Tíminn - 05.12.1974, Side 2
2
TÍMINN
Fimmtudagur 5. desember 1974.
Fimmtudagur 5. desember 1974
Vatnsberinn (20. jan. — 18. febr.)
bað er hætt við þvi, að þú megir ekki gera þér
vonir um aðstoð eða hjdlp frá neinum
áhrifamiklum i dag. En þú skalt búa þig undir að
láta undan starfsfélögum þinum og leggja
áherzlu á að koma ýmsu fram eftir óvenjulegum
leiðum.
Fiskarnir (19. febr. — 20. marz.)
bú skalt hafa augun hjá þér i dag, sérstaklega
hvað varðar alla vélræna hluti. t starfi þinu get-
ur ýmislegt og harla óvenjulegt komið fyrir i dag
— og þú skalt vera þvi viðbúin að þurfa að gefa
fljót svör og skýr.
Hrúturinn (21. marz — 19. april)
bú skalt renna huganum að fjármálunum hjá
þér i dag. bað er ýmislegt sem þarf athugunar
við, fleira en þú heldur. bað er svo sem engin
ástæða til að vera með áhyggjur en þú gætir
komiðýmsu i lag með þvi að brjóta heilann.
Nautið (20. april — 20. mai)
bolinmæði þin og þrautseigja verða til þess að
bjarga þvi, sem bjargað verður i einhverri and-
stöðu, sem þú lendir i við ættingja þina. bað væri
hyggilegt af þér með tilliti til þessa að fresta
ýmsum fyrirhuguðum aðgerðum.
Tviburarnir (21. mai — 20. júni)
Leynimakk er fráleitt i dag. bú skalt ræða málin
og semja fyrir opnum tjöldum, þó að þin sé
freistað ærið sterklega. Likaminn hefur orðið
útundan. Sýndu honum meiri umhirðu og
ræktarsemi. bjálfun er heppileg og holl.
Krabbinn (21. júni — 22. júli)
Útgjöldin hjá þér færast i aukana, en þaö er
algjör óþarfi að vera að auka enn á þau með alls
konar óþarfa innkaupum. bað lltur út fyrir að
eldra fólk þurfi mjög á tillitssemi þinni að halda.
betta eykur á ábyrgð þina.
Ljónið (23. júli — 23. ágúst)
i dag ættirðu að hafa fyrir kjörorð að flýta þér
hægt. Hitt er annað mál, að þú ættir að
kappkosta að gera upp ógreidda reikninga, og þá
fyrst geturðu slappað af. Kvöldið hefur sinar
skemmtiiegu hliðar.
Jómfrúin (24. ágúst — 22. sept)
bú skalt halda þinu striki. Ofgar og smáatriði
ættirðu algjörlega að leiða hjá þér, og meta
einfaldleikann réttilega bað litur út fyrir, að þér
berist einhverjar fréttir. bær gætu leitt til
skoöanaskipta.
Vogin (23. sept. — 22. okt.)
Nú er komið að þér að gera þitt til að efla
virðingu hjá þeim, sem þér þykir eitthvað til um.
bað er eitthvað, sem þér hefur verið trúað fyrir.
Ráðstafafaðu þvi ekki fyrr en þú ert viss um, að
ráðstöfunin sé rétt.
Sporðdrekinn (23. okt. — 21. nóv).
bað er mikiö um að vera hjá þér i dag, og allt,
er starfinu viðvikur gengur fyrir, svo að
fjölskyldan og félagslif verður að sitja á hakan-
um. Afsakanir i ákveðnu máli skaltu bera fram
nógu timanlega til að forðast vandræði.
Bogmaðurinn (22. nóv. — 21. des.)
bað getur vel verið, að þér leiðist óskaplega
mikið þessi hversdaglegu, vanabundnu störf, en
það kemur ekki að neinu haldi. bú getur ekki
komið þér undan þvi að vinna þau. bað stoðar
þér ekkert að reyna að þjösnast áfram i dag.
Steingeitin (22. des. — 19. jan.)
bú heíur möguleika á að ná prýðisgóðum
árangri, en þvi aðeins að þú leysir þau vanda-
mál, sem að höndum ber jafnóðum og þau skjóta
upp kollinum. Haföu það hugfast, að þau snerta
fleiri en þig. Einfaldasta lausnin kemur oft eftir
samræður.
UR EIK , TEAK OG PALESANDER
ÖDÝRT OG HAC^KVÆMT
Húsgagnavei'slun
Reykjavíknr hí'.
BRAUTARHOLTI 2 SÍMI 11940
sf
Hvaða tónlist er hornreka hjó útvarpinu?
