Tíminn - 05.12.1974, Page 5
Fimmtudagur S. desember 1974.
TÍMINN
5
Hverfasamtök Framsóknarmanna í Breiðholti:
Æskja úrbóta á löggæzlu-
málum í Breiðholtshverfum
A fundi hjá hverfasamtökum
Framsóknarmanna i Breiöholti
26. nóvember s.l. var samþykkt
eftirfarandi ályktun, sem send
hefur veriö dómsmálaráöherra
og lögregiustjóranum i Reykja-
vik:
1. Viö viljum vekja athygli á þvi
ófremdarástandi, sem rikir i
löggæzlumálum Breiöholts-
hverfa og óskum eftir úrbótum
i þeim efnum sem fyrst.
2. íbúum Breiöholtshverfanna
finnst einkennilegt, að lög-
reglumenn þeir, sem i hverfin
koma, viröast helzt fylgjast
meö þvi aö ökumenn á Rejkja-
nesbraut og Breiöholtsbraut
brjóti ekki reglur um aksturs-
hraöa og annað, sem kann að
varöa umferöarlögin, og er þaö
vel, en unglingar I hverfunum
safnast gjarna saman við
verzlanir, sem hafa kvöldsölu,
svo og veitingastað þann, sem
er viö Eddufell, og hafa þar i
frammi ýmis ólæti, auk þess að
ónáöa fólk, sem notar vagna
S.V.R. á biöstöö vagnanna, sér-
staklega viö Eddufell. Einnig
eru eignir manna eyöilagðar,
svo og eignir borgarinnar,
ljósastaurar o.fl. Einnig verða
vinnuskúrar byggingarfélaga
og einstaklinga fyrir baröinu á
þeim öflum, sem virðast rikja
hér I hverfunum seint á kvöld-
in, eru þeir bæði skemmdir, svo
og stolið úr þeim.
3. Viö teljum ekki nægilegt, að
lögreglubifreiö aki um i hverf-
unum endrum og eins. bað
myndi skapa mikið aðhald fyrir
þessi öfl, ef lögregluvarðstöð
yröi reist hér i hverfunum.
4. Von okkar er að þeir aðilar,
sem ráða þessum málum, verði
á einhvern hátt við tilmælum
okkar i þessum efnum, þar sem
taka verður tillit til þess, að i
Breiðholtshverfunum eru fleiri
íbúar en i stærstu kaupstööum
landsins, og reynsla siðustu 2ja
ára hefir sýnt, aö margir
háskalegir atburðir hafa átt sér
stað I Breiðholtshverfunum og
má t.d. nefna skotárásina á al-
menningsvagn hér i hverfinu.
5. Loks vilja hverfasamtökin
benda á, að margir af Ibúum
hverfanna hafa beðið okkur að
koma þessu á framfæri við yö-
ur og hafa einnig beðið hverfa-
samtökin um að gangast fyrir
undirskriftasöfnun I þvi sam-
bandi, en ákveðið var aö rita
yður fyrst þetta bréf til þess að
kanna undirtektir yöar, og
hvort yður er fært að sinna
málinu. Undirskriftasöfnun er
allmikið verk, en verður unnið
engu að siður, ef þessu bréfi
verður ekki svarað á einhvern
hátt.
t'Tnrmf.i.ia.iír.....:
viðurkenningu sem höfundur.
Hann hlaut verðlaun úr rit-
höfundasjóði rikisútvarpsins i
fyrra og hefur verið á starfsstyrk
frá menntamálaráði undanfarna
fimm mánuði. Að sögn hans er
hann að leggja siðustu hönd á
greinasafn og ljóðabók, sem
koma munu út á næsta ári.
- JG.
TVÆR NYJAR BÆKUR EFTIR
INGIMAR ERLEND SIGURÐSSON
Skáldsagan UNDIRHEIMUR og Ijóðabókin FISKAR Á FJALLI.
Er UNDIRHEIAAUR ein „djarfasta" skáldsaga, sem út hefur
komið á íslandi?
Bókaútgáfan Letur hefur sent
frá sér tvær nýjar bækur eftir
Ingimar Erlend Sigurðsson.
Heita þær FISKAR A FJALLI og
UNDIRHEIMUR.
Fiskar á Fjalli er ljóðabók, 111
blaðsiður og inniheldur um eitt-
hundrað ljóð, ýmist órimuð eða
rimuð. Þetta er þriðja ljóðabók
Ingimars Erlends. Sú fyrsta
Sumarhólmar, kom út árið 1959,
en Ort á öxi kom út i fyrra. Höf-
undur hefur myndskreytt bókina,
en kápuna gerði Gunnar S.
Magnússon listmálari. Höfundur
tileinkar Margréti Blöndal bók-
ina.
Yrkisefni Ingimars eru marg-
visleg, sum úr samtið, eins og
merkilegt kvæði um rússneska
skáldið Solzhenitsyn og kvæði
tileinkað Ólafi Jónssyni bóka-
gagnrýnanda, svo eitthvað sé
nefnt.
Stjórnmál, ást og ástriður
manna og trú. Skáldsagan
UNDIRHEIMUR er þriðja skáld-
saga Ingimars Erlends Sigurðs-
sonar, og er „Bókin bönnuð fólki
yfir fertugt”. Uppsetning hins rit-
aöa máls minnir á ljóö, og texti
INGIMAR ERLENDUR
bókarinnar lika. Þetta er saga
mikilla uppáferða, eða „djörf”
saga eins og þaö heitir á finu
máli. Hún er 173 blaösiöur. Kápu-
mynd geröi Gunnar S. Magnús-
son.
