Tíminn - 08.06.1974, Page 14
14
TÍMINN
alltof oft séð holdsveiKÍ til þess að þyrfti að vera í vafa.
Fyrr á dögum var holdsveiki algeng sjón á islandi, og í
leikritinu Fjalla-Eyvindi má sjá holdsveikan mann sitja
og drekka meðöðrum í sveitinni, já, hann drekkur meira
að segja af sömu f lösku, en nú á dögum eru holdsveiki -
sjúklingarnir horfnir úr daglegu lífi, og umburðarlyndi
fyrri tíma hefur vikið fyrir óskaplegum ótta gagnvart
þeim sjúku. Meðan Jónas sat og starði fram fyrir sig,
var það ekki auðn öræf anna, sem hann sá, heldur holds-
veikraspítalinn í Reykjavik. Þangað varð Eirikur að
fara, nema — nema — hvað? Hvar gat hann falið sig?
Hvað gat hann gert? Hefði hann framið glæp, gat hann
flúið til annarra landa. En frá holdsveikinni var enginn
f lótti.
Hann stóð á fætur, og þaðgerði Eiríkur líka. Þegjandi
gengu þeir niður að reiðgötunni.'
— Þú ferð aftur til Skarðsstöðvar, sagði Eiríkur.
— Til Skarðsstöðvar? sagði Jónas undrandi. Það held
ég ekki. Skarðsstöð! Ég hef ekkert að gera þangað leng-
ur. Það kemur mér ekkert þar lengur við.
— Hlustaðu nú á, hvað ég segi, sagði Eirikur. Það er
engin ástæða til að gera þetta erf iðara en það er. Ef ég
hefði fyrir nokkrum dögum hrapað niður úr klettunum
og drepið mig, væri allt eins og það er nú, og þú hefðir
haldið starf inu áf ram. Það verður þú líka að gera núna.
Við verðum að hugsa um Grím og þá hina. Þú rekur út-
gerðina með þeim. Allt, sem ég á, er nú þín eign. Þú
veizt, hvar ég hef geymt peningana mína, og þá tekur þú
til þin. Síðan ferð þú til Reykjavíkur og lætur Helga
Stefánsson skrifa upp skjal, sem ég undirrita og lýsi þig
réttmætan eiganda að öllu....
— Já, en hvert f erð þú þá? spurði Jónas.
— Það skal ég segja þér. Allt, sem ég óska eftir, er
sjórinn. Ég kem aftur með þér og dvel i árdalnum fram
undir miðnætti. Þú gerir bátinn kláran og setur í hann
eins mikið og þú getur, og siðan rærð þú með mig þang-
að, sem ég vil fara, og þar sem ég ætla að dvelja fyrst
um sinn.
— Hvert ætlar þú að fara?
— Ot í Fulmar.
— Já, auðvitað, sagði Jónas. Þarna geturðu falið þig.
Er það annars nokkuð, sem þú óskar...?
— Éq óska þess eins að komast út að sjónum. Meðan ég
er þarna, ferð þú til Reykjavíkur. Þú getur vel sagt
Helga Stefánssyni upp alla söguna. Þú getur treyst hon-
um.
Jónas varp öndinni þungt og beisklega. Svo gengu þeir
af stað til árdalsins. Þeir töluðu lítið saman á leiðinni.
Það var eins og þegjandi samkomulag á milli þeirra, að
þessir sorglegu atburðir skyldu ekki ræddir. Svala barst
ekki i tal, enda þótt það væri hún, sem Jónas hugsaði
mest um þessa stundina.
VI.
Sjálfsbjargarhvöt
Þeir komu í árdalinn tveim klukkustundum fyrir mið-
nætti, og miðja vegu milli húss Ólafs og næstu húsa nam
Eiríkur staðar, en Jónas hélt áfram til að gera bátinn
kláran.
— Ég kem svo á eftir þér, sagði Eiríkur. Ég verð kom-
inn niður í Skarðsstöð um tólf-leytið, þá er enginn á ferli.
Hann átti gamalt silf urúr, sem hann fór eftir, og hann
horfði á eftir Jónasi, þangað til hann var horfinn sjón-
um.
Svo settist hann niður og hlustaði á vatnið í ánni, sem
niðaði kliðmjúkt milli steinanna.
Hann átti erfitt með allar hugsanir, það var eins og
heilastarfsemin væri lömuð. Hann gat naumast séð
lengra en í nánustu framtið. Hann var aðeips haldinn
einni þrá,þránni eftir hafinu.
Hann fann ekki til neinnar hræðslu gagnvart þeim ör-
lögum, sem lagzt höfðu á hann, því að gæzka guðs gagn-
vart þeim sjúku finnst hvað greinilegast í því, hvernig
þeir bera jafnvel hræðiiegustu sjúkdóma.
Klukkan rúmlega ellefu stóð hann á fætur og gekk af
stað. Hann hafði skyndilega gert sér grein fyrir húsi
Ölafs Guðmundssonar, og þá fyrst vaknaði i brjósti hans
það, sem áður virtist kulnað og dautt. En glaðvakandi
varð hann ekki fyrr en Skarðsstöð blasti við honum í
dagsbirtu sumarnæturinnar yfir sofandi plássinu.
Hann fylgdi stígnum meðfram ánni, og þegar hann
kom að húsi Stefáns Gunnarssonar, var eins og sterkur
mótbýr ætlaði að feykja honum f rá. Varir hans voru ná-
fölar, þegar hann nálgaðist húsið varfærnislega eins og
þjófur og leit upp í herbergi Svölu. Glugginn var hálf-
opinn, og hann sá hvít gluggatjöldin bærast í blænum,
eins og þau væru að veifa til hans. Við rimlagirðinguna
nam hann staðar.
Aldrei framar myndi hann fá að sjá hana, og þarna
fyrir innan svaf hún rólega og hafði ekki minnsta grun
um neyð hans.
Hann dró andann djúpt. Þarna — næstum innan seil-
ingar— lá paradis harns, og hérna stóð hann f yrir f ram-
an — búinn að vera, dauður.
Hann snerti rimlagirðinguna, og hélt síðan áfram —
framhjá kirkjunni og prestssetrinu, húsi hans sjálfs og
Gistiheimilinu, þar sem þeir Jónas bjuggu fyrst. Hann
gekk framhjá skrifstof u Ólafs Guðmundssonar, þar sem
naf n hans var letrað stórum stöf um. Það var sigur Ölafs
( Viltukomaútj
'að leika, Haddi?
| Ég get það ekki^\
ég er að fara að leita
að mömmu. J
Nú; ég hélt að ^ ÍtfT
þú ættir eina fyrir.
Laugardagur 8. júnl 1974
illlilW: ili
LAUGARDAGUR
8. júni
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 Skemnitihljómsveit út-
varpsins í Vinarborg leikur
14.00 Vikan, sem var. Páll
Heiðar Jónsson sér um þátt
með ýmsu efni.
15.00 tslandsmótið i knatt-
spyrnu, fyrsta deild. Jón
Ásgeirsson lýsir frá Akur-
eyri siðari hálfleik af leik
IBA og Vikings.
15.45 A feröinni. ökumaður:
Arni Þór Eymundsson.
(16.00 Fréttir. 16.15 Veður-
fregir).
16.30 Horft um öxl og fram á
við. Gisli Helgason tekur til
umræðu útvarpsdagskrá
siðustu viku og hinnar kom-
andi.
17.30 Framhaldsleikrit barna
og unglinga: „Þegar felli-
byiurinn skall á” eftir Ivan
Southall 10. þáttur. Þýð-
andi og leikstjóri: Stefán
Baldursson. Persónur og
leikendur: Palli / Þórhallur
Sigúrðsson, Gurri / Sólveig
Hauksdóttir, Fanney / Þór-
unn Sigurðardóttir, Krissi /
Sigurður Skúlason, Maja /
Helga Jónsdóttir, Addi /
Randver Þorláksson,
Hannes / Þórður Þórðarson,
Sögumaður / Jón Júliusson.
18.00 Söngvar i lcttum dúr.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
"*'19.35 Svona var hann.Ragnar
Þorsteinsson kennari þýðir
og les sannar frásagnir af
skoskum hrekkjalómi eftir
Gavin Maxwell.
20.00 Frá tónlistarhátfð i Hel-
sinki i fyrrahaust. Zoltán
Kocsis leikur á pianó þætti
úr „Kunst der Fuge” eftir
Bach og Sónötu nr. 19 i D-
dúr eftir Haydn.
20.30
21.15 Hljómplöturabb. Þor-
steinn Hannesson bregður
plötum á fóninn.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurlregnir. Danslög.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Laugardagur
8. júni.
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Læknir á lausum kili
Breskur gamanmynda-
flokkur. Skipting útávið.
Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
20.50 Borgir. Nýr, kanadiskur
myndaflokkur um borgir i
ýmsum löndum, þróun
þeirra og skipulag.
Myndirnar eru byggðar á
bókum eftir Lewis Munford,
og i þeim er reynt að meta
kosti og galla borgarlifsins.
1. þáttur. Þýðandi Ellert
Sigurbjörnsson.
21.20 Óþekkti hermaðurinnn.
Finnsk biómynd frá árinu
1955, byggð á sögu eftir
Vainö Linna. Leikstjóri Ed-
vin Laine. Aðalhlutverk
Reino Tolvanen, Kale
Teuronen, Heikki Savolain-
en og Veikko Sinisalo.
Þýðandi Kristin Mantyla.
Skáldsagan „Öþekkti her-
maðurinn” eftir Vainö
Linna kom út 1954 og vakti
þegar mikla athygli og um-
ræður. Sagan rekur feril
finnskrar vélbyssusveitar i
ófriðnum við Sovétrikin
Sagan birtist i islenskri þýð-
ingu Jóhannesar Helga árið
1971. Kvikmyndin var á sin-
1941-44, og eru atburðirnir
séðir af sjónarhóli hins
óbreytta hermanns. Talið
er, að bókin hafi mjög
bFeytt viðhorfi F.inna til
styrjaldanna við Sovétrikin.
00.15 Dagskrárlok