Tíminn - 08.06.1974, Page 15
Laugardagur 8. júni 1974
TÍMINN
15
0 Sýsla
50 milurnar staðreynd —
Vestfjarðaáætlun
Fimmtiu milurnar eru hins
vegar staðreynd nú og þótt allir
séu ekki ánægðir með allt, þá eru
menn þó sammála um það, að
hagstætt hafi verið að semja upp
á þau býti, sem samið var um.
Stór hafsvæði eru friðuð og verk-
smiðjutogurum hefur verið bægt
út úr landhelginni. Samningarnir
hafa verið rægðir, en þó held ég
að fáir tslendingar vildu að
hernaðarástand rikti enn á fiski-
miðunum.
— Ef áframhaldandi viðreisn
hefði verið i landinu, væri land-
helgin ennþá 12 sjómilur með
þeim hroðalegu afleiðingum, sem
það hefði haft i för með sér fyrir
fiskistofnana við Island.
— Hvað með Vestfjarðaáætl-
unina? sem mikið var rædd á sin-
um tima?
— Vestfjarðaáætlunin, þegar
hún kom fram á sinum tima, var
fyrst og fremst vegaáætlun yfir
dálitinn hluta af Vestfjörðum. 1
þeirri vegaáætlun var gert ráð
fyrir þvi að tengja saman, með
varanlegum vegi, — sem fær yrði
mestan hluta ársins, — byggðirn-
ar i kringum tsafjörð. Segja má
þó, að meðan vegurinn um Breið-
dalsheiði er slikur sem hann er,
þá sé þeirri tengingu ólokið, varð-
andi Vestur-lsafjarðarsýslu. Sú
Vestfjarðaáætlun, sem við höfum
látið okkur dreyma um, hún er
miklu viðtækari, spannar yfir
fleiri þætti en akvegi. Þegar er
byrjað að framkvæma sumt af
þessu, t.d. svonefnda Inn-Djúps-
áætlun, en markmiðið er að
styrkja stöðu byggðarinnar við
innanvert tsafjarðardjúp.
Sýsla til sölu!
— Þarna verður gerð visinda-
leg, félagsleg könnun, eða hag-
fræðileg könnun, þar sem reynt
verður að gripa inn i félagsleg
fyrirbæri, eins og fólksflótta og
einangrun.
— Þessu fagna menn á Vest-
fjörðum, þar sem alltof lengi hef-
ur dregizt að hamla móti fólks-
flóttanum af þessum svæðum.
— Mér kemur i hug, að á dög-
um viðreisnar samdi Árni G. Ey-
lands áhrifamikla blaðagrein,
sem bar fyrirsögnina Sýsla til
sölu.sem þó var ekki alveg rétt.
Atti hann við Inndjúpið. Hins veg-
ar var það sannleikanum sam-
kvæmt, að hægt var um tima að
fá keypta heila hreppa á þessum
slóðum. Svona alvarlegt var
ástandið þarna, þegar vinstri
stjórnin tók við.
— Þvi miður verður það að
segjast eins og er, að við erum
ekki búnir að koma öllu i fram-
kvæmd, er þessar byggðir varð-
ar, en skriðan hefur þó verið
stöðvuð og brátt mun þróunin
snúast þar við eins og annars
staðar á Vestfjörðum. Fólki
mun fjölga i byggðunum við tsa-
fjarðardjúp.
Kosningabarátta með
hefðbundnu sniði — 13
fundir
— Nú fer kosningabaráttan i
liönd. Hvernig verður staðið að
henni að þessu sinni?
— Það verður nú með hefð-
bundnum hætti. Frambjóðendur
munu ferðast um kjördæmið allt
og hitta fólkið að máli. Þá eru
ráðgerðir fundir og svo er það föst
regla, að allir stjórnmálaflokkar
koma sér saman um sameigin-
lega framboðsfundi. Um það eru
menn sammála, en deilir hins
vegar á um, hversu viða ber að
halda fundi, og hversu marga
þarf að hafa.
Við framsóknarmenn aðhyll-
umst þá skoðun, að það beri að
hafa fundina fremur fleiri, en
færri. Við erum til dæmis þeirrar
skoðunar, að ekki nái nokkurri átt
að ekki skuli haldnir framboðs-
fundir i Bæjarhreppi áStröndum,
en framboðsfundir munu alls
verða 13 að þessu sinni.
Aðsókn að slikum kappræðu-
fundum hefur verið góð, þvi
stjórnmálaáhugi er mikill i kjör-
dæminu.
— Nú finnst mörgum, að
Strandasýsla tilheyri landfræði-
lega, eða akvegalega séð fremur
Húnavatnssýslu, en Vestfjörð-
um. Hvernig lita Vestfirðingar á
þetta?
— Strandasýsla er og verður
óaðskiljanlegur hluti af Vest-
fjarðakjálkanum. Að visu eru
samgöngur greiðari við sýslurnar
fyrir norðan, en ágætar samgöng-
ur eru við Barðaströnd og innan-
verðan Breiðafjörð. Sams konar
samband verður að komast á við
Djúpið. Samstarf er ágætt milli
byggðarlaganna i Vestfjarða-
kjördæmi. Þetta samstarf hefur
farið vaxandi með árunum. Má
þar t.d. nefna Fjórðungssamband
Vestfjarða. Gunnlaugur Finns-
son, sem skipar annað sæti fram-
boðslistans, er formaður þess.
Þótt samgöngur séu góðar við
Norðurland, þá er enginn vafi á
þvi, að við litum á Vestfjarða-
kjálkann, sem eina órjúfandi
heild. A það bæði við Stranda-
menn og Vestfirðinga.
örlög þessa landshluta hafa
verið sameiginleg og verða það
áfram.
— Hvað cr brýnasta mál, sem
kemur til kasta nýkjörinna þing-
manna og rikisstjórnar að vinna
aö fyrir Vestfjarðakjördæmi?
Átak i húsnæðismálum
— Bygging 1000 leiguí-
búða
— Nokkuð vel er nú séð fyrir
atvinnumálum og vel horfir i
landhelgismálinu. Stærsta verk-
efnið verða húsnæðismálin. Fólk-
inu fækkar ekki i Vestfjarðar-
kjördæmi, — þvi fjölgar og þetta
hefur leitt af sér húsnæðisskort.
Ef Framsóknarflokkurinn
heldur á stjórnartaumunum eftir
kosningarnar, verður unnið að
ibúðauppbyggingum út um land, i
rikum mæli. Þá ekki sizt i Vest,-
fjarðakjördæmi. Fyrir örfáum
árum, var svo til ekkert byggt á
Vestfjörðum, menn bóksatflega
áttu von á að fasteignir yrðu
verðlausar. Nú er hins vegar
mikil húsnæðisekla, þrátt fyrir
það, að einstaklingar reisi hús.
Okkur er þó ljóst, að það leysir
ekki allan vanda. Bygging leigu-
húsnæðis er mjög nauðsynleg og
verður að eiga sér stað á vegum
sveitarfélaganna.
— Steingrimur Hermannsson,
1. þingmaður Vestfjarðakjör-
dæmis, beitti sér fyrir þvi mjög
ákveðið á alþingi, að sett yrði lög-
gjöf um byggingu leiguhúsnæðis
og var miðað við að 1000 leigu-
ibúðir yrðu byggðar úti á landi.
Þetta mál er núna að komast á
framkvæmdastig, og vonum við,
að okkar hlutur verði ekki minni,
en efni standa til. Vestfirðir
eru i dag að risa upp eftir mjög
langa stöðvun og hrörnun. Allt
viðreisnartimabilið, eins og það
lagði sig, hallaði stöðugt á ógæfu-
hliðina fyrir þessum landshluta
og það var að verða almennur
hugsunarháttur, að Vestfirðir
ættu enga framtið fyrir sér og
ekkert vit væri i að fjárfesta þar.
Þær eignir yrðu verðlausar.
Nú hefur dæminu verið snúið
við og fólkið trúir á sina heima-
byggð og framtið hennar, segir
Ölafur Þ. Þórðarson skólastjóri
að lokum.
— ,IG.
Bátur til sölu
Til sölu er 5 tonna bát-
ur í mjög góöu ásig-
komulagi.
Upplýsingar geíur
Hörður Gilsberg í síma
93-6235.
BÆNDUR
13 ára viljugur drengur
óskar eftir vinnu í
sveit.
Upplýsingar í síma
8- 58-67.
BÆNDUR
15 og 13 ára unglings-
piltar óska eftir vinnu
í sveit.
Eru vanir
Upplýsingar í síma
50689 á kvöldin.
Sunnudagur
í). júni 1974
17.00 Endurtekið efni Munir
og minjar „Blátt var pils á
baugalin”. Elsa Guðjóns-
son, safnvörður, kynnir
þróun islenska
kvenbúningsins. Umsjónar-
maður dr. Kristján Eldjárn.
Áður á dagskrá 9. júni 1967.
17.25 Knut ödegaard Þáttur
frá norska sjónvarpinu,
byggður á ijóðum eftir
norska skáldið Knut öde-
gaard, sem mikið hefur ort
um byggðaþróun i landinu
og fólksflótta úr sveitum.
Islenskur texti. Jón O.
Edwald. Ljóðaþýðingar
Einar Bragi. Þulur Gisli
Halldórsson. (Nordvision —
Norska sjónvarpið) Áður á
dagskrá 3. mai siðastliðinn.
18.00 Skippi Ástralskur
myndaflokkur fyrir börn og
unglinga. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
18.25 Gluggar Breskur
fræðslumyndaflokkur fyrir
börn og unglinga. Þýðandi
og þulur Silja Aðalsteins-
dóttir.
18.50 Steinaldartáningarnir
Bandariskur teiknimynda-
flokkur. Þýðandi Heba
Júliusdóttir.
19.10 Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Borg kórallanna
Fræðslumynd um dýralif á
kóralrifjum og skipsflökum
neðansjávar. Þýðandi og
þulur Óskar Ingimarsson.
20.55 Bræðurnir Brezk fram-
haldsmynd i beinu fram-
haldi af myndaflokknum
um Hammond-bræðurna,
sem var hér á dagskrá i
vetur, sem leið. 1 þáttur.
Fjölskyldufundur Þýðandi
Jón O. Edwald.
21.45 Tökum lagið Breskur
söngvaþáttur, þar sem
hljómsveitin , The Settlers”
og fleiri leika og syngja.
22.20 Að kvöldi dagsSéra Jón
Einarsson i Saurbæ flytur
hugvekju.
22.30 Dagskrárlok
Mánudagur
10. júní 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Bandarikin Breskur
fræðslumyndaflokkur um
sögu Bandarikja N-
Ameriku. 11. þáttur. Skin og
skúrir Þýðandi og þulur
Óskar Ingimarsson.
21.25 Dæmalaus dári Breskt
sjónvarpsleikrit eftir Tom
Clarke. Þýðandi Kristmann
Eiðsson. Leikurinn gerist i
Bretlandi, þegar liður að
lokum fyrri heims-
styrjaldarinnar.
Aðalpersónan er liðsforingi,
sem barist hefur á vigvöll-
um Evrópu. Hann særist
alvarlega og er fluttur á
sjúkrahús heima i Bret-
landi. Meðan hann biður
eftir að ná fullum bata,
tekur hann að ihuga orsakir
og tilgang styrjaldarinnar
og kemst að þeirri athyglis-
verðu niðurstöðu, að hún sé
aðeins háð til að íullnægja
hegómagirnd og valdafikn
stjórnmálamanna. 1
samræmi við þessa skoðun
sina ákveður hann að neita
að snúa aftur til vig-
vallanna, en tekur þess i
stað upp harða baráttu gegn
striðsrekstri.
21.30 Dagskrárlok
Þriðjudagur
11. júni 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Bændurnir Pólsk
framhaldsmynd, byggð á
samnefndri skáldsögu eftir
Nóbelsskáldið Wladislaw S.
Reymont. 2. þáttur Þrándur
Thoroddsen.
21.25 Heimshorn Frétta-
skýringaþáttur um innlend
málefni. Umsjónarmaður
Jón Hákon Magnússon.
22.00 tþróttir Umsjónar-
maður ómar Ragnarsson.
Ilagskrárlok
MIÐVIKUDAGUR
12. júni 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Flcksnes. Nýr, norskur
gamanleikjaflokkur, byggð-
ur á nokkuð breyttum og
staðfærður leikritum eftir
bresku gamanleikjahöfund-
ana Galton og Simpson.. Af-
sakið—tæknileg bilun.Þýð-
andi Dóra Hafsteinsdóttir.
21.00 Flokkakynning. Fyrri
liluti. Fulltrúar stjórnmála-
fíokkanna, sem bjftða fram
til Alþingis i kosningunum
30. júni, kynna stefnumál
sin i sjónvarpssal. 1 þessum
áfanga kynningarinnar
koma fram fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins, Kommún-
istasamtakanna, Marxist-
anna-Leninistanna, Alþýðu-
bandalagsins, Samtaka
frjálslyndra og vinstri-
manna og Lýðræðisflokks-
ins i Reykjavik.
23.00 Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
14. júni 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og augiýsingar
20.30 Kapp með forsjá. Bresk-
ur sakamálamyndaflokkur.
Þýðandi Kristmann Eiðs-
son.
21.25 Flokkakynning. Siðari
hluti. Fulltrúar stjórnmála-
flokka, sem bjóða fram lista
við alþingiskosningarnar 30.
júni, kynna stefnumál sin i
sjónvarpssal. 1 þessum
hluta kynningarinnar koma
fram fulltrúar l'rá Fram-
sóknarflokknum, Alþýðu-
flokknum, Lýðræðisflokkn-
um á Akureyri, Lýðræðis-
flokknum á Reykjanesi og
Fylkingunni.
23.10 Dagskrárlok
LAUGARDAGUR
15. júni 1974
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Læknir á lausum kili.
Breskur gamanmynda-
flokkur. Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
20.50 Dulsálfræði. (Para-
psycologie). Sænsk fræðslu-
mynd um sérstaka hugar-
orku, sem einstöku menn
virðast búa yfir, og rann-
sóknir á útgeislun manna,
dýra og jurta. Þýðandi Elsa
Vilmundardóttir.
22.00 Mærin frá Orleans.
(Joan of Arc). Bandarisk
biómynd frá árinu 1948,
byggð á leikritinu eftir
Maxwell Anderson. Aðal-
hlutverk Ingrid Bergman,
Jose Ferrer og Ward Bond.
Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir. Myndin lýsir þátt-
töku frönsku sveitastúlk-
unnar Jeanne d'Arc i striði
Frakka gegn Englendingum
á þriðja tug 15. aldar. Je-
anne, eða heilög Jóhanna,
eins og hún hefur verið
nefnd, taldi sig fylgja boði
æðri máttarvalda. Hún náði
trúnaði hins veikgeðja kon-
ungs og leiddi her hans til
sigurs yfir Englendingum.
en var siðar tekin til fanga
af óvinunum og brennd á
báli sem galdranorn.
23.40 Dagskrárlok