Nokkur orð um poppið og
harmonikutónlistina i dtvarpinu.
Nýlega var ég að blaða i
Morgunblaðinu, en það geri ég
oft, þvi eins og vænta má með
jafn birðulegt og útbreitt blað eru
þar mörg og margvisleg mál
tekin til meðferöar. í áðurnefndu
blaði sé ég að rekið hafði á fjörur
blaðamannanna ungan mann og
þeir af háttvislegri kurteisi tóku
hann tali og þessi ungi maður
hafði frá ýmsu að segja. Hann
hafði ráðizt til útvarpsins og átti
að sjá þar um og stjórna
poppþætti, en starfsfólk
tónlistardeildar útvarpsins var
honum eitthvað óþægur ljár i
þúfu, þvi fyrir þeim er poppið
einungis hávaði og garg. Lái þeim
hver sem vill, ég geri það ekki.
Ungi maðurinn varð óánægður
sagði upp starfi sinu og fór sina
leið, og þá spurði blaðamaðurinn:
Er popptónlistin að verða horn-
reka hjá útvarpinu? —• bessi
spurning og viðtalið við unga
manninn varð til þess að ég gat
ekki þagað lengur, enda erum
við, sem unnum fagurri
harmónikutónlist búnir að þegja
allt og lengi. Við hefðum átt að
vera búnir að láta heyrra frá
okkur og það fyrir löngu, og reyna
að fá þennan villimannlega popp-
draug eitthvað minnkaðan i dag-
skrá útvarpsins, og ef þessi
gauragangurá aðryðja burt allri
tónlist, úr dagskrá útvarpsins þá
þarf ég að minnsta kosti ekki að
ómarka mig viö að skrúfa þar frá
þegar hljóoðfæraleikur er þar
auglýstur og svo mun verða um
fleiri.
begar ég var að alast upp
austur á Vattarnesi i Fáskrúðs-
fjarðarhreppi á árunum fyrir og
um eftir siðari heimsstyrjöldina,
voru alltaf flutt harmonikulög i
útvarpinu á föstudagskvöldum
áður en auglýsingar fyrir kvöld-
frettir voru lesnar, svo voru þessi
lög flutt á anna dag i dagskránni
og loks alveg lögð niður. bað
heyrðust alltaf nokkur
harmonikulög i danslagatima út-
varpsins og lengi vel átti
blessaður karlinn hann Júlarbo
sina vissu syrpu þar með gömlu
dönsunum en allt slikt er löngu
búið að leggja niður. Einu sinni
byrjuðu tveir þættir i útvarpinu
annars vegar var jassþáttur sem
Jón Múli þulur sá um og er
reyndar með ennþá ööru hverju,
hins vegar var svo
harmonikuþáttur, sem Karl
Jónatansson sá um með mikilli
prýði og færhann hér þakkir fyrir
þótt seint sé. begar Karl hætti
tóku þeir við Henry J. Eyland og
Högni Jónsson og þeim skal lika
þakkað fyrir góða þætti. Reynir
Jónasson skal lika fá þakkir fyrir
góða þætti. Undir lok harmoniku-
þáttanna voru svo einhverjir með
harmonikuþætti i stuttan tima. en
svo voru þeir alveg lagðir niður
og nú er svo komið að á meðan
poppið glymur i útvarpinu 2 á
dag með bumbubarsmið, git-
arhamranda, rafmagnsorgelvæli,
auðvitað með viðeigandi neyðar-
ópum frá þt-im. sem berja þessi
hljóðfæri. fvrst morgunpopp i
hálftima t'yrir hádegi og popp-
horn seinni hluta dagsins ekki
skemmri tima þá fáum við har-
monikuunnendur tvö þrjú og
kannski fjögur lög einu sinni i
viku seint á þriðjudagskvöldum
og I prentaðri dagskrá stendur, að
þau eigi að vara i 15 minútur. en
venjulega er klipið af þeim tima i
báða enda.
Fyrst er það kvöldsaga, sem oft
fer inn i þessar 15 minútur og svo
er það þáttur, sem Björn Th.
Björnsson sér um Hann þarf
stundum að byrja fyrr en honum
er ætlað samkvæmt prentaðri
dagskrá og þá veröa harmoniku-
lögin bara tvö.
