðhátiðarnefnd Árnessýslu
sendi þjóðhátiðarnefnd 1974 svo-
hljóðandi bréf, dags, 21. október
1972:
,Á fundi sinum á Selfossi
laugardaginn 21. okt. samþykkti
þjóðhátiðarnefnd Árnessýslu að
taka að sér byggingu sögualdar-
bæjar i Þjórsárdal.
Nefndinbýðst til að annast alla
framkvæmd verksins og
ábyrgjast greiðslu allt að 6, millj.
af áætluðum kostnaði.
Jafnframt tekur nefndin að sér
að annast gæslu og umsjón með
þessum mannvirkjum aö veru-
legu leyti eftir nánara samkomu-
lagi.
Væntir þjóðhátiðarnefnd Arnes-
sýslu, að þjóðhátiðarnefnd 1974
taki afstöðu til þessa tilboðs hið
fyrsta og afgreiði það til forsætis-
ráðherra.
Viröingarfyllst,
þjóðhátiðarnefnd Árnessýslu
Eirikur Eiriksson,
Jóhannes Sigmundsson,
Hafsteinn Þorvaldsson”.
Stórhug Arnesinga og virö-
ingarverðan áhuga ber að taka
með þakklæti. Liklegt er, að
frjáls framlög vegna kostnaður
við sögualdarbæinn komi viöar að
en frá Árnesingum. Þaö fjár-
magn, sem vantar til þess að
byggja bæinn^verður aö koma frá
rikinu. Það er á valdi Alþingis aö
ákveða það, og þess vegna er
þessi þáitill. flutt.
0 Hallveig
sinum sjálfir og fara á loðnu-
veiðar, kolmunnaveiöar og þess
háttar, en þaö væri aö sjálfsögöu
möguleiki.
Nú er bara að biða og sjá hvort
einhverjir Islendingar vilja
kaupa skipið til áframhaldandi
notkunar, eða hvort skipið verður
selt úr landi til niðurrifs. —hs—
0 Á víðavangi
gera". „1 næstum heilt ár hafa
50 milurnar verið nafnið tómt,
bókstafur á pappir". (Þeir
mega trútt um tala,
mennirnir, sem á 12 ára
óslitnum valdaferli unnu það
sér til ágætis að binda
íslendinga á brezkan klafa
með landhelgissamningum
1961).
Jafnvel eldgosið i Heimaey
var notað till rógsiðju: „Það
var einkar óviðkunnanlegt að
sjá eidgosið notað sem hald-
reipi þegar á öðruin degi og
lesa feginleikann á inilli grát-
bólginna Hnanna". „Þá átti að
nota eldglæringarnar þar til
að breiða yfir efnahagsleg
afglöp þessarar rikis-
stjórnar".
i þokkabót er svo ríkis-
stjórnin bæði heimsk og
illgjörn: „Kjánaskapurinn
keyrir úr hófi fram". „Enginn
gerir ráð fyrir þvi, að rikis-
stjórnin komi nieð skynsam-
legar tillögur". Káðherrarnir
iiafa hvorki vit né þrek til að
ræða við Willy Brandt”. „öll
er stjórn þeirra mála þannig,
að gengur vitfirringu næst”.
Forsætisráðherra hefur
„staðið að mestu svivirðingu,
sem þingræðinu hefur verið
sýnd á íslandi".
Svona mætti lialda áfram
endalaust. Hér er siður en svo
um að ræða nokkra allsherjar
úttekt á stjóriiarandstöðunni.
Kn þessar ivitnanir f ilialds-
blöðin, leknar af handahófi,
gefa nokkra hugmynd um
hversu „liörð”, „málefnaleg"
og „ábyrg” sú stjórnarand-
staða er, scm telur sér be/.t
hæfa að beita þvilikum
vopnum.
Öllum rikisstjórnuni eru
mislagðar hendur. Heiðarleg
stjórnarandstaða hefur veiga-
miklu hlutvcrki að gegna f lýð-
ræðisriki. Hún veitir aðliald,
varar við, bendir á heppileg
úrræði, cf henni þykir á
bresta. Stjórnarandstaða, sem
hefur róg að uppistöðu en
ósannindi og blekkingar að
ivafi i sínum pólitiska vef, er
hins vegar naumast likleg til
góðra verka.
ihaldi og krötum kann að
vera nokkur vorkunn. Eftir 12
ára samfellda svefngöngu
vakna þeir allt I einu upp með
andfælum, ringlaðir og ráð-
þrota. Hvílik umskipti. Þeir
fyllast öfund f garð þcirra
nianna, scm breyta svefni i
vöku, atvinnuleysi f athafna-
lif, vörn i sókn á hverju sviði.
Öfundin og örvæntingin brý/.t
út i hrópyrðum, i fálmi og
fumi, i máttvana neyðarópi:
„Niður með rfkisstjórnina! ”
Þetta er hinn „ferski tónn”.
