Tíminn - 05.12.1974, Síða 6

Tíminn - 05.12.1974, Síða 6
6 TÍMINN Fimmtudagur 5. desember 1974. Loðnuverk- smiðja SR í Grindavík? Jón Armann Héðinsson (A) hefur lagt fram þings- ályktunartillögu þess efnis, aö Alþingi skori á rikisstjórnina að fela stjórn Sildarverksm. rikisins að hefja nú þegar undirbúning að þvi að reisa verksmiöju i Grindavik, er brætt geti allt að 1500 tonn af loðnu á sólarhring og aö hún verði tilbúin til vinnslu i ársbyrjun 1976. 1 greinargerð rekur flutningsmaður þróun loðnu- veiða hér við land, sem hafi aukizt gifurlega frá þvi, að þær hófust fyrst, eða úr 50 þúsund tonnum 1965 i tæplega 500 þúsund tonn á siðustu vertið. Einnig bendir hann á, að f jöldi veiðiskipa hafi aukizt mjög og á siðustu vertið hafi 30 skip tekið þátt i veiðunum. 1 framhaldi af þvi segir flutningsmaður: „Ljóst er aö þessi aukning á veiðiflota er svo mikil, að mæta veröur afkastagetu flotans með þvi að reisa nýjar verksmiðjur sem allra fyrst. Vitað er einnig, að margir hafa hug á þvl að kaupa enn ný og stór veiðiskip, og er afkastageta þeirra svo mikil, að þau mundu ein sér gera meira en afla fyrir verksmiðju með 2500 tonna sólarhrings- vinnslu. Það er þvi augljóst mál, að brýna nauðsyn ber til að hef ja nú þegar undirbúning aö nýrri stórri verksmiðju á vegum Sildarverksmiðja rikisins S.R. eiga frá fyrri tima mikið af tækjum, sem ekki eru nýtt, og hlýtur að teljast timabært að taka þessi tæki I notkun, þegar verkefni eru fyrir hendi, og það sem fyrst. Með hliðsjón af þessu og svo augljósri þörf til að bjarga auknum afla er þessu máli hreyft hér á þingi. Þessu til viðbótar kemur svo, að nú innan tiðar verður fiskihöfnin i Grindavik gjörbreytt og getur tekið við öllum stærðum skipa. Heildarfjármagn i þessar framkvæmdir verður 600-700 milljónir, og er augljóst, að höfnin mun þurfa á öllum möguleikum til tekjuöflunar að halda. Þótt Loðnuflutningasjóður starfi með ágætum, má ekki gleyma þvi, að það kostar marga tugi milljdna i oliu- eyðslu að sigla með loönu norður fyrir land, og hækkandi verð á oliunni veldur mönnum áhyggjum. Þótt ný verk- smiðja verði reist I Grindavlk, mun hún samt sem áður ekki gera meira en að mæta hluta af þeirri aukningu, sem vænta má. Þaö er skoðun flutnings- manns, að ekki verði langt i það að S.R. verði einnig að reisa aöra verksmiðju og staðsetja hana i Þorlákshöfn, þegar höfnin þar er fullgerð. Rekstur ríkisverksmiðjanna hefur gengið erfiðlega undan- farin ár vegna hráefnisskorts og mundi verksmiðja I Grindavik bæta hér verulega úr. Þvi er þessi þings- ályktunartillaga flutt”. Séð yfir höfnina f Grindavfk. Fjármálaráðherra deildi á fyrrverandi orkumálaráðherra — í umræðum um nýtingu innlendra orkugjafa í stað olíu Harðar umræður urðu í neðri deild í gær/ þegar rætt var um þingsályktun- artillögu Magnúsar Kjartanssonar og Lúðvíks Jósepssonar (AB) um nýt- ingu innlendra orkugjafa í stað olíu. Áttust þar aðal- lega við Magnús Kjartans- son og Matthías A. Mathi- esen f jármálaráðherra. Matthias A. Mathiesen sagöi I þessum umræðum, að Magnús Kjart- ansson hefði ekki af mikiu að státa á valda- ferli slnum sem orkumálaráö- herra. Taldi hann, að Magnús hefði tafið fyrir hitaveitufram- kvæmdum I Kópavogi og Hafnar- firði með þvi að leggjast á móti eölilegum gjaldskrárhækkunum til Hitaveitu Reykjavikur. Hann minntist einnig á hitaveitu á Suðurnesjum. Þá sagði Matthias, að Magnús Kjartansson heföi skilizt þannig við málefni byggðarlinunnar svonefndu, að ekki hefði verið neitt fjármagn til áframhaldandi framkvæmda. Aætlunin hefði hljóðað upp á 200 millj. króna, en aöeins hefði verið búið aö tryggja 25 millj. króna til framkvæmda. Magnús Kjartansson gagnrýndi, að núverandi rikisstjórn hefði látiö undir höf- uð leggjast að halda áfram ýmsum rannsóknum á sviði orkumála. Hann gerði grein fyrir þingsály ktunartillögu þeirri, sem til umræðu var, en i henni er skoraö á rikisstjórnina aö láta fullgera endanlega áætlun um nýtingu innlendra orkugjafa i staö innfluttrar oliu. Verði áætlunin við það miöuð, að lokiö verði viö jarðvarmaveitur, þar sem þær eru hagkvæmar fyrir 1977 og að fyrir lok þessa áratugs, eigi landsmenn kost á nægri raforku til húshitunar og annarra þarfa. 