Tíminn - 05.11.1974, Page 5

Tíminn - 05.11.1974, Page 5
Þriöjudagur 5. nóvember 1974. TIMINN 5 MERK FRÆÐSLU- RIT UM SÖGU ÍSLANDS Aldahvörf eftir Þórleif Bjarnason og Hin fornu tún eftir Pól Líndal Komnar eru út á vegum Rikisút- gáfu námsbóka tvær nýjar bækur ernefnast Aldahvörfog Hin fornu tún. Þær eru gefnar út undir út- gáfuheitinu Bókagerðin Askur og I nýjum bókaflokki, er nefnist Land og saga. Ætlun Rikisútgáfunnar er að gefa út i þessari bókasamstæðu nokkur fræðslurit varðandi Is- land, sögu lands og þjóðar. Bækur þessar eiga ekki að vera kennslu- bækur i venjulegum skilningi, heldur geti hver og einn jöfnum höndum lesið þær sér til fróðleiks og skemmtunar, og einnig notað þær sem uppsláttarrit. Ánnars er þeim ætlað að gegna mikilvægu hlutverki sem viðbótarlesefni og heimildargögn fyrir skóla- nemendur, eins konar ýtarbækur til notkunar með námsbókunum. Eiga þær að geta greitt götu nemenda við frjálst skólastarf og sjálfstæð vinnubrögð, sem nú er lögð æ rikari áherzla á i skóla- kerfinu. í fréttatilkynningu frá Rikisút- gáfunni segir svo um þessar bækur. Bókin Aldahvörf, ellefta öldin i sögu íslendinga, er eftir Þórleif Bjarnason, fyrrverandi náms- stjóra. Hún fjallar um elleftu öldina I sögu Islendinga, þ.e. frá 1874, þegar þjóðin fékk sina fyrstu stjórnarskrá. Sagan hefst á stuttum saman- burði þjóðlifsins við upphaf og lok þessa timabils. Siðan er rakin i aðalatriðum stjórnskipan lands- ins frá upphafi landshöfðingja- timabilsins til lýðveldis. Þar á eftir skiptist bókin i þessa aðalkafla: Landbúnaður, Sjávarútvegur, Iðnaður, Verzlun, Samgöngur, Húsakostur og heilbrigðismál, Félagssamtök og félagsmál, Stjórnmál. Á eftir hverjum kafla er getið heimildarrita. Veitir það lesend- um bókarinnar vitneskju um, hvar frekari fræðslu er að finna um þau mál, er hver kafli fjallar um. 1 bókinni eru myndir af 135 manns, konum og körlum eða þvi nær öllum, sem getið er, að undanskildum þeim einstakling- um, sem enn eru á lifi. Auk mannamyndanna eru 115 myndir, sem sýna hinar stór- felldu breytingar á atvinnuhátt- um, byggingum, samgöngum og á ýmsum öðrum sviðum, sem átt hafa sér stað á þessu mesta framfaraskeiði i sögu þjóðar- innar. Enn fremur eru i bókinni 25 töflur, er sýna með tölum þróun fjölmargra þátta þjóðlifsins á þessu timabili. Skrá er um alla ráðherra, sem myndað hafa rikisstjórn, frá 1904-1971, og hvaða ár þeir fóru með stjórn landsins. 1 bókarlok er nafnaskrá félaga, stofnana, fyrirtækja og einstaklinga. Bókin Aldahvörf er samin með það fyrir augum, að veita öllum þeim, er hana lesa, nokkurn fróðleik og yfirlit um þá gjör- byltingu sem átt hefur sér stað á flestum sviðum þjóðlifsins þessa siðustu öld þjóðsögunnar. Bókin Aldahvörf er 288 bls. Filmugerð annaðist Myndamót hf. og prentun Ingólfsprent h.f. Hin fornu tún — Reykjavik i ellefu aldir — er samin af Páli Lindal borgarlögmanni. Markmiðið með útgáfu