Fréttablaðið - 03.01.2005, Síða 16

Fréttablaðið - 03.01.2005, Síða 16
Hver er fyrirmyndin? spyrja sumir frammi fyrir skáldsagna- persónum og í kjölfarið: Hver á þetta að vera? Samkvæmt þessu sjónarmiði er skáldskap- urinn í rauninni bara viður- kennd aðferð við að segja frá því sem ekki er hægt að segja frá öðruvísi út af lagalegum og siðferðilegum boðum og bönn- um. Litið er á skáldsöguna sem nokkurs konar fjarvistarsönnun fyrir þann sem vill koma ein- hverju á framfæri um samborg- ara sína en treystir sér ekki til að gera það með beinum hætti. Skáldskapurinn er þá aðferð við að koma því á framfæri sem „ólyginn sagði mér“. Við höfum átt höfunda sem blikka okkur lesendur yfir skáldsöguna og haga skrifum sínum og kynningu á verki sínu eins og þeir vilji segja við okk- ur: „Þótt ég kalli þennan mann Friðrik hér þá er ég í rauninni að skrifa um hann Baldur og allt það - þið vitið... blikk blikk...“ Þeir reyna með öðrum orðum að hafa persónuna þannig að hún þekkist og treysta á að hluti af lestrarnautninni hjá viðtak- andanum sé að meðtaka þennan þekkjanleika. Þetta er göfgað slúður. Í lesandanum vaknar lít- ill slúðurkarl og tekur að kjammsa á þessum dulkóðaða óhróðri. Þetta henti fyrir þessi jólin því miður Þráin Bertels- son sem kaus að fylgja eftir vel heppnaðri endurminningabók sinni í fyrra með slíku riti um Björgólf Guðmundsson. Við höfum líka átt viðtakend- ur sem reyna að breyta skáld- skap í slúður: hver á þetta að vera? spyrja þeir og taka síðan að þylja upp alls kyns fólk sem ekki hefur annað til saka unnið en að eitthvað í lífi þess eða fari líkist einhverju sem er að finna í skáldsögu. Þetta er samt ekki einfalt. Grandalaus hef ég hitt móðgaða konu sem spurði mig hvers vegna ég væri að skrifa svona um mann sem stóð nærri henni. Það kom sem sé á daginn að til- teknir taktar og kækir persónu í skáldsögu eftir mig minntu á þennan mann sem í sögunni var ekki allskostar farsæll í sínum störfum. Hvað gat ég sagt? Hún trúði mér ekki þegar ég sagði að þetta gerðist allt í hausnum á mér - og henni - þetta væri skálduð persóna, samsett úr ótal manneskjum, ætlað að vera í senn dæmigerð fyrir eitthvað og eiga sér sjálfstætt líf sem einstaklingur... Hún hélt að ég væri bara að fara með fjarvist- arsönnunina... Ég hef lesið lista með nöfnum manna sem sagðir voru fyrirmyndir að persónu í síðustu skáldsögu minni af því að eitthvað skaraðist þótt eng- inn þeirra hefði hvarflað að mér á meðan ég var skálda persón- una. Ég hef líka freistast til að nota mann sem raunverulega var á dögum sem fyrirmynd persónu. Það var Þorlákur Ó. Johnson og bókin Úr heimsborg í grjótaþorp sem Lúðvík Krist- jánsson, sá góði sagnfræðingur, skrifaði um þennan mikla undramann, eins og Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing- ur rakti á sínum tíma í vandaðri úttekt í gamla Tímanum. Per- sónan varð samt ekki til fyrr en ég sleppti Þorláki. Þessi íslenska fyrirmynda- umræða tók á sig sérkennilega mynd hér í Fréttablaðinu fyrir jólin þegar Eysteinn Þorvalds- son sá ástæðu til að bera af sér sakir um að vera hvorki meira né minna en fyrirmynd að sjálf- um morðingjanum í Kleifar- vatni Arnaldar Indriðasonar. Ástæðan var sú að hann hafði ekki þrifist í austur-þýskum skóla á sínum tíma, rétt eins og gildir um þann sem verður mannsbani í téðri bók. Ein- hverjum kann að virðast Ey- steinn heldur viðkvæmur enda var hann aldrei sagður beinlínis slík fyrirmynd í upphaflegri grein Árna Snævarr heldur lát- ið nægja að segja frá ævintýr- um hans og annarra SÍA manna í Austur-Þýskalandi - gerð grein fyrir leiktjöldum Arnaldar. Þetta er hins vegar heillandi saga og SÍA menn hafa frá mörgu að segja. Sú ranghug- mynd hefur komist á kreik að þeir hafi verið óduglegir að greina frá upplifunum sínum fyrir austan járntjald. Það hafa þeir alls