Tíminn - 11.05.1974, Qupperneq 19
Laugardagur 11. mai 1974.
TÍMINN
19
Anna Erslev:
FANGI KONUNGSINS.
(Saga frá dögum Loð-
viks XI. Frakkakon-
ungs).
Sigriður Ingimarsdóttir
þýddi.
geta frelsað hann:
andvarpaði Georg. ,,Þá
mundi hann þó öðlast
von i óvissunni. En það
er vist ómögulegt, þvi
miður.”
Við þessi orð leit Leó
snöggvast upp og blistr-
aði lágt.
,,Skeð gæti það þó,”
sagði hann, leyndar-
dómsfullur á svip.
,,Svona, hættu nú
þessu leynimakki,”
sagði systir hans, ,,þú
ert með eitthvað
ráðabrugg á prjónunum,
hvað er það?”
En drengurinn hafði
tekið það i sig að þegja
yfir ráðagerð sinni, og
hin urðu að láta sér það
lynda.
Morguninn eftir lögðu
þau af stað til hallarinn-
ar, en þar var búrunum
raðað á grasvölljnn.
Þegar þau vbru að
leggja af stað kom Leó
askvaðandi i fáranleg-
um klæðum.
Hann var i gömlum
buxum gauðrifnum,
bættri treyju, botnlaus-
um skóm og með
beyglaðan hattkúf á
höfði.
„Hvers kyns
útbúnaður er þetta?”
spurði isabella.
„Þú ætlar þó ekki að
fara i þessum lörfum?”
,,Nei, blessuð góða!
Þið getið ekki fylgzt með
svona leppalúða,” sagði
Leóhlæjandi. „Farið þið
bara af stað ég kem á
eftir.”
Að svo mæltu fór hann
út i eldiviðarskýlið og
sótti þangað fjölina
góðu. Hann var nú búinn
O Hafnargarður
byggja yfir mig. Næst er að
byggja yfir netaverkstæðið.
— Og hann er búinn að fá lóð
undir það, og byrjaður að byggja.
skýtur Vernharður inn i.
— Já, ég þarf að koma mér upp
200 fermetra vinnuplássi, það
þýðir ekkert að hafa það minna.
Eru margir i vinnu hjá þér?
—Við erum þetta fjögur,
stundum fimm, flest erum við
sex, þegar mest er að gera.
— Nóg verkefni?
— Já, það litur út fyrir það, og
ekkert útlit á þvi, að það sé að
minnka.
Svona gengur það, þetta helzt
allt i hendur, aukin vinna, fjöl-
breyttari atvinnugreinar, fleira
fólk, stærra, þróttmeira byggðar-
lag.
Stórmyndarlegt
hraðfrystihús
Við göngum til Hraðfrysti-
hússins. Forstjórinn, Ásgrimur
Pálsson, er ekki við þessa
stundina, en við eigum það þá
bara inni að tala við hann. Þetta
er myndarlegasta hús, og Vern-
harður segir okkur sögu þess i
fáum orðum.
— Það var um 1960, að Hrað-
frystihúsið var endurbyggt og um
1968, að það hefur útgerðina að
einhverju marki. Siðan hefur
sifellt verið að aukast við, véla-
kostur bættur, svo að hann er nú
hinn fullkomnasti, útgerðin alltaf
að færast i aukana. Eigendur
hraðfrystihússins eru Stokks-
eyrarhreppur, sem á um 80
hundraðshluta, en hinir hlutarnir
eru i eigu einstaklinga.
Við göngum um sali hraðfrysti-
hússins og sjáum, að þar er öllu
mjög haganlega fyrir komið við
vinnslu fisksins og ekkert ofsagt i
þeim efnum. Þarna er verið að
ganga frá eftir seinasta farminn,
sem komið héfur frá bátunum,
sem lönduðu i Þorlákshöfn.
Gifurlegt álag
á veginum
— Þið getið séð það hversu brýn
nauðsyn okkur væri á þvi að fá
brúna, að hérna i frystihúsinu er
búið að frysta hátt i 800 tonn frá
áramótum, og það er allt afli,
sem ekið hefur verið frá Þorláks-
höfn. Nú, siðan verður að aka
úrganginum aftur til Þorláks-
hafnar.
