Tíminn - 14.08.1974, Qupperneq 16
SIS-FOÐlJll
SUNDAHÖFN
GBÐi
fyrirgóóan mat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Átta fjall-
göngukonur
fórust
NTB-Moskvu — Staðfest var i
gær i Sovétrikjunum, að átta
fjallgöngukonur hefðu farizt i
Pamir-fjöllunum i Mið-Asiu i
fyrri viku. t tilkynningu frá
Tass-fréttastofunni, sem send
var út eftir að vestrænir fjöl-
miðlar höfðu birt fréttina, seg-
ir, að náttúruhamfarir hafi or-
sakað slysið, en ekki slærn
stjórn leiðangursins.
Bandariski blaðamaðurinn,
Christopher Wren frá New
York Times, sem sjálfur er
reyndur fjallgöngumaður, var
af tilviljun i hópi bandariskra
fjallgöngumanna I Pamir,
sem hitti fyrir fjallgöngu-
konurnar átta, þegar þær voru
að klifa Lenin-tindinn, sem er
7.134 metra hár.
Koval, formaður iþróttaráðs
Sovétrikjanna, sagði Tass, að
konurnar hefðu verið á leið
niður af tindinum, þegar þær
lentu i óveðri, sem eyðilagði
tjöld þeirra og útbúnað og
hefðu þær þvi frosið i hel.
Fjórar kvennanna höfðu áður
klifið tindinn, en meðal þeirra
voru frægustu fjallgöngukon-
ur landsins. Fjórir fjallgöngu-
menn, þrir eistlenskir og
svissnesk kona, fórust á Len-
in-tindi i fyrra mánuði.
Tindurinn er við landamæri
Kina.
Ákvæði um
möskvastærð
þverbrotin
TVÆR vörpur útlendra togara
hafa nú með fárra daga fresti
verið dregnar úr sjó úti af Vest-
fjörðum, báðar ólöglegar. Verður
að draga af þessu þá ályktun, að
veruleg brögð séu að þvi, að stórir
togarar noti ólöglcg veiðarfæri.
I siöustu viku náði togarinn
Július Geirmundsson upp botn-
vörpu af svokallaðri Alfredo-
gerð, sem notuð mun á færeysk-
um togurum. Við tiu mælingar,
sem fulltrúi frá bæjarfógetaemb-
ættinu á Isafirði gerði á pokanum,
reyndist möskvastærðin I neðri
hluta hans niutiu millimetrar, en i
efri hlutanum 110 millimetrar.
Lögleg möskvastærð er aftur á
móti 120 millimetrar.
Tæpum tveim klukkustundum
eftir að varðskip klippti sundur
togvira vestur-þýzka togarans
Hoheweg BX-735 svo sem skýrt
var frá i blaðinu I gær, fékk togar-
inn Framnes frá Þingeyri troll I
vörpu sina á sama stað. Er talið
fullvist, að þetta hafi verið
veiðarfæri hins þýzka togara. Var
varpan fóðruð mjög þettriðnu neti
tuttugu fet upp eftir pokanum, og
var möskvastærðin aðeins um
þrjátiu millimetrar, fjórfalt
minni en löglegt er og viðlika og
tiðkast viö loðnuveiðar. Vörpunni
fylgdu togvirar og toghlerar, og
hefur skipstjórinn á Framnesi,
Auðun Auðunsson, skýrt svo frá,
að augsýnilegt sé, að virarnir hafi
verið klipptir sundur.
Ford snýst gegn
verðbólgunni
NTB-Washington — Gerald Ford,
Bandarikjaforseti, sagði i gær, að
verðbólgan væri þjóðaróvinur
númer eitt og bað jafnframt um
aðstoð þingsins til að berjast gegn
fjármálavanda landsins.
Eftir ræðu forsetans var hægt
að greina i þinginu fyrstu merki
um nýjan samstarfsanda. Þessi
fyrsta ræða nýja forsetans til
þingsins fékk mjög góðar mót-
tökur og oftlega varð hann að
gera hlé á máli sinu vegna
fagnaöarláta þingmanna.
Bankanefnd fulltrúadeildar-
innar tilkynnti I gær, að hún
myndi þegar á morgun hefja
samningaviðræður, sem stefndu
að þvi að koma I framkvæmd einu
atriði þess, sem forsetinn bað
um,: nýju verðlagsráði, sem á að
hafa beint eftirlit með þróun I
kaupgjalds- og verðlagsmálum.
Þessu snöggu viðbrögð túlka
sérfræðingar sem tákn um
sterkan samstarfsvilja i þinginu.
