Fréttablaðið - 22.01.2005, Blaðsíða 27
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 290 stk.
Keypt & selt 47 stk.
Þjónusta 32 stk.
Heilsa 10 stk.
Skólar & námskeið 1 stk.
Heimilið 20 stk.
Tómstundir & ferðir 12 stk.
Húsnæði 43 stk.
Atvinna 21 stk.
Tilkynningar 4 stk.
Þú hitar bílinn áður en þú ferð út í kuldann og þarft aldrei að skafa!
SVO ÓTRÚLEGA NOTALEGT!
Bíldshöfða 16 | 567 2330
Bílasmiðurinn hfKveikt er á hitaranum með:
fjarstýringu gsm síma eða klukku
Góðan dag!
Í dag er laugardagurinn 22. jan.,
22. dagur ársins 2005.
Reykjavík 10.36 13.39 16.43
Akureyri 10.38 13.24 16.11
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Ardís Ólöf eignaðist fyrsta bílinn sinn
fyrir fimm árum og er hæstánægð með
hann. Flottur BMW er samt draumurinn.
„Ég eignaðist Pólóinn minn 18 ára og hef átt
hann síðan,“ segir Ardís Ólöf Víkingsdóttir
söngnemi, sem er þjóðinni örugglega í
fersku minni frá því í Idolinu í fyrra. „Ég
átti akkúrat innistæðu á banka fyrir litlum
sætum bíl og sá þennan auglýstan. Ég dreif
mig í bæinn frá Blönduósi og leist svona vel
á bílinn að ég keypti hann í hvelli. Konan
sem átti bílinn hafði verið veik þannig að
hann stóð meira og minna í bílskúrnum og
var mjög lítið keyrður.“
Ardís er alsæl með bíllinn sinn sem hún
segir gott að keyra og bila lítið. „Ég hef ver-
ið á ferðinni á honum milli Blönduóss og
Reykjavíkur síðan ég keypti hann og hann
hefur aldrei klikkað.“
Það stendur ekkert til hjá Ardísi að
skipta um bíl í augnablikinu, en hún á sér
auðvitað draumabíl. „Ef ég ætti nóga
peninga myndi ég kaupa mér flottan BMW,
svona ekta skvísubíl,“ segir hún hlæjandi.
Ardís var að klára sjöunda stig í söng í
Nýja söngskólanum, en eftir að hún lýkur
prófi eftir ár langar hana í framhaldsnám
til London. „Það er ekki eftir neinu að bíða,“
segir hún. „Ég er orðin 23 ára og þeir vilja
frekar yngra fólk en eldra svo því fyrr sem
ég fer því betra. Draumurinn er að komast
inn í Guildhall School of Music and Drama,
mig hefur alltaf langað í þann skóla. Ég er
ekki viss hvort ég fer í óperusöng eða hvort
ég fer í söngleikjadeildina sem er líka mjög
spennandi.“
Ardís hefur aldrei komið til London, en
segist aðspurð ekki myndu hafa á móti því
að vera söngstjarna á West End.
Nú er Idolið í algleymingi og Ardís fer
ekki varhluta af spenningnum. „Maður fær
alls konar minningar upp í höfuðið, gæsa-
húð og í magann og allan pakkann. Mér líst
vel á alla þessa krakka en það eru þarna
þrír sem ég hef sérstaka trú á og held að
muni ná langt.“ ■
Langar í skvísubíl
Ardís Ólöf er að vonum spennt í Idol-keppninni sem nú stendur sem hæst, en hún náði langt í Smáralindinni í fyrra.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Flestir borða
heima hjá sér
af því að á veit-
ingahúsum þarf
að borga fyrir
matinn!
Nýr Ford Focus frumsýndur
BLS. 3
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
27 (01) Allt forsíða 21.1.2005 15:29 Page 1