Fréttablaðið - 19.01.2005, Blaðsíða 17
Frjáls íbúðalán
vextir
100
%
veð
set
nin
gar
hlu
tfa
ll
Engin skilyrði um önnur bankaviðskipti
Lánin eru verðtryggð og bera fasta 4,15% vexti sem eru endurskoðaðir
á fimm ára fresti. Hægt er að greiða upp án uppgreiðslugjalds þegar vextir
koma til endurskoðunar. Engin hámarksupphæð og er lánstími allt að 40 árum.
Krafa er gerð um fyrsta veðrétt íbúðarinnar. Lánshlutfall er allt að 80%
við endurfjármögnun fasteigna (engin hámarksupphæð) og 100% við kaup
fasteignar (hámarksupphæð 25 milljónir króna).
Hægt er að nota lánin til íbúðarkaupa, til að stokka upp fjármálin
eða í eitthvað allt annað.
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn í Ármúla 13a,
hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is www.frjalsi. is
H
i
m
i
n
n
o
g
h
a
f
Hólmgeir Hólmgeirsson
rekstrarfræðingur er lánafulltrúi
á viðskiptasviði
Ragnheiður Þengilsdóttir
viðskiptafræðingur er lánafulltrúi á viðskiptasviði.
Lánstími 5 ár 25 ár 40 ár
4,15% vextir 18.485 5.361 4.273
*Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta
Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.*
Góðan dag!
Í dag er miðvikudagur 19. jan.,
19. dagur ársins 2005.
Reykjavík 10.44 13.39 16.34
Akureyri 10.47 13.23 16.00
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Eva Bjarnadóttir nemur kjólameist-
ara-og klæðskeraiðn í Iðnskólanum
í Reykjavík.
„Þetta á mjög vel við mig,“ segir Eva sem
nú er á fyrsta ári í klæðskeradeild og hrós-
ar happi yfir að hafa komist inn. Hún fór
nefnilega til Keníu í haust og hugðist dvelja
þar í eitt ár við barnakennslu á vegum al-
þjóðlegra ungmennaskipta en veiktist illa
og kom heim en hafði hvergi sótt um skóla-
vist. „Ég náði að troða mér hér inn,“ segir
hún brosandi. Af námsgreinunum á
haustönn nefnir hún teikningu, sniðagerð og
prufusaum, til dæmis á vösum af ýmsum
gerðum. „Það er verið að þjálfa nákvæmni
og tækni sem starfið krefst,“ bendir hún á.
Námið tekur fjögur ár og skiptist í klæð-
skeranám og kjólameistaranám en þó ekki
fyrr en á síðustu önninni. Eva segir auðvelt
að ljúka sveinsprófi í báðum greinum, ekki
þurfi að bæta við nema einni önn til þess. En
skyldi hún vera vön saumaskap. „Ja, ég hef
saumað á sjálfa mig mér til gamans ef mig
hefur vantað föt.“ Þegar betur er að gáð
kemur í ljós að hún saumaði sjálf á sig
fermingarkjólinn en gerir ekki mikið úr því
afreki. „Það var mjög einfaldur kjóll, bara
svona skokkur.“
Eva segir fatahönnun og klæðskera-og
kjólameistaraiðn oft ruglað saman. „Iðn-
námið gengur út á að þjóna viðskiptavini
sem pantar ákveðna flík og kemur með út-
litsmynd eða hugmynd að henni. Auðvitað
getur maður farið út í hönnun en það er ekki
það sem við erum að læra.“ Hún er ánægð í
saumaskapnum þótt hún sjái ekki fyrir sér
hálaunastarf að námi loknu. „Þetta er ekk-
ert peningadjobb en það verða þó vonandi
alltaf einhverjir sem vilja láta sérsauma á
sig föt.“
gun@frettabladid.is
Bara svona skokkur
nam@frettabladid.is
30 rúmlesta réttindanámskeið
og vélgæslunámskeið hefjast í
sjómannaskólanum í Reykjavík
24. janúar. Í rétt-
indanámskeiðinu
verður meðal ann-
ars kennd siglinga-
fræði, vélfræði, sigl-
ingatæki, fjarskipti
og veðurfræði. Á
vélgæslunámskeiðinu verður
meðal annars farið yfir álags-
keyrslu véla, frágang véla, kæli-
kerfi og rafmagn, vetrargeymsu
,vökvakerfi og heilmargt fleira.
Háskóli Íslands og lyfjafyrir-
tækið Actavis hafa gert með sér
samstarfssamning sem veitir
nemendum við Háskóla Íslands
tækifæri til þess að glíma við
verkefni sem tengjast starfsemi
Actavis auk þess sem
fyrirtækið nýtur þekk-
ingar kennara og
nemenda við Háskóla
Íslands. Actavis leggur
til árlega allt að fjórar
milljónir króna í verk-
efnasjóð í þrjú ár; samtals 12
milljónir króna. Allir nemendur
við Háskóla Íslands geta sótt
um styrk til sjóðsins, en sjóður-
inn er stofnaður með nemend-
ur í lyfjafræðideild, verkfræði-
deild og viðskipta- og hag-
fræðideild í huga, og tekur út-
hlutun styrkja mið af því.
Eva hefur verið í prufusaumi í vetur og er búin að læra margar gerðir af vösum.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
LIGGUR Í LOFTINU
í námi
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Marmilaði
er bara
sulta með
beinum!
Börn í jóga
BLS. 2
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 138 stk.
Keypt & selt 26 stk.
Þjónusta 44 stk.
Heilsa 5 stk.
Skólar & námskeið 1 stk.
Heimilið 18 stk.
Tómstundir & ferðir 4 stk.
Húsnæði 14 stk.
Atvinna 24 stk.
Tilkynningar 2 stk.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M