Tíminn - 12.03.1975, Qupperneq 1
vélarhitarinn
i frosti og kulda
HF HÖRÐVR GUNNARSSON
SKÚLATÚNI 6 - SÍMI (91)Í9‘f&0
Stunginn
með hnífi á
Laugavegi
Gsal-Reykjavik — i fyrra-
kvöld var maður stunginn
með hnifi á Laugavegi. At-
burðurinn átti sér stað
neðarlega á Laugaveginum
og var maðurinn, sem er
tæplega fimmtugur að aldri,
stunginn hnifi i handlegginn.
Lenti hnifurinn i upphand-
legg og hlauzt af talsvert sár.
Maðurinn hafði brugðið
sér inn á veitingastofuna á
Laugavegi 28 til að fá sér
kaffisopa. Hann var rétt
genginn út úr veitingastaðn-
um, komu tveir piltar aðvif-
andi og skipti engum togum,
að annar þeirra otaði að hon-
um hnifi og stakk hann siðan,
eins og áður er frá greint.
Maðurinn er ekki talinn
hættulega særður.
Að sögn lögreglunnar, hef-
ur piltur sá, er verknaðinn
vann, áður komið við sögu
lögreglunnar vegna áþekkra
atburða. Meðal annars stakk
hann pilt fyrir utan Laugar-
ásbió eigi alls fyrir löngu.
Hann hefur verið úrskurðað-
ur i 60 daga gæzluvarðhald
og gert að sæta geðrannsókn
á þvi timabili.
Lénharður
ekki sýndur
um páska
Gsal-Reykjavik — Lénharð-
ur fógeti, — leikritið
margumtalaða verður ekki
sýnt um páskana, eins og tal-
iðvar. Að sögn Jóns Þórarins
sonar standa þó vonir til þess
að hægt verði að taka leikrit-
ið til sýningar I lok april
mánaðar.
Sagði Jón, að búið væri að
setja leikritið á dagskrár-
áætlun, en þvi miður væri
ekki hægt að skýra frá þvi
fyrr en þau drög hefðu verið
lögð fyrir útvarpsráðsfund.
Enskur sér-
fræðingur
kominn
Gsal-Reykjavik — Þeir
menn, sem ætluðu norður til
Húsavikur i gærdag til að
kanna möguleika á björgun
áburðarfarms úr lestum
Hvassafells, komust hvergi i
gærdag, þar sem ekki var
flogið til Húsavikur vegna
veðurs. Voru það menn frá
Brunabótafélagi tslands,
sem ætluðu að kanna þessa
möguleika, en eins og áður
hefur komið fram eru 1117
lestir af áburði i lestum
strandaða skipsins.
Kominn er til landsins
brezkur sérfræðingur i
björgunar-og tjónamálum,
sem mun vinna i samráði við
Samvinnutryggingar að
hugsanlegri björgun skips-
ins. Mun hann og fulltrúar
tryggingarfélagsins fara
norður einhvern næstu daga
og kynna sér aðstæður allar
á vettvangi.
Áætlunarstaöir:
Blönduós — Sigiuf jörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
hólmur — Rif
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
■-
FLEIRI FERÐAMENN í
EN ÁÐUR
— íslenzkir ferðamenn 42% fleiri
í febrúar en á sama tíma í fyrra
MIKLU
VETUR
BH-Reykjavik. — Samkvæmt
upplýsingum frá Útlendingaeftir-
litinu er um eftirtektarverða
fjöigun að ræða á farþegakomum
með skipum og flugvélum til is-
lands i febrúarmánuði frá þvi,
sem var I fyrra, svo og farþega-
fjölgun frá áramótum tniðað við
sama tima i fyrra. Alls komu til
Iandsins i febrúarmánuði 4327
farþegar en á sama tima f fyrra
3390.
i febrúarmánuði i ár komu 1974
islendingar til landsins, og 2353
útlendingar, en i sama mánuði i
fyrra komu 1390 islendingar og
2000 útlendingar. Fjölgunin er þvi
aðallega meðal islendinga sjálfra
og verður það að teljast athygiis-
vert.
Tvo fyrstu mánuði ársins eru
tölurnar um farþega til landsins
þær, að 4376 islendingar hafa
komið og 5115 útlendingar eða
samtals 9491 farþegi. Hér er eftir-
tektarverð fjölgun islenzku far-
þeganna frá því i fyrra, en á sama
tima á síðastliðnu ári komu hing-
að til lands 3160 islenzkir farþeg-
ar og 4815 erlendir, samtals 7975
farþegar.