—TK
0 Læknanemar
margt bendir nú einmitt til þess,
að svo muni fara. Hlýtur það að
teljast mikil fyrirmunun að ýta
undir slikt i stað þess að sporna
gegn þvi eftir megni.
1 framhaldi af þessu gera
læknanemar þær kröfur, að þegar
verði hafizt handa um hönnun og
byggingu kennsluhúsnæðis á lóð
Landspitalans, og samhliða verði
deildinni séð fyrir bráðabirgða-
húsnæði þar til framtiðarbygg-
ingarnar komast i gagnið. Þar aö
auki er þess krafizt, að kennslu-
aðstaða á Borgarspitalanum og
St. Jósefsspitala veröi nýtt og
gerðar nauðsynlegar umbætur til
þess, að svo megi verða.
— Lausn þessara vandkvæða,
sem hér hafa veriö rakin, eru for-
senda þess, að kleift verði að
mennta lækna i landinu nú og um
ófyrirsjáanlega framtið, segja
læknanemarnir.
Löngumýrar-
skóli í þrjátíu ár
NÆSTKOMANDI vor hefur Hús-
mæðaskólinn á Löngumýri verið
starfræktur i 30 ár.
Eftir næstu áramót hefjast aö
vanda hin vinsælu og hagnýtu 5
mánaða námskeið i sambandi viö
húsmæöraskólann á Löngumýri.
Þar verður m.a. kenndur sauma-
skapur, hannyrðir, vefnaður og
matargerð.
liiiiimiii
Félagsmálaskóli
Framsóknarflokksins
Næsti fundur i Félagsmálaskólanum verður laugardaginn 3.
nóvember kl. 15. — önnur málfundaræfing. Sjálfvalið efni,
samkv. 2. verkefni, bls. 300, Lýðræöisleg félagsstörf.
Hveragerði - Ölfus
Fundur veröur i Framsóknarfélagi Hverageröis og ölfuss
sunnudaginn 4. nóv. næstkomandikl. 16:30 á venjulegum fundar-
stað. Fundarefni: 1. Kosning fulltrúa á Kjördæmisþing. 2. Rætt
um væntanlegar sveitarstjórnarkosningar. 3. önnur mál.
Stjórnin.
Aðalfundur FUF Kópavogi
Aöalfundur FUF i Kópavogi veröur haldinn laugardaginn 3.
nóvember i Félagsheimili Kópavogs 2. hæð kl. 15. Dagskrá
fundarins: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Umræður um bæjar-
mál. Framsögu flytja Siguröur Geirdal. Pétur Einarsson og
Sigurður Einarsson. 3. Kosning fulltrúa a kjördæmisþing.
Framsóknarvist í Árnessýslu
Framsóknarfélag Arnessýslu heldur þriggja kvölda spilakeppni
i nóvember á eftirtöldum stöðum. Aratungu, föstudaginn 16.
nóvember kl. 21. Félagslundi, föstudaginn 23. nóv. kl. 21, Borg
föstudaginn 30. nóv. kl. 21. Aðalverðlaun veröa Kaupmanna-
hafnarferð fyrir tvo. Allir velkomnir.
Eftir fréttir í kvöld, föstudagskvöld, verður á dagskrá, i staö Valda-
tafls, íslenzki viðtalsþátturinn „Maöur er nefndur”. Þar ræðir Pétur
Pétursson viö Sverri Kristjánsson sagnfræðing. Þetta er alveg nýtt
viötal, 70 minútna langt, tekið á heimili Sverris. Astæða er til aö vekja
athygli fólks á þessum þætti, þar sem vænta má, aö Sverrir hafi frá
mörgu fróðlegu og skemmtilegu að segja. — Step
RÍAAUR SIGURÐAR
BREIÐFJÖRÐS
—Gunnarsrímur önnur útgáfa
SJÖTTA BINDI i rimnasafni
Sigurðar Breiöfjöðs er nú komið
út hjá Isafoldarprentsmiðju og
inniheldur það Gunnarsrimur.
Þær eru ortar veturinn 1836 eftir
áramótin. Sigurður orti þær fyrir
Kristján Magnússon, sýslumann
á Narfeyri. Fyrst átti Siguröur að
yrkja fyrir hann rimur af Sig-
mundi Brestissyni og var byrjað-
ur á þeim, en þá datt Kristjáni i
huga að fá heldur rimur af Gunn-
ari á Hliðarenda og var þá hinum
fleygt en tekið til við þessar. Mun
Sigurður hafa dvaliö aö mestu i
Stykkishólmi þennan vetur, en þó
stundum á Narfeyri. Hann var þá
póstur á norðanveröu Snæfells-
nesi og segja sumir, að póst-
ferðirnar hafi tekiö nokkuð lang-
an tima á stundum.
Gunnarsrimur eru 193 blaðsíö-
ur, Sveinbjörn Beinteinsson sá
um útgáfuna, Jóhann Briem geröi
myndirnar og Isafoldarprent-
smiðja prentaði. —SB.
tannduftið
sem gerir
tóbaks-
liíaðar
tennur
HVÍTAR