Tíminn - 05.11.1974, Qupperneq 6

Tíminn - 05.11.1974, Qupperneq 6
6 TÍMINN Þriöjudagur 5. nóvember 1974. O Rannsókn innti hann fregna af gangi þess- ara mála, sem hér hefur veriö getið. Fundur sá, er um getur var haldinn sl. föstudag og sátu hann fulltrúi Heilbrigðiseftirlits rikis- ins, Einar Valur Ingimundarson, Jón Jónsson, jarðfræðingur, frá Orkumálastofnun, bæjartækni- fræðingurinn I Keflavik, verk- fræðingur Njarðvikurhrepps, Magnús Guðmannsson. Einnig sátu sveitarstjóri og oddviti Njarðvikurhrepps fundinn. — En að hverju er þá stefnt, og hver eru þau verkefni, sem fyrst verður tekizt á við? — Það fyrsta, sem liggur fyrir núna segir Vilhjálmur Grimsson, er aö kanna grunnvatnsstöðuna undir skaganum. Við þurfum að kortleggja 120 holur, sem hafa veriö boraðar hér i gegnum árin, velja nokkrar þeirra úr og fylgj- ast með þvi, hvernig þær hegða sér og i hvaða stöðu grunnvatnið erhér, og hversu mikið það er að vöxtum. Þegar sú niðurstaða liggur fyrir, hversu mikið vatn er hér, og hversu lengi það muni duga okkur, þá munum við halda ótrauðir áfram við það að rann- saka hugsanlega eyðileggingu, sem getur vofaö yfir vegna oliu- mengunarinnar, sem er allmikil i jöröinni. — Er talið að hún sé veruleg? — Við vitum, að hún hefur sums staðar komizt niður i grunn- vatnið, við vitum af ónýtum hol- um, sem hafa spillzt vegna oliu- mengunar, en ekki er kannað ennþá, hversu viðtæk hún er, þ.e.a.s. hversu viða hún er komin eitthvað að ráði niður i jörðina. — Er þetta ekki mikið verk? — Þetta verk er bæði umfangs- mikið og kostnaðarsamt. — Það oliumagn sem farið hefur niður, er það mikið, og þá hvar helzt? — Það er ljóst, að það hefur fariö anzi mikið niður af oliu uppi á velli. Aftur á móti er hverfandi litil hætta niðri i Keflavik, það eru þá helzt gamlar leyfar hérna suð- ur undir girðingu, sem þarf að at- huga, þar sem er gamalt tanka- stæði en að öðru leyti er litið um að vera hér i Keflavik, enda segir það sig sjálft, að það oliumagn sem búið er að meðhöndla uppi á velli það er alveg gifurlegt i gegn- um árin. Þessar stórvirku vinnu- vélar hafa verið þarna öll þessi ár, og menn gerðu sér bara enga grein fyrir þvi, að það væri nein hætta á ferðum, þó að eitthvað af oliu sullaðist niður. Og þetta er svo sem fyrirgefanlegt, af þvi að þá hugsuðu menn ekki út i þetta, þvi að olian hvarf bara niður i jörðina, og svo átti hún að vera úr sögunni — og svo var bara málið leyst. v — Ætli hugsunarhátturinn sé breyttur? — Það er enginn vafi á þvi — og skilningur manna á þessu er mjög að aukast. Flugferð dvöl á hóteli i London, sem kostar með morgunverði um 1100 krónur og er þá miðað við gott hótel, þar sem herbergi eru með baði. Mikið er um að vera i London um þessar mundir, eins og oft áður. Þar eru haldnar margvislegar sýningar og heimsókn á nokkur heimsfræg söfn, sem milljónaborgin hýsir, er ein þess virði að sækja London heim að ógleymdu hinu fjöl- breytta leikhús- og listalifi, sem einmitt stendur I hvað mestum blóma á þessum tima árs. Reikna má með, að flestum sætunum i þessa ferð verði ráðstafað til félagsmanna eftir óskum þeirra i dag, á