Tíminn - 11.05.1974, Page 16
16
TÍMINN
'Láugardagur 11. riiái 1974.
HAFÐU ÞAÐ.... Bergur
Guönason skorar fram hjá
Hansa Smith.
Bjarni þjálfar Þrótt
Bjarni Jónsson handknattleiks-
maöurinn snjaili, sem hefur leikiö
meö danska liðinu Arhus KFUM
undanfarin ár, kemur alkomirin
heim i haust. Hann hefur ákveöið
aö gerast þjálfari hjá 2. deildar-
liöinu Þrótti, en ekki er enn vitaö,
hvort hann gerist einnig leik-
maöur meö liöinu, eöa leikur meö
Val.
Axel varð fyrstur
til að skora yffir
100 mörk
Axel Axelsson...marka-
kóngurinn mikli úr
Fram, setti nýtt marka-
met i 1. deildarkeppn-
inni i handknattleik.
Axel skoraði 106 mörk i
íslandsmótinu og varð
hann þar með fyrsti
leikmaðurinn, sem hef-
ur skorað yfir 100 mörk i
1. deildarkeppninni, sið-
an var farið að leika i
stórum sal árið 1966.
Axel sló þar með met
Einars Magnússonar úr
Viking, sem skoraði 100
mörk sl. keppnistimabil.
Eftirtaldir leikmenn hafa verið
markhæstir i 1. deild, siðan farið
var að leika i stórum sal:
1966- 1967
Jón Hjaltalin, Viking 61
1967- 1968
Jón Hjaltalin, Viking 75
1968- 1969
Vilhjálmur Sigurgeirsson, 1R 69
1969- 1970
Geir Hallsteinsson, FH 68
1970- 1971
Geir Hallsteinsson, FH 61
1971- 1972
Geir Hallsteinsson, FH 86
1972- 1973
Einar Magnússon, Viking 100
1973- 1974
Axel Axelsson, Fram 106
Til gamans má geta þess, aö
Ingólfur Óskarsson, hinn gamal-
kunni leikmaöur úr Fram, hefur
skorað flest mörk i 1. deildar-
keppninni, eða 122. Þessum
árangri náði Ingólfur árið 1964, en
þá var leikið i litium sal. Þetta
markamet Ingólfs er mjög gott,
þegar þess er gætt, að hann lék þá
10 leiki.
—SOS.
ENDAÐI
VEL...
Leeds varð meistari
108 mörk í
12 leikjum
Bergur hefur verið einn
bezti leikmaöur Valsliðsins
undanfarin ár, en hann ákvað i
vetur, að ljúka sinum ferli
núna i vor. i lok handknatt-
leiksvertiðarinnar náði Berg-
ur tveimur eftirsóttum áföng-
um. Hann var I Valsliðinu,
sem sigraöi fyrstu bikar-
keppnina og þar að auki var
hann fyrsti Valsmaðurinn,
sem hefur leikið yfir 300 leiki
með meistarafiokki i hand-
knattieik. Bergur lék alls 303
leiki með Val.
— SOS.
Einn leikur er nú eftir I 1.
deildarkeppninni. Það er leikur
Tottenham og Newcastle.
GLEÐI 1 HERBUÐUM LEEDS..
skozku HM-leikmcnnirnir Terry
Yorath og David Harvey, halda á
framkvæmdastjóra Leeds, Don
Revie.
Brynjólfur markhæstur f 2. deild
Bergur Guðnason leggur skóna á hilluna
Um tíma leit út fyrir að liðið myndi missa Englandsmeistaratitilinn úr höndum sér
BRYNJÓLFUR MARKUSSON.... handknattleiksmaðurinn kunni úr
1R, setti nýtt markamet i 2. deildinni i handknattleik, en hann lék með
KA frá Akureyri sl. keppnistimabii. Hann skoraði 108 mörk 112 Ieikj-
um, sem hann lék með KA, eða 9 mörk að meðaltali i leik. Brynjólfur
mun leika með IR-liðinu næsta keppnistimabil.
„Þetta endaði vei”...
sagði Bergur Guðna-
son, handknattleiks-
maður úr Val, sem
hefur nú lagt skóna á
hilluna. Siðasti leikur
Bergs, var bikarúr-
slitaieikurinn, þar
sem Valur hlaut sig-
ur. Þar með var Berg-
ur búinn að hljóta alla
þá titla, sem hand-
knattleiksmaður á ís-
landi getur fengið.
Engiandsmeistaratitlinum á
heimavelli Q.P.R. Loftus Road.