ekki verið - þvert á móti - og spurning hvort ekki væri fengur að safni endur- minninga þessa fólks fyrir ein- hver jólin... En viðkvæmni Eysteins er skiljanleg og okkur ber að virða hana. Svona umræða hefur að geyma tilmæli um að lesandi skuli hafa hina raunverulegu persónu í huga á meðan hann les. Slíkt þrengir ekki bara kosti lesandans við að skapa sér eigin mynd af hinni uppdiktuðu per- sónu sem verður til í galdrinum þegar hugur lesanda fer að starfa með huga höfundar - og er undrið mikla í bókmenntum - heldur eru slík tilmæli til þess fallin að draga verkið niður á plan hins göfgaða slúðurs. Hver á persónan að vera? Hún sjálf – alveg eins og við hin. ■ A tlæti og framtíð barna okkar var leiðarstefið í áramóta-ávörpum leiðtoga þjóðarinnar að þessu sinni. Það fer velá því, enda er okkur vart falið merkilegra verkefni í líf- inu en að koma börnum okkar til þroska og farsældar. Það hlut- verk er svo samofið því meginverki lífs okkar að hegða okkur vel og skynsamlega til þess að við megum leggja okkar af mörkum til uppbyggingar réttláts og farsæls samfélags. Forsala aðgöngumiða að farsæld framtíðarinnar er núna og því fagnaðarefni að forseti, forsætisráðherra og biskup Íslands minni á þau verðmæti sem okkur eru falin með uppeldi barna okkar. Áramótin gefa tækifæri til þess að stíga á stokk og strengja heit. Annað mál er hvernig okkur tekst að vinna úr heitstrengingunum. Orð eru til alls fyrst. Tilkynning forseta Íslands um stofnun menntaverðlauna er fagnaðarefni. Verðlaun geta, ef vel er að þeim staðið, verið ágætlega til þess fallin að vekja athygli á mikilvægum þáttum í samfélagi okkar. Menntun er einn þeirra þátta sem mikilvægastir eru til þess að skapa bæði einstakling- um og þjóðinni sjálfri forsendur til hagsældar og þroska. Átök vegna kjaramála kennara á árinu sem nú hefur kvatt voru ofarlega í huga ráðamanna við áramót. Átök sem skildu eftir sig sár sem verður að græða. Stjórnendur ríkis og sveitar- félaga verða að horfa til þess sem eins af mikilvægustu verk- efnum komandi tíma að efla sjálfsvirðingu kennarastéttarinnar og tilfinningu hennar fyrir mikilvægi sínu í samfélaginu. Þjóð- in hefur ekki efni á því að slík grundvallarstétt í samfélaginu verði sárindum og beiskju að bráð. Sú hætta er fyrir hendi nú. Menntun þarf að vera ofar á forgangslista stjórnvalda og vinna þarf markvisst að því að kennarastéttin búi við kjör sem endur- spegla að við metum grunnmenntun barna okkar í það minnsta með sambærilegum hætti og nágrannar okkar á Norðurlöndum. Forsætisráðherra gerði málefni og mikilvægi fjölskyldunnar að umfjöllunarefni sínu. Fjölskyldan er víðfeðmt hugtak og mikilvægt þegar hugað er að aðbúnaði barna í samfélaginu að stjórnvöld skilgreini ekki fjölskylduhugtakið of þröngt. Þeirrar tilhneigingar hefur gætt þar sem fjálglega er rætt um gildi og mikilvægi fjölskyldunnar að hugtakið sé þröngt skilgreint og hið þrönga fjölskylduhugtak notað til að kasta rýrð á annað heimilisform en sambúð karls og konu með börnum sínum. Markmið fjölskyldu, í hvaða formi sem hún birtist, er sam- búð sem einkennist af virðingu og trausti. Heimili þar sem tækifæri eru fyrir börn að þroska hæfileika sína og verða heil- steyptar manneskjur sem kunna að deila lífi sínu af sanngirni og ábyrgð með öðru fólki. Stjórnvöld geta lagt eitt og annað af mörkum til þess að uppalendur fái betri tækifæri til þess að veita börnum sínum aðgang að verðmætum framtíðarinnar. Barnabætur eru til að mynda tekjutengdar hér á landi og mun lægri en á Norðurlöndunum. Verkefnin eru næg og gott til þess að vita að aðbúnaður barna og möguleikar þeirra til bjartrar framtíðar séu efst í huga ráðamanna um þessi áramót. ■ 3. janúar 2005 MÁNUDAGUR SJÓNARMIÐ HAFLIÐI HELGASON Áherslu á aðbúnað barna og möguleika þeirra til þroska og tækifæra bar hæst í