morgun, og fimmtudag, þar sem svo ódýrt Lundúnaferð hefir ekki boðizt áður, og ekki liklegt að önnur slik bjóðist alveg á næstunni. Olíuverðið að greiddur verði helmingur skuldarinnar, en vextir verða greiddir af eftirstöðvunum. Við- skiptahallinn við Sovétrikin nem- ur um 3.5 milljörðum króna, en búið er að greiða af þvi rúman milljarð króna. Þá var samþykkt að yfirdráttarheimildin verði hækkuð verulega frá þvi sem áð- ur var. Samkomulag tókst einnig um við hvaða upphæð skuli miða, en það atriði hefur verið svolitið á reiki vegna gengisbreytingarinn- ar á Islenzku krónunni. Kvað Ólafur þetta samkomulag vera Islendingum eins hagstætt og frekast var hægt að búast við. Rætt var um, að auka vörukaup Sovétrikjanna frá Islandi til að rrewm Okkur or ánægja að tilkynna þ«im fjolmorgu, som hafa koypt af okkur kæliskápa oy þvottavólar og oru ánægðir moð þau kaup, að nú hofum við einnig á hoðstolum Ignis eldavólar. sem cinnig má mæla moð som sórstakri gæðavoru Við bondum moðal annars á. að fylgjandi er grill asamt rafknunum grillteini.svo að nú or hægt að olda matinn moð þoim hætti. som mest tiðkast nú — grillið læri, kjúklinga oða annan mat oftir hcntugloikum, og smckk. og látið hitastilli og klukku vera yður til hjálpar við að fá som ho/tan mat moð som minnstri fyrirhofn, Það ur tryggt' moð þossari IGNIS vél, sem er að oðru loyti húin oins fullkomloga og krofur oru gorðar til viða um hoim Og um hagstæðara vorð or vart að ræða núna Og þoyar [xir kaupið IGNIS. skuluð þór muna, að þar for tvonnt sarnan. soin aðrir bjóða ITALSKT HUGVIT OG HAND LAGNI ISLENSKUR LEIÐARVISIR FYLGIR — IGNIS VERÐ VARAHLUTA OG VIÐGERÐAÞJONUSTA HVERS VIRDI ER ÞEKKING OG ÞJONUSTA FAGMANNA? RAFIÐJAN VESTURGÖTU 11 SÍMI 19294 RAFTORG V/AUSTURVÖLL SlMI 26660 jafna þann stóra mismun, sem oröinn er á i viðskiptum rikjanna, en íslendingar kaupa nær alla oliu sem þeir nota frá Sovét- rikjunum. Samkomulag náðist um, að Rússar kaupi á þessu ári 10 þúsund lestir af fiskimjöli á þvi verði sem gildir á heimsmarkaði. Krefjast þeir, að mjölið verði I bezta gæðaflokki. Nánari samn- ingar þar um verða i höndum fiskimjölsframleiðenda. Hins vegar sagði ráðherrann, að ekki hefði fengizt framgengt að Rússar keyptu af okkur all- verulegt magn til viðbótar af heil- frystum fiski og fiskflökum. Eru þeir búnir að gera ráðstafanir til kaupa á þeim vörutegundum til áramóta. En gert er ráð fyrir við- ræðum i desember n.k. um við- skipti næsta árs og standa vonir til, að þá verði hægt að semja um meiri útflutning á þessum vöru- tegundum til Sovétrikjanna en átt hefur sér stað á þessu ári. Þess skal getið, að birgðir af nefndum vörum eru nú miklar i landinu. Frystihúsin eru full og afskipanir eru ekki eins miklar og framleitt er, og miklar birgðir af flökum eru i verksmiðjum ís- lendinga i Bandarikjunum. Er þetta ein ástæðan til vandræða okkar i viðskiptamálum. Um svipað leyti og ráðherrann var i Moskvu var samið þar um oliukaup Islendinga á næsta ári, og urðu þeir samningar ekki óhagstæðari en ráð hafði verið fyrir gert. Viðskiptaráðherra benti á, að viðskipti okkar við Sovétrikin væru