Fréttablaðið - 03.01.2005, Side 38

Fréttablaðið - 03.01.2005, Side 38
38 ATVINNA Matreiðslumaður Framtíðarstarf á Nordica hoteli Óskum eftir að ráða góðann matreiðslumann í metnaðarfullt starf við veislueldhús hótelsins. Leitað er eftir ábyrgum, samstarfsfúsum og dugleg- um aðila. Hæfniskröfur við matreiðslu veislurétta gerðar til viðkomandi. Unnið er samkvæmt hefðbundinni vaktavinnu mat- reiðslumanna. Framtíðarstarf við morgunverðarhlaðborð á Nordica hoteli Óskum eftir að ráða jákvæðan, samstarfsfúsan og duglegan starfsmann í metnaðarfullt starf við dag- lega uppsetningu á morgunverðarhlaðborði innan eldhús hótelsins. Unnið er 15 daga í mánuði á vöktum frá kl. 04:00- 11:00 Starfsreynsla á matvælasviði æskileg og/eða menntun úr matsveinanámi Í starfinu felst meðal annars : • Framsettning og umsjón á allri matvöru • Bakstur • Eldamennska • Almenn Þrif og frágangur • Hitastigseftirlit • Skráning við gámes kerfi Störfin eru laus nú þegar og er óskað eftir umsókn- um á tölvupósti til yfirmatreiðslumanns (hakon@icehotel.is ) Nánari upplýsingar í síma 444 5054 / 840 0111 Störf á ferðaskrifstofu Iceland Excursions Allrahanda óskar eftir að ráða í eftirtalin störf: Markaðsfulltrúi Símsvörun og móttaka Starfsmaður í bókhald Iceland Excursions Allrahanda er alhliða ferðaþjónustufyrir- tæki og ferðaskrifstofa í örum vexti. Fyrirtækið kappkostar að veita góða og persónulega þjónustu við ferðamenn á Íslandi. Við leitum að drífandi einstaklingum sem vilja verða hluti af skemmtilegum hóp í góðu starfsumhverfi. Um framtíð- arstörf er að ræða. Góð tungumálakunnátta er nauðsynleg. Umsóknum skal skila fyrir 10. janúar á skrifstofu Iceland Excursions Allrahanda að Höfðatúni 12, 105 Reykjavík eða á tölvupóstfangið: atvinna@iea.is. Einnig er hægt að fylla út umsókn á heimsíðu okkar: www.icelandexcursions.is Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trún- aðarmál. Nánari upplýsingar gefa Þórir Garðarsson í s. 540 1304 og Heiðar Eiríksson í s. 540 1306. Í Hafnarfirði búa um 22 þúsund manns. Bærinn stendur í fallegu umhverfi hrauns og kletta. Hafnarfjörður hefur þá bæjarsál sem einkennir búsetu við sjó og státar um leið af hagkvæmni stærðar- innar og staðsetningar í jaðri höfuðborgarsvæðisins. Það er gott að búa og starfa í Hafnarfirði. Nýr skóli á Völlum Skólastjóri grunnskóla Staða skólastjóra við nýjan grunnskóla á Völlum í Hafnarfirði er laus til umsóknar. Þar er í hönnun þriggja hliðastæðna grunnskóli og leik- skóli í sama húsnæði. Nýr skólastjóri tekur þátt í að móta umgjörð skólastarfsins og stefnu skólans í samráði við fræðsluyfirvöld og aðra hagsmunaaðila. Ráðið verður í 50 % stöðu skólastjóra grunnskólans frá 1. febrúar 2005 ( eða eftir samkomulagi) og fulla stöðu frá 1. ágúst 2005 eða eftir nánara samkomulagi. Starfsemi grunnskólans hefst haustið 2005 en leikskól- inn tekur til starfa haustið 2006. Meginhlutverk skólastjóra er að stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans en einnig að veita skólanum faglega forystu á sviði kennslu og þróunar. Umsækjandi þarf að hafa til að bera eftirfarandi þætti: • Kennaramenntun • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar, uppeldis- eða kennslufræði og reynslu af stjórnun. • Lipurð í mannlegum samskiptum • Metnað og áhuga fyrir nýjungum Grunnskólinn verður byggður fyrir allt að 700 - 750 börn Í Hafnarfirði eru íbúar tæplega 22.000 og í bænum eru 7 grunnskólar og 14 leikskólar og er þjónustusamningur við einn til viðbótar. Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar er þjónustustofnun í þágu menntunar í bæjarfélaginu og þar starfa sérhæfðir starfs- menn sem veita faglega ráðgjöf og þjónustu sem hæfir hverju sinni. Nánari upplýsingar um starfið veitir Magnús Baldursson, fræðslustjóri í síma 5855800, netfang magnusb@hafnar- fjordur.is en fræðslustjóri er næsti yfirmaður skólastjóra. Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningi launa- nefndar sveitarfélaga og KÍ. Umsókn þarf að innihalda yfirlit um menntun og reynslu ásamt ítarlegri greinargerð um fyrirhugaðar áherslur í skólastarfi. Í samræmi við jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið. Umsókn skal skilað á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, Strandgötu 31, 220 Hafnarfjörður, eigi síðar en 10. janúar 2005. Fræðslustjórinn í Hafnarfirði Snjall forritari óskast Hugbúnaðarfyrirtæki óskar eftir reyndum forritara í spennandi verkefni. Reynsla á eftirfarandi sviðum er nauðsynleg: SQL/Oracle, ASP, .NET, SOAP og xml. Viðkomandi þarf að vera skipulagður, geta unnið sjálfstætt og hafið störf sem fyrst. Góð laun eru í boði fyrir réttan mann. Umsóknir og ferilsskrár sendist hgg@hgg.is fyrir 07.01.2005Smáauglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is 34-35-36-37-38-39 smáar 2.1.2005 16:06 Page 6

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.