Tíminn - 05.12.1974, Side 16
Tíminn er
peníngar
Augt^kT
iTimamim
fyrirgóóan mat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Blaðburðarfólk
óskast:
í KÓPAVOGI:
Reynihvamm og Birkihvamm
Upplýsingar í síma 4-20-73
í REYKJAVÍK:
Laufásveg, Stigahlíð, Hraunteig,
Sundlaugaveg
Upplýsingar í síma 1-23-23
Á SELTJARNARNESI:
Skólabraut og Melabraut -
Upplýsingar í síma 1-23-23
ÞaA varö lítiö úr kveöjum, er Mills sneri aftur til Arkansas og hitti
eiginkonu sina — er ailt haföi komizt upp.
MILLS FÆR MAK-
LEG MÁLAGJÖLD
Reuter—Washington. Wiibur
Mills fulltrúadeildarmaöur, sem
olli stórhneyksli i Bandarikjunum
fyrr i haust, er upp komst um
samband hans viö fatafelluna
Fanne Foxe, veröur ekki endur-
kjörinn formaöur fjúrveitinga-
nefndar fulltrúadeiidarinnar.
Þetta kom fram á fundi með
fréttamönnum, er Carl Albert,
einn af mestu áhrifamönnum (
fulltrúadeildinni, hélt i gær. Al-
bert sagöi, að svo til allir fuiltrúa-
deildarmennirnir — 435 að tölu —
væru á einu máli um, að svipta
Mills formennsku i fjárveitinga-
nefndinni.
Fjárveitinganefndin er — eins
og viðast hvar — ein áhrifamesta
nefnd þingsins. Mills hefur gegnt
formennsku i henni i sextán ár og
ráðið mestu um störf hennar á
þeim tima.
Ekki er ljóst hvort Mills sem nú
dvelst á sjúkrahúsi, segir af sér,
áöur en til formannskjörs kemur
eða biöur átekta.
Mills er nú 65 ára að aldri og
hefur setið á þingi i 36 ár. Hann
var mikilsvirtur, einkum fyrir
dugnað og ósérhlifni, unz upp
komst um samband hans við fata-
felluna fyrir tveim mánuðum.
Bresjnef í París
Reuter-Paris. — Leonid Bresjnef,
aöalritari sovézka kommúnista-
flokksins, kom tii Parisar I gær.
Bresnjef mun dveljast þrjá
daga I Frakklandi og eiga
viöræöur viö Valery Giscard
d’Estaing um þau mál, sem efst
eru á baugi i heiminum i dag.
Giscard d’Estaing tók á móti
Bresnjef á Orly-flugvelli i gær og
snæddu þeir saman kvöldverð á
flugvellinum.
Talið er, að Bresjnef leiki for-
vitni á að vita, hvort utanrikis-
stefna Frakka hefur tekið nokkr-
um breytingum eftir valdatöku
Giscard d’Estaings, en góð
sambúð hefur rikt á milli Frakk-
lands og Sovétrikjanna um ára-
bil.
Reuter—London. Brezka
stjórnin hefur skorað á stjórn
Suður-Afríku að hverfa frá
Namibiu (Suövestur-Afrlku).
James Callaghan, utan-
rikisráðherra Bretlands,
skýrði frá áskorun stjórnar-
innar i ræöu f neöri málstof-
unni I gær. Þetta er I fyrsta
skipti, aö stefna stjórnar
verkamannaflokksins i þessu
máli kemur skýrt I Ijós.
Stjórn Suður-Afriku hefur
farið meö stjórn f Namibiu á
grundvelli umboðs, sem henni
var fengið, þegar fyrri heims-
styrjöldinni lauk, en Suðvest-
ur-Afrika var áður nýlenda
Þjóðverja. Við stofnun Sam-
einuðu þjóðanna varð land-
svæðið gæzluverndarsvæði
Suður-Afriku.
Stjórn Suöur-Afrfku I Nami-
biu hefur veriö lftt til fyrir-
myndar, t.d. knúðu suð-
ur-afrísk stjórnvöld fram að-
skilnaðarstefnu I kynþátta-
málum þar sem og heima
fyrir. Þetta leiddi til þess, að
Suður-Afriku var stefnt fyrir
Alþjóðadómstolinn, er kvað
upp þann dóm árið 1971, að
stjórn Suður-Afriku i Namibiu
væri andstæð alþjóðarétti.
Callaghan sagði I þingræð-
unni, að brezka stjórnin liti
á framferði Suöur-Afriku-
stjórnar ( sem ekki hefur hlitt
dómi Alþjóðadómstólsins)
sem ólögmætt.
1 ræðunni vék Callaghan
litillega að þróun mála i
Ródesiu, en hugsanlegt er að
samkomulag um framtiðar-
stjórn landsins náist á næst-
unni. Hann kvaö útlitiö bjart-
ara nú en oft áður og sagðist
reiðubúinn til viðræðna um
lausn Ródesiudeilunnar
hvenær sem er.
Callaghan heldur til sex
Afrikjuríkja f lok desember til
viðræðna við ráðamenn
þeirra.
Reuter—Moskvu. Geim-
fararnir tveir, sem eru um
borð I sovézka geimfarinu
Soyuzi 16, hafa beint farinu inn
á þá braut umhverfis jöröu,
sem farin veröur, er banda-
riskt geimfar verður tengt viö
sovézkt úti f geimnum á næsta
ári.
Þeir Anatoli Filipchenko og
Nokolai Rukavishnikov tendr-
uðu eldflaugar á hlið geim-
farsins, er komu þvi á fyrr-
greinda braut — sem er í 250
km fjarlægð frá jörðu.
Þetta er liður f undirbúningi
undir samtengingu banda-
risks geimfars við sovézkt úti
i geimnum, en ráðgert er, að
förin verði tengd saman i tvo
daga, meðan bandarfskir og
sovézkir geimfarar vinna að
sameiginlegum rannsóknum
utan þeirra.
Tass-fréttastofan sagði i
gær, að geimförunum liði vel.
Ekki kom þó nánar fram,
hvort geimferðin hefði að öðru
leyti gengið að óskum.
Samningar um framtíðarstjórn Ródesíu e.t.v. ú næsta leiti:
Smith samningafús
Reuter-Lusaka. — Þrir leiðtogar
Afrfkurikja komu saman i
Lusaka, höfuöborg Zambiu, i gær.
Tilefnið er, aö samkomulag um
framtiöarstjórn Ródesiu er ef til
vill á næsta leiti.
Það voru þeir Július Nyerere,
forseti Tanzaniu, og Seretse
Khama, forseti Botswana, sem
komu til Lusaka til fundar við
Kenneth Kaunda, forseta
Zamblu.
í útvarpsfréttum i Lusaka var
ekki greint frá umræðuefni
fundarins, en talið vist, að hann
snúist eingöngu um hugsanlegt
samkomulag við stjórn Ian
Smiths i Ródesiu. Forsetarnir
þrfr héldu leynilegan fund i
Lusaka I fyrra mánuði með — að
þvi er áreiðanlegar fréttir herma
— tveim leiðtogum þjóðfrelsis-
hreyfingarinnar i Ródesiu, þeim
Jósúa Nkomo og Nbabaningi
Sithole.
Þeir Nkomo og Sithole hafa
setið I fangelsi f Ródesíu, en var
að sögn sleppt úr haldi, svo að
þeir gætu sótt fundinn i Lusaka.
Heyrzt hefur I Salisbury, höfuð-
borg Ródesiu að þeim Nkomo og
Sithole hafa verið sleppt öðru
sinni úr haldi og þeim leyft að
sækja fund þann, er nú stendur
yfir I Lusaka.
Fréttaskýrendur telja, að
stjórn Ian Smiths sé reiðubúin til
samninga, en óliklegt sé, að hún
fallist á skilmála viðsemjenda
sinna — þ.e. tryggingu fyrir
meirihlutastjórn blökkumanna i
Ródesiu, en þeir eru yfirgnæfandi
meirihluti af ibúum landsins.
Rodesia var sem kunnugt er
nýlenda Breta, en stjórn Ian
Smiths lýsti einhliða yfir stofnun
sjálfstæðs rikis árið 1965. Brezka
stjórnin hefur ekki viðurkennt
stofnun rikis i Ródesiu, en hefur
þó ekki gripið til neinna refsi-
aðgerða gegn stjórn Ian Smiths —
að undanskildu viðskiptabanni
þvi, er samþykkt var að setja á
Ródesíu i öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna fyrir nokkrum árum.
Heyrzt hefur, að von sé á Ian
Smith og John Vorster forsætis-
ráðherra Suður-Afriku, til Lusaka
einhvern næstu daga, en sú frétt
hefur ekki verið staðfest af
opinberri hálfu i Zambiu.
Nýjung frá Marks & Spencer.
Kvenfata-samstæður í fjölbreyttu litaúrvali:
Golftreyjur, vesti, blússur, pils, peysur
og síðbuxur.
Fallegur og smekklegur klæðnaður
í völdum ^litasamsetningum.
Fæst í Gefjun Austurstræti,
Domus Laugavegi 91,
Vöruhúsi KEA Akureyri
og kaupfélögum um land allt.