Fréttablaðið - 22.01.2005, Side 64

Fréttablaðið - 22.01.2005, Side 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: 585 8330, dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Frumsýning 11. febrúar kl. 20 – UPPSELT 2. sýning 13. febrúar kl. 19 – FÁAR SÝNINGAR Miðasala á netinu; www.opera.is Netfang miðasölu; midasala@opera.is • Sími miðasölu: 511 4200 Banki allra landsmanna Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.IKEA.is Skipulög Dagana 20/01-20/02 VINK geisladiskarekki KASSETT CD kassar 2 stk. 26x16,5x15 sm 695,- BRÅNA hirsla fyrir 72 CD, 32 DVD eða 13 videospólur 490,- BENNO geisladiskastandur 202 sm 4.950,- LACK vegghilla 110 sm 1.690,- LYCKEBY kassi m/loki 495,-LYCKEBY kassar 2 stk. KAXÅS vegghilla 97x26 sm 2.990,- OMAR vínhilla 46x92x36 sm 3.990,- HEMLIS herðatré 5 stk. 95,- FYLLEN þvottakarfa 990,- HEJAN CD hirsla fyrir 20 diska, ýmsir litir EMU kassar 2 stk.18x29x13 sm og 20x36x14 sm 590,- INDOR vasi fyrir fjarstýringar STORMAK sjónvarpsbekkur 101x48 sm 195,- 490,- 190,- 5.900,-295,- Ferskt pastasalat 990,- LINGO CIRKEL kassar 2 stk. 32x24x15 sm 295,- Kýlum á Íran Jæja, mikið var það nú sniðugt aðsjá leiðtoga hins frjálsa heims, svo- kallaðan, flytja ræðu sína í skotheldu glerbúri á fimmtudaginn. Vafalítið hefur honum þótt frelsið hvað yndis- legast þegar hann veifaði til stuðn- ingsmanna sinna umkringdur öryggis- vörðum sem ugglaust voru búnir að velja gaumgæfilega einmitt þá stuðn- ingsmenn sem yfir höfuð fengu að veifa leiðtoganum borubratta. Sá ætl- ar sér hvorki meira né minna en að breiða út nákvæmlega þetta frelsi sitt til allra þeirra landa sem nú búa við harðstjórn. STRÍÐIÐ við Írak er búið segja her- menn frelsisins, þótt enn séu þar jú reyndar bardagar og enn séu borgir jafnaðar við jörðu og enn séu fangar látnir leggjast hver ofan á annan alls- berir fyrir myndatökur í niðurlæging- arskyni, en hvað um það. Stríðið búið segja menn. Bara bardagar eftir. Nú ríður á að staðfastar þjóðir ákveði næsta skotmark, enda greinilegt að óþreyjan er mikil eftir næsta verkefni og enginn tími eða nenna fyrir hið svokallaða uppbyggingarstarf sem er hundleiðinlegt og hentar illa skot- og sprengjuglöðum. ER þá ekki upplagt að ráðast á Íran? Það held ég nú. Röksemdirnar blasa við. Þar er klerkastjórn. Menn segja að fimm ár séu í það að klerkarnir komi sér upp meðaldrægum gereyðingar- vopnum sem gætu drifið alla leið til Evrópu svo ekki sé talað um Ísrael. Og svo eru örugglega einhverjir hryðju- verkamenn þarna ef maður þekkir þessar arabaþjóðir rétt. Að minnsta kosti er Bush með það á hreinu og hef- ur fyrir löngu sagt ríkið ganga á veg- um þess illa, hvorki meira né minna. JÁ, og svo er þarna olía. EN HVAÐ um það. Mestu máli skipt- ir auðvitað fyrir okkur Íslendinga að vera staðfastir og víkjast ekki undan merkjum þegar svo áríðandi innrásar- stríð er yfirvofandi. Fregnir herma nefnilega að Bandaríkjamenn hafi þegar komið sér upp leynisveitum sem þeir gera út frá Pakistan, Afganistan og Írak, og eru undir beinni stjórn þess gamla refs Donalds Rumsfeld – sem er ógeðslega frábær – og þessar leynisveitir fara nú inn í Íran í skjóli nætur og kortleggja skotmörk. EFTIR hverju erum við þá að bíða, svo maður spyrji hreint út? Ég sé ekki bet- ur en að stuðningur við innrásir sé ákvarðanir sem einna fljótlegastar eru í meðförum hér á landi, því hvorki þarf þing, ríkisstjórn, almenning né þing- flokka til þess að taka þær, sem er ákaf- lega hentugt. Svona ákvörðun er hægt að taka í einum grænum hvelli á Ís- landi. Bara eitt símtal og málið er dautt. NÚ dugar ekkert moð. Húsbóndinn kallar. Ég legg til að Íslendingar verði staðfastir allra staðfastra og að leið- togi okkar ástsæll taki upp tólið í hvelli og lýsi yfir stuðningi við þetta ráðabrugg. Spurningin er aðkallandi: Ætlum við ekki að vera samkvæm sjálfum okkur og halda uppteknum hætti á hernaðarsviðinu hér eftir, eða hvað? Nú reynir á staðfestuna. BAKÞANKAR GUÐMUNDAR STEINGRÍMSSONAR 64 (52)Bak 21.1.2005 21.08 Page 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.