Fréttablaðið - 19.01.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 19.01.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI MIÐVIKUDAGUR STJÓRNARSKRÁRBREYTINGAR Hverju þarf að breyta í stjórnarskránni? er yf- irskrift málstofu sem haldin verður í Lögbergi klukkan 12.15. Málshefjendur verða alþingis- mennirnir Ágúst Ólafur Ágústsson og Bjarni Benediktsson. Málstofan er öllum opin. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG 19. janúar 2005 – 17. tölublað – 5. árgangur KOSIÐ Í FEBRÚAR Forsætisráðherra Dana kallaði til þingkosninga eftir þrjár vik- ur á þingfundi í gær. Kjörtímabilinu lýkur ekki fyrr en í nóvember. Sjá síðu 2 RANNSAKA ÁFENGISSÝKI Íslensk erfðagreining og SÁÁ hafa fengið 330 miljóna króna styrk frá Evrópusambandinu til rannsókna á erfðafræði áfengissýki og fíknar. Sjá síðu 4 ÓLÖGLEGT VINNUAFL Grunur leikur á að útlendingar starfi mjög víða ólöglega að byggingastörfum hér á landi. Samiðn segir að það séu „smákallarnir“ sem standi í því að ráða slíkt vinnuafl. Sjá síðu 6 FÆR STUÐNING Í DÓMSMÁLI Ein- staklingur sem höfðar skaðabótamál gegn olíufélögunum vegna verðsamráðs mun njóta fjárhagslegs stuðnings Neytendasam- takanna. Sjá síðu 8 Kvikmyndir 26 Tónlist 27 Leikhús 25 Myndlist 25 Íþróttir 22 Sjónvarp 28 SNJÓKOMA EÐA ÉL Þannig verður það víða um land. Vindur einna hægastur austan til. Frost 0-7 stig á láglendi. Sjá síðu 4. Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 ÍRAKSMÁLIÐ Samkvæmt orðum Halldórs Ásgrímssonar á Alþingi 12. mars 2003 hafði Íraksmálið aldrei verið rætt í ríkisstjórn. Guðni Ágústsson landbúnað- arráðherra vill þó halda því fram að „...þetta Íraksmál [hafi] á síð- ustu árum verið margrætt í ríkis- stjórn, utanríkismálanefnd, á vegum Alþingis og í flokkunum, á fundum flokkanna, fyrir og eft- ir þessa miklu ákvörðun“. Orð Guðna stangast einnig á við orð Magnúsar Stefánssonar, þingmanns Framsóknarflokks- ins, sem jafnframt á sæti í utan- ríkismálanefnd. Í frétt á forsíðu Fréttablaðsins 24. mars 2003 sagði Magnús: „Við höfum ekki fjallað um þetta á þing- f l o k k s f u n d i , þannig að það liggur ekki fyrir nein um- fjöllun um mál- ið.“ Magnús er s a m h l j ó ð a Kristni H. Gunnarssyni , þ i n g m a n n i Framsóknarflokksins, sem hefur margsagt að Íraksmálið hafi aldrei verið rætt í þingflokknum. Í yfirlýsingu forsætisráð- herra frá því á mánudag kemur fram að „Íraksmálið [hafi verið] rætt nokkrum sinnum í utan- ríkismálanefnd og á Alþingi vet- urinn 2002-2003.“ Ekki er tekið fram í yfirlýsingunni hvort málið hafi verið rætt í ríkisstjórn. Síð- ar í yfirlýsingunni segir: „Að morgni þriðjudagsins 18. mars 2003 var ríkisstjórnarfundur og var Íraksmálið fyrsta málið á dagskrá.