Tíminn - 05.11.1974, Qupperneq 13

Tíminn - 05.11.1974, Qupperneq 13
ÞriBjudagur 5. nóvember 1974. TÍMINN 13 HILLU SYSTEM UR EIK , TEAK OG PALESANDER STOFUNNI SKIPT Húsgagnaverslun Reykjavíkur hf. BRAUTARHOLTI 2 SÍMI 11940 Aðalfundur Sýslu- mannafélags íslands Aðalfundur Sýslumannafélags Islands var haldinn i húsakynn- um tollstjóraembættisins i Reykjavik dagana 25. og 26. októ- ber s.l. Félagsmenn eru allir sýslumenn og bæjarfógetar landsins, svo og tollstjórinn og lögreglustjórinn iReykjavik, toll- gæzlustjóri og lögreglustjórar i byggðarlögum landsins. Á fundinum voru félaginu sett ný lög. Umræður urðu m.a. um framkvæmd almannatrygginga- laga, svo og um málefni hérað- anna, einkum ráðstafanir til þess að styrkja fjárhagsstöðu sýslu- félaganna til þess að þau gætu betur risið undir kostnaði, sem samfara er umbótum i menning- ar-, félags- og atvinnumálum héraðanna. — I stjórn félagsins eiga sæti As- geir Pétursson, sýslumaður, sem er formaður félagsins, svo og Björn Hermannsson, tollstjóri og sýslumennirnir Páll Hallgrims- son, Björn Fr. Björnsson og Frið- jón Þórðarson. Reynsla Kanada- manna af lækkun áfengiskaupaaldurs Á miðju ári 1971 var áfengis- kaupaaldur i Kanada lækkað- ur, i nokkrum fylkjum i 19 ár, öðrum i 18. Enginn gerði sér grein fyrir, hverjar afleiðingarnar yrðu. Margir töldu, að lækkunin myndi engu breyta, margir unglingar 18-20 ára drykkju, og betra væri, að drykkjan væri lögleg en ólögleg. Nú hafa afleiðingarnar ver- ið rannsakaðar að dálitlu leyti, enda ein þekktasta rann- sóknastofnun heims i áfengis- og fikniefnamálum einmitt i Toronto. Hér eru niðurstöðurnar: 1) Árið 1972 voru niu sinnum fleiri unglingar i Toronto teknir fyrir ölvun við akst- ur en 1970. Tölurnar eru þessar: 1970 — 48 1971 — 259 (aldurinn lækkaður 1. júni) 1972 — 457. 2) Umferðarslysum, þar sem unglingar koma við sögu, hefur á sama tima fjölgað úr 179 i 425. 3) Lægra aldurstakmark hef- ur i för með sér lækkaðan drykkjualdur, einnig hvað snertir unglinga innan átján ára. Unglingar á aldrinum 15-17 ára eiga hægara með að ná sér i áfengi eftir lækkunina. 4) Fleiri unglingar drekka mikið. 5) Fleiri unglingar þurfa að leita aðstoðar vegna of- drykkju. Reynslan sýnir, að lækkun áfengiskaupaaldurs hefur ýmsu breytt, einkum þó þvi, að áfengisneyzla unglinga, bæði þeirra sem drekka lög- lega og ólöglega, hefur aukizt gifurlega. Sú aukning hefur svo i för með sér samsvarandi aukningu drykkjusýki, af- brota og annars tjóns, sem af áfengisneyzlu stafar. Áfengisvarnaráð Bókasafn Keflavík- ur í nýtt húsnæði Nú þessa dagana er bæjar- og héraðsbókasafnið i Keflavik að flytja i ný húsakynni að Mána- götu 7. Það er þriggja hæða hús og hver hæð um 120 fermetrar að flatarmáli. Arið 1972 keypti Keflavikurbær þetta hús fyrir bókasafn. Á mið- hæðinni eru útlánasalir og þeir hafa verið teknir i notkun. í kjallara eru geymslur og þar er lika gert ráð fyrir lestrarsal. Á efstu hæðinni er skrifstofa og þar er ennfremur áformað að hafa plötudeild, svo og lestrarherbergi fyrir fræðimenn. Yfirumsjón með innréttingum hefur verið i höndum Knúts Jeppersens, arkitekt. Myndin er tekin i útlánasal nýja húsnæðisins að Mánagötu 7 21. okt. siðastliðinn, en