Bækur Ingimars Erlendar eru
nú orðnar 8 talsins, og hefur hann
veriö mikilvirkur, þar eð þetta er
þriðja bókin frá hans hendi á
tveim árum. Ingimar hefur hlotið
Brúðarkórónaneftirnorsku
skóldkonuna Anitru
BRÚÐARKÓRÓNAN eftir Anitru
er nýkomin út hjá Isafoldarprent-
smiðju hf., en bók þessi er beint
framhald af Erföasilfrinu, sem
Þrjór ungl-
ingabækur
Höfuð að veöi nefnist unglinga-
bók, sem út er komin hjá Erni og
örlygi. Höfundur er Jack Lancer,
en Eirikur Tómasson þýddi.
Söguhetjan i bók þessari nefnist
Christopher Cool og er sá njósnari
að atvinnu og lendir auðvitað i
ýmsu misjöfnu eins og gerist i
bókum af þessu tagi.
Þá er og útkomin hjá sama for-
lagi Leyndardómur Draugaeyj-
unnar. Höfundur þeirrar bókar
heitir Robert Arthur, en þýöandi
er Þorgeir Orlygsson. Þetta er
einnig njósnasaga og hér koma
við sögu njósnaþrenningin, þ.e.
söguhetjurnar þrjár, ásamt Al-
fred Hitchcock.
Þriöja barna og unglingabókin
frá Erni og örlygi er og út komin.
Heitir hún Emmusystur og er eft-
ir Noel Streatfield. Jóhanna
Sveinsdóttir þýddi. Þessi bók er
annars eðlis en hinar tvær og ei
hér fjallað um þrjár systur of
ýmis ævintýri, sem þær rata i.
’ t
kom út I fyrra og varö mjög
vinsæl hér. Þeir, sem lásu þá sögu
Anitru, mega ekki láta þessa
framhjá sér fara.
Anitra heitir réttu nafni Aslaug
Jevanord. Hún hefur um langt
skeið átt heima á Heiömörk, þar
sem sér yfir vatnið Mjösa og I þvi
umhverfi lætur hún flestar sögur
sinar gerast.
Anitra hefur lengi veriö einn
vinsælasti höfundur Norðmanna,
sem ritar um þjóðlif á Heiðmörk
og I sveitum þar um slóðir. Hún
hefur einnig oröiö mjög vinsæl
hér á landi, en Brúðarkórónan er
niunda bók hennar, sem kemur út
hjá forlagi Isafoldarprentsmiðju.
Bókin, sem er 216 bls. að stærö,
er þýdd af Hersteini Pálssyni.
Islands
kóngur
SJÁLFSÆVISAGA
JÖRUNDAR
HUNDADAGAKONUNGS
Skipstjórinn, erindrekinn,
byltingarmaðurinn, njósnar-
inn, Islandskóngurinn, rit-
höfundurinn, leikskáldið,
presturinn, refsifanginn,
spilagikkurinn, hjúkrunar-
maöurinn, landkönnuðurinn,
blaðamaðurinn, útgefandinn
og lögregluþjónninn Jörgen
Jurgensen segir frá.
Hilmirht
UR EIK , TEAK OC PALESANDER
ÓENDANLEGIR
MÖGULEIKAR i
Húsgagnrivei'slun
Reykjcivíkur hf.
BRAUTARHOLTI 2 SÍMI 11940
í ' B:
Nauðungaruppboð
Nauðungaruppboð á fasteignunum
Borgarbraut 33 og Kveldúlfsgötu 4
Borgarnesi, sem auglýst var i 14., 16 og 17.
tölublaði Lögbirtingablaðsins 1974, verður
sett i skrifstofu embættisins Borgamesi,
miðvikudaginn 18. desember 1974 kl. 14,
eftir kröfu lögmanna i Reykjavik,
innheimtu rikissjóðs i Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu og sveitarstjórans i Borgar-
nesi, samkvæmt þinglýstum fjárnáms-
gerðum og lögtökum og siðan háð á fast-
eignunum sjálfum eftir nánari ákvörðun
réttarins.
Borgarnesi 3. des. 1974.
Sýslumaðurinn i Mýra- og Borgarfjarðar-
sýslu.
fs X y‘71
iXy:
S •rs
>WJ
r r
i. 'f
Fiskiræktarfulltrúi
V,
Starf fiskiræktarfulltrúa er auglýst ',vJ
• •-- -- <í£y
k
?>■>
W..
y-'
V J-i
laust til umsóknar
Fiskiræktarfulltrúi er framkvæmdastjóri veiði- og
fiskiræktarráðs og fer meö daglega stjórn þeirra mála,
sem undir ráðið heyra, svo og verkefni á sviði um-
hverfismála, eftir þvi sem ákveðið er hverju sinni.
Nánari upplýsingar um starfið og starfskjör veitir
skrifstofa borgarstjóra, en umsóknum ber að skila
þangaö eigi siðar en 18. þ.m.
4. desember 1974,
<, *
•Msr* ö-
Borgarstjórinn i Reykjavík.
':>*r
Verzlunarstjóri
óskast
Vér leitum eftir manni til að annast
stjórn á Vörusölu vorri i Vestmanna-
eyjum, en hún annast sölu á kjötvörum
og ýmsum iðnaðarvörum frá verk-
smiðjum vorum á Akureyri.
Skriflegar umsóknir á umsóknarblöð vor óskast
sendar starfsmannastjóra vorum fyrir 12. des. n.k. en
hann gefur allar nánari upplýsingar.
^ SAMBAND ISLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA