Fréttablaðið - 03.01.2005, Qupperneq 44
FÓTBOLTI „Stundum er talað um
meistaraheppni og ég held að við
höfum haft hana í dag,“ sagði
Jose Mourinho, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, eftir sigur síns
liðs gegn Liverpool á nýársdag.
Joe Cole var hetja Chelsea í
leiknum en hann skoraði eina
mark leiksins þegar 10 mínútur
voru til leiksloka eftir að hafa
komið inn á sem varamaður
skömmu áður. Cole endurtók
þannig leikinn frá því í fyrri leik
liðanna í október þegar hann
skoraði sigurmarkið í 1-0 sigri.
„Við vorum mjög heppnir í dag.
Ég vorkenni Rafael Benitez að hafa
ekki fengið jafntefli, það hefðu ver-
ið sanngjarnari úrslit,“ sagði Mour-
inho. Benitez var óánægður með
Mike Riley, dómara leiksins, og
taldi hann meðal annars hafa sleppt
augljósri vítaspyrnu.
„Þetta voru ósanngjörn úrslit.
Við spiluðum virkilega vel í
fyrri hálfleik og stjórnuðum
leiknum. Tveir hlutir breyttu
leiknum; meiðsli Xabi Alonso og
þegar Tiago tók boltann með
hendinni innan teigs en Riley
flautaði ekki,“ sagði Benitez bál-
reiður eftir leikinn. Í ljós hefur
komið að Alonso er ökklabrotinn
og verður frá keppni næstu sex
vikurnar. Eiður Smári Guðjohn-
sen var í byrjunarliði Chelsea en
átti afar rólegan dag.
Hermann Hreiðarsson og fé-
lagar í Charlton áttu aldrei
glætu gegn meisturum Arsenal
og er Freddie Ljungberg kominn
á skotskóna eftir að hafa verið
frá í nokkrar vikur vegna
mígrenis. Hann skoraði tvö
mörk og nýliðinn Robin van
Persie eitt.
„Ljungberg var ekki orðinn
heill á öðrum degi jóla, hann
var skárri gegn Newcastle en í
dag lék hann eins og hann á að
sér. Hann var frábær,“ sagði
Arsene Wenger, stjóri Arsenal,
eftir leikinn.
Manchester United hefur
ekki gefið titilvonirnar upp á
bátinn og vann liðið góðan úti-
sigur á Middlesbrough. „Eng-
inn er að spila betur en við í
augnablikinu,“ sagði Alex
Ferguson, stjóri Man. Utd., og
Steve McClaren hjá Middles-
brough sagði ýmislegt til í þeim
ummælum.
„Þeir hafa fengið 28 stig af
30 mögulegum í síðustu leikj-
um. Það er ekki slæmt. Ég held
að þetta verði þriggja liða
keppni allt fram í síðustu um-
ferðirnar.“ ■
3. janúar 2005 MÁNUDAGUR
VIð hrósum ...
... íslenska landsliðsframherjanum Heiðari Helgusyni, sem heldur
áfram að fara á kostum með liði Watford í ensku 1. deildinni. Á
nýársdag skoraði hann sigurmarkið gegn Millwall. Heiðar byrjaði
tímabilið rólega og skoraði aðeins eitt mark fram að 16. október
en síðan þá hefur hann farið á kostum og skorað 11 mörk.
„Ég ætlaði mér alls ekki að gera
þetta og ég vil biðjast afsökunar.
Ég vona að hann nái sér fljótt.“
Frank Lampard er prúðmennskan uppmáluð en ljót
tækling hans varð til þess að Xabi Alonso ökklabrotnaði.
sport@frettabladid.is
Meistaraheppni Chelsea
Jose Mourinho segir að meistaraheppni hafi skilað sínu liði sigri gegn Liver-
pool á nýársdag. Arsenal og Manchester United eru að ná sér á strik á nýjan
leik og fylgja Chelsea eins og skugginn.
