Tíminn - 16.12.1973, Blaðsíða 10

Tíminn - 16.12.1973, Blaðsíða 10
10 TÍMINN Sunnudagur ltí. desember 1973. HÁHÝSI FRAMLEIÐA L „SITT" ÓVEÐUR Nútima húsbyggingar skapa vandamál, sem engan hefur órað fyrir innan húsagerðarlistarinn- ar. Hús okkar eru byggð meðal annars út frá þeirri forsendu, að regndropar falli alltaf niður á við. En margar nýjar byggingar stuðla að þvi sjálfar að skapa undarleg tilbrigði f „náloftslagi” (nærloftslagi), þar sem náttúru- öflin verka á allt annan hátt en fólk gerir sér almennt i hugarlund Til dæmis er það að verða al- mennt vandamál, að það rignir upp á viö meðfram mörgum hús- veggjum. Þar sem allar stefnur og gluggasyllur undir gluggum, auk annars, eru miðaðar viö það, að vatn fylgi þyngdarlögmálinu, hefur þetta i mörgum tilfellum það I för meö sér, að regnvatnið þrengir sér inn i húsið ibúunum til gremju. Þelta er aðeins ein af mörgum vandræðauppSkomum i sam- bandi við smiði ibúðarblokka og háhýsa, sem spretta eins og gor- kúlur á þessum árum. Bygginga- meistarar hafa ekki tekið nægi- legt tillit til veðurfarsins. Þvi áð aðeins fáir einir hafa hugsað um, að byggingar af þessari stærð eiga sjálfar þátt i þvi að breyta loftslaginu i nánasta umhverfi. Margir hafa sjálfsagt tekið eftir þvi, að venjulega er rok niðri við grunn á háhýsum, á meðan kannski er næstum stillilogn nokkur hundruð metra i burtu. Þetta er einfaldlega vegna þess, að háhýsi skaga svo hátt upp i loftið, að þau „veiða” öflugri vinda, sem liggja i hærri loft- lögum og hvirfla þeim til jarðar. Meðfram háhýsum og stórum ibúðablokkum getur maður alltaf verið viss um að sjá hatta og ýmislegt annað á flugi, þegar húsmæðurfara i búðir eða feður- nir til vinnu sinnar. Viðskiptavinirnir fuku burt. A skýringarmyndunum sést greinilega, hvernig vindurinn brýzt móti háum húsveggnum, svo aðhluti af honum þrýstist upp að veggnum, á meðan þvi, sem eftir er af honum, slær niöur og myndar öfluga svelgi neðst við húsið. Það samband lágra og hárra bygginga, eins og sést á myndinni, skapa sérlega öfluga hvirfilvinda, sem gera það að daglegri kvöl að vera á ferli á staðnum. Aðrar rannsóknir hafa sýnt, að það getur á margan hátt haft i för með sér sálarlegt álag að búa í háhýsi, að börnin á efstu hæðunum koma sjaldan niður til þess að leika sér og svo fram- vegis. Þegar þaö kemur til, að Ibúarnir eru oft á ferli i veðurlagi, sem nánast má kalla staöbundið ofsarok, er ekki að undra, að sér- fræðingar i byggingarannsóknum séu farnir að hafa áhuga á þessum málum. En upplýsingar um loftslag það, sem hér er til umræðu, getur lika verið gagn- legt fyrir atvinnulifið. Það hefur komið i ljós, að viðskiptavinir hafa fráfælzt búöir, sem standa við þessi svelgsvæði, þó að þær væru sjálfar vel úr garði gerðar og lega þeirra benti ti 1, að við þær væri meira skipt. En viðskipta- vinirnir leituðu annað, þar sem þeir urðu ekki vindblásnir og hel- kaldir af þvi aö skreppa i búö. Við lægri byggingar geta einnig myndazt hvirfilvindar, einkum ef húsarööin er L — laga með sund á milli. Nú á timum, þegar umhverfis- málin eru mjög til umræðu, hefur þetta mál ekki svo litla þýðingu, til að mynda það atriði að hefta að ryk þyrlist upp, að ekki sé minnzt á smámuni eins og brotnar regn- hlifar og eyðilagða hárgreiðslu, sem