— Það hlýtur þá að vera óskap-
leg ániðsla á vegum hérna hjá
ykkur?
— Já, það er vist óhætt að segja
það, enda hlýtur eitthvað að
gerast i þessum málum okkar.
Þeir mældu veginn til Selfoss upp
i sumar og töldu ekki mikla fyrir-
höfn að oliumalarbera hann. Það
var öllum ljóst, að það er
ógjörningur að halda honum við
með öllu þessu álagi, grjót-
flutningunum, meðan hafnar-
garðurinn var i byggingu, og svo
fiskflutningarnir nú á vertiðinni.
Hvaða verkefni biða?
— Segðu mér annars, Vern-
harður, er ekki brú yfir ölfusár-
ósa á brúalögum?
— Jú, svo mun vera, Jörundur
Brynjólfsson kom brúnni inn á
brúarlög árið 1950, og það má
öllum ljóst vera, hversu brýnt
hagsmunamál þetta er öllum
plássunum i neðanverðri Árnes-
sýslu. Við skulum lika gera okkur
ljóst, að Þorlákshöfn er lifhöfn
bátanna héðan, þegar þeir
komast ekki inn fyrir brimi, og
þvi verður ekki breytt.
— En ef þið hefðuð nú úr nógu
að spila, hvað mynduð þið þá taka
fyrir?
— Ja, auk þess, sem þegar er
upp talið, held ég, að ráðhúsið
okkar komi nokkuð framarlega.
Það er búið að samþykkja i
hreppsnefndinni að koma upp
ráðhúsi. Spurningin er bara,
hvenær við getum látið af þvi
verða.
Og enn viljum við
byggja
— Og eruð þið búnir að gera
ykkur einhverja grein fyrir þvi,
hvernig þetta ráðhús á að vera?
— Við erum að minnsta kosti
búnir að gera okkur þó nokkra
grein fyrir þvi, hvað ætti að vera i
þessu húsi. Þarna þyrftu
skrifstofur hreppsins að fá inni,
svo þyrfti að vera þarna
tómstundaaðstaða og bókasafn.
Þá þyrfti að vera þarna heilsu-
gæzluaðstaða. Læknamiðstöðin
er á Selfossi, og þjónusta við
okkur verður aldrei virkilega góð,
fyrr en sköpuð hefur verið
aðstaða til að skoða fólk hér á
staðnum. Nú, þarna þyrfti að
vera löggæzla, og svo er reiknað
með þvi, að landsbankinn fái
þarna inni, og yrði þá húsið byggt
i samráði við hann..
Það er ánægjulegt til þess að
vita, að dugmikið og starfandi
fólk skuii hafa snúið fióttanum úr
dreifbýiinu til Heykjavikur i
öfluga sókn með djörfu átaki i at-
vinnumálum byggðarlags sins.
Það dyist engum, að Stokkseyri á
mikla framtið fyrir sér. En það
má ekki drepa i dróma þann
ánægjulega árangur, sem náðst
hefur. Það má ekki einblina á það
eitt, að fólk á þessum stöðum
bjargist einhvern veginn af eins
og gert hefur verið hingað til.
Núverandi stjórnarvöldum er
bezt til þess trúandi að rétta þvi
hjálparhönd i uppbyggingar-
starfinu af þeim myndarskap,
sem um munar, og halda áfram á
þeirri braut, sem þegar er byrjað
á og ljúka þeim verkefnum, sem
blasa við. —BH
Afgreiðslustarf
Viljum ráða nú þegar afgreiðslumann i
verzlun okkar i Hveragerði.
Kaupfélag Arnesinga.
r
Onotuð peysuföt
til sölu. — Allt nema húfan. Upplýsingar i
sima 73-3-73.
Til sölu
er ibúða- og gistihúsið Mávahlið á Vopna-
firði.
Getur verið mjög heppilegt sem ibúðir
fyrir tvær fjölskyldur.
Ennfremur fiskverkunarhús á sama stað.
Allt laust nú þegar.
