Tíminn - 15.11.1973, Page 5
Fimmtudagur 15. nóvember 1973.
TÍMINN
5
BAHÁÍAR GEFAÚT
KYNNINGARRIT
ÚTER KOMIN' á vegum þjóöráðs
Rhá’ia á íslandi bókin ,,Og sólin
ris’’ eftir William Sears. Bók
þessi fjallar um sögu Bahá’í-
trúarinnar fyrstu ár hennar. allt
frá þvi að hinn fyrri af tveimur
spámönnum hennar, bábinn,
kunngerði köllun sina í Persiu
1844, og þangaö til hann var liflát-
inn sex árum siðar, þritugur að
aldri.
Höfundur bókarinnar var
kunnur útvarps- og sjónvarps-
maður i Bandarikjunum, en hætti
þvi starfi og hefur siðan helgað
*
Ovenju-
leg
hljóm-
plata á
markað-
inn
BLAÐIÐ hefur fregnað að á
næstunni sé von á hljómplötu á
markaðinn, sem hlotið hefur
nafnið „Skaup 73''.
Plata þessi, sem einnig hefur
verið kölluð „partiplatan 73” er
stór plata og meðal skemmti-
krafta, sem þar koma fram eru
Guðrún A Simonar, Hrafn Páls-
son, Karl Einarsson og nokkrir
meðlimir sinfóniuhljómsveitar-
innar. Platan mun koma á mark-
aðinn um næstu mánaðarmót, að
þvi að sagt er.
sig kynningu á Báhá’i-trúnni viða
um heim. Bók sú, er nú kemur út
á islenzku, hefur verið þýdd á öll
helztu tungumál heims og er eitt
aðgengilegasta kynningarrit um
forsögu Bahá’i-trúarinnar, er völ
er á, vegna hins ljósa máls og
lipru frásagnar, sem er aðall
bókarinnar. Hún er hin fyrsta af
þremur bókum, sem fjalla um
spámenn Báhá’i-trúarinnar. Aður
hefur komið út á islenzku „Þjófur
á nóttu”, eftir sama höfund.
Sears skiptir bók sinni i nitján
kafla, sem rekja i meginatriðum
hið umbrotasama spámanns-
timabil bábsins. Þar segir frá
helztu lærisveinum hans, blóðug-
um og miskunnarlausum ofsókn-
um á hendur þeim, og að lokum
hinum einstæða fórnardauða
sjálfs frumherjans.
t viöauka og eftirmála við bók
sina segir höfundur frá spádóm-
um i helgiritum allra trúarbragða
heims, sem hann telur benda til
þeirra viðburða, sem lýst er i
bókinni.
„Og sólin ris” er 250 blaðsiður,
prentuð i prentsmiðju Jóns
Helgasonar. Káputeikningu gerði
Max Bossi. Bókin verður til sölu i
bókabúðum og hjá þjóðráði
Bahá’i á tslandi, Óðinsgötu 20.
Sýning í glugga AAálarans
Baldvin Árnason listmálari, sem meöal annars var höfundur þjóöhátiöarmyndarinnar á sögusýningu i
Menntaskólanum i Keykjavík hér á árunum, sýnir um þessar mundir myndir i glugga Málarans við
Bankastræti. Stendur sýningin fram á mánudag, og er þetta sölusýning. Vcgna þess, að ekki komast
nema þrjár myndir I gluggann I scnn, skiptir listamaðurinn um myndir annaö veifið. — Myndin, sem
hér fylgir, er af einu málverka hans.
Undirbúningur að Jökulsdrvirkjun:
Borinn skilinn efti
sé til taks að vori
nyðra
svo
hann
OLÍA hækkar sifellt i veröi, og
enginn veit, hvar sú veröhækkun
lætur staðar numið. Aður en til
þessara tiðinda dró, var þörf fyrir
aukna raforku i landinu orðin
mjög knýjandi en verðhækkunin á
oliunni hefur það i för með sér, að
sú þörf verður ennþá bráðari en
ella, bæði til iðnrekstrar og húsa-
hitunar. Rannsóknum vegna
nýrra virkjana er þvi hraöað
mjög.
— Meðal stórframkvæmda af
þessu tagi, er verið hafa mjög á
dagskrá um alllangt skeið, er
virkjun Jökulsár á Fjöllum.
— Við vorum i sumar i tvo
mánuði við jarðboranir og jarð-
fræðilegar athuganir þar nyrðra,
sagði Oddur Sigurðsson, jarð-
fræðingur hjá Orkustofnun, er við
spurðum hann um rannsóknirnar
þar. Eins og menn rekur minni til
fórum við með tæki i þyrlu mður i
Jökulsárgljúfur hjá Hafragils-
fossi, þar sem við boruðum tvær
holur. Borinn skildum við eftir
nyrðra, þegar við lélum staðar
numið i sumar, og af þvi má ráða,
aðfyrirhugað er að halda borun-
um áfram næsta sumar.
Jökulsárvirkjun sú, sem nú er
höfði í huga, er ekki bundin við
Dettifoss, hélt Oddur áfram,
heldur er ætlunin að stifla ána
ofan við Selfoss, sem er litlu ofar
en Dettifoss, og leiða vatnið eftir
skurði niður vesturbarm Jökuls-
árgljúfurs að Hafragilsfossi, þar
sem það á að steypast niður brött
göng að stöðvarhúsi við
Hafragilsfoss. Með þesum hætti
mun nýtast 140 metra fall.
Nýtt jólakort frá
Ásgrímssafni
JÓLAKORT Ásgrimssafns á
þessu ári er gert eftir vatnslita-
myndinni ÚR SKÍÐADAL. Mynd
þessa málaði Asgrimur Jónsson
árið 1951, i siðustu ferð sinni til
Norðurlands. í endurminningum
sinum segir hann m.a. um þennan
norðlenzka dal: „Skiðadalur er
einn þeirra staða, sem ég mundi
hafa kosiö að kynnast miklu fyrr,
og fegurri dal getur naumast á
þessu landi" .
Þetta nýja kort er i sömu stærð
og hin fyrri listaverkakort
safnsins, með islenzkum,
dönskum og enskum texta á
bakhiið, ásamt ljósmynd af
Asgrimi, sem ósvaldur Knudsen
tók af honum árið 1956. Mýndiðn
sá um ljósmyndun, Litróf gerði
myndamót, en Vikingsprent hf.
annaðist prentun.
Einnig hefur safnið látið
endurprenta kortið úr Fljótshlið,
en það hefur verið ófáanlegt i
nokkur ár. Nokkuð af hinum fyrri
listaverkakortum Asgrimssafns
eru enn til sölu. Verð kortanna er
mjög i hóf stillt.
Það er venja Ásgrimssafns aö
byrja snemma sölu jólakortanna
til hægðarauka fyrir þá, sem
langt þurfa að senda jóla- og
nýárskveðju, en þessar litlu eftir-
prentanir má telja góða land-
kynningu.
Eins og fyrr hefur verið frá sagt,
er ágóði kortasölunnar notaður til
greiðslu á viðgerð og hreinsun
gamalla listaverka i safninu, en
slik vinna kostar mikið fé.
Listaverkakortin eru aðeins til
sölu f Ásgrímssafni, Bergstaða-
stræti 74, og- i verzlunum
Rammagerðarinnar i Hafnar-
stræti 17 og Austurstræti 3.
Ásgrimssafn er opið sunnu-
daga, þriðjudaga og fimmtudaga
frá kl. 1,30-4.
4
Hunter De Luxe ’74:
Vandaöur og rúmgóöur. Sameinar
orku (1725ccvél) og sparneytni
(101 á 100 km). Sérlega hagstætt
verö, frá kr.408 þús.
Allt a sama Staó Laugavegi 118-Simi 22240
EGILL VILHJÁLMSSON HE