mjög mikilvæg og bæri Is- lendingum að leggja á þau áherzlu. Minnti hann á, að þegar mörkuðum okkar i Bretlandi var lokað vegna landhelgisdeilunnar hafi Rússlandsviðskiptin bjargað okkur, en þá var ekki farið að selja fisk til Ameriku, þar sem stærsti markaður okkar er nú. — Ég vil láta þá skoðun i ljós, sagði ráðherrann, að útflytjendur eigi að leggja rækt við viðskiptin við Rússland og tel ákaflega óheppilegt að útflutningur verði um of einskorðaður við einn ákveðinn markað. Þess vegna er lika þýðingarmikið að lögð verði áherzla á að opna nýja markaði i Vestur-Evrópu, þar sem neyzlu- venjur þar eru að komast i svipað horf og i Bandarikjunum. Kaup- endur vilja fá vöruna tilreidda og Islendingar hafa fengið reynslu af framreiðslu fiskrétta i verk- smiðjum sinum i Bandarikjun- um, og hvers vegna skyldu þeir þá ekki lika geta reist og rekið svipaðar verksmiðjur i Evrópu, þar sem við höf um bæði kunnáttu og reynslu i framleiðslu fiskrétta ? Að lokum itrekaði ráðherrann, að ollumálin væru eitt af okkar stærstu vandamálum i dag og væri aldrei ofbrýnt fyrir fólki að fara eins sparlega með oliu og bensin og frekast væri kostur bæði til eigin hagsbóta og þjóðar- heillar. Q Björgun Hornafjarðarradio að Hafnar- fjarðartogarinn Júni væri næsta skip við slysstað og töldu skip- verjar á Júni, að þeir yrðu komn- ir að flutningaskipinu um klukkan niu. Skipverjar á Júni sögðu þá veð- ur á þessum slóðum vera ágætt, suð-austan 3-4, gott skyggni og hálf skýjað. Rétt eftir klukkan sex tilkynnti flutningaskipið að þeir teldu sig hafa heft útbreiðslu eldsins, en tilkynntu jafnframt að vél skipsins væri óvirk og nauð- synlegt væri þvi að fá dráttarbát. Stuttu siðar tilkynnti hollenskur dráttarbátur að hann myndi halda á vettvang, en hann var þá staddur i um 400-500 sjómilna fjarlægð frá slysstað. Um þetta leyti var vitað, að ein- hver slys hefðu orðið á mönnum i sprengingunni, en ekki hversu al- varleg þau væru. Um kl 7 óskaði Stolt Vista, að sendur yrði læknir um borð i skipið með þyrlu, þar sem einn skipverja væri mjög a!- varlega brenndur og i lifshættu. Einnig væru tveir aðrir skipverj- ar slasaðir. Slysavarnafélagið hafði þegar samband við björgunarsveitina á Keflavikurflugvelli og bað um skjóta aðstoð, en um hálftima sið- ar tilkynnti björgunarsveitin, að veðurútlit væri mjög slæmt og veöur fyrir sunnan land færi ört versnandi, og að ekki væri hægt að senda þyrlu, en þeir myndu Stunginn með hnífi gébé-Reykjavik. Fimmtán ára piltur, var stunginn með hnifi i brjóstið aðfaranótt laugardagsins á Akranesi. Þetta gerðist við Hótel Akranes, rétt i þann mund er dansleik var að ljúka. Nitján ára piltur réðst á drenginn, sem heitir Sigurður Guðjónsson, og stakk hann með hnifi i brjóstið. Stungan lenti vinstra megin I brjósti Sigurðar og liggur hann nú þungt haldinn á sjúkrahúsinu á Akranesi. Var haft eftir læknum I gærdag, að liðan hans væri sæmi- leg eftir atvikum. Piltarnir, sem báöir eru búsettir á Akranesi, höfðu báðir fyrr um kvöldiö veriö á dansleiknum, en voru farnir þaðan út löngu áður en dansleiknum lauk. Hittust þeir fyrir framan hótelið með