Fréttablaðið - 03.01.2005, Page 10

Fréttablaðið - 03.01.2005, Page 10
3. janúar 2005 MÁNUDAGUR SÍMTÖL Hvert símtal í þjónustu- númerið 118 kostar yfirleitt á bil- inu sextíu til 120 krónur. Upphafs- gjald fyrir hringingar í númerið er fimmtíu krónur ef hringt er úr farsíma en lítið eitt lægra ef hringt er úr heimilissíma. Auk þess kostar hver mínúta sem talað er rétt tæpar sextíu krónur ef hringt er úr farsíma en fimmtíu krónur ef hringt er úr heimasíma. Fréttablaðið þekkir dæmi um símnotanda sem greiddi rúmlega tvö þúsund krónur fyrir þrjátíu hringingar úr heimasíma í 118. Fyrir rúmlega sextíu símtöl í GSM-síma í sama mánuði greiddi hann tvö hundruð krónum minna, en í heild námu símtölin þrjátíu við 118 meira en fjörutíu prósent- um af símreikningnum. Áframflutningur í símanúmer gegnum 118 kostar þrjár krónur og hefur verð þeirrar þjónustu verið auglýst í fjölmiðlum. Hins vegar hefur verð símtala við 118 ekki verið auglýst. „Þjónustan sem 118 býður upp á hefur afskaplega lítið verið aug- lýst en áframflutningsþjónustan var auglýst þegar hún var ný,“ segir Eva Magnúsdóttir, upplýs- ingafulltrúi Símans. „Þá er verð- skrá okkar aðgengileg á netinu hverjum þeim sem hana vilja skoða.“ ■ HALLAREKSTUR Samkvæmt fjár- hagsáætlun Dalvíkurbyggðar stefnir í 105 milljóna króna halla- rekstur á þessu ári. Er það heldur minni halli en á síðasta ári en þá var reksturinn neikvæður um tæpar 130 milljónir króna. Heildarskuldir sveitarfélags- ins verða á næsta ári tæplega 1,5 milljarðar króna en þar af eru tæplega 600 milljónir vegna fé- lagslegra íbúða. Heildartekjur Dalvíkurbyggðar verða rúmar 800 milljónir króna samkvæmt áætlun næsta árs. Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga fylgist með fjár- hagsstöðu sveitarfélagsins en hef- ur ekki séð ástæðu til sérstakra aðgerða enn sem komið er. - kk VERSLUN „Þeir sem flytja inn og selja falsaða merkjavöru geta átt von á opinberri málsókn frá ákæruvaldi og refsingu,“ segir Hróbjartur Jónatansson hæsta- réttarlögmaður. Tollgæslan Kefla- víkurflugvelli hefur á þessu ári lagt hald á hundruð kílóa af fals- aðri merkjavöru, aðallega fatnað og blekhylki. „Eftirlit hefur verið að aukast og í kjölfarið erum við að finna miklu fleiri sendingar af falsaðri merkjavöru,“ segir Guðbjörn Guð- björnsson, deildarstjóri fraktdeild- ar Tollgæslunnar Keflavíkurflug- velli. „Þessi mál eru einnig mjög í brennidepli í nágrannalöndum okkar þannig að oft fáum við vís- bendingar um slíkan innflutning að utan.“ Rannsókn málanna stendur yfir en að sögn Guðbjörns eru brotin litin alvarlegum augum. „Sá sem af ásetningi brýtur gegn lögum um vörumerki þarf að sæta sektum og refsing getur eftir atvikum varðað fangelsi allt að þrjá mánuði,“ segir Hróbjartur. „Þá getur fyrirtæki sem stendur í fölsun sjálft fengið á sig fjársekt til viðbótar sekt einstaklingsins sem í hlut á.“ Innflutningur falsaðra merkja- vara kemur alltaf upp annað slagið hér á landi að sögn Hróbjarts þrátt fyrir að slík mál endi ekki öll með ákæru. „Til þess að hægt sé að refsa þarf ásetningur um brot að liggja að baki,“ segir Hróbjartur. „Vara getur komið hingað til lands án þess að menn hafi ásetn- ing til að brjóta af sér, það er hægt að kaupa vöru án þess að vera viss um að hún sé fölsuð. Hægt er að stöðva dreifingu á slíkum vörum án þess að viðkomandi aðilum sé refsað persónulega.“ Fölsun merkjavarnings er mjög víðtækur og skipulagður iðnaður í heiminum, sérstaklega í Asíu og Austur-Evrópu að sögn Hróbjarts. „Þar fer víða fram skipulögð fram- leiðsla á fölsuðum varningi í þeim tilgangi að hagnast á þekktum vörumerkjum,“ segir Hróbjartur. helgat@frettabladid.is †mis starfsmanna- og stéttarfélög veita styrki vegna dansnámskei›a. Mambó Tjútt Freestyle Salsa Brú›arvals Barnadansar Samkvæmisdansar Sérnámskei› fyrir hópa N‡justu tískudansarnir Börn – Unglingar – Fullor›nir Dansrá› Íslands | Faglær›ir danskennarar Bolholti 8 | 105 Reykjavík | sími 553 6645 | fax 568 3545 | dans@danskoli.is | www.dansskoli.is VI‹ BJÓ‹UM UPP Í DANS Á N†JU ÁRI Innritun og uppl‡singar alla daga kl. 12–19 í síma 553 6645 e›a me› tölvupósti til dans@dansskoli.is Þjónustunúmerið 118: Símtalið getur kostað á annað hundrað króna EVA MAGNÚSDÓTTIR Upplýsingafulltrúi Símans segir þjónustu- númerið 118 afskaplega lítið verið auglýst. Austurland: Íslandsbanki á Egilsstaði ÞENSLA Íslandsbanki opnar nýtt útibú á Egilsstöðum í ársbyrjun og verður það til húsa þar sem Bónus var áður. Tveir þjónustu- fulltrúar hafa verið ráðnir til starfa í útibúinu, sem í fyrstu verður stýrt frá útibúi Íslands- banka á Reyðarfirði sem opnað var fyrir rúmu ári. Samhliða fólksfækkun á Austurlandi fækkaði útibúum bankanna í fjórðungnum. Þetta breyttist þó aftur eftir að ljóst var að reist yrði álver í Reyðar- firði og hefur þeim fjölgað á ný. Til skamms tíma var Lands- bankinn einn banka með útibú á Reyðarfirði en nú eru þrjár bankastofnanir þar með útibú. Öll eru þau við sömu götuna sem sumir kalla Wall Street. - kk Fjárhagsstaða Dalvíkurbyggðar: Skuldirnar aukast Fölsuð merkja- vara áberandi Hundruð kílóa af falsaðri merkjavöru voru haldlögð á Keflavíkurflugvelli á þessu ári. Brot á lögum um vörumerki geta varðað fangelsi. GALLABUXUR Gallabuxur með þekktum tískumerkjum eru meðal þess varnings sem falsaður er skipulega. AUGLÝSING UM HLUTHAFAFUND NORÐURLJÓSA HF. Hluthafafundur Norðurljósa hf. verður haldinn kl. 8.30 þriðjudaginn 11. janúar 2005 í fundarherbergi yfirstjórnar félagsins að Lynghálsi 5, Reykjavík. Dagskrá fundarins: 1. Breytingar á samþykktum félagsins. Fyrir fundinum liggur eftirfarandi tillaga að breytingum á samþykktum félagsins. 1.1.1. Tilgangi félagsins verði breytt þannig að hann verði eignarhald og viðskipti með hlutabréf, rekstur fasteigna og lánastarfsemi. 1.1.2. Fellt verði niður ákvæði um að boða þurfi til hluthafafundar með auglýsingu í útbreiddum fjölmiðli. 1.1.3. Stjórnarmönnum verði fækkað í þrjá og tveir stjórnarmenn skuldbindi félagið. 1.1.4. Sett verði inn ákvæði í samþykktir félagsins sem heimila að halda stjórnarfundi í gegnum síma eða með fjarfundarbúnaði. 2. Kosning stjórnar. Í samræmi við breyttar samþykktir verður kosin ný stjórn fyrir félagið. f.h. stjórnar Norðurljósa hf. Skarphéðinn Berg Steinarsson stjórnarformaður. 10-11 2.1.2005 21:08 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.