þeirrar bókar er að veita lesendum i stuttu máli nokkuð alhliða mynd af höfuðborginni að fornu og nýju. Þar er fjallað um veðurfar, landslag, gróður og dýralif. Sagt er nokkuð frá ibúum Reykjavikur og saga hennar rakin. Þá er gerð grein fyrir stjórn hennar, fjár- málum og þeirri þjónustu sem borgin veitir. Alllangur kafli er um atvinnumál: landbúnað, sjávarútveg, iðnað, verzlun, sam- göngur og annað, sem til atvinnu- mála telst. Sérstakir kaflar eru um kirkjumál fræðslu- og menningarmál. Þar er m.a. gerð grein fyrir þróun skólahalds, iþróttamálum, æskulýðsmálum, söfnum, blaðaútgáfu og þróun ýmissa listgreina. Fjallað er um félagsmálastarfsemi, húsnæðis- mál, verkalýðsmál og heilbrigðismál. Að lokum er sér- stakur kafli um Reykjavik i bók- menntum. Ýtarleg atriðisorða- skrá fylgir. 1 bókinni eru um 160 myndir frá gömlum og nýjum tima, þar á meðal átta myndir af málverk- um frá Reykjavik. Þess skal getið að texti bókarinnar var full- saminn siðast liðið haust og er þvi að miklu leyti miðaður við upplýsingar er fyrir lágu, snemma árs 1973. Hin fornu tún er 215 bls. Filmu- gerð og prentun annaðist Litbrá hf. Umbrot og útlit beggja bókanna annaðist Þröstur Magnússon teiknari. Báðar þessar bækur eru tengdar ellefu alda búsetu þjóðarinnar i landinu. Aldahvörf er saga siðustu 100 ára þessa tfmabils, en Hin fornu tún þróun'arsaga þess staðar, þar sem byggð landsins hófst fyrir ellefu öldum. Rikisútgáfan taldi þvi vel viðeigandi að þær kæmu út á þessum merku timamótum i sögu þjóðarinnar sem örlitill þáttur i afmælishaldinu. mmm Nú hafa verið ákveðhar sjö 18 daga ferðir til Gambíu í vetur. Verður brottför frá Keflavík eftirtalda daga: 30. nóvember 22. febrúar * 14. desember 8. marz 28. desember 22. marz 8. febrúar Verð er: frá kr. 53.900,oo til 64.900,oo eftir brottfarardegi og tegund gistingar. Flogið er um Kaupmannahöfn í báðum leiðum og er gisting ásamt morgunverði þar innifalin bæði fyrir og eftir ferðina á Hotel Mercur. í Gambíu er innifalin gist- ing ásarnt hálfu fæði á meðan dvalist er. Sætamagn er takmarkað. Hafið sam- band við ferðaskrifstofu yðar, skrifstof- ur flugfélaganna og umboðsmenn. FLUCFÉLAG LOFTLEIDIR LSLANDS 0RAF Vinnufélag II Ba I rafiönaðarmanna Bw H Barmahliö 4 I | I Efe Hverskonar raflagnavinna. Nýlagnir og viðgerðir Dyrasímauppsetningar Teikniþjónusta. Skiptið við samvinnufélag. Simatími milli kl. 1- 3. daglega i sima 2-80-22 iOHNS-MANVILLE glerullar- 9 einangrun er nú sem fyrr vinsælasta og öruggasta glerull- areinangrun á markaðnum í dag. Auk þess táið þér frian álpappír með. Hagkvæmasta einangrunarefnið i flutningi. Jafnvel flugfragt borgar sig. Muniö Johns-Manville í alla einangrun. Hagkvæmir greiðsluskilmálar. Sendum hvert á land sem er. JIS HttllIllllftlllllll L_IJ I I 1 I I 1 I I I I I I I I I i JON LOFTSSON HF. Hringbrouf 121 . Slmi 10-600

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.