fyrr- greindum afleiðingum. Lögreglan var þegar kvödd á staðinn og var Sigurður fluttur án tafar i sjúkrahúsið, en þá hafði hann þegar misst mikið blóð. Arásarmaðurinn hefur verið úrskurðaður i fimmtán daga gæzluvarðhald. Astæðan fyrir verknaðinum er óljós, en málið er I rannsókn hjá lögreglunni á Akranesi. Pilturinn, sem verknaðinn framdi hefur litið komið við sögu hjá lögreglunni á Akranesi áður, þó var hann tekinn fyrr i haust, þar sem hann var að hræða veg- farendur með loftriffli, en lög- reglan kom þá til skjalanna. Hvassviðri gébé - Reykjavik. — Það var heldur hvimleitt veðrið I höfuð- borginni seinnihluta dags i gær. Sunnan, suðaustan hvassviðri og mikil rigning. En það var viðar óveður en á höfuðhorgarsvæðinu, — þetta leiðindaveður náði allt austur að Höfn I Hornafirði. A niu klukkustundum i gærdag mældist rigningin vera hvorki meira né minna en 44 milli- metrar á Kirkjubæjarklaustri, og á Fagurhólsmýri. Þar voru einnig 8-9 vindstig. 37 millimetra rigning mældist að Mýrum i Alftaveri og 38 á Stórhöfða I Vestmannaeyjum og ellefu vindstig. Rigningin var heldur minni annars staðar á og rigning Suðurlandi. óvenjulega mikið rigndi á Sauðárkróki, eða 13 millimetrar, en það má heita að væri þurrt til landsins austan Akureyrar. Kuldi fylgdi ekki hvassviðrinu og rigningunni, t.d. mældist 10 stiga hiti á Fljótsdalshéraði i gær og var búizt við að hitinn myndi fara hækkandi norðanlands fram að miðnætti, en kólna með morgninum. Á sunnanverðu landinu er einnig búizt við kólnandi veðri, ásamt skúrum og jafnvel slydduélum á morgun. Ekki er vitað um neinar skemmdir á vegum eða öðrum mannvirkjum. gripa til þess ráðs að senda björgunarflugvél af Herkúles- gerð með tveimur sjúkraliðum um borð, sem myndu stökkva nið- ur I sjóinn við flutningaskipið klæddir froskmannsbúningum, og I fallhlif. Nokkru siðar fékk Slysavarna- félagið þær fréttir i gegnum Nes- radió, að danska eftirlitsskipið Hvitabjörninn værj farið frá Fær- eyjum og um borö i skipinu væri læknir, og ennfremur væri þyrla á skipinu. Um klukkan niu i gærmorgun tilkynntu skipverjar á Júni, að þeir væru komnir á þær slóðir sem Stolt Vista ætti að vera á, en þeir sæu ekki til ferða flutninga- skipsins, en stuttu siðar fengu þeir nákvæmari staðsetningu skipsins og hafði þá skeikað nokkru frá fyrri staðarákvörðun. Um tiuleytið tilkynnti björgunarmiðstöðin á Kefla- vikurflugvelli, að Herkúlesvélin væri komin að Stolt Vista, en talið var ráðlegt að biða með fall- hlifarstökkið unz Júni væri kom- inn á vettvang, vegna þess að flutningskipið hefði ekki hentug- an bát til að koma sjúkraliðunum um borð. Hálftima siðar sagðist Júni sjá flutningaskipið i radar og nokkru siðar tilkynnti björgunarmiðstöð- in á Keflavikurflugvelli að sjúkraliðarnir hefðu stokkið úr vélinni og héfðu lent I sjónum. Voru sjúkraliðarnir tveir i sjón- um I um 20 mínútur, unz skips- bátur frá Stolt Vista komst til þeirra. Eftir að sjúkraliðarnir voru komnir um borð, var ekki talin ástæða til að Júni væri þarna lengur, og var skipverjum þökkuð aðstoð, en togarinn hélt siðan áleiðis til Þýzkalands með afla. Var þá