Tíminn - 11.05.1974, Síða 20
fyrirgódan ntai
$ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
BBaHBBHBn
Alþingi
Græn
bylting
við
sparnaðartrumvarpið ekki samþykkt
SJ—Reykjavik. Við veittum
þvi athygli okkur til ánægju,
að á einum stað i borginni
a.m.k. er „einkabllisminn” á
undanhaldi. Þessa daga er
verið að vinna að þvl að gera
grasflöt á hluta lóðarinnar
vestur af alþingishúsinu, þar
sem Listamannaskálinn stóð.
Þarna hefur að undanförnu
verið bilastæði, sem Reykja-
víkurborg hafði til afnota.
Þetta svæði tilheyrir raunar
Alþingi og hjá Friðjóni
Sigurðssyni skrifstofustjóra
Alþingis fengum við þær
fregnir, að þarna væri verið að
gera garð, sem yrði I tengslum
viö gamla Alþingishússgarð-
inn. Þarna verður -plantað
trjám og gerður göngustigur.
Nýr alþingishússgarður I undirbúningi. — Tlmamynd: GE.
Sviptingar í danska þjóðþinginu
Hartling hótar þingrofi verði
Ntb-Kaupmannahöfn. Miklar
sviftingar st-nda yfir I dönskum
stjórnmálum vegna sparnaðar-
frumvarps stjórnarinnar. 1 Dan-
mörku situr minnihlutastjórn
Paul Hartlings og hafa jafnaðar-
menn og mið-demokratar stutt
hana. En siðan sparnaðarfrum-
varpið var lagt fram hafa veður
skipast i lofti i þinginu oftar en
einu sinni og hafa sömu flokkar
ýmist lofað að styðja frumvarpið
eða fella það. Á fimmtudag sögðu
dönsku blöðin berum orðum, að
Hartling mundi rjúfa þing og efna
til kosninga 11. júni n.k. en þvi
var hann búinn að hóta, ef frum-
varpiö yrði ekki samþykkt þá um
kvöldið. En á síðustu stundu var
umræðunni frestað fram yfir
helgi og eru forystumenn flokk-
anna nú að átta sig á hver staðan i
rauninni er.
Allir eru sammála um, að gera
verði róttækar ráðstafanir i efna-
hagsmálum til að stöðva verð-
bólguna, en eru ekki sammála um
leiðir. Sparnaðarfrum varp
stjórnarinnar gerir I stórum
dráttum ráð fyrir, að mjög verði
dregiö úr útgjöldum opinberra
aðila, og er lagt til að rikisútgjöld
verði skorin verulega niöur á
næstu þrem árum. Gert er ráð
fyrir hækkun söluskatts, en að
beinir skattar verði lækkaðir, og
komi það til framkvæmda á
næsta ári. Lagt er til, að eftirlaun
og fjölskyldubætur veröi lækkað-
ar, læknishjálp verði ekki greidd
að fullu, námsstyrkjum verði
breytt i námslán og fl.
A fimmtudag lögðu um 15 þús-
und verkamenn við skipasmiða-
stöðvar I Kaupmannahöfn,
Odense og Alaborg niður vinnu til
að mótmæla sparnaðarfrum-
varpinu og siðar um daginn lögðu
verkamenn á æ fleiri vinnustöð-
um niður vinnu, og höfðu foringj-
ar þeirra á orði að efna til alls-
herjarverkfalls yrði frumvarpið
samþykkt. Jafnaðarmenn
snerust þá til andstöðu við frum-
Sölutregða á norskum
fiski í Bandaríkjunum
NTB-Oslo. Norski fiskiðnaðurinn
á i verulegum erfiðleikum vegna
sölutregðu i Bandarikjunum. Sér-
staklega á það við um þorsk-
blokkir. Ástæðan er fyrst og
fremst sú, að Japanir hafa yfir-
fylltmarkaðinn með miklu magni
á svo lágu verði, að norski fisk-
iðnaðurinn er ekki sam-keppnis-
fær.
Norskir útflytjendur eru þó
vongóðir um að þetta ástand vari
ekki til langframa, og að það sýni
sig áður en langt um liður, að.
skortur er á þorski á heims-
markaði.
Auk hins mikla framboðs
Japana á ufsaflökum, er álitið að
fleiri ástæður ráði söluerfiö-
leikunum, t.d. mun bensínverðið
hafa talsverð áhrif, en freðfiskur
er fluttur I frystibllum um þver og
endilöng Bandaríkin. Einnig
lækkaði kjötverð á sama tima og
fiskverð hækkaði.
Mitterand
vinnur d
NTB-Paris. í fyrsta sinn siðan
kosningabaráttan um forseta-
embættið I Frakklandi hófst milli
þeirra Francois Mitterand og
Valery Giscard d’Estaing, sýndi
skoöanakönnun, sem birt var I
blaðinu l’Aurore, að Mitterand
veröi liklega kjörinn forseti.
Samkvæmt skoðanakönnuninni
fær Mitterand, forsetaefni vinstri
manna, 51% atkvæða og
d’Estaing, frambjóðandi hægri
manna 49% atkvæða. Skoðana-
kannanir sem birtar voru fyrr i
vikunni voru d’Estaing heldur i
vil.
varpið I þinginu.
Þegar umræöunni var frestað
stóð forsætisráðherrann fast á
þvi, að nauðsyn bæri til að frum-
varpið yrði samþykkt. 1 dag,
laugardag, kemur stjórnin saman
til fundar, og síðar mun Hartling
ræða við flokksformennina. Þing-
fundur hefur verið boðaður n.k.
þriöjudag og enn stendur hótun
forsætisráðherra að þing verði
rofið, ef sparnaðarfrumvarp hans
veröur ekki samþykkt.
Fréttamenn telja, að stjórn-
málaflokkarnir séu ekki allt of
spenntir fyrir þingkosningum I
næsta mánuði. Er ekki reiknað
með að styrkleikahlutföll flokk-
anna breytist svo nokkru nemi frá
þvi sem nú er, en siðast var kosið
I Danmörku I desembermánuði
sl. Þá guldu jafnaðarmenn mikið
afhroð og tveir nýir flokkar unnu
mikla kosningasigra, sérstaklega
Framfaraflokkur Glistrups, sem
eftir öllu að dæma heldur enn
svipuöu fylgi.
Fjöldi drekstra og margir
fluttir d sjúkrahús
Mikið eignatjón varð I umferð-
inni i Reykjavik I gær vegna
árekstra og fjöldi manns var
fluttur á slysadeild en enginn var
llfshættulega meiddur.
Arekstrafaraldurinn hófst þeg-
ar á fimmtudagskvöld, en þá urðu
árekstrar óvenjumargir og mikl-
ar skemmdir á farartækjum.
Tveir piltar voru fluttir á slysa-
deild eftir að jeppi, sem þeir voru
i, hvolfdi við Flugvallarveg. Pilt-
ur og stúlka sluppu furðuvel, þeg-
ar fólksblll, sem þau voru I, lenti
á strætisvagni á mótum Tjarnar-
götu og Skothúsvegar, en bæði
voru þó flutt á slysadeild til
rannsóknar.
Skömmu fyrir hádegi I gær óku
saman vörublll og sendiferðabíll
á mótum Langholtsvegar og
Holtavegar. Sendiferðabillinn
kastaðist á annan sendiferðabil
og skemmdust allir bílarnir mik-
ið. ökumennirnir slösuðust allir,
svo og telpa, sem var I vörubiln-
um. Rétt á eftir var lögreglunni
tilkynnt um árekstur tveggja
fólksbila á Breiðholtsbraut og
meiddust þar tvær stúlkur. Telpa
varð fyrir bíl á Skeiðarvogi og
tvær stúlkur voru fluttar á slysa-
deild eftir árekstur tveggja bíla á
mótum Flókagötu og Gunnars-
brautar.
Akstursskilyrði I Reykjavlk
voru eins góð og bezt verður á
kosið I gær og fyrrakvöld, véður
bjart og göturnar þurrar. Auk
þeirra árekstra, sem hér eru
nefndir, urðu fjölmargir aðrir, en
i þeim tilfellum urðu ekki slys á
fólki
Verður Nixon stefnt
fyrir ríkisrétt?
NTB-Washington — Gerald Ford
varaforseti var kallaður á fund
Nixons I Hvita húsinu I gær
nokkru eftir að hann hafði sagt
opinberlega, að Watergatemálið
hefði veikt stöðu forsetans. Fund-
ur þeirra stóð yfir i klukkustund.
Talsmaður Hvita hússins sagði
eftir fundinn, að ekki hafði verið
ræddur sá möguleiki að Nixon
segði af sér. Ford varð að aflýsa
heimsóknum til nokkurra borga
til að fara til fundar við Nixon.
Talsmaðurinn sagði, að Nixon og
Ford hefðu rætt ýmis utan- og
innanrlkismál og báðir hafi þeir
látið I ljós óskir um að halda
reglulega fundi til að ræða mikils-
verð málefni.
Dómsmálanefnd öldungadeild-
ar Bandarikjaþings kom saman i
fyrsta sinn s.l. fimmtudag til að
ræða aðild Nixons forseta að
Watergatemálinu, og hvort setja
skuli ríkisrétt yfir forsetanum.
Þá eru einnig fjármál hans til at-
hugunar og meöferð opinbers
fjárs til stjórnmálastarfsemi og
ólöglegar simahleranir. í nefnd-
inni eiga sæti 38 öldungadeildar-
þingmenn. Fari svo að niðurstöð-
ur nefndarinnar verði þær, að
stefna skuli forsetanum fyrir rétt,
verður það ekki gert nema með
samþykki fulltrúadeildarinnar og
mun öldungadeildin þá verða
rikisrétturinn.
Rannsókn dómsmálanefndar-
innar fer fram fyrir luktum dyr-
um, en i gær, föstudag, siaðist það
út til fjölmiðla, að nefndin hefði
sannanir fyrir, að Nixon hafi þeg-
ar 4. april 1972 haft vitneskju um
víðtækar áætlanir um pólitískar
njósnir, en það var sex vikum fyr-
ir innbrotið I Watergatebygging-
una.
Meðlimir dómsmálanefndar-
innar höfðu áður varað við að
leggja trúnað á sögusagnir, sem
upp kynnu að koma meðan á
rannsókninni stendur, en frétta-
menn segja, að ekki sé loku fyrir
það skotið, að nefndarmenn láti
vissar upplýsingar leka út vilj-
andi, þótt þeir staðfesti ekki
sannleiksgildi þeirra.
Á fundinum 4. apríl 1972 voru
m.a. þeir Mitchell, fyrrverandi
dómsmálaráðherra og Halde-
mann starfsmannastjóri Hvita-
hússins. Þótt sagt sé að Nixon
hafi vitað um ráðagerðir sam-
starfsmanna sinna um pólitlskar
njósnir hefur ekkert komið fram
sem sannar, að hann hafi verið
með i ráðum eða vitað um fyrir-
hugað innbrot I höfuðstöðvar
demókrata i Watergatebygging-
unni.