1 greinargerð með þessari þingsályktunartillögu segja flutningsmenn: ,,A siðasta reglulega þingi flutti þáverandi rikisstjórn ályktunartillögu um hliðstæð markmið og hér er fjallað um. Tillagan studdist við skýrslu sem Alþingi var flutt um nýtingu inn- lendra orkugjafa i stað oliu, en ýtarleg könnun á þvi efni hafði veriö framkvæmd af Verkfræði- skrifstofu Sigurðar Thoroddsens og Seðlabankanum að ósk iönaðarráðuneytisins. Skýrslur þessar báru mjög fljótlega meö sér aö þessi markmiö væru bæði Fjórir þingmenn endurflytja stjórnarfrumvarp um réttindi til nýtingar jarðvarma Magnús Kjartansson mælti fyrir frumvarpinu i neðri deild í gær, en í því er einnig kveðið nónar um skiptingu á lóghita- og hdhitasvæðum Magnús Kjartansson (AB) mælti i gær fyrir frumvarpi um breytingu á orkulögum varðandi nýtingu jarðhita i neðri deild Alþingis, en flutningsmenn eru, auk hans, Gunnar Sveinsson (F), Benedikt Gröndal (A) og Magnús Torfi Ólafsson (SFV). Frum- varp þetta hefur verið flutt sem stjórnarfrum- varp á undanförnum þingum, en ekki hlotið afgreiðslu. 1 lagafrumvarpi þessu er greint milli umráða- og hagnýtingar- réttar á jarðhita eftir þvi, hvort hann er að finna á háhitasvæðum eða lághitasvæðum. Gert er ráð fyrir, aö allur jarðhiti á lághita- svæðum, svo og hverir og annar Krafla, Þeistareykir og önnur jarðhitasvæði með sömu eigin- leikum. Rikið á allan rétt til umráða og hagnýtingar jarðhita á háhita- svæðum og uppleystra efna og gastegunda, sem háhitavatni og gufu fylgja, þó með takmörkun- um, sem i lögum þessum greinir. Rikisstjórnin lætur með rannsóknum ákveða mörk háhita svæða Islands. Meðan sú rannsókn fer fram, skal Orku- Framhald á 14. siðu. þjóðhagslega hagkvæm og raunsæ. Alyktunartillaga rikis- stjórnarinnar varð ekki útrædd, en fulltrúar allra flokka lýstu stuðningi viö þau markmið sem þar var gerð tillaga um. Fyrir tæpum áratug var þvi haldiö fram af þáverandi stjórnarvöldum að nýting inn- lendra orkulinda væri að verða þjóðhagslega óhagkvæm, aðrir ódýrari og hagkvæmari orkugjaf- ar mundu taka við. í samræmi viö það var meira en helmingi allrar raforkuframleiðslu landsmanna ráðstafað til erlends fyrirtækis fyrir afar lágt verð sem haldast skyldi óbreytt til ársins 1997. Reynslan hefur nú staðfest hversu fráleitar þær kenningar voru og sú orkusala sem þá var ákveðin. Þetta hefur aldrei oröiö augljósara en eftir að oliukrepp- an hófst, olia og aörir hliöstæðir orkugjafar margfölduðust i verði og reynslan leiddi i ljós að raf- orkuframleiðsla i kjarnorkuver- um var margfalt áhættusamari og dýrari en menn höfðu imyndað sér. Um það verður ekki lengur deilt að orkulindir Islendinga verða æ dýrmætari og geta á ókomnum áratugum tryggt landsmönnum vaxandi öryggi, velmegun og sjálfstæði. Nærtækasta og brýn- asta verkefnið er að tryggja landsmönnum öllum næga orku tildaglegra þarfa sinna, þ.á.m. til húshitunar. Slik nýting jafngildir verulegri gjaldeyrisöflun þar sem hún dregur stórlega úr innflutn- ingi á æ dýrara eldsneyti. Hún styrkir efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar, gerir hana óháðari pólitiskum átökum sem hlotizt geta af sivaxandi orkukreppu. Hún eykur jafnrétti landsmanna og jafnvægi i byggð um leið og aflétt hefur verið þvi ástandi að verulegur hluti landsins búi við orkuskort. Þvi telja flutnings- menn aö þetta verkefni verði að hafa algeran forgang á sviði orkumála næstu árin, ráðstöfun orku til annarra þarfa komi ekki til greina ef hún rekst á þau markmið að flýta svo sem vinnu- afl, fjármagn og aðrar aðstæður leyfa nýtingu innlendra orkugjafa i stað innflutts eldneytis og tryggja jafna aöstöðu almennings I öllum landshlutum.” náttúrulegur jarðhiti á yfirborði háhitasvæða, sé háður einstaklingseignarrétti landeig- enda, en annar jaröhiti á háhita- svæbum sé i almannaeign og i umráðum rikisins. Þó skuli þeir, sem boraö hafa eftir jarðhita á háhitasvæðum og byrjað vinnslu hans við gildistöku laganna, hafa þann rétt óskertan. 1 lagafrumvarpi þessu er lagt til, að 9. gr. orkulaganna hefjist svo: „Með jaröhitasvæði er I lögum þessum átt við uppstreymissvæði frá rennsliskerfi heits grunn- vatns. Jarðhitasvæði skiptast I háhitasvæði og lághitasvæði. Jarðhitasvæöi telst háhitasvæði I lögum þessum, ef innan þess finnst 200 gr. C hiti ofan 1000 metra dýpis. önnur jaröhitasvæöi nefnast lághitasvæði. Meðal háhitasvæöa eru þessi svæði: Reykjanes, Svartsengi, Krýsu- vik, Brennisteinsfjöll, Hengill, Geysir, Kerlingafjöll, Hveravell- ir, Torfajökull, Vonarskarö, Grimsvötn, Kverkfjöll, Askja, Fremrinámur, Námafjall, Þekkt og llkleg háhitasv œðl d (slondi

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.