Tíminn - 16.12.1973, Page 30

Tíminn - 16.12.1973, Page 30
30 TÍMINN Sunnudagur lfi. desember I9?:$. FORVITNILEG BÓK UM PÓLITÍSKA VIÐSJÁRTÍMA Á MILLI WASHINGTON OG MOSKVA MINNINGAÞÆTTIR EMILS JÓNSSONAR FYRRUM RÁÐHERRA Emil Jónsson, fyrrum ráðherra, var um ára- tugaskeið einn svipmesti stjórnmálamaður þjóðarinnar. Hann segir hér sögu sína, sem án efa er mörgum forvitnileg og vís til að vekja deilur, því alltaf stóð styrr um Emil. Hann segir frá störfum í Hafnarfirði, á Al- þingi og í ríkisstjórnum, frá kynnum af inn- lendum og erlendum ráðamönnum og fjallar ítarlega um utanríkismál, sem nú eru í brennipunkti. Það verða ekki allir sáttir með það, sem Emil Jónsson hefur að segja, en allir, sem einhver afskipti hafa af stjórnmál- um eða hafa áhuga á þeim málum, verða að eignast þessa bók og lesa, hvar í flokki sem þeir standa. Þjóðleg, fróðleg og skemmtileg. Oscar Ciausen: SÖGN 0G SAGA ll Þetta annað bindi safnritsins Sögn og saga geymir margar minnisverðar frásagnir. Hér er langur þáttur um séra Sigurð Gunnarsson á Hallormsstað, náinn vin og samherja Jóns Sigurðssonar forseta, þáttur er um fyrstu innlendu kaupmennina i Reykjavík og upphaf verzlunar f Stykkis- hólmi, langur þáttur er um Ólaf Árnason sýslumann i Barðastrandarsýslu, sem var rikur maður og dómharður og fróðlegur þáttur er um dætur og tengdasyni Skúla fógeta. Galdramannaþáttur er úr Grímsey og frásagnir eru af rikum Breiðfirðingum, auk fleiri frásagna og þátta. — Sögn og saga á því erindi við alla, sem þjóðlegum fróðleik unna. Sjófróður og skemmtileg.ur sögumaður. Ragnar Ásgelrsson: SKRUDDA II Þetta annað bindi af Skruddu hefur að geyma sögur, sagnir og kveðskap úr Húnavatns- til Rangárvallasýslu og er skemmtilegt og fróðlegt, svo sem við er að búast, þvi Ragnar var mikill smekkmaður á islenzkt mál, prýðilega ritfær og með næma eftirtekt og skarpskyggni á þjóðleg einkenni. Hann var sjófróður sögumaður, sem safnaði að sér miklu magni sagna og sérstæðra visna á ferðum sinum sem erindreki Búnaðarfélags íslands. Fyrsta bindi af Skruddu kom út i fyrra, en lokabindið kemur út á næsta ári. Þessi nýja útgáfa á Skruddu Ragnars Ásgeirssonar er stóraukin og endurbætt. Horfnir atvinnuhættir og mannlíf á Suðurlandi. Jðn Gfslason: ÚR FARVEGI ALDANNA í þessari bók kennir margra grasa: Hér er m.a. þáttur úr sögu sunnlenzkra höfuðbóla og eru þar skráðar sagnir úr Laugardalshverfi í Hraungerðishreppi i Flóa, þáttur er um árflóðið mikla i Hvitá 1889 og fróðlegur þáttur er um örnefni og horfna atvinnuhætti á Suðurlandi. Þá er hér einnig að finna valdar þjóðsögur úr safni séra Steindórs Briem, prests i Hruna, og er bókin góður viðauki við áður útgefin sagnasöfn, — kjörbók þeirra, er þjóðlegum fróðleik unna. JÓN GÍSLASON • XjrR, PARVBG-X a.lxduA.3snsr-A. Öndvegisverk í nýjum búningi. Elfnborg Lárusdóttlr: FÖRUMENN l-ll Förumenn