Fréttablaðið - 19.01.2005, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 19.01.2005, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 19. janúar 2005 60 x 60 sm Handlaugar 19.900,- Verð frá: 29.900,- E i n n t v e i r o g þ r í r 2 8 7 .0 3 8 Verð: 58.000,- 39.900,- ÚTSALA Vaskar Sturtuhausasett Verð frá: 7.990,- 3.990,- Verð: 11.900,- 7.900,- Salerni Handklæðaofnar 60 x 120 sm Verð: 29.900,- 19.900,- á hreinlætistækjum Hvítur: Verð: 39.900,- 29.900,- Króm: Verð: 14.900,- 9.999,- Blöndunartæki Frábært úrval blöndunartækja 9.999,- Verð: 15.900,- Verð: 7.990,- 4.900,- Verð: 9.900,- 4.900,- Scottie Pippen: Höfðar mál KÖRFUBOLTI Scottie Pippen, sem er best þekktur fyrir að vinna sex meistaratitla með Chicago Bulls í NBA-körfuboltanum, hefur stefnt fyrirtækinu Katten Muchen Zavis Rosenman og lögfræðingi þess fyrir vítavert gáleysi í samskipt- um við sig. Í stefnunni segir m.a.: „Hann var svikinn af ráðgjöfum sínum og hefur vanræksla þeirra kostað Scottie og fjölskyldu marg- ar milljónir dollara.“ Harvey Silets, einn af eigend- um fyrirtækisins Katten Muchen, sagði ásakanir Pippens ekki vera á traustum grunni reistar og að fyrirtækið myndi verja sig til fulls gagnvart þeim. Þess má geta að Pippen voru greiddar 11,8 milljónir dollara í skaðabætur í nóvember á síðasta ári eftir að hafa verið svikinn af fjármálaráðgjafa sínum þáver- andi, Robert Lunn. ■ SCOTTIE PIPPEN Stendur í málaferlum. Exeter tekur á móti Manchester United í ensku bikarkeppninni í kvöld: Keane hefði viljað fá endurgreitt FÓTBOLTI Það verður mikið um dýrðir í smábænum Exeter í kvöld þegar heimaliðið, Exeter City, tekur á móti Manchester United í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu. Í fyrri leik liðanna komu leikmenn Exeter andstæð- ingum sínum í opna skjöldu með mikilli baráttu og náðu þeim merka áfanga að ná jafntefli við stórliðið Manchester United. Roy Keane, fyrirliði United, fullyrti að hefði hann borgað sig inn á fyrri leik liðanna, þá hefði hann heimtað að fá endurgreitt. „Það urðu allir fyrir miklum von- brigðum með leikinn gegn Exeter og ég er mjög glaður yfir því að hafa ekki þurft að borga mig inn. Eina sárabótin sem ég get boðið er að við munum leiðrétta mistökin í kvöld og vonandi verða önnur gæði af fótbolta en við buðum upp á í síðustu viðureign liðanna,“ sagði Keane. Fregnir herma að Alex Fergu- son, knattspyrnustjóri Manchest- er United, muni tefla fram sínu sterkasta liði til að fullvissa sig um að mesta áfall í sögu liðsins líti ekki dagsins ljós. Á blaða- mannafundi fyrr í vikunni fór Ferguson fögrum orðum um Alex Inglethorpe sem stígur sín fyrstu skref í vetur hjá Exeter sem knattspyrnustjóri. Ferguson full- yrti að Inglethorpe ætti stórt hrós skilið fyrir árangurinn með Exet- er. „Hann sýndi mikla yfirvegun á hliðarlínunni og það var ekkert óðagot að sjá þar. Það sama má segja um liðið í heild, þar var jafnvægið í fyrirrúmi,“ sagði Ferguson, sem hafði svo sannar- lega ekki sömu sögu að segja um sína menn. „Við vorum sjálfum okkur til skammar og áttum alla gagnrýnina skilið sem að dundi á okkur. Í kvöld mætum til leiks til að ná fram þeim úrslitum sem ætlast er til af okkur,“ sagði Ferguson. ■ ROY KEANE Var ekki sáttur við frammistöðu Manchester United í fyrri leiknum gegn Exeter og hefði farið fram á endurgreiðslu ef hann hefði verið meðal áhorfenda.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.