vitað um varðskipið og ennfremur að Hvidbjörnen væri á leiðinni, auk brezka eftirlitsskips- ins Miranda er var einnig á leið- inni á slysstað. Um klukkan hálf eitt i gærdag lágu fyrir upplýsingar um slys á skipverjum Stolt Vista og þá töldu sjúkraliðarnir bandarisku að lið- an mannsins sem brenndist mest væri mjög slæm og hann i bráðri lifshættu. Töldu sjúkraliðarnir, að um 40% af likama mannsins væri brenndur og hinir tveir skip- verjarnir sem slösuðust væru einnig mjög brenndir. Gerðu sjúkraliðarnir að sárum mann- anna eftir beztu getu og tókst þeim að halda lifi I manninum, sem i mestri hættu var. Aætlað var að varðskipið yrði komiö að flutningaskipinu um klukkan 16, en hálftima áður bár- ust tilkynningar um, að varðskip- ið væri komið að flutningaskip- inu, og nokkru seinna tilkynntu varðskipsmenn að þyrlan á Hvitabirninum væri þegar búin að fara eina ferð yfir i Stolt Vista, og hefði sótt þann, sem mest var brenndur. Var farið með manninn yfir I sjúkrastofu Hvitabjarnar- ins, þar sem læknir tók við mann- inum. Veður á þessum slóðum fór nú ört versnandi og um klukkan 16 voru komin sjö vindstig og mikill sjór. Var þá tilkynnt að þyrlan gæti ekki farið aðra ferð. Reiknað er með að Hvitabjörn- inn fari með manninn til Færeyja á sjúkrahús, en biði ekki eftir að veður lægi, enda ekki liklegt að veður gangi niður i bráð. Miranda kom að flutningaskip- inu um klukkan 18 I gærdag og ekki var talið i gærkvöldi, þegar Timinn hafði tal af Hannesi Hafstein, framkvæmdastjóra Slysavarnafélagsins, að brezka eftirlitsskipið geti flutt neina menn á milli skipanna i gærkvöldi eða nótt, I þvi ofsaveðri sem þar er og náttmyrkri. Talið var liklegt, að Miranda yrði um kyrrt á slysstað um nótt- ina, og vitað er að varðskipið mun halda kyrru fyrir, til að fylgjast með skipinu þvi að vélar þess eru óvirkar. 1 birtingu verður svo tekin ákvörðun um hvað hægt verður að gera. Stolt Vista er i eigu norsks skipafélags og er það rúmlega fimmtán þúsund tonn. Skipið var á leið til Noregs með málmgrýti. Samkvæmt siðustu fréttum i gærkvöldi, var ljóst að Islenzka varðskipið verður eitt á slysstað hjá flutningaskipinu, þvi vélarbil- un varð hjá brezka eftirlitsskip- inu Miranda og hélt það áleiðis til Færeyja. Hvitabjörninn var far- inn af þessum slóðum áleiðis til Færeyja með sjúklinginn og hol- lenski dráttarbáturinn verður kominn að skipinu i býtið i fyrra- málið. Þjófnaður um 620 þúsund kr. Þjófarnir litu ekki við ávisunum, heldur tóku aöeins peningaseðla. Aö sögn rannsóknarlögreglunn- ar, er það ekki einsdæmi, að lykl- ar að peningaskápum fyrirtækja séu geymdir svo að segja á glám- bekk. Þvi er oft þannig farið, að lyklarnir eru geymdir i skrif- borðsskúffum, sem hægðarleikur er að komast i,.og sagði rann- sóknarlögreglan, að þess væru einnig dæmi, að lyklarnir væru geymdir i sjálfri skránni á skápn- um. Er augljóst, að tilgangur pen- ingaskápa og annarra skápa, sem geyma eiga verðmæti, verður litill sem enginn, þegar þannig er I pottinn búið. Enn hefur ekki tekizt að upp- lýsa þetta þjófnaðarmál.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.