getur þó verið nógu þreyt- andi, þegar til lengdar lætur. Verðurfræðingar sem byggingaráðgjafar. Vindgöngin eru að verða hið nýja hjálpartæki húsa- meistaranna i viðleitni þeirra til þess að skapa betra ástand hjá ibúunum. I Danmarks Tekniske Höjskole hafa i mörg ár verið notuð vindgöng til þess að rann- saka i þeim módel af nýjum byggingum, áður en þær eru reistar. Rannsóknum á þessu sviði fleygði fram árið 1956, eftir að stormur hafði valdið miklum skaða, en vindhraðinn hafði verið tiltölu- lega lágur. Skemmdir höfðu orðiö einna mestar á húsum með flöt þök. Uanr.sóknir leiddu i ljós, að undir vissum kringumstæðum getur myndazt mjög sterkur sog- kraftur á flötum húsaþökum. A siðari árum hefur það mjög farið i vöxt. að veðurfræðingar séu fengnir til ráðuneytis varð- andi nútimabyggingar. Að berja i brestina. En hvað er hægt að gera, þar sem skaðinn hefur þegar átt sér stað? Það eru reyndar viða mjög góðir möguleikar til þess að draga úr vindstyrknum, fyrst og fremst með þvi að gróðursetja tré á viðeigandi stöðum kringum ibúðablokkirnar, sem oft eru á bersvæði. Runnar og tré þjóna sem skjólveggur. og þyrping lágra húsa i kring getur gert svipað gagn, ef þau eru á réttum stað. Auk þessa kemur til greina að byggja yfir gangvegi og upp- blásin búðartorg, en það er dýrt, Þó getur slikt borgað sig. (Lausl. þýtt. S.Sr) Regndropar, sem ..falla” upp i móti, og hörkugusturá stöðum, þar sem eiginlega ætti að vera alveg logn, er eitt af þeim vandamál- um. sem byggingarannsóknarmenn hafa þurft að taka til meðferðar, eftir að menn hafa tekið eftir umhverfisþætti, sem hingaðtilhefur ekki verið gaumur gefinn: það ástand að risa- byggingar nútimans skapa oft sitt eigið ..náloftslag." DORGAR 17 ð HÚ5GÖGN hf. Fellsmúla 26 (Hreyfilshúsinu) Simi: 85944 Þrjár skýringarmyndir, sem sýna mjög vel, hvernig háhýsin skapa sitt eigið veðurfar, ef svo má aö oröi komast. Lesið nánar um myndirnar i meöfylgjandi rammagrein. Skýringarmyndirnar hér sýna niöurstöðuna af vinds velgstilraun meö byggingarmódel sem átti að útskýra, hvers vegna næstum alltaf var stormur í verzlunar- götu milli fjórtán hæöa há- hýsis og fjögurra hæöa byggingar. Venjulega kom vindurinn frá þeirri hliö, þar sem lægri húsasamstæöan var. Það sést bezt i aðaldráttum, hvaðgerðist, á teikningu nr. 1. Að sönnu gengu veg- farendurnir á verzlunar- götunni i skjóli fyrir þeim vindi, sem blés niðri við jörð, en framhlið háhýsisins stóð fyrir vindinum hærra uppi, og nokkuð af honum þrýstist niður i verzlunargötuna. Rás loftstraumsins er mörkuð nokkru greinilegar á teikningu nr. 2,og að lokum sýnir þriðja skýringarmyndin ljósmynd af vindsvelgnum, meðan á tilrauninni stóð. Með þvi að nota reykagnir hafa loftsraumirnar orðið sýnilegri á myndinni. Mælingar sýndu, að vindstyrkurinn á verst settu stöðunum á götunni, með tilliti til þessarar vindáttar, var of náfægt helmingi meiri heldur en hann hefði verið, ef byggingarnar hefðu verið fjarlægöar og fólk hefði gengið á bersvæði.Þaö er vegna þess, að vindhraðinn er beinlinis minni við yfirborð jarðar en i 25-30 metra hæð. Bólstruð hjónarúm Hjónarúm hinna vandlátu Mikið úrval áklæða. DORGAR L7H HÚ5GÖGN hf. Fellsmúla 26 (Hreyfilshúsinu) Simi: 85944

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.