Til hvers er verið aö leika þessi
lög? Er það bara gert til þess að
ergja okkur? Miklu betra væri
fyrir útvarpiö aö legga þessi lög
niður. bá fengi kvöldsagan nógu
langan tíma og Björn Th, fengi
lika aukinn tima fyrir sinn þátt og
viö þyrftum þá ekki að vera að
biða eftir tveimur lögum. Já,
hvers vegna er verið að eyða fjár-
munum útvarpsins i kaup á har-
monikuplötum, sem enginn má
svo heyra? bað væri bæði fróðlegt
og gaman ef forráðamenn tón-
listardeildar útvarpsins vildu
svara þvi.
Ég hef fyrir löngu gert mér
grein fyrir þvi hvaða álit forráða-
menn lista- og skemmtideildar
sjónvarpsins hafa á harmoniku-
tónlist enda hef ég aldrei vænzt
neins sliks úr þeirri átt. Ég varð
þvi ekki litið hissa og um leið tor-
trygginn, þegar sjónvarpið fór
allt i einu I sumar að auglýsa
mynd með finnskum harmoniku-
leikara, Vitko Avinanen enda
kom á daginn, að hún var litið
annað en snuð, þrjú lög fékk hann
að leika en langmestur hluti
myndarinnar var samtal við
manninn og auðvitað á hans
móöurmáli, og nú brá svo við að
þessi mynd þurfti ekki að fá sömu
meðferð og aðrar erlendar
myndis, sem sýndar eru i sjón-
varpinu. Nei, það þurfti ekki að
þýða samtalið eða hafa textana
með.-myndinni.það var bara verið
að tala við harmonikuleikara.
Hvern varðaði um það, hvað hann
hafði að segja af sinum lista-
mannsferli? Hvers vegna var
verið að sýna þessa mynd? Miklu
betra hafði verið fyrir sjónvarpið
að sleppa henni alveg og það hafði
þá fengið lengri tima fyrir allar
morðmyndirnar, sem það býður
áhorfendum upp á og má þar
nefna þrjá flokka mynda: Dýrð-
lingurinn, Mannix og Lögreglu-
foringinn. Langflestar þessar
myndir byrja með morði, en svo
fer mestur hluti þeirra i að sýna
eltingaleik lögreglu og einka-
spæjara viðmorðingjann og undir
lokin tekst þeim svo að ná honum
og þá er auðvitað framið annað
morð, sem allir verða að sjá, þvi
morðingjann verður að drepa.
bað væri nokkuð heilbrigðara að
lofa fólki að sjá góðan
harmónikuleikara einu sinni i
mánuði, en til þess þarf sjálfsagt
hugarfarsbreytingu og manna-
skipti við blessað sjónvarpið
okkar, svo slikt verður ekki nema
þá sem snuð eins og myndin i
sumar. Ég hef nokkrum sinnum
komizt i þá aðstöðu að sjá Kefla-
vikursjónvarpið, sem á að vera
alræmt og hafa vond áhrif á
tslendinga, enda er nú búið að
loka þvi fyrir þeim, en hvað um
það, þar sá ég þá fallegustu
mynd sem ég hef'séð i sjónvarpi,
en það var fegurðarsamkeppnin
á Langasandi, þar sem margar af
fallegustu stúlkum veraldar voru
saman komnar, en eins og allir
vita er virkilega falleg stúlka eitt
af þvi allra fallegasta, sem al-
máttúgur guð hefur gefið okkur
mönnunum. Svoleiðis mynd
kemur ekki i islenzka sjón-
varpinu. Hún er sjálfsagt allt of
dýr fyrir það og svo var ekkert
morð framið i myndinni.
Ég er vist kominn út fyrir um-
ræðuefnið svo bezt verður að
ljúka þessu, en áður vildi ég bera
frá bá tillögu að einu sinni I viku
leggi útvarpið annan poppþáttinn
niður og komi harmonikuþáttur i
staðinn og svo bið ég alla
harmonikuunnendur að þegja
ekki en láta frá sér heyra um
þessi mál.
Höfn, Hornafirði 25/11. 1974
Aðalbjörn Ulfarsson frá Vattar-
nesi
Borgfirðingafélagið
Félagsvist og dans verður i Domus Me-
dica við Egilsgötu föstudaginn 6.
desember kl. 20,30. Góð hljómsveit. Hver
fær jólaverðlaunin.
Skemmtinefndin.
Birta og ylur í skammdeginu.
Vetur er sú árstíð, sem bezt hentar
til að mála innanhúss.
Færið birtu og yl í húsið, með samstemmdum
litum og litatónum.
.VITIIITEJ!
Munið nafnið VITRETEX, það er mikilvægt, því:
Endingin vex með VITRETEX.
«Framleiðandi á íslandi:
Slippfé/agið íReykjavíkhf
Málningarverksmiðjan Dugguvogi - Simar 33433 og 33414