Fréttablaðið - 03.01.2005, Síða 19
3MÁNUDAGUR 3. janúar 2005
Guðrún Jóhannesdóttir, eig-
andi verslunarinnar Kokku,
hefur skipulagt eldhúsið sitt
heima fyrir á þann veg að
gott er að vinna í því.
„Við fluttum inn fyrir þremur
árum og þá var eldhúsið agalegt,“
segir Guðrún þegar hún er beðin
um að segja okkur frá eldhúsinu
sínu. „Við erum reyndar ekki sú
týpa af Íslendingum sem rífur allt
út og setur nýtt áður en flutt er
inn,“ segir Guðrún og lýsir því
hvernig hún og maðurinn hennar
létu sig hafa það að vinna í eldhús-
inu agalega áður en þau hófust
handa við að breyta því.
„Við rifum svo allt út og byrj-
uðum frá grunni þar sem eldhúsið
var það slæmt að ekkert var hægt
að endurnýta. Hins vegar höfum
við byggt það upp smátt og smátt
og eigum enn smáræði eftir eins
og höldur á skápa og gólfefni,“
segir Guðrún, sem er afskaplega
ánægð með útkomuna og þá sér-
staklega vinnuaðstöðuna. „Eld-
húsið er bara til að vinna í því en
við höfum ekkert matarborð í eld-
húsinu heldum notum bara stórt
borðstofuborð sem er frammi,“
segir Guðrún en þau hjónin eru
mikið eldhúsfólk og hafa hagað
málum á þann veg að þau gæti
bæði unnið í einu í eldhúsinu.
Jafnframt eru þau með tvo ofna í
eldhúsinu, sem er frekar óhefð-
bundið. „Gaseldavélin sem við
settum hingað inn er bara lítil
með einum ofni þannig að við
héldum ofninum sem var hér
fyrir. Það er mjög praktískt að
hafa tvo ofna, og maður þarfnast
þess ótrúlega oft,“ segir Guðrún.
Helsta kost þess að skipuleggja
eldhús eftir að flutt er í húsnæðið
segir Guðrún vera þann að þá gef-
ist tími til að átta sig á hvernig sé
best að hafa hlutina og átta sig á
rýminu. „Þar sem við gerðum
þetta smám saman tel ég útkom-
una vera betri en ella og ég er
mjög ánægð með þetta,“ segir
Guðrún.
kristineva@frettabladid.is
Eldhúsið hjá Guðrúnu Jóhannesdóttur í Kokku er afar gott vinnueldhús.
Góð vinnuaðstaða fyrir mestu Fissler
pottar og pönnur
- finndu muninn!
sími 568 6440
Öryggis-
hurðir
B Í L S K Ú R S
OG IÐNAÐAR H U RÐ I R
Smíðað
eftir máli
Hurðir til
á lager
Eldvarnar-
hurðir
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
[ GLUGGAÞVOTTUR ]
Gluggaþvottur er ekki mjög
skemmtilegur en hægt er að gera
hann tiltölulega auðveldan.
Nokkur ráð til að halda
gluggum hreinum
Ef sólin skín úti, vertu þá með sól-
gleraugu þegar þú þrífur glugg-
ana. Þannig sérðu betur þá bletti
sem þú átt eftir og hvar strokurnar
eftir hreinsivökvann liggja.
Þrífðu gluggann frá botni upp í
topp innan frá en frá hlið til hliðar
utan frá svo þú vitir á hvorri hlið
stokurnar eru.
Ef gluggarnir þínir eru rosalega
skítugir þá getur þú bætt tveim til
þrem teskeiðum af ediki í hverja
fjóra lítra af vatni. Það svínvirkar á
blettina.
Það virkar vel að nota saman-
krumpað dagblað til að þurrka
gluggana. Það sparar líka þvotta-
klúta því dagblöðin fara hvort sem
er í ruslið fyrr eða síðar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Vandaðar heimilis og gjafavörur
Kringlunni - sími : 533 1322
Lokað í dag!
Útsalan hefst á morgun
02-03 heimili c.i.m. 2.1.2005 16.29 Page 3