Fréttablaðið - 19.01.2005, Blaðsíða 32
19. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
Um helgina rakst
ég á þátt á MTV
þar sem fjallað
var um strák,
klæðskipting,
sem vildi líkjast
J-Lo. Hann var
búinn að vera á
hormónalyfjum
í nokkurn tíma
og því kominn með pínu
brjóst og mjaðmir en hafði ekki
enn látið taka af sér lillann. En
hann reddaði því nú og teipaði
hann bara niður. Jæja allt í lagi
með það. Það versta við þáttinn
var þegar hann fór í allsherjar
lýtaaðgerð. Allt var sýnt, ALLT!
Höfuðleðrinu flett upp og strekkt
á því, troðið ógeðslegum sílíkon-
pokum í brjóstin á honum, skrapað
af enninu og svo púðar í kinnarnar.
Ég sat í keng í sófanum og kíkti
á milli puttanna á mér og öskraði.
Hvaða helvítis viðbjóð er fólk að
leggja á sig? Eftir aðgerðina var
hann í tvær vikur bundinn um
hausinn eins og múmía, lá hjálpar-
laus og lét vini sína mata sig
og hafði varla orku í að labba á
klósettið. Hann lá bara og rumdi og
slefaði.
Ég verð að viðurkenna að ég er
gífurlega andvíg lýtaaðgerðum ef
ekki er verið að laga eitthvað eftir
stórslys eða veikindi. Ég þoli ekki
þegar fólk segir um stelpur sem
fara í sílíkonaðgerð: „Ég meina ef
henni líður betur er þetta frábært.“
Ég er ekki sammála þessu. Spurn-
ingin er ekki hvort fólki líður betur
eftir svona, heldur af hverju?
Af hverju eru konur hamingju-
samari með stór brjóst og eru þær
það virkilega? Hvaðan koma þessi
rugl skilaboð sem stimpla inn í fólk
að hamingja felist í stórum brjóst-
um? Eða stórum lim, lægra enni,
stórum vörum og af hverju tökum
við þessum skilaboðum sem góðum
og gildum. Ég held að lausnin felist
í því að sætta sig við sjálfan sig.
Lausnin er ekki að fara í hættulega
skurðaðgerð og troða aðskotahlut í
líkamann. Auk þess get ég ímyndað
mér hvað gerist þegar sílíkon-
bombur deyja og rotna ofan í kist-
unum. Sjáiði þetta fyrir ykkur?
Beinagrind með tvo sílíkonpoka
framan á sér. Oj bara. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
BORGHILDI GUNNARSDÓTTUR ÞYKIR LÝTAAÐGERÐIR MEÐ ÖLLU ÓGEÐSLEGAR.
Beinagrind með sílíkon
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
ENGINN SYKUR
ALVÖRU BRAGÐ
SYKURLAUSU!
DRYKKUR Á
LAUSU
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
14
8
8
4
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
...og svo stillum við
okkur af og horfum
beint á stafinn P.
Hmm...
Mér sýnist
þú þurfa að
fá gleraugu!
Þ
ÚER
TBLIN
DURÞÓTT
ÞÉRSÝNI
ST ANNAÐ
Gleraugu?
Hahahahaha. Þú
ert að grínast!
Er það
ekki?
Taktu því nú ró-
lega. Gleraugu eru
flott á mörgum.
Sjáðu til dæmis
mig.
Ég lifi fyrir
hættuna!
Hvernig var
fyrsta æfingin
sem aðstoðar-
þjálfari?
Oh, hún var
góð. Alveg
frábær!
Yessir! Hún
var frábær,
frábær, frá-
ááábær!
Allt í lagi
elskan,
hvernig var?
Hjálpaðu mér
út úr þessu!
Ég bið þig.....!!
Gerðu það! Gerðu
það!
Gerðu
það!
Gerðu það!
Gerðu
það!
Gerðu
það!
Gerðu
það!
Gerð’það!
Gerð’það!
Gerð’það!
Gerð’það!
Gerð’það!
Gerð’það!
Gerð’það!
Allt í lagi. Við skul-
um lána þér fyrir
helmingnum af
þessum bíl. En
bara ef þú hættir!
Jæja? Þau gáfu eftirþegar ég hafði
lokið við rök-
semdafærslu
mína!
inniheldur plöntustanólester sem
lækkar
kólesteról
Rannsóknir sýna að dagleg
neysla Benecols stuðlar að
lækkun kólesteróls um allt
að 15%.
nýjung