Elinborgar verður ávallt talið eitt helzta ritverk þessarar mikilvirkju og vinsælu skáldkonu. Uppistaða sög- unnar er sveitarlifslýsing frá síðustu öld, þættir úr sögu Efra-Ás-ættarinnar, skapgerð hennar og lifsskoðanir, en inn á milli er ofið myndum úr lífi sérkennilegra förumanna er hátternis vegna og umkomuleysis urðu utanveltu vici samfélag annarra manna. Þegar Förumenn komu fyrst fyrir almenningssjónir fékk þetta mikla ritverk Elínborgar mjög lofsamleg ummæli og var skáldkonunni líkt við Selmu Lagerlöf og Sigrid Undset. ELiNBORG LÁRUSDÓTTIR ÍSLENDINGA SÖGUR MEÐ NÚTÍMA STAFSETNINGU Eina heildarútgáfa íslendinga sagna og þátta, sem prentuð hefur verið með lögboðinni nútimastafsetningu og auð- veldar því öllum að njóta bókanna til fulls. Út eru komin 8 bindi af þessari vönduðu heildarútgáfu og þar með er lokið útgáfu allra sagnanna. en á næsta ári kemur lokabindið, sem hefur að geyma nafnaskrá við sögurnar og atriðisorða- skrá, en slik skrá er alger nýlunda við útgáfu íslendinga- sagna. Eftir áramót verðum við að láta binda nýtt upplag sagnanna og þá hækkar verð þeirra. Frestið þvi ekki að kaupa þessa veglegu heildarútgáfu, en bækurnar er einnig hægt að fá með afborgunarkjörum, kr. 1.000.00 á mánuði. fSLENZKAR FORNSÖGUR Skemmtilegar mannlýsingar og skyndi- myndir af atburðum. Magnús Gestsson: ÚR vestur- BYGGÐUM BARDASTRANDARSÝSLU Sagt er frá sérstæðum og eftirminnilegum mönnum, t.d. Helga i Raknadal, Erlendi rika á Látrum, Niels Björnssyni frá Hvallátrum, Þórði Guðbjartssyni á Patreksfirði, Guð- mundi Jónssyni, með auknefnið vinnumaður, Gunnlaugi Kristóferssyni frá Brekkuvelli, Eiriki á Konungsstöðum og Jóni bónda i Breiðavik. Einnig koma við sögu Björn i Sauðlauksdal, Snæbjörn i Hergilsey og séra Þorvaldur Jakobsson. Auk þess er hér að finna óvenju kjarngóðar og magnaðar draugasögur, svo sem þær gerast svæsnastar á Vestfjörðum og frásagnir eru af álagablettum, sjóskrimsl- um og merkum draumum. — Þetta er bók, sem allir hafa gaman af að lesa. VESTUR BYGG-Ð UM BARÐASTRAN DAR - . StSLU ' gunnar m. MAGNÚSS IftMUi Úr dagbókum mannsins, sem varð kveikjan að Heimsljósi Halldórs Laxness. Gunnar M. Magnúss: ÚSAGDIR HLUTIR UM SKÁLDIÐ A ÞRÖM Áður óprentaðar og forvitnilegar frásagnir frá samtíð Magnúsar Hj. Magnússonar af persónu- legum kynnum hans af merkum mönnum og sérkennilegu fólki. Stórfróðlegir þættir um fræði- manninn Sighvat Grímsson Borgfirðing stórbónd ann Þorvald á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum, gáfumanninn Friðbert í Hraunakoti og Steindór í Botni, síðasta útilegumanninn, sem var á Vest- fjörðum, — auk margvíslegs annars efnis. Skáldið á Þröm var alþýðuskáld og sístarfandi fræðimaður, sem Halldór Laxness hefur gert ódauðlegan. SKUGGSJÁ STRANDGÖTU 31 — SÍMI 50045 — HAFNARFIRÐI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.