Tíminn - 15.11.1973, Blaðsíða 4

Tíminn - 15.11.1973, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Fimmtudagur 15. nóvember 1973. Maður Diönu | Dors lótinn Maus úr fangelsi Það hefur yfirleitt ekki verið hægt að segja um Diönu Dors, að hún hafi haft nokkuð á móti blaðaskrifum um sjálfa sig og sina hagi. Þó hefur það verið svo siðast liðið eitt og hálft ár, að hún hefur heldur hliðrað sér hjá þvi að tala við blaðamenn, en þennan tima hefur hún búið ein með barni sinu. Maður hennar, leikarinn, Alan að nafni, hefur nefnilega setið i fangelsi. Hann var dæmdur i fangelsi fyr- ir að beita veitingaþjón i krá einni ofbeldi. Alan var látinn laus fyrir nokkru, og þá ók Di- ana sjálf i Rolls-Royce bil sinum til fangelsisins og sótti hann. — Nú er lifið aftur orðið þess vert að lifa þvi, sagði hún i viðtali við blaðið News of the World. — Ég hef lifað i hreinasta viti. Kari- mennirnir hafa alls ekki viljað láta mig i friði, en ég hefi visað öllum á bug. Á meðan á fangelsisvist Alans stóð lenti Diana i nokkrum vandræðum með fangelsisvörðinn. Hún hafði krafizt þess, að maður hennar gæti fengið fangaklefa, þar sem þau gætu hitzt einslega, og hann sannfært sig um, að hann ætti enn eiginkonu, en fagavörðurinn hafi ekki verið fáaniegur til sliks. Bók eftir Brezjnev Bókaútgáfufyrirtæki i Dan- mörku stendur nú i samningum við Leonid Brezjnev, en hann hefur skrifað bók, sem hann nefnir Stjórnmál Sovétrikjanna. Þetta er fyrsta bók hans, og nú getur bókaútgefandinn i Dan- mörku ekki fengið Brezjnev til þess að samþykkja, að ritlaunin verði greidd honum i dönskum krónum. Hann vill ekkert nema dollara. Fótbolti vinsæll í heimabæ stjörnunnar Allir þeir, sem áhuga hafa á knattspyrnu, hafa heyrt um þýzka knattspyrnumanninn Franz Beckenbauer. Hann er fæddur i Giesing, sem er mjög fátæklegt úthverfi Munchenar. Þar leika drengirnir knatt- spyrnu á þröngum götum fátækrahverfanna og sparka af miklum áhuga. Kannski á ein- hver þessara drengja eftir að feta i fótspor knattspyrnu- stjörnunnar og vinna sér frægð og frama á knattspyrnuvellin- um i framtiðinni. j—y Yfir mýrar og tægju Verið er að leggja hina 700 kiló- metra löngu Tjúmen-Surgut- járnbrautarlinu i Vestur- Siberiu, sem liggur til auðugra oliu- og gaslinda. Fyrsti áfangi linunnar er 2222 kilómetrar og tengir Tjúmen við Tobolsk, gamla borg i Sibiriu, og hefur hann þegar verið tekinn i notk- Þetta merka verk hefur verið unnið við óvenju erfið skil- yrði. Verkamennirnir hafa orðið að fara yfir endalausar mýrar, tugi stórra og smárra fljóta og vatna og miklar tæguviðáttur. J lok fimm ára áætlunarinnar mun Tobolsk-Surgut-járn- brautarlinan verða opin fyrir járnbrautarumferð. Pillunotkun eykst í Frakklandi við vitum hve mikið er selt af henni.” Cohen-segir, að aukn- ingin sé mjög mikil, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess, á hversu skömmum tíma hún hef- ur orðið. Fyrir fimm árum voru allar getnaðarvarnir bannaðar i Frakklandi, en fyrir fjórum ár- um var fyrst fyrir alvöru farið að selja Pilluna, eftir að notkun hennar var gerð leyfileg. Nitján af hundraði franskra kvenna, sem eru i barneign,nota nú hina svokölluðu Pillu. Hefur pillunotkunin þrefaldazt undan- farin fjögur ár. Þessar tölur eru hafðar eftir dr. Jean Cohen, kvensjúkdómalækni og stofn- anda fjölskylduáætlunarstofn- unar, sem starfandi er i Frakk- landi. „Við vitum, hversu margar konur nota Pilluna,” segirdr. Cohen, „vegna þess að DENNI DÆMALAUSI Þú getur ekki notað hann i BEITL' eftir þetta, hann sem lieldur, að við séum vinir sinir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.