Heimildir vilja meina, að forseti
fulltrúadeildarinnar, Carl Albert,
ásamt flokksleiðtoga demókrata,
Thomas O.Neill, hafi talað um
fyrir nefndarformanninum,
Wright Patman, að flýta fyrir
þessu frumvarpi, þrátt fyrir að
Patman sjálfur var i vafa um að
rétt væri að koma á fót nýju verð-
lagsráði.
Ford hélt áfram fundahöldum i
gær og ræddi m.a. við Kissinger
og tvo háttsetta fulltrúa varnar-
málaráðuneytisins. 1 dag mun
hann hitta borgarstjóra viðs
vegar að úr Bandarikjunum.
Ýmist of eða van:
Þurrkasvæðin á
kafi í vatni
NTB-Washington — Mikil þrumu-
veður með úrheliisregni og vind-
hraða allt að 95 km á klst hafa nú
leyst af hólmi þurrkana miklu I
miðvesturrikjum Bandarikjanna.
Bændur þar hafa beðið regns i
margar vikur, en nú finnst þeim
heldur mikið af þvi góða. 1 frétt-
um frá hinum ýmsu stöðum
þarna segir, að akrarnir séu nán-
ast gruggug stöðuvötn og moldin
skolist burtu meö vatninu.
Landbúnaðarráðuneytið segir,
að neyðarástand sé rikjandi hjá
bændum i mörgum rikjum vegna
þurrkanna, og sum héruö hafi
þegar fengið rikisaðstoð og önnur
sótt um hana. Verst er ástandið I
Kansas, Missouri, Illinois, Okla-
homa, S-Dakota, Texas, Ne-
braska og Ohio.
Tjónið er metið á 10 milljarða
dollara og búizt er við.aö ekki séu
öll kurl komin til grafar. Afleið-
ingin verður hækkað matvöru-
verð innanlands, takmörkun út-
flutnings vissra korntegunda.
KVIKMYNDUN ALENHARÐI
FÓGETA LÝKUR í DAG
—hs—Rvik. Kvikmyndun á „Lén-
harði fógeta”, sem sjónvarpið er
að gera, lýkur væntanlega i dag. 1
upphafi var gert ráö fyrir að
kostnaður við gerð kvikmyndar-
innar yrði um 3 milljónir, en hann
mun nú vera orðinn talsvert
miklu hærri, og hafa jafnvel 30
milljónir veriö nefndar i þvi sam-
bandi. Þó að þessar himinháu
tölur séu ekki réttar, er ljóst, að
kostnaður er mun meiri en gert
var ráð fyrir i upphafi. Ennfrem-
ur hefur verkiö tafizt talsvert,
sem vonandi kemur ekki að sök,
Huld húsfreyja í Bíldsey:
Dularfull atvik í
breiðfirzkri eyju
HA — BREIÐAFJARÐAR-
EYJAR? Eru þær ekki svo til
allar I eyði? Svo er talið — og
þó. t almæli er komið, að i
Bildsey gangi álfkona ljósum
logum, og er margt um þetta
rætt. Við fórum á stúfana til
þess að kanna, hvað eiginlega
hefði borið fyrir fóik i Bíldsey.
Okkur lék forvitni á að vita
eitthvaö um þessa Bíldseyjar-
konu, sem sumir voru farnir
að kalla áifakroppinn mjóa.
Eggert Björnsson, skipstjóri
I Stykkishólmi, hefur umsjón
með vitunum i Höskuldsey og
Elliðaey — og jafnframt fer
hann iðulega með ferðafólk,
útlent og innlent, út 1 Breiða-
fjarðareyjar. Blldsey, sem er
við utanvert Arneyjarsund,
um fimm kilómetra frá
Stykkishólmi, hefur verið I
eyði siðustu áratugi. Uppi
stendur þar þó allgott ibúðar-
hús. Eyjan er nú I eigu Árna
Helgasonar, stöðvarstjóra i
Stykkishólmi, og hefur Eggert
leyfi hans til þess að skjóta
fólki þar á land og leyfa þvi að
skoða sig um og lita inn i hús-
ið, ef svo vill verkast.
— Það var fyrir um það bil
mánuði, að ég fór með tuttugu
og fimm Þjóðverja út i Bilds-
ey, sagði Eggert, er Timinn
ræddi við hann. Fararstjórinn
talaði Islenzku, og hafði ég
sagt honum, að ekkert fólk
væri i eynni. Honum brá þess
vegna i brún, er hann sá konu
sitja á bekk undir húsveggn-
um. Stóð hún upp, er gestirnir
nálguðust/og hvarf inn. Sneru
komumenn þá frá, þar sem
þeir héldu húsið ekki mann-
laust, enda töldu fleiri i hópn-
um sig hafa séð opna glugga.