þann dag var húsnæðið formlega tekið i notkun. Athugasemd Fáeinar prentvillur hafa slæðzt inn i greinina „Böðull lifsins”, sem birtist i blaðinu s.l. föstudag. Flestar eru þær þess eðlis, að auðvelt er að ráða i málið. Mein- leg villa hefur þó orðið i fimmta dálki, þar sem fjallað er um móa- fuglinn s.k. Þar segir i 31. linu að neðan, að fugl þessi hafi verið ,,um hálfan metra á hæð”, en á að vera: ,,um hálfur fjórði metri”. Þá má að lokum geta þess, að siðasta orð greinarinnar á að vera deyða en ekki eyða. Vísír Auglýsing um bifreiðaskoðun fró Lögreglusfjóranum í Vestmannaeyjum Eigendum eða umráðamönnum Vest- mannaeyjabifreiða utan umdæmis Vest- mannaeyja, ber að koma með bifreiðarn- ar i iokaskoðun tii bifreiðaeftirlitsmanns þess umdæmis þar sem bifreiðarnar nú eru, fyrir 15. nóvember n.k. Við skoðun skal sýna, skrásetningarskir- teini bifreiðarinnar, kvittun fyrir greiðslu bifreiðagjalda og vottorð um ljósastillingu bifreiðarinnar. Vestmannaeyjabifreiðar, er ekki koma til skoðunar fyrir 15. nóvember n.k. verða teknar úr umferð án frekari fyrirvara. Lögreglustjórinn i Vestmannaeyjum. vaktmann og biður hann að fara út að athuga, hvort nokkuð grunsamlegt eða ólöglegt sé þarna á seyði. Vaktmaðurinn verður við þeim tilmælum, — en þar er ekkert grunsamiegt að sjá. HANN SA ALDREI NEINN BÍL, HVORKI VÖRUBÍL NÉ JEPPABÍL. — Þarna er frétt, sem er alveg ósönn, og ég held ég megi fullyrða, að þetta sé nær algjört einsdæmi, sagði rannsóknarlög- reglumaður við blaðamann Tim- ans i gær. Lögreglan fór aldrei á staðinn, vegna þess að vaktmaðurinn sá aldrei neitt grunsamlegt. Og það má ennfremur geta þess, að járnið, sem „biræfnu þjófarnir” áttu að vera að stela, var ekki þakjárn. Þannig stenzt ekkert i umræddri Visisfrétt, nema það, að kona i nágrenninu gerði lögreglunni viðvart. En kannski hefur forsiðan verið tóm, — og þvi góð ráð dýr fyrir blaðiö. Nú, — og kannski er það framtiðin, að skáldsögur skipi stórt rúm á for- siðum dagblaðanna. Hver veit? I • 'k í'. • /■»/, LvU' :■ V, ; 1 ii.T Greiðsla olíustyrks í Reykjavík Samkv. 1. nr. 47/1974 og rgj. frá 30. 5. 1974 verður oliustyrkur til þeirra, sem nota oliu til upphitunar, fyrir timabilið júni-ágúst 1974 greiddur út hjá borgar- gjaldkera Austurstræti 16. Greiðsla hefst fimmtudaginn 7. nóvem- ber til ibúa vestan Kringlumýrarbraut- ar og mánudaginn 11. nóvember til ibúa austan Kirnglumýrarbrautar. Afgreiðslutimi er kl. 9.00-15.00. Styrkur- inn greiðist framteljendum og ber að framvisa persónuskilrikjum við mót- töku. 5. nóvember 1974 Skrifstofa borgarstjóra. *'M •» *■ ,1y\ $ Óskilahestur Rauðskjóttur hestur, fullorðinn, er i óskil- um i Lundarreykjardalshreppi Mark (ógreinilegt), sneiðrifað aftan, fjööur framan hægra, sneiðrifið aftan vinstra. Hesturinn verður seldur um miðjan þennan mánuð ef eig- andi finnst ekki. Upplýsingar hjá hreppstjóra. R) R) Hærra verð Við greiðum af sérstökum ástæðum hærra verð um takmarkaðan tima fyrir vel prjónaðar lopapeysur, heilar og hnepptar, á fullorðna og börn. Móttaka á þriðjudögum, fimmtudögum og föstu- dögum kl. 13,30 til 16,30. Sleppið ekki þessu tækifæri. GEFJUN AUSTURSTR/ETI

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.