Tíminn - 11.05.1974, Blaðsíða 3
Laugardagur 11. mai 1974.
TÍMINN
3
Álag á út-
svör ekki
leyft
MAGNOS TORFI Ólafsson
félagsmálaráöherra hefur
ákveöið aö veita ekki
samþykki sitt til hækkunar á
útsvörum á árinu 1974 sam-
kvæmt lögum um tekju-
stofna sveitarfélaga frá
árinu 1972.
Félagsmálaráðuneytiö
sendi fjölmiðlunum fréttatil-
kynningu um þessa ákvörö-
un i gær.
Nýtt rauð
sokkublað
Hinn 1. mai þá kom út á vegum
Rauðsokkahreyfingarinnar 4.
blað af „Forvitin rauð.”
Fyrsta blaðið kom út 1. des 1972
og fjallaði um ýmis almenn atriði
varðandi uppbyggingu og starf
hreyfingarinnar. Annað blað kom
út 1. mai 1973 og i þvi var nær
eingöngu sagt frá aðstöðu og
kjörum kvenna á vinnumarkaðin-
um.
Þessi tvö fyrstu blöð munu nú
ófáanleg.
Þriðja blaðið kom út i jan. sl. og
var efni þess eingöngu helgað
fóstureyðingum.
Fjórða blaðið, er i beinu fram-
haldi af opnum umræðufundi,
sem Rauðsokkahreyfingin gekkst
fyrir i nóv. s.l. i Norræna húsinu
um fyrirvinnuhugtakið. Máls-
hefjendur á þeim fundi voru
Svava Jakobsdóttir alþm., sem
sagði frá umræðum um þessi mál
á Norðurlöndum oghugmyndum,
sem þar eru uppi og Auður Þor-
bergsdóttir, borgardómari, sem
sagði frá þvi hvernig fram-
færandasjónarmið birtist i is-
lenzkum lögum og hvernig það
lýsir sér i reynd.
í þessu blaði „Forvitin rauð” er
frásögn af fundinum, ræðum
málshefjenda og umræðum
fundarmanna. Ræða Svövu
birtist i heild i dagblaði skömmu
eftir fundinn og erindi Auðar
mun koma óstytt i 19. júni mál-
gagni Kvenréttindafélags ís-
lands. Margt annað efni er i
blaðinu.
„Forvitin rauð” er offset-
prentað hjá Offsetmyndum sf„
Mjölnisholti 14. 011 vinna við
blaðið, þar til það er tilbúið til
prentunar, er unnin i sjálfboða-
vinnu af áhugafólki um málefni
rauðsokka. Umsjón með útliti
blaðsins höfðu Edda óskarsdóttir
og Hildur Hákonardóttir. Fastir
útsölustaðir „Forvitin rauð” i
Reykjavik eru i Bókabúð Braga,
Hafnarstræti 23, Bóksölu
stúdenta, Félagsstofnuninni
v/Hringbraut og BókabúðMáls&
menningar, Laugavegi 18. Blaðið
er undanþegið söluskatti og
kostar kr. 100,00.
Veitt lausn
frá embætti
Forseti Islands hefur i dag, að
tillögu dómsmálaráðherra, veitt
Jóhanni Skaptasyni, sýslumanni i
Þingeyjarsýslu og bæjarfógeta á
Húsavik, lausn frá embætti frá 1.
júli 1974 að telja.
Jóhann Skaftason
sýslumaður.
Rækjuvinnsla í Stykkishólmi. Þótt fullkomnum vélum sé beitt eftir þvi sem unnt er, þarf ýmislegt aö
vinna með handafli.
Rækjuvinnsla með full-
komnum vélum í Hólminum
KBG-Stykkishólmi, í vetur var
hafin hér i Stykkishólmi rækju-
vinnsla meö fullkomnum vélum.
Hlutafélagið Rækjunes, sem
stofnað var i þessum tilgangi,
keypti slikar vélar frá Banda-
ríkjunum og setti þær niður i
stóra bogaskemmu, sem það tók
á leigu hjá Kaupfélagi Stykkis-
hólms. Þar hefur einnig verið
komið fyrir frystiklefum og
annari innréttingu sem þarf viö
rækjuvinnslu.
Fjórir bátar leggja upp hjá
fyrirtækinu og er afli þeirra
orðinn á milli 30-40 lestir af rækju.
Þar vinna átta konur og fjórir
karlmenn.
Aðal hvatamenn að stofnun
Rækjunes h/f voru þeir Þor-
varður Guðmundsson og Bragi
Húnfjörð.
ASÍ mótmælir breytingu launa-
samninga og skerðingu vísitölu
Timanum barst I gærkveldi
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Alþýðusambandi Islands:
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt samhljóða á Sambands-
stjórnarfundi Alþýðusambands
íslands, sem haldinn var föstu-
daginn 10. mal 1974.
Sambandsstjórnarfundur Al-
þýðusambands Islands haldinn
föstudaginn 10. r I 1974 ályktar
eftirfarandi:
Frá þvi er samningar ASÍ við
vinnuveitendur tóku gildi i lok
febrúarmánaðar s.l„ hefur ný
verðbólgualda risið i landinu með
þeim alvarlegu afleiðingum, aö
nú er svo komiö, að kauphækkun
sú.sem um var samið þeim lægst-
launuðu til handa, er að engu orð-
in.
Þessari neikvæðu þróun veldur,
ásamt erlendum verðhækkunum,
fyrst og fremst hið sjálfvirka
verðlagskerfi, þar sem m.a.
hverri hækkun launa er óðar velt
út I verðlagið og verðbólgan
þannig stigmögnuð. Rikan þátt á
hér sú tilhögun, sem gildir við
verðlagningu landbúnaðar-
afurða, svo sem skýrast kom i
ljós 1. marz s.l„ þegar afurðaverð
var m.a. hækkað vegna kaup-
breytinga, sem ekki voru kpmnar
til framkvæmda, þ.e. áður en
vinnslustöðvar landbúnaðarins
höfðu greitt krónu i hækkuðu
kaupi.
Nú er svo komið að átt hefur sér
stað stórfelld hækkun fram-
færsluknstnaðar, og mun fram-
færsluvisitalan 1. mai vera a.m.k.
19% hærri en 1. febrúar. Ljóst er,
að með slikri þróun er kaupmætti
láglauna stefnt i beinan voða, auk
þess sem hún leiðir fyrr en siðar
til samdráttar og atvinnuleysis.
Verkalýðshreyfingin mótmælir
harðlega öllum aðdróttunum um,
að rammasamningar ASÍ við
vinnuveitendur eigi sök á þessari
alvarlegu þróun. Stefna samtak-
anna, sem mörkuð var fyrir gerð
kjarasamninganna, er óbreytt, sú
að tryggja beri fyrst og fremst
kaupbætur hinum láglaunuðu til
handa.
Engum er ljósara en verkalýðs-
hreyfingunni, i hvern vanda af-
komu láglaunafólks er stefnt með
framhaldi þeirrar þróunar, sem
að framan er rakin. Eigi að siður
hljóta samtökin að mótmæla þvi,
að gripið sé til þeirra óyndisúr-
ræða að freista þess að leysa
þennan vanda með ihlutun lög-
gjafarvaldsins i frjálsa kjara-
samninga stéttarfélaga.
Sambandsstjórnarfundurinn
mótmælir þvi hugsanlegri ihlutun
i kjarasamninga stéttarfélag-
anna bæði varðandi kaupgjalds-
ákvæði samninganna og ákvæðin
um verðtryggingu launa.
Jafnframt mótmælir fundurinn
áformum um bindingu á ráö-
stöfunarfé almennra lifeyris-
sjóða umfram frjálsa samninga.
Þá mótmælir fundurinn sérstak-
lega hugmyndum um bindingu
ráðstöfunarfjár atvinnuleysis-
tryggingasjóðs. sem er þegar
mjög fjárhagslega aðþrengdur
vegna lögbindinga á ráöstöfunar-
tekjum.
Það er álit fundarins, aö þann
vanda, sem við blasir nú i efna-
hagsmálum þjóðarinnar — og
stefnir afkomu og atvinnuöryggi
launafólks i hættu — beri að leysa
I fullu samráði við verkalýðssam-
tökin, og að samningsbundnum
kjörum verði ekki breytt nema á
grundvelli samningsréttar laun-
þega og atvinnurekenda.
FUNDUR
HJÁ FEF
Kélag einstæðra foreldra heldur
félagsfund i Atthagasal Hótel
Sögu n.k. þriðjudagskvöld, 14.
mai og hefst hann kl. 21.
Þar mun Páll Asgeirsson,
læknir, tala um geðræn vandamál
barna og unglinga, en hann er
sem kunnugt er sérfræðingur á
sviði barnageðlækninga og yfir
læknir á geðdeildinni við Dal-
braut. Hann mun einnig svara
fyrirspurnum fundargesta.
Umræðu við lækninn stýrir
Jóhanna Kristjónsdóttir,
formaður FEF.
Þá verða skemmtiatriði á dag-
skrá og happdrætti. Bent er á, að
þetta er siðasti almenni fundur-
innivorog eru félagar hvattir til
að mæta vel og stundvislega.
Nýir félagar eru velkomnir.
MILLJÓNIRNAR í REYKJA-
VÍK, EYJAR OG HÖFN
FÖSTUDAGINN 10. mai var
dregið 15. flokki Happdrættis Há-
skóla islands. Dregnir voru 4,000
vinningar að fjárhæð 37.500.000
krónur.
Hæsti vinningurinn, fjórir
milljón króna vinningar, kom á
númer 10734. Tveir miðar af
þessu númeri voru seldir hi-,‘ Fri-
manni Frimannssyni i lar-
húsinu, einn i umboðinu Vest-
mannaeyjum og fjórði miðinn i
Höfn i Hornafirði.
500.000 króna vinningurinn kom
á númer 54082. Voru allir fjórir
miðarnir af þessu númeri seldir i
umboðinu á Akureyri.
200,000 króna vinningurinn kom
á númer 37067. Tveir miðar af
þessu númeri voru seldir i Aðal-
umboðinu 1 Tjarnargötu 4, þriðji
miðinn i Borgarbúðinni, Hófgerði
30 i Kópavogi og sá fjórði i Lita-
skálanum, Kársnesbraut 2 i
Kópavogi.
878 3155 4080 10733 10735
10929 11275 11278 15094 15787
15851 16086 19118 19381 22064
25522 25561 26163 28422 31924
35458 40183 41750 43067 46142
48271 48538 51299 54244 54749
59695 59929.
„Lagaprófessor",
sem ekki vill Idta
nafns síns getið
Mbl. birti i gær grein eftir
„lagaprófessor”, sem ekki vill
þó láta nafns sins getið.Er það
raunar engin furöa, þvi að
„lagaprófessorinn” verður
fljótlega uppvis að fáfræði,
sem Mbl. hefur nú beint að öll-
um prófessorunum við laga-
deild Háskóla islands, þar til
Mbl. upplýsir nafn þess, er
umrædda Mbl.-grein hefur rit-
að.
i greininni segir m.a. undir
fyrirsögninni „Vottur að ein-
ræðisstjórn” um leið og vitnað
er til fleiri „lögfróðra manna”
en hulduprófessorsins:
„Það kom einnig fram i við-
tölum við hina lögfróðu menn,
að handhafar forsetavalds eru
nú aðeins tveir, forsætisráð-
herra og forseti llæstaréttar.
Forscti sameinaðs Alþingis er
enginn þessa stundina, enda
þótt ætlazt sé til, að hann sé
æöstur þeirra þriggja manna,
sem samkvæmt stjórnar-
skránni fará með forsetavald i
fjarveru eða forföllum forseta
tslands.”
Stjórnarskrd
og hefð
Það er engum vafa undir-
orpið, að stjórnarskráin gerir
ráð fyrir því, að ætið sé til for-
seti sameinaðs Alþingis, sem
einn af handhöfum valds For-
seta tslands i fjarveru hans
eöa forföllum. Þessi fullyrðing
er studd þeirri hefð, sem urn
framkvæmd viðkomandi
ákvæða stjórnarskrárinnar
hafa skapazt, en styðja má
það dæmum, að þeir, sem með
æösta vald i landinu hafa farið
á undanförnum árum, hafa
jafnan litið svo á, að ætið sé til
forseti sameinaðs Alþingis,
sem einn handhafa forseta-
valds, og er það fráfarandi
forseti saineinaðs Alþingis, ef
þing situr ekki, hvcrnig sem
þingið hefur verið leyst upp
eða hvaða form á þingrofi við-
hal't. Það skiptir engu máli
hvaða stöðu fráfarandi forseti
sameinaðs Alþingis hefur er
Alþingi situr ekki. Hvort sem
liann er þingmaður, hættur
þingmennsku eða hefur fallið i
kosningum til Alþingis eftir að
þing hefur verið rofið: Ilann
er sem fráfarandi forseti sam-
einaðs Alþingis einn af liand-
höfum forsetavalds, þar til Al-
þingi hefur verið kallað saman
og nýr forseti sameinaðs Al-
þingis hefur verið kjörinn, en
stjórnarskráin og þingsköp
bjóða, að það skuli vera eitt
fyrsta verk Alþingis er það
kemur saman.
Þr|ú dæmi
Hér skulu i flýti rifjuð upp 3
dæmi frá siöustu árum, sem
sanna þetta:
Hinn 1. ágúst 1956 fór fram
innsetningarathöfn i Alþingis-
húsinu. Asgeir Asgeirsson, ný-
kjörinn Forseti íslands, var þá
settur inn i embætti. Við þá at-
höfn eru handhafar forseta-
valds kallaðir til, allir þrir.
Fráfarandi forseti sam-
einaðs Alþingis var þá
Jörundur Brynjólfsson. Voriö
1956 var Alþingi rofið án þess
að skylda heföi verið fyrir
hendi. Kosningar til Alþingis
höfðu farið fram, ný rikis-
stjórn mynduð, en nýkjörið
Alþingi hafði ekki komið sam-
an til að kjósa nýjan forseta
sameinaðs Alþingis. Jörundur
Brynjólfsson hafði tekið sömu
ákvörðun vorið 1956 og Ey-
steinn Jónsson nú, þ.e. að
bjóða sig ekki fram til þings að
nýju. Nýr þingmaður hafði
verið kjörinn i kosningum til
Alþingis til að taka viö umboði
Jörundar sem 1. þingmaöur
Framhald á 7. siðu.