Tíminn - 05.11.1974, Page 4
4
TÍMINN
Þriöjudagur 5. nóvember 1974.
Twiggy segir mömmu sinni allt
Twiggy.grannastúlkan, sem eitt
sinn var tizkufyrirmynd ungu
stúlknanna, og varð þess vald-
andi, að fjöldinn allur af ung-
lingsstúlkum fór i megrunar-
kúra, sem lá við að leiddu þær
til dauða, er nú orðin 24 ára
gömul og farin að fitna. Hún býr
enn heima hjá mömmu sinni, en
er nú með ráðagerðir um að
giftast 41 árs gömlum Banda-
rikjamanni. Af þvi getur þó ekki
orðið alveg á næstunni, þar sem
sá bandariski er ekki skilinn við
eiginkonu sina. Annars segist
Twiggy aldrei gera neitt, án
þess að ráðfæra sig fyrst við
móður sina, þvi mamma viti
bezt um alla hluti, og þess vegna
sé gott að hafa hana með i ráð-
um.
Þegar
klórað er
Sérfræðingur i nálarstungu-
lækningum, sem búsettur er i
Los Angeles, hefur uppgötvað
aðferð fyrir fólk að megra sig
með þvi að klóra sér i eyranu.
Aöferð dr. Lester Sacks felst i
þvi, að festa litlar stálklemmur
á tiltekna staði inni í ytra eyra
og þarf sá sem hefur þessar
klemmur rétt settar í, ekki ann-
aö en klóra sér i eyranu þegar
hann finnur til svengdar og hafa
klemmurnar þá þau áhrif á til-
teknar taugar að sulturinn
hverfur. Auk þess að draga úr
matarlyst hafa klemmurnar og
klórið i þær þann ágæta eigin-
leika að auka kynferðislegar
fýsnir, að þvi er dr. Sacks segir.
AAargrét Danadrottning
kaupir
►
höll
Margrét Danadrottning og
Henrik maður hennar hafa ný-
lega fest kaup á sumarhöll i
Frakklandi. Þegar Margrét fór
að velta fyrir sér húsakaupun-
um, hugsaði hún eins og svo
margar smábarnamæður
myndu gera: Þar sem ég fer á
hverju einasta sumri til Frakk-
lands, og drengirnir verða
stærri með hverju árinu, og
amman og afinn i Frakklandi
verða sifellt eldri, þá er liklega
bezt fyrir mig að kaupa þar mitt
eigið hús, svo við getum dvalizt
þar út af fyrir okkur, og amma
og afi hafi ekki alltof mikið
ónæði af heimsóknum okkar.
Margrét keypti þvi höllina
Chateau de Caix i Suður-Frakk-
landi. Höllin er skammt frá
heimili tengdaforeldra hennar.
1 nánd við höllina eru miklar
vinekrur, en það mun þó ekki
vera þess vegna, sem Margrét
valdi einmitt þessa höll. Synirn-
ir Friðrik og Joakim eiga nú aö
fá tækifæri til þess að læra
frönskuna vel og vandlega af
innfæddum, enda ekki annaö
sæmandi en að þeir tali jafnvel
mál beggja foreldranna. Svo
finnst Margréti ekki jafnrólegt
að dveljast i sumarhöll fjöl-
skyldunnar, Marselisborg, sem
er skammt frá Árósum. Það er
töluvert annað að dveljast i
Chateau de Caix, þvi næsta þorp
er litið, svo ekki sé meira sagt,
þvi ibúar þess eru ekki nema 30
talsins, og landareignin i kring-
um höllina er hvorki meira né
minna en 40 hektarar, svo ekki
sér út yfir girðinguna.