Nánari upplýsingar veitir Kristján Gisla-
son i sima 1-38-51, Reykjavik.
C Garðahreppur
Skrifstofa B-listans er að Goðatúni 2, simi 43911. Hún er opin
virka daga frá kl. 18 til 22, en um helgar frá kl. 14 til 18.
Stuðningsfólk B-listans er beðið að hafa samband við skrifstof-
una.
Hveragerði
Kosningaskrifstofa I-listans er að Hveramörk 10, gömlu sim-
stöðinni. Siminn er 99-44-33. Heimasimar: 4191 4345, og 4134.
Stuðningsfólk I-listans hafi samband við skrifstofuna.
Keflavík — Suðurnes
Framsóknarvist i Stapa sunnudaginn 12. mai kl. 20:30. Þriggja
kvölda keppni. Aðalvinningur Sunnuferð til Mallorca. Góð
kvöldverðlaun. Valtýr Guðjónsson flytur stutt ávarp i hléi. Allir
velkomnir. Skemmtinefnd Bjarkar.
Aðalfundur Hörpu
'Harpa, félag framsóknarkvenna i Hafnarfirði, Garða- og Bessa-
staðahreppi heldur aðalfund að Goðatúni 2, Garðahreppi, mið-
vikudaginn 15. mai kl. 20:30. Fundarefni: 1. venjuleg aðal-
fundarstörf. 2. Efstu menn B-listans i Hafnarfirði og Garða-
hreppi flýtja ávörp og svara fyrirspurnum. 3. kaffi. Mætið vel og
takið meó ykkur gesti. Stjórnin.
Reyk janeskjördæmi
Fulltrúaráðsfundur Framsóknarfélaganna i Reykjaneskjör-
dæmi verður haldinn þriðjudaginn 14. þessa mánaðar i Iðnaðar-
mannafélagshúsinu Linnetsstig 3. Hafnarfirði. Fundurinn hefst
kl. 20:30. Fundarefni: Alþingiskosningarnar. Stjórnin. ■
Kópavogur
Stjórnmólafundur unga fólksins
Stjórnmálafundur unga fólksins i Kópavogi verður haldinn i
Félagsheimilinu Kópavogi sunnudaginn 12. þessa mánaðar kl.
16:30, neðri sal. Ræðumenn fyrir hönd I-listans verða Jóhann H.
Jónsson, Pétur Einarsson, Guðleifur Guðmundsson. Stuðnings-
menn I-listans fjölmennið á fundinn.
Laxveiðimenn
Laxveiðimenn
Leigutilboð óskast i Hrúta-
fjarðará og Síká fyrir veiðitima-
bilið 1947.
Skrifleg tilboð sendist fyrir 20. þ.m. Jóni
Jónssyni, Melum Hrútafirði, er veitir nánari
upplýsingar.
V.-Ls
íaX;
í\rVJ
i Y
:■ V •
v€ «•.
Reykjavíkur
Vinnuskóli
"tv-.l-.-.-i'-ý ,:A’-f;.V /> r. VJVA
J *:Va .♦JSJjiraj'.'éJ * Í-V 'Vf. Jíi'- • •'Vr*. íz* tóriL &
kf-
m
m
É
m
sl
Vinnuskóli Reykjavikur tekur til starfa
um mánaðamótin mai—júni n.k. og
starfar til 15. ágúst.
I skólann verða teknir unglingar fæddir 1959 og 1960
þ.e. nemendur sem eru i 7. og 8. bekk skyldunámsins i
skólum Reykjavikurborgar skólaárið 1973-’74.
Gert er ráð fyrir 8 stunda vinnudegi og 5 daga vinnu-
viku hjá eldri aldursflokkum, en 4 stunda vinnudegi og
5 daga vinnuviku hjá yngri aldursflokkum.
Umsóknareyðublöð fást i Ráðningarstofu Reykja-
vikurborgar Hafnarbúðum við Tryggvagötu, og skal
umsóknum skilað þangað eigi síðar en 22. mai n.k.
Umsóknir, sem siðar kunna að berast,verða ekki tekn-
ar til greina. Askilið er að umsækjendur hafi með sér
nafnskirteini.
r
í!,
%