Sé tölunum yfir Islendingana,
sem hleypt hafa heimdraganum
og komið aftur heim i febrúar-
mánuði, brugðið i reiknivél, kem-
ur i ljós, að miðað við sama mán-
uð i fyrra er um að ræða 42%
aukningu og tvo fyrstu mánuði
ársins er alls um að ræða 38%
aukningu.
Erindi manna eru að sjálfsögðu
margvisleg, en naumast hefur
þeim fjölgað svo gifurlega, sem
farið hafa úr landi i þarfaerindum
einum saman, og gefa áðurnefnd-
ar tölur vissulega sitt tilefni til
hugleiðinga, svo sem hverjum og
einum er frjálst.
Af útlendingum, sem til lands-
ins komu i sl. mánuði, komu flest-
ir frá Bandarikjum N-Ameriku,
eða 948, frá Danmörku komu 221,
Stóra-Bretlandi 230 og Sviþjóð
213. Frá Ástraliu komu 14, svo að
eitthvað sé nefnt, og enn er
straumur frá Júgóslaviu, þaðan
komu 61. Frá V-Þýzkalandi kom
101 og frá Noregi 189, svo komu
125 frá Finnlandi. Frá Bangla-
desh kom einn, sömuleiðis frá
Tanzaniu og Kambódiu og er enn
talsvert ótalið.
Ölkeldurnar á Snæfellsnesi
ónytjaðar heilsulindir
t FRASÖGNUM er, að fyrir um
þaðbil hundrað árum hafi maður
verið sendur með klyfjahest
sunnan úr Mosfellssveit vestur að
Rauðamelsölkeldu, til þess að
sækja þangað vatn handa sjúkl-
ingi, sem taldi sig fá af þvi
meinabót. Slikt var ekki
einsdæmi. A tímabili var uppi sú
hugmynd að setja ölkelduvatn á
flöskur til útflutnings, og til eru
þeir bæir á Snæfellsnesi, þar sem
ölkelduvatn er drukkið með mat.
Nú um langt skeið hefur þó verið
hljótt um ölkeldurnar og hvaða
nytjar við kynnum að gefa haft af
þeim.
Það má þvi til tiðinda teljast, að
nú fyrir skömmu er komin út
skýrsla um rannsóknir, sem tveir
þýzkir vfsindamenn, dr. Karl
Höll, prófessor I vatnsrannsókn-
arstöðinni i Hameln, og Ulrich
Múnzer, verkfræðingur og land-
fræðingur við landmælinga- og
fjarkönnunarstöðina i Múnchen,
gerðu á íslenzku ölkelduvatni að
forlagi Gisla Sigurbjörnssonar, á
vegum rannsóknastöðvarinnar
Neðra-Áss I Hveragerði. Efna-
greindu þeir Höll og Múnzer vatn
úr mörgum ölkeldum á islandi og
rannsökuðu það með notkun þess
til heiisubóta i huga.
Þeir félagar vekja athygli á þvi,
að jarðfræðilegar orsakir valdi
þvi, að uppsprettuvatn á Islandi,
og þar með drykkjarvatn, sé
sérlega kalksnautt, og ætti það
eitt út af fyrir sig að vera hvöt
þess að nýta kalkrikt ölkelduvatn
og koma þvi á neyzlumarkað i
hentugum umbúðum. Benda þeir
einkum á þrjár ölkeldur i Staðar-
sveit, við Bjarnarfosskot, bæina,
ölkeldu og Glaumbæ, þar sem
kalsiummagn i hverju kiló-
grammi er frá 220 og upp i 686
milligrömm. Vatni úr þessum
ölkeldum megi umbreyta i bragð-
góðan drykk með iblöndun
kolsýru, og gildi raunar hið sama
um ölkeldur að Lýsuhóli og Ösa-
koti I Staðarsveit, þótt kalsium-
magnið þar sé ekki nema 20.2 upp
I 47.7 milligr. I kllógrammi.
Hentugast segja þeir ölkeldu-
vatnið með litlu járninnihaldi, þvi
að það hafi meira geymsluþol og
umbreytist litið og vitna þar eink-
um af áðurnefndum ölkeldum til
Glaumbæjarölkeldunnar og öl-
keldu við Vallahnúk undir
Svartