Fréttablaðið - 22.01.2005, Page 50
38 22. janúar 2005 LAUGARDAGUR
Við óskum ...
Keflvíkingum til hamingju með Evrópuævintýrið sem lauk í
fyrrakvöld. Keflavíkurliðið náði betri árangri en árið áður og þrátt
fyrir að liðið hafi ekki komist lengra en í fyrra þá hafa Keflvík-
ingar með metnaði sínum aukið hróður íslensks körfubolta.
„Ég vil samt ekkert gera stórmál úr þessu og ég trúi
ekki öðru en að hægt sé að leysa þetta mál í bróð-
erni.“
Haukur Ingi Guðnason er ekki að erfa það að læknamistök kosti
hann það að hann missi af sínu öðru tímabili í röð.sport@frettabladid.is
LEIKIR GÆRDAGSINS
Intersportdeild karla
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
19 20 21 22 23 24 25
Laugardagur
JANÚAR
HANDBOLTI Heimsmeistaramótið í
handbolta hefst í Túnis á sunnu-
dag og fyrsti leikur Íslendinga er
gegn Tékkum. Fréttablaðið hafði
samband við einn virtasta hand-
boltaþjálfara heims, Alfreð Gísla-
son, þjálfara Magdeburg, og fékk
hann til þess að meta andstæðinga
íslenska liðsins og möguleika Ís-
lands á mótinu. Alfreð þekkir vel
til alþjóðaboltans enda þjálfað
lengi erlendis.
„Ég held að við höfum verið
mjög heppnir með riðil að þessu
sinni. Þetta er þannig riðill að við
getum vel lent í fjórða sæti og við
getum einnig verið að berjast á
toppnum. Leikirnir gegn Alsír og
Kúveit eiga að vera auðveldir
enda ekki burðug lið þar á ferð-
inni. Það er því ljóst að Ísland,
Rússland, Slóvenía og Tékkland
munu berjast um þrjú efstu sæt-
in,“ sagði Alfreð en hann telur að
opnunarleikurinn gegn Tékkum
geti verið lykilleikur fyrir Ísland.
„Tékkar eru með mjög seigt lið
og þeir eru í mikilli sókn en við
eigum samt að vera með sterkara
lið en þeir. Sá leikur getur ráðið
miklu um framhaldið. Slóvenarnir
unnu Þjóðverja tvisvar um daginn
en þeir leikir voru ekki alveg
marktækir. Það voru slóvenskir
dómarar í leikjunum og Þjóðverj-
ar voru mun betri í þeim báðum
að því er mér skilst. Dómararnir
tóku leikina aftur á móti í sínar
hendur og það gekk svo langt að
Þjóðverjar íhuguðu alvarlega að
ganga af velli,“ sagði Alfreð og
bætti við að Slóvenar væru ekki
jafn sterkir núna og þeir hefðu
verið á síðustu mótum.
„Þeir verða án Renato Vu-
grinec, sem er að spila hjá mér í
Magdeburg. Hann hefur átt erfitt
uppdráttar hjá okkur í vetur og
hefur því ákveðið að hvíla sig.
Hann vill frekar einbeita sér að
því að komast í betra form hjá
okkur. Svo er Ales Pajovic sem
leikur með Óla Stefáns á Spáni
einnig fjarri góðu gamni en hann
og kona hans eiga von á barni og
hann gaf því ekki kost á sér. Þeir
eru samt með mjög sterkt lið og
ég tel að þeir séu með ívið
sterkara lið en Íslendingar.“
Rússneska liðið er stórt spurn-
ingamerki enda hafa Rússar loks-
ins skipt um þjálfara og yngt upp
liðið. Það er aðeins einn leikmaður
í rússneska hópnum sem leikur
utan Rússlands en það er horna-
maðurinn Eduard Koksharov sem
spilur með Evrópumeisturum
Celje Lasko.
„Liðin í okkar riðli eru eitt
spurningarmerki og við erum þar
ekkert undanskildir. Rússarnir
eru loksins komnir með nýjan
þjálfara og hafa yngt upp og skal
svo sem engan undra því helming-
urinn af liðinu var kominn yfir
fertugt.
Margir segja að fyrrverandi
þjálfari liðsins, Maximov, sem
ræður öllu í rússneska boltanum,
sé að gefa hinum tækifæri á þessu
móti þar sem þeir gætu fengið
skell og svo ætli hann að taka við
liðinu aftur,“ sagði Alfreð Gísla-
son, sem telur Frakka og Króata
líklegasta til þess að verða heims-
meistara.
henry@frettabladid.is
ALFREÐ GÍSLASON Spáir því að Frakkar eða Króatar verði heimsmeistarar í handbolta.
Fréttablaðið heyrði í Alfreð um komandi Heimsmeistarakeppni í Túnis. Fréttablaðið/Pjetur
Okkar riðill er
spurningarmerki
Alfreð Gíslason telur nánast ómögulegt að spá fyrir um lyktir í riðli Íslands á
HM í Túnis. Liðin í riðlinum séu mikið breytt og Ísland geti allt eins endað í
fjórða sæti eins og því fyrsta.
■ ■ LEIKIR
13.30 FH og Valur mætast í
Kaplakrika í DHL-deild kvenna í
handbolta.
14.00 Laugdælir og Grindvíkingar
mætast á Laugarvatni í
undanúrslitum Bikarkeppni KKÍ og
Lýsingar í kvennaflokki í körfubolta.
15.00 Fylkir og Valur mætast í
Egilshöllinni í Reykjavíkurmóti
kvenna í fótbolta.
16.15 KS og Huginn mætast í
Boganum í Powerade-mótinu í
fótbolta.
16.15 Hamar/Selfoss og Fjölnir
mætast í Hveragerði í undanúrslitum
Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í
karlaflokki í körfubolta.
16.30 Stjarnan og Víkingur
mætast í Ásgarði í DHL-deild kvenna
í körfubolta.
17.00 Fram og Fjölnir mætast í
Egilshöllinni í Reykjavíkurmóti karla í
fótbolta.
■ ■ SJÓNVARP
11.10 Enski bikarinn á Sýn.
Útsending frá leik Exeter og
Manchester United í ensku
bikarkeppninni í fótbolta.
12.00 Upphitun á Skjá einum.
12.40 Enski boltinn á Skjá einum.
Bein útsending frá leik
Southampton og Liverpool í ensku
úrvalsdeildinni í fótbolta.
14.40 Á vellinum með Snorra Má
á Skjá einum.
15.00 Enski boltinn á Skjá einum.
Bein útsending frá leik Manchester
United og Aston Villa í ensku
úrvalsdeildinni í fótbolta.
16.10 Bikarkeppnin í körfubolta á
RÚV. Bein útsending frá leik
Hamars/Selfoss og Fjölnis í
Bikarkeppni KKÍ og Lýsingar í
körfubolta.
17.10 Enski boltinn á Skjá einum.
Bein útsending frá leik West Brom
og Manchester City í ensku
úrvalsdeildinni í fótbolta.
17.50 Spænski boltinn á Sýn.
Bein útsending frá leik Barcelona og
Racing Santander í spænsku 1.
deildinni í fótbolta.
20.00 Bandaríska mótaröðin í
golfi 2005 á Sýn. Bein útsending frá
Buick Invitational-mótinu á
bandarísku mótaröðinni í golfi.
23.00 Hnefaleikar á Sýn.
Útsending frá bardaga Antonio
Tarver og Glen Johnson.
Robbie Savagesegist hugsa for-
ráðamönnum
Birmingham þegj-
andi þörfina þessa
dagana og segist
feginn því að vera á
leið frá félaginu.
Savage segir þá hafa farið illa með
sig í kjölfar þess að hann bað um
að fá að fara frá félaginu. „Þeir létu
mig æfa með varaliðinu og ung-
lingaliðinu eins míns liðs. Ég hef
verið mjög áhyggjufullur og léttist
um nokkur kíló af áhyggjum yfir
framtíð minni,“ sagði knattspyrnu-
maðurinn umdeildi.
Damien Duff,leikmaður Chel-
sea og írska lands-
liðsins, telur komu
Arjen Robben inn í
Chelsea-liðið vera
lykilinn að vel-
gengni þess undan-
farið. „Við sættum
gagnrýni fyrir að skora ekki nóg af
mörkum og þegar Robben kom inn
eftir meiðsli kom hann með gífur-
legan kraft og reyndist liðinu sann-
kölluð vítamínsprauta. Hann hefur
að mínu mati öðrum fremur verið
maðurinn sem kom okkur í þessa
góðu stöðu í deildinni,“ sagði Duff.
Frakkinn EmanuelPetit hefur ákveðið
að leggja knattspyrnu-
skóna á hilluna eftir
að aðgerð sem hann
fór í vegna meiðsla
heppnaðist ekki sem
skyldi. Petit, sem er
34 ára, hefur átt farsælan knatt-
spyrnuferil og lék á sínum tíma með
liðum eins og Arsenal, Chelsea og
Barcelona. Þá er landsliðsferill
kappans ekki síður glæsilegur, en
hann náði þeim frábæra árangri
með Frökkum að verða bæði Evr-
ópu- og heimsmeistari.
Andrei Kirilenko,eða AK-47 eins og
hann er kallaður, er
farinn að æfa á ný
með liði Utah Jazz eft-
ir að hafa verið frá í 2
mánuði vegna hné-
meiðsla. Utah-liðið
hefur verið heillum
horfið án Rússans sterka og hefur
hrapað hratt niður töfluna í NBA.
Kirilenko er einn af fjölhæfari leik-
mönnum deildarinnar og hefur
meðal annars varið fleiri skot að
meðaltali í leik en nokkur annar í
deildinni í ár.
Ken Bates, fyrrum eigandi Chel-sea, hefur keypt Leeds United,
sem hefur verið í miklum fjárhags-
vandræðum síðustu ár og hefur fall-
ið úr úrvalsdeildinni og þurft að
selja alla sína bestu leikmenn. Þetta
þykja góð tíðindi á Elland Road þar
sem menn eru orðnir leiðir á
kreppuástandinu og þykir víst að
Bates muni blása nýju lífi í hið forn-
fræga félag.
KörfuknattleiksliðKeflavíkur er úr
leik í Evrópukeppn-
inni eftir tap gegn
svissneska liðinu
Olympic Fribourg,
85-93, í Keflavík á
fimmtudagskvöld.
Leikurinn var síðari
viðureign félaganna en Suðurnesja-
menn töpuðu fyrri leiknum ytra,
einnig með 8 stiga mun. Tapið var
nokkur vonbrigði en engin ástæða
er fyrir Keflvíkinga að hengja haus
því þeir stóðu sig frábærlega í
keppninni og verður liðið ekki
árennilegt þegar kemur að úrslita-
keppninni hér heima í vor.
Fjölnismenn ætla að bjóða upp áfríar rútuferðir á undanúrslitaleik
liðsins í bikarkeppni KKÍ og Lýsingar
en hann er gegn Hamar/Selfoss og
fer fram í Hveragerði í dag. Rúturnar
leggja af stað frá Íþróttamiðstöðinni í
Dalhúsum klukkan 14.30 og má
búast við góðri mætingu enda er
þetta stærsti leikur í sögu Fjölnis.
Leikurinn hefst síðan klukkan 16.15
en sigurvegarinn kemst í úrslita-
leikinn í Höllinni 13. febrúar.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
GRINDAVÍK–SKALLAGRÍMUR 98–92
Grindavík: Darrel Lewis 30 (12 frák., 8 stoðs., 2
stolnir, 3 varin.), Terrel Taylor 27 (8 frák.), Páll
Axel Vilbergsson 18, Taron Barker 9, Helgi
Guðfinnsson 7, Pétur Guðmundsson 4, Morten
Szmiedowicz 3.
Skallagrímur: Jovan Zdravevski 21, George Byrd
20 (18 frák., 2 varin), Ragnar Steinsson 18 (5
frák., 7 stoðs.) Clifton Cook 16 (13 stig í 1.
leikhluta) (5 stoðs.), Hafþór Gunnarsson 14, Ari
Gunnarsson 3.
STAÐAN
KEFLAVÍK 13 10 3 1157–1012 20
Snæfell 14 10 4 1228–1144 20
NJARÐVÍK 14 9 5 1295–1125 18
Fjölnir 14 9 5 1309–1256 18
SKALLAGR. 14 8 6 1222–1184 16
ÍR 14 8 6 1275–1241 16
KR 14 7 7 1231–1207 14
Grindavík 14 7 7 1277–1291 12
HAM./SELF. 14 6 8 1274-1330 12
Haukar 13 4 9 1097–1108 8
TINDASTÓLL14 4 10 1158–1303 8
KFÍ 14 1 13 1156–1478 2
LOKA
DAGU
R
ÚTSÖ
LUNN
AR
50-51 (38-39) Sport 21.1.2005 21.34 Page 2