Tíminn - 01.02.1975, Qupperneq 4
4
TÍMINN
Laugardagur 1. febrúar 1975
Heimsfrægur ballettdansari rekinn
Rússneski ballettdansarinn Ru-
dolf Nureyev, sem stakk af i
sýningarferðalagi i Vestur-
Evrópu fyrir 14 árum, hefur
stefnt kvikmyndaframleiðand-
anum Harry Saltzman og krefst
rúmlega 30 milljón króna
skaöabóta vegna samningsrofs
Nureyev átti að fara með
hlutverk i mynd, sem Saltzman
er að framleiða, en annar var
ráðinn I hlutverk dansarans.
Kvikmyndaframleiðandinn vill
ekkert greiða dansaranum og
veröur hann að sækja mál sitt
fyrir rétti. Nureyev segir, að
þessi upphæð sé ekki há miðað
við, að hann átti að fá 30
milljónir króna fyrir hlutverkið.
Á myndinni er Nureyev með
konu sinni, brezku dansmeynni
Antoniette Sibley.
Fyrrverandi ráðherra stefnt af
fyrrverandi eiginkonu sinni
Það er einfaldlega ekki hægt að
lifa sómasamlegu lifi fyrir 160
þúsund krónur á viku, segir
Martha Mitchell, fyrrverandi
eiginkona Mitchells, fyrrver-
andi dómsmálaráðherra
Bandarikjanna. bess v-gna hef-
ur hún stefnt eiginmanninum
fyrrverandi og krefst þess að
fjárframJag hans til sin verði
hækkað.
John Mitchell hefur annars
nóg á sinni könnu um þessar
mundir. Hann hefur staðið i si-
felldum málaferlum og verið
dæmdur,áfrýjað og staðið aftur i
málaferlum vegna svolitils
máls, sem upp kom i Bandarikj-
unum og er kennt við Water-
gate.
Martha Mitchell er fyrir löneu
orðin heimsfræg fyrir kjafthátt
og óskammfeilni. Þegar hún var
ráðherrafrú baðaði hún sig i
sviösljósinu og þóttist þess um-
komin að segja veröldinni til
syndanna. Blöðum gaf hún
óspart alls konar yfirlýsingar
um menn og málefni, og allt
hennar slúöur komst i hámæli.
Þegar fór að sverfa að manni
hennar vegna Watergatemáls-
ins skildi hún náttúrlega við
hann, og segist hreint ekki sjá
eftir þvi.
Ég fer aldrei aftur til Johns.
Ég hef eytt 17 beztu árum ævi
minnar i að gera hann að
manni, og það verður að duga.
En ég hef þörf fyrir eiginmann,
og skil ekkert i að ég skuli ekki
enn hafa fengið eitt einasta
hjúskapartilboð siðan ég skildi,
sagði Martha nýlega i sjón-
varpsviðtali við David Frost.
DENNI
DÆMALAUSI
„Ef þú vilt endilega að ég fari,
hvers vegna segirðu það þá ekki”.
Denni minn . . . hvernig á ég að
koma þér i skilning um?”