áramótaávörpum leiðtoga þjóðarinnar. Menntun og börn í forgang ORÐRÉTT Markúsarguðspjall Raunar væri gaman að sjá við tækifæri viðtal við þann áskrif- anda sem horfir á ávarp út- varpsstjóra, sem ku vera næsti dagskrárliður á eftir Skaupinu. Kannski horfir konan hans. Jónas Haraldsson blaðamaður. Viðskiptablaðið 31. desember. Stjórnmálaskýrandi ársins? Maður ársins er Usama bin Laden, fyrir að vera enn á lífi, fyrir að hafa hrakið Bandaríkja- her frá Sádí-Arabíu, fyrir að hafa einangrað Bandaríkin í heiminum og fyrir að hafa breytt þjóðskipulagi Bandaríkjanna í eins flokks fasisma. Jónas Kristjánsson, fyrrverandi rit- stjóri. DV 30. desember. Annar eins banki Menn geta svo nefnt útrásina hvað sem er. Það veit hins vegar á gott þegar banki eins og Bank of Scotland lánar Íslendingum á einu bretti marga tugi milljarða króna til að kaupa og endurfjár- magna breskt stórfyrirtæki. Bankinn hlýtur að sjá einhverja glóru í þeim viðskiptum ñ ella myndi hann ekki lána krónu. Jón G. Hauksson ritstjóri um kaup Baugs á Big Food Group. Frjáls verslun 11. tbl. 2004. Skarpur Fjölmiðlafrumvarpið var ríkis- stjórninni og þó ekki síst Davíð Oddssyni erfitt. Týr, dálkahöfundur Viðskiptablaðsins, hugleiðir atburði ársins við áramót. Viðskiptablaðið 31. desember. FRÁ DEGI TIL DAGS Í DAG FYRIRMYNDIR SKÁLDSAGNAPERSÓNA GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON Þessi íslenska fyrir- mynda-umræða tók á sig sérkennilega mynd hér í Fréttablaðinu fyrir jól- in þegar Eysteinn Þorvalds- son sá ástæðu til að bera af sér sakir um að vera hvorki meira né minna en fyrirmynd að sjálfum morð- ingjanum í Kleifarvatni Arn- aldar Indriðasonar... ,, Vinningar verða afhendir hjá Office 1, Skeifunni. Reykjavík. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið Vinningar eru: Miðar f. 2 á Blade Trinity Blade 1 og 2 á DVD Aðrar DVD myndir Margt fleira. Sendu SMS skeytið JA B3F á númerið1900 og þú gætir unnið. 9. hver vinnur 2 X bíómiðar á 99kr.- Hver á þetta að vera? Harrods næst? Í áramótahefti Frjálsrar verslunar rekur Sigrún Davíðsdóttir umsvif Egyptans Mohammed Al Fayed í bresku við- skiptalífi. Hann er meðal annars aðal- eigandi stórverslunarinnar Harrods í London og hefur það farið fyrir brjóstið á mörgum íhaldssömum Bretum sem finnst hann ekki heppilegt andlit fyrir jafn þekkt fyrirtæki. Minnir sú afstaða um sumt á gremju ým- issa Dana yfir kaup- um Baugs og tengdra aðila á Magasin du Nord á dögunum. Í lok greinarinnar segir Sigrún að orðrómur hafi nýlega verið á kreiki um að Philip Green, gamall viðskiptafélagi Baugs- manna, hefði í hyggju að kaupa Harr- ods af Al Fayed. Það hafi verið borið til baka. En „miðað við framsókn ís- lenskra verslunarmanna í London þá eru það kannski engir órar að ímynda sér að Harrods komist á endanum í eigu Íslendinga,“ skrifar Sigrún. Nýársleikur Björns Í pistli á vefsíðu sinni í gær bregður Björn Bjarnason á „nýársleik“ með tíu spurningum frá franska sjónvarpsmanninum Bernard Pivot, sem telur þær gagnast við „að greina hugsan- ir, tilfinningar og skoðanir ein- staklinga“. Því miður svarar Björn spurningunum ekki sjálfur en hér er gestaþraut ráðherrans og Pivot: 1. Hvaða orð er þér kærast? 2.Hvaða orð vilt þú síst? 3. Hvað vekur þig til sköp- unar eða andlega og tilfinningalega? 4. Hvað dregur úr þér allan vilja og mátt? 5. Hvaða blótsyrði er þér tamast? 6. Hvaða hljóð eða hávaði finnst þér bestur? 7. Hvaða hljóð eða hávaði finnst þér verstur? 8. Hvaða starf annað en það, sem þú sinnir, langar þig helst að reyna? 9.Hvaða starfi mundir þú ekki vilja gegna? 10. Sé himnaríki til, hvað vilt þú vilja heyra Guð segja, þeg- ar þú kemur að Gullna hliðinu? gm@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 16 og 41 (16-17) Leiðari 2.1.2005 19:46 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.