“ Ekki segir í yfirlýsing- unni hvort málið hafi í raun ver- ið rætt, einungis að það hafi ver- ið á dagskrá. Fréttablaðið fékk ekki aðgang að fundargerð frá ríkisstjórnarfundinum. Halldór Ásgrímsson kaus að tjá sig ekki um málið í gær. - sda sjá nánar síður 10, 12 og 13. Framsóknarmenn lýsa atburðum á ólíkan hátt Samkvæmt forsætisráðherra hafði Íraksmálið ekki verið rætt í ríkisstjórn viku áður en ákvörðunin um stuðninginn við innrásina í Írak var tekin. Þingmönnum Framsóknarflokksins greinir á um hvort Íraksmálið hafi verið rætt í þingflokknum eða ekki. ● sýndur í stóru barnaleikhúsi Blái hnötturinn til Kanada Andri Snær Magnason: ▲ SÍÐA 30 ● nám Fer í Bónus á íslensku Anne Toija: ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS Ríkasta fólk heims: Björgólfur Thor á listann VIÐSKIPTI Líklegt er að nafn Björg- ólfs Thors Björgólfssonar verði á lista yfir ríkustu menn veraldar sem tímaritið Forbes birtir árlega. Fulltrúi Forbes kom hingað til lands til að kynna sér íslenskt við- skiptalíf og sannreyna eignastöðu Björgólfs Thors. Eignir Björgólfs Thors í innlendum skráðum félög- um slaga í einn milljarð dollara, en milljarður dollara hefur dugað til þess að komast á lista Forbes. Gera má ráð fyrir að heildareignir Björgólfs Thors séu nær því að vera einn og hálfur milljarður doll- ara en hann á meðal annars hlut í Landsbankanum, Actavis, Burðar- ási og Straumi. - hh Sjá síðu 18 FRAMKVÆMDIR VIÐ KÁRAHNJÚKA Hægt og rólega rís táveggurinn ofan í gljúfrinu við Kárahnjúka en vinnan hefur tafist um fjóra mánuði. Búið er að reisa tjald yfir vinnusvæðinu á táveggnum. Svæðið er hitað upp svo hægt sé að steypa. Sjá síðu 6 DÓMSMÁL Börkur Birgisson, 25 ára Hafnfirðingur, var dæmdur í sjö og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir tilraun til manndráps og fjölda líkamsárása. Börkur réðst á annan mann með öxi á veitingastaðnum A. Hansen í fyrra og veitti honum sár. Hann hafði auk þess rifbeinsbrotið tengdaföður sinn og ráðist á fjóra aðra karlmenn. Þá var Börkur dæmdur fyrir ólöglegan vopna- burð og umferðalagabrot. Að mati Héraðsdóms Reykjaness átti Börk- ur sér ekki málsbætur og árás hans með öxinni væri sérstaklega ófyrirleitin þar sem tilviljun ein réði því að fórnarlambið komst lífs af. Þá segir að önnur brot hafi ver- ið fólskuleg, yfirleitt án aðdrag- anda og beinst að höfði eða andliti þeirra sem fyrir þeim urðu. Þetta er í þriðja skipti sem Börkur er dæmdur í fangelsi fyrir ofbeldisbrot eftir átján ára aldur. Auk fangelsisvistar var Börkur dæmdur til að greiða fórnarlömb- um sínum 557 þúsund krónur í bæt- ur og allan sakarkostnað. Til frá- dráttar frá refsingu kemur gæslu- varðhaldsvist frá 2. september. - bs Axarárásin í Hafnarfirði: Sjö og hálfs árs fangelsi Verður upplýsingatækni þriðja stoðin í verðmæta- sköpun og gjaldeyris- tekjum Íslands árið 2010? ÞRIÐJA STOÐIN? Ráðstefna Samtaka upplýsinga- tæknifyrirtækja þriðju- daginn 25. janúar Sjá glæsilega dagskrá á vefsetri Samtaka iðnaðarins; www.si.is FRÁBÆR TILBOÐ! SÉRBLAÐ FYLGIR 18-35 ára Me›allestur dagblaða Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups nóvember 2004 MorgunblaðiðFréttablaðið 58% 35% BÖRKUR BIRGISSON Í dómnum segir að Börkur eigi sér engar málsbætur og að árásin með öxinni hafi verið sérstaklega ófyrirleitin. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA FLOKKSBRÆÐUR Í FRAMSÓKN Ummæli Guðna Ágústssonar stangast á við staðhæfingar flokks- bræðra hans, Halldórs Ásgrímssonar og Magnúsar Stefánssonar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.