Lokastaðan varð þessi i ensku
1. deildarkeppninni:
Leeds 42 24 14 4 66:31 62
Liverpool 42 22 13 7 52:31 57
Derby 42 17 14 11 52:42 48
Ipswich 42 18 11 13 67:58 47
Stoke 42 15 16 11 54:42 46
Burnley 42 16 14 12 56:53 46
Everton 42 16 12 14 50:48 44
QPR 42 13 17 12 56:52 43
Leicester 42 13 16 13 51:41 42
Arsenal 42 14 14 14 49:51 42
Wolves 42 13 15 14 49:49 41
Tottenham 41 13 14 14 42:50 40
Sheff.U. 42 14 12 16 44:49 40
Manch. C. 42 14 12 16 39:46 40
Newcastle 41 13 12 16 49:49 38
Coventry 42 14 10 18 43:54 38
Chelsea 42 12 13 17 56:60 37
Westham 42 11 15 16 55:60 37
Birmingh. 42 12 13 17 52:64 39
Southpt. 42 11 14 17 47:68 36
Manch. U. 42 '10 12 20 38:48 32
Norwich 42 7 15 20 37:62 29
Leeds-iiðið bar sigur úr býtum i
baráttunni um Engiands-
meistaratitilinn I knattspyrnu
1974. Þaö byrjaði mjög vei I 1.
deiidinni — var ósigrandi i fyrstu
29 ieikjunum, en eftir þessa 29
leiki, var liðiö orðið aðeins eins
og skuggi af sjálfum sér. Sigur-
ganga Leeds varð að hreinni
martröð um tima — það sem virt-
ist eitt sinn óbrúanlegt bil á
toppnum, var smátt og smátt
brúað og um tima ieit út fyrir að
leikmenn Liverpool-liðsins
mundu stela meistaratitlinum af
Leeds á siðustu stundu. Leikir
Leeds-liðsins urðu óþekkjanlegir
þegar á ieið. Óttinn virtist hafa
skotið rótum í .ieikgleði leik-
manna Leeds. Um mánaðarmótin
marz—april virtust lcikmenn
Leeds vera að kikna undan
þrýstingnum. En þegar
lokabaráttan fór að harðna, var
eins og leikmenn Leeds áttuðu sig
á hvaö væri að ske — þeir fóru
smátt og smátt að rétta sig úr
kútnum. Þeim bárust gleðifréttir
frá Anfield Road, heimavelli
Liverpool, þegar Arsenal vann
góðan sigur yfir Liverpool 1:0 27.
april. Þessi ósigur Liverpool var
fyrsti ósigurinn á heimavelli á
keppnistimabilinu og fyrsti ósig-
urinn frá þvf i febrúar 1973, en þá
töpuðu þeir einmitt gegn Arsenal
á Anfield Road. Leikmenn Leeds
fóru til Lundúna i sfðustu umferö-
inni I 1. deildarkeppninni, þar
sem þeir léku gegn Queens Park
Rangers. Leeds tókst að tryggja
sér sigur með marki, sem Alan
Clark skoraði. Þar með var Eng-
landsmeistaratitillinn I öruggri
höfn og leikmenn Leeds tóku við
Þórir setti 1
stigamet...
Körfuknattlcikskappinn úr knattleik. Hann setti nýtt
Val Þórir Magnússon, varö stigamet — Þórir skoraði
stigahæsti leikmaður 1. samtals 416 stig i 1. deildar-
deildarkcppninnar i körfu- keppninni!
Selfyss-
ingar
JÓN SVEINSSON... varamark-
vöröur Keflavlkurliðsins i knatt-
spyrnu, sem vakti athygli sl.
keppnistimabii, mun ekki klæðast
Keflavikurbúningnum i sumar.
Hann hefur nú gengið i raðir Sel-
fyssinga og mun hann leika með
Selfossi I 2. deild.
Halldór
í Ármann
IIALLDÓR BJöRNSSON...fyrr-
um fyrirliði KR I knattspyrnu,
hefur nú gerzt þjálfari og leik-
maður með 2. deildarliði Ar-
manns. Armenningar eru heppnir
að fá Halldór i sinar raðir, þvi að
hann mun koma tii með að fylla
upp I það skarö, sem Jón Her-*
mannsson, skildi eftir i Armanns-
liðinu. En eins og hefur komið
fram hér á sfðunni, þá mun Jón
þjálfa og leika með Þrótti frá
Neskaupstað I sumar.
Gummersbach
meistari...
VfL Gummersbach tryggði sér
Vestur-Þýzkalandsmeistaratitil-
inn I handknattleik, þegar liðið
vann sigur yfir TuS Wellinghofen
i úrslitaleik 19:14. FA Göppingen,
lið Geirs Hallsteinssonar, komst f
undanúrslitin um titilinn, en I
þeim tapaði liðið tvisvar fyrir
TuS Wellinghofen 14:15 og 17:23.
Gummersbach vann TV Hutten-
berg i undanúrslitum 15:10 og
18:16.