Ég fór svo út I eyna um
kvöldið, ásamt nokkrum Is-
lendingum, þvi að ég vildi ekki
hafa gluggana opna. Sjálfur
fór ég ekki heim að húsinu, þvi
að það var farið að brima, svo
að ég vildi gæta bátsins, en
förunautar minir sögðu, að
allir gluggar hefðu verið
lokaðir, og einn meira að
segja negldur aftur. Tveir
reyndu að komast inn, en gátu
það ekki, þvi að húsið virtist
læst. Þá hafði stúlka i hópnum
orð á þvi, að kannski vildi
Huld húsfreyja opna, ef hún
væri heima. Og viti menn: Svo
brá við, að þá var opið.
Svo fór ég þriðju ferðina og
prófaði þá skrána sjálfur,
sagði Eggert. Þá gat ég ekki
lokað, en litlu seinna var allt
harðlæst. Kona, sem var i
þessari ferð, taldi sig hafa séð
i eldhúsinu miðaldra konu
framliðna að hún sagði.
Þannig er sagan, sagði Egg-
ert, hvað svo sem maður á að
halda.
en reiknað er með að sýna kvik-
myndina um jólin.
Timinn ræddi litillega við Jón
Þórarinsson, framkvæmdastjóra
lista og skemmtideildar sjón-
varpsins, I gær og spurði hann
fyrst að þvi, hvort kvikmyndún
færi ekki senn að ljúka.
— Jú, þetta er langt komið.
Tökunni var að mestu lokið fyrir
sumarfrl, en verið er aö taka sið-
ustu myndirnar núna, þriðjudag
og miðvikudag. Það eru útitökur,
sem teknar eru austur I Rangár-
vallasýslu.
— Er þetta ekki eitt stærsta
verkefnið, sem sjónvarpið hefur
tekið fyrir.
— Þetta er langstærsta verk-
efnið, og af ýmsum ástæðum. 1
fyrsta lagi er þetta kvikmynd, en
ekki sjónvarpsleikrit, og auk þess
er verkið nokkuð fjöímennt. Auk
u.þ.b. 20 leikara eru nokkuð
margir svokallaðir „statistar”
sem koma fram i þvi.
— Hvernig hafa tökurnar
gengið?
— Upptökurnar hafa gengið
vel. Nokkuð mikið er um útisen-
ur, en veðrið hefur litið truflað.
Innisenur voru hins vegar allar
teknar I Valsheimilinu við öskju-
hllð, en af þvi höfðum við afnot i
um hálfan annan mánuð. Eins og
ég gat um áðan lýkur tökum á
morgun (miðvikudag), en eftir er
að sjálfsögðu mjög mikil tækni-
vinna, s.s. klipping hljóðsetning
o.s.frv.
— Hvenær fáum við svo að sjá
kvikmyndina?
— Það verður væntanlega um
jólin, að þvi hefur verið stefnt.
— Hvað kostar svo að gera
svona stykki? Lausafregnir
ganga um það, að kostnaður sé
oröinn anzi hár?
— Það liggur nú ekki ljóst fyrir
ennþá. Áætlunartölur voru
náttúrlega gerðar, en ýmsar
breytingar hafa orðið á verðlagi
siðan og ýmsar ófyrisjánlegar
tafir hafa lika oröið. Ég vil ekki á
þessu stigi málsins nefna neinar
tölur, sem gætu verið meira og
minna villandi. Það ganga nú
alltaf slikar lausafregnir, eins og
þú varst að minnast á, menn
blása þetta út hver fyrir öðrum,
en enginn veit neina raunveru-
lega tölu. Það er núna verið að
vinna að þvl að taka þetta saman,
Frh. á bls. 15
Hlaut 3.
gráðu
brunasár
Um kiukkan hálf sjö á mánu-
dagskvöldið var maður, sem býr 1
húsinu að Bræðraborgarstlg 32,
var við, að reyk lagði út um
glugga I húsinu. Þegar hann réðst
til inngöngu I herbergið, sá hann,
að eldur var I legubekk og rúm-
fötum, og að maðurinn, sem bjó I
herberginu, lá á legubekknum.
Slasaðist maðurinn mikið, hlaut
þriðju gráðu bruna á mest allan
hluta likamans, fætur og andlit
sluppu. 1 gær var hann enn I lífs-
hættu. Alitið er, að kviknað hafi I
út frá sigarettu.
íslending-
ur bíður
bana d
Mallorka
Banaslys varð á Mallorka
siðastliðinn sunnudag. Ungur Is-
lendingur, Þorsteinn Ingólfsson,
sem þar var i sumarleyfi ásamt
eiginkonu sinni, féll fram af svöl-
um og lézt samstundis.
Höföu hjónin búið I Ibúðarhúsi á
Palma Nova og féll Þorsteinn
fram af svöium hússins.