Fréttablaðið - 03.01.2005, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 03.01.2005, Blaðsíða 40
Lofthreinsitæki Nýtt! ECC ehf Skúlagötu 17 101 Reykjavík Sími 511 1001 ecc@ecc.is www.ecc.is Upplýsingar í síma 511 1001 Opið frá 09.00 til 18.00 hreinsar loftið, eyðir lykt og drepur sýkla Kröftugt jónastreymi Gefur frá sér mínus hlaðnar jónir sem hjálpa til við að eyða m.a. ryki, mengun, veirum og frjódufti. Heldur herbergisloftinu hreinu og bætir heilsuna. Bakteríudrepandi útfjólublár lampi Útfjólubláa ljósið drepur ýmsa sýkla og bakteríur og eyðir lykt (t.d. reykinga- og matarlykt) Kröftug ryksöfnun Ryðfrí stálblöð safna á sig ryki og öðrum óhrein- indum í stað hefðbundins fílters. Þrjú skref HI, MED og LOW stillingar og Turbo stilling fyrir mismunandi aðstæður. (Blá ljós sýna stillingu). Gaumljós Ljós sýna hvort þrífa þarf stál blöðin eða hvort tækið þarfnast annars viðhalds. Mikill orkusparnaður Vegna orkusparandi hönnunar notar tækið aðeins 28W/klst. Byltingarár Íbúðalánasjóðs Nú er rétt ár síðan félagsmálaráð- herra tilkynnti um fyrirhugaðar breytingar á fyrirkomulagi skulda- bréfaútgáfu Íbúðalánasjóðs, en sú breyting ásamt ákvörðun ríkis- stjórnarinnar um að hækka láns- hlutfall almennra íbúðalána sjóðsins í 90% hefur bylt íbúðalánamarkaði á Íslandi. Í tengslum við tilkynninguna var því haldið fram að breytingin myndi að öllum líkindum verða til lækkunar vaxta íbúðalána Íbúðalánasjóðs, sem síðan myndi að öllum líkindum leiða til lækkunar langtímaraunvaxtastigs í landinu. Það stóð ekki á gagnrýnis- röddum sem efuðust um að breyting- arnar myndu hafa þessar afleiðingar í för með sér, en reynslan hefur sýnt að vextir íbúðalána hafa lækkað enn meira en björtustu vonir stóðu til fyrir ári síðan. Breytingar á skuldabréfaútgáf- unni fólust í því að leggja niður hús- bréfakerfið, koma á fót nýjum, öfl- ugum skuldabréfaflokkum sem færðir voru að alþjóðlegum stöðl- um, skráðir í Kauphöll Íslands og gefni út í Euroclear, öflugustu upp- gjörsmiðstöð heims. Í kjölfar þess tók Íbúðalánasjóður að veita ein- göngu peningalán á lægri vöxtum en áður. Fyrri hluti ársins fór í undir- búning að breytingunum sem urðu þann 1. júlí. Íbúðalánasjóður fékk til liðs við sig einn öflugasta banka Evrópu, Deutsche Bank, sem veitti ráðgjöf við breytingarnar og mestu skuldabréfaskipti Íslandssögunnar. Enda var allir undirbúningur unn- inn í samræmi við það sem best ger- ist á alþjóðlegum fjármálamörkuð- um og ber ítarleg útboðslýsing þess best vitni. Þessi aðferðafræði virtist vera nýjung á Íslandi þar sem ýms- ir aðilar á markaði og í fjölmiðlum gagnrýndu einmitt þau atriði við framkvæmd skuldabréfaskiptanna sem féllu að aðferðafræði skulda- bréfaskipta á alþjóðlegum fjármála- markaði. Skuldabréfaskiptin fólust í því að eigendum húsnæðisbréfa og mark- flokkum húsbréfa var gefinn kostur á að skipta þeim yfir í hin nýju, alþjóðlega viðskiptavænu íbúðabréf Íbúðalánasjóðs. Skemmst er frá því að segja að skuldabréfaskiptin tók- ust frábærlega og var árangurinn betri en Deutsche Bank hafði áður kynnst. Afleiðingar breytinganna hafa verið víðtækar. Íbúðalánasjóður hefur lækkað vexti af almennum út- lánum um nær 1%. Þá urðu breyting- arnar til þess að íslenski bankar tóku loks að bjóða almenningi íbúðalán á mannsæmandi vöxtum, en bankarnir bjóða nú íbúðalán á helmingi lægri vöxtum en áður tíðkaðist í banka- kerfinu. Sú þróun er afar jákvæð og mikilvæg fyrir heimilin í landinu. Í raun er hægt að tala um bylt- ingu á íbúðalánamarkaði, byltingu sem Íbúðalánasjóður kom af stað með breytingum sínum þann 1. júlí síðastliðinn. Höfundur er sviðsstjóri þróunar- og almannatengsla Íbúðalánasjóðs. Bústaðakirkja Bústaðakirkja stendur við Bústaðaveg og Tunguveg og var vígð fyrsta sunnudag í að- ventu árið 1971. Fyrsti sóknar- presturinn var séra Ólafur Skúlason en nú gegnir séra Pálmi Matthíasson embætt- inu. Helgi Hjálmarsson arki- tekt hannaði kirkjuna, sem er 640 fermetrar að flatarmáli og 1.040 fermetrar á hæð. Glerlistaverk í kirkjunni eru eftir Leif Breiðfjörð. Kirkjan stendur í brekku mót sól og var tillit tekið til þess við hönnun hennar. Sóknarmörk Bústaðakirkju eru Grensás- vegur og Eyrarland að Reykja- nesbraut og Miklabraut að bæjarmörkum Kópavogs. Upplýsingarnar eru fengnar af www.kirkja.is SELDAR EIGNIR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU* *Þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins. 10/12 - 16/12 FJÖLDI TÍMABIL 0 50 100 150 200 250 300 249 250 17/12 - 22/12 200 12/11 - 18/11 263 19/11-25/11 245 26/11-2/12 285 3/12-9/12 HALLUR MAGNÚSSON HÚSIN Í BÆNUM 24- fast bak lesen 2.1.2005 16.26 Page 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.