Tíminn - 05.11.1974, Page 1
fóðurvörur
ÞEKKTA
UM
LAND
ALLT
Stjórnventlar
Olíudælur
Olíudrif
217. tölublað — Þriðjudagur 5. nóvember — 58. árgangur
Landvélarhf
l DAG
Nöldur
íhaldsblað-
anna
— sjó leiðara
bls. 9
Kardemommu-
bærinn aftur
á fjölunum
— sjd bls. 10
og 11
Ólafur Jóhannesson viðskiptaróðherra:
Olíuverðið eiffhvert
mesfa vandamál okkar
Samið um greiðslufrest og áfram-
haldandi viðskipti við Sovétríkin
OÓ-Reykjavik. Hin gifurlega
hækkun á oiiuverði hefur haft
m jög mikil áhrif á viðskipti okkar
við aðrar þjóðir og miklu meiri en
maður skyldi ætla ifljótu bragði.
Olfuverðið er nú 2 1/2 sinnum
hærra en það var á siðasta ári og
fjórum sinnum hærra en 1972.
Þetta sagði ólafur Jóhannesson
viðskiptaráðherra á fundi með
biaðamönnum i gær, en hann er
nýkominn heim frá Sovétrikjun-
um, þar sem hann ræddi við ráða-
menn um hina miklu skuldasöfn-
un islendinga þar og um samn-
inga um greiðslu þeirrar skuldar
og áframhaldandi viðskipti land-
anna.
Mengunarmdlin á Suðurnesjum:
VÍÐTÆKAR
RANNSÓKNIR Á
VATNASVÆÐUM
BH—Reykjavik. — Við erum
búnir að yfirfara þau gögn, sem
við höfum aflað um hugsanlega
mengun vegna oliumeðferðar á
Keflavikurfiugveili og raunar i
Keflavik og Njarðvik. Það er búið
að kortleggja það, sem vitað er
um, að olia hafi farið út á jörðina,
og þetta er komið til Heilbrigðis-
eftirlits rikisins. Niðurstaða var
skoðuð á sameiginlegum fundi I
Njarðvikunum, og við reyndum
að gera okkur svolitia grein fyrir
þeim punktum, sem eru hættuleg-
astir, og jafnframt voru lagðar
linurnar um áframhaldandi rann-
sókn málsins, sem verður æði
umfangsmikil á þann veg, að við
þurfum að kanna hvort tveggja,
— hvort hér sé um að ræða fram-
tiðarvatnsból Suðurnesja, sem
við höfum fram að þessu notað,
þ.e.a.s. grunnvatnið undir
skaganum, hversu mikið það er
og hvort það sé fyrir okkar fram-
tiðarvatnsból. Ef þetta reynist
vera, sem við höfum trú á — að
við rannsókn reynist vera þarna
mikill vatnsforði, að það muni
duga okkar um ókomin ár, þá
munum við að sjálfsögðu halda
rannsókninni áfram og kanna
betur, hversu hættuieg olian er.
Þetta er það, sem fyrir liggur
núna.
Þannig komst Vilhjálmur
Grimsson, bæjartæknifræðingur i
Keflavik, að orði i gær, þegar
blaðið hafði samband við hann og
Framhald á 6. siðu.
Þórhallur Ásgeirsson ráðu-
neytisstjóri var i för með ráð-
herranum.og á heimleiðinni sátu
þeir viðskiptaráðherrafund
EFTA I Helsinki og er sagt frá
honum á öðrum stað I blaðinu.
i fyrri viðskiptasamningi við
Sovétrikin var gert ráð fyrir litil-
fjörlegum yfirdrætti af hálfu ts-
lendinga, en skuldin var komin
langt yfir þau mörk, og hafa
Rússar sýnt mikla þolinmæði
varðandi þessi viðskipti. En
svona gat þetta ekki gengið til
lengdar, sagði ráðherrann, og
skuld okkar verðum við að gera
upp. Viðskiptahallinn stafar einn-
ig að nokkru leyti af tregari fisk-
sölum til Sovétrikjanna en gert
hafði verið ráð fyrir. Um þessi
mál var rætt á fundinum i
Moskvu, eins og áður hefur verið
skýrt frá i Timanum.
Ólafur sagði, að samningar
hefðu tekizt um skuldaviðskipti,
og taka þeir gildi um næstu ára-
mót, sem þýðir að skuldin verður
vaxtalaus fram að þeim tima, en
nýju samningarnir gera ráð fyrir
Framhald á 6. siðu.
óiafur Jóhannesson viðskiptaráðherra og Þórhailur Asgeirsson ráAn-
neytisstjóri skýra blaðamönnum frá för sinni til Moskvu og samkomu-
laginu, sem gert var við Sovétmenn um viðskiptamál.
Timamynd G.E.
Hættuleg
björgun á
og torveld
hafi úti
flutningaskipið Stolt Vista rekur stjórnlaust eftir að
sprenging varð í vélarrúmi — þrír skipverjar slösuðust
Gsal—Reykjavik. — Flutninga-
skipið Stolt Vista, sem siglir með
iiberiskum fána, hefur verið I
nauðum statt frá þvi aðfaranótt
mánudags, er sprenging kom upp
i vélarrúmi skipsins, þar sem það
var statt um 155 sjómilur i suð-
Fréttamaður vitni
fyrir Verðlagsdómi?
HJ-Reykjavik. Verðlagsmál hafa
verið mjög til umræðu að undan-
förnu, ekki sizt eftir að Þórunn
Klemensdóttir hagfræðingur
fjallaði um þau i Kastijósi sjón-
varpsins. t könnun Þórunnar kom
I ljós, að gifurlegur munur er á
verði sömu vörutegundar i hinum
ýmsu smásöluverzlunum.
T.a.m. sýndi sig við rannsókn á
smásöluverði á 90 gr. Colgate
tannkremstúbum, að I a.m.k.
tveimur þeirra fimm verzlana,
sem Þórunn fór i, var álagning
mun hærri en sem samsvarar
leyfilegri hámarksálagningu.
Tvær verzlananna voru þvi brot-
legar við lög, og ein alveg á mörk-
um þess^Þetta er nokkuð ógn-
vekjandi staðreynd, sérstaklega
þar sem Þórunn valdi sér
verzlanir alveg af handahófi og
má gera ráð fyrir, að þessi könn-
un hennar gefi nokkuð skýrt yfir-
lityfir, hvernig þessum málum er
háttað almennt.
Jón Abraham Ólafsson verð-
lagsdómari sagði i viðtali við
Timann, að mjög miklum erfið-
leikum væri bundið að hafa eftir-
litmeð þessum málum. Mismun-
andi verð i hinum ýmsu smásölu-
verzlunum þyrfti alls ekki að
þýða það, að ólöglega há álagning
væri I einstökum verzlunum. Þó
að markaðsverð vöru hækki, sem
ekki hefur verið ótitt að undan-
förnu, ber kaupmanni skylda til
að selja gamlar birgðir á þvi
verði, sem rikti, þegar hann fékk
vöruna I hendur. Það er þvi undir
þvi komið, hversu gamlar birgðir
eru I búðunum, hvort verðið er
hærra eða lægra, og er ekkert
óeðlilegt við að fleiri en eitt verð
riki á sömu vörutegund á
markaðnum samtimis.
Jón Abraham kvað dómstólinn
sem slikan ekki halda uppi lög-
gæzlu I þessum efnum, heldur
einungis taka fyrir þær verðlags-
kærur, sem honum bærust. Hvað
snerti þær upplýsingar, sem fram
komu hjá Þórunni Klemensdótt-
ur, kvað hann þess ekki hafa ver-
ið getið I þættinum, hvaða
verzlanir hefðu selt vöruna með
óleyfilega hárri álagningu. Ekki
heföi verið gripið til neinna sér-
stakra aðgerða vegna þeirra upp-
lýsinga, sem fram komu I þættin-
um, en hitt kæmi vel til greina, að
viökomandi fréttamaður yrði
kallaður fyrir dómstólinn til að
gefa nánari upplýsingar um
rannsókn sina.
vestur af Stokksnesi. t eldinum
brenndust þrir af skipshöfninni,
þar af einn mjög aivarlega. Véiar
skipsins eyðilögðust I eldinum og
rekur það stjórnlaust, en veður
var mjög siæmt á þessum slóðum
* gærdag og I nótt.
Klukkan 4.35 á mánudagsnótt
tilkynnti Loftskeytastöðin i
Reykjavik, Slysavarnafélagi Is-
lands, að hún hefði móttekið
neyöarskeyti frá Stolt Vista, þar
sem hefði verið sagt að sprenging
hefði orðið i vélarrúmi og mikill
Bað
eldur væri laus I skipinu.
Stolt Vista þegar um aðstoð.
Loftskeytastöðvarnar hér
sunnanlands og austan kölluðu
hjálparbeiðnina strax út og báðu
nærliggjandi skip að veita aðstoð.
Jafnframt var haft samband við
Landhelgisgæzluna, sem sendi
þegar varðskip til móts við
flutningaskipið
Stolt Vista var þá statt um 155
sjómilur suð-austur af Stokks-
nesi. Klukkan fimm tilkynnti
Framhald á 6. siðu.
Flugferð til London
fyrir 9 þús. krónur
Framsóknarfélögin i
Reykjavik hafa ákveðið að
efna til mjög ódýrrar
Laundúnaferðar 10.-14.
nóvember vegna þess að
tækifæri bauðst til þess, i sam-
bandi viö ferðir Boeingþotu
Air Viking, sem fer tóm til
Lundúna til að sækja þangað
hina heimsfrægu hljómsveit
„Slade” sem kemur hér við i
hljómleikaferð til Norður-
landa. En önnur af þotum Air
Viking flytur siðan hljóm-
sveitina til Norðurlanda og
tekur ferðahóp Framsóknar-
félaganna heim i baka-
leiðinni.
Geta Framsóknarfélögin á
þennan hátt fengið að nýta
tomflugið I þessum flutning-
um og gefið félagsmönnum
kost á svo fábærlega ódýrri
Lundúnaferð.
Þess má geta að nú kostar
einstaklingsfarseðill einn
saman i áætlunarflugi yfir 40
þúsund krónur til
Kaupmannahfnar, fram og til
baka.
Hægt er að útvega farþegum
Framhald á 6. siðu.
f