Fréttablaðið - 03.01.2005, Síða 28
Kauphöll Íslands teiknuð af Hauki Harðarsyni arkitekt.
12 3. janúar 2005 MÁNUDAGUR
Ljósmynd sem gæti næstum verið tekin á Manhattan.
Nordica Hótel var áður Hótel Esja, en hlaut mikla andlitslyftingu og er í raun eins og
annað hús. Útlitsbreytingin var í höndum Ásgeir Ásgeirssonar arkitekts.
Skrifstofuhúsnæði Ístaks teiknað af Agli Má Guðmundssyni.
Skakkir gluggarnir skutu skökku við þegar þeir sáust fyrst, en falla nú eðlilega inn í umhverfið. Húsið er teiknað af Guðna
Pálssyni og Dagný Helgadóttur.
Heimsborgarleg
gatnamót
Reykjavík hefur fengið á sig svip stórborgar við
gatnamót Suðurlandsbrautar og Laugavegs.
Gatnamótin þar sem Suðurlandsbraut og Laugavegur
mætast hafa fengið á sig stórborgarbrag þar sem nokk-
ur mikilfengleg og nútímaleg glerhýsi hafa risið. Fyrst
ber að nefna Kauphöll Íslands, sem trónir yfir gatna-
mótum sem bogadregið glerhýsi og gefur tóninn að því
sem koma skal í henni Reykjavík. Hlý birtan innan úr
húsinu á veturna er skemmtilegt mótvægi við kalt efnis-
val á byggingunni, en á sumrin speglast sólin í gluggun-
um og gefur húsinu gylltan og glóandi svip sem er ótrú-
lega viðeigandi fyrir kauphöll. Inni af boganum aftan
við húsið er viður notaður sem brýtur upp formið og
forðar Kauphöllinni frá því að vera klakahöll.
Gegnt Kauphöllinni er Úrval-Útsýn, sem reyndar var
fyrsta nútímalega byggingin til að spretta upp við
gatnamótin með sínum skökku gluggum en þar fyrir
aftan sést í Nordica Hótel, sem áður var Hótel Esja. Hót-
elið var klætt í nútímalegan búning þar sem glerið ræð-
ur ríkjum en eins og við Kauphöllina er það brotið upp
með öðru efni. Ryðgaðar stálplötur umvefja hluta af
hótelinu og þó að það hafi ef til vill ekki þótt fínt á árum
áður að notast við ryðgað efni kemur það einstaklega
fallega út og er óvenju hlýlegt. Síðasta viðbótin á þess-
um slóðum er skrifstofuhúsnæði Ístaks við Engjateig-
inn en það er húsnæði sem samanstendur af skiptu
ferköntuðu rými úr steypu og gleri. Þar eru aðeins bein-
ar línur og hvergi bogadregið form að sjá og dimmar
rúðurnar hleypa út dempaðri og nánast dularfullri birtu,
en glerhlið hússins vísar út að Suðurlandsbraut. Allar
hafa þessar byggingar gerbreytt útliti gatnamótanna og
fært borgina nær því að teljast stórborg.
kristineva@frettabladid.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
12-13 fast stir it up mon 2.1.2005 16.14 Page 2