Sími 562-3811
ÚTSALAN
hefst á morgun kl: 10.00
Ungbarnasund
Námskeiðið hefst 5. febrúar nk. í Árbæjarlaug.
Sunddeild Ármanns
Barnasund
Sundnámskeið fyrir börn 2ja-6 ára
hefst laugardaginn 15. janúar nk.
í Árbæjarskóla
Innritun virka daga frá kl. 17:00 og um helgar frá kl. 13:00
í síma 557-6618 (Stella) og Eygló í síma 860-0122
Gleðilegt ár!
Byrjum námskeiðin
10. janúar
Upplýsingar í síma:
561 5620
Enska úrvalsdeildin
ÚRSLIT
LIVERPOOL–CHELSEA 0–1
0–1 Joe Cole (80.).
FULHAM–CRYSTAL PALACE 3–1
1–0 Andy Cole (4.), 1–1 Andy Johnson, víti. (35.),
2–1 Andy Cole (60.), 3–1 Tomasz Radzinski
(73.).
ASTON VILLA–BLACKBURN 1–0
1–0 Nolberto Solano (88.).
BOLTON–WEST BROM 1–1
0–1 Zoltan Gera (13.), 1–1 El-Hadji Diouf. (85.).
CHARLTON–ARSENAL 1–3
0–1 Freddie Ljungberg (35.), 1–1 Talal El
Karkouri. (45.), 1–2 Freddie Ljungberg (48.), 1–3
Robin van Persie (67.).
MAN. CITY–SOUTHAMPTON 2–1
1–0 Paul Bosvelt (19.), 2–0 Shaun Wright-
Phillips. (40.), 2–1 Kevin Phillips, víti (90.).
NEWCASTLE–BIRMINGHAM 2–1
1–0 Shola Ameobi (4.), 2–0 Lee Bowyer (44.),
2–1 Emile Heskey (64.).
PORTSMOUTH–NORWICH 1–1
0–1 Damien Francis (9.), 1–1 Yakubu Aiyegbeni,
víti (61.).
TOTTENHAM–EVERTON 5–2
1–0 Dean Marney (16.), 2–0 Reto Ziegler (27.),
2–1 Tim Cahill (40.), 3–1 Miguel Pedro Mendez
(59.), 4–1 Robbie Keane (68.), 5–1 Dean Marney
(80.), 5–2 James McFadden ( 87.).
MIDDLESBROUGH–MAN. UTD. 0–2
0–1 Darren Fletcher (9.), 0–2 Ryan Giggs (79.).
STAÐAN
CHELSEA 21 16 4 1 41:8 52
ARSENAL 21 14 5 2 51:23 47
MAN. UTD. 21 12 7 2 33:13 43
EVERTON 21 12 4 5 25:22 40
MIDDLESB. 21 10 5 6 34:26 35
LIVERPOOL 21 10 4 7 34:21 34
TOTTENHAM 21 9 5 7 29:21 32
CHARLTON 21 9 4 8 24:31 31
ASTON VILLA 21 7 7 7 23:24 28
MAN. CITY 21 7 6 8 26:22 27
PORSTMOUTH 21 7 6 8 25:28 27
BIRMINGHAM 21 6 8 7 24:23 26
NEWCASTLE 21 6 7 8 33:39 25
BOLTON 21 6 6 9 27:30 24
FULHAM 21 6 3 12 25:36 21
BLACKBURN 21 3 10 8 19:33 19
NORWICH 21 2 10 9 18:37 16
CR. PALACE 21 3 6 12 21:34 15
SOUTHAMPT. 21 2 8 11 19:34 14
WEST BROM 21 1 9 11 17:43 12
LEIKIR GÆRDAGSINS
JOE COLE Hefur heldur betur reynst Chelsea dýrmætur í leikjum liðsins gegn Liverpool á
leiktíðinni. Í báðum leikjunum hefur hann komið inn á og skorað sigurmarkið. Hér sést
hann fagna marki sínu í leiknum á nýársdag.
44-45 (20-21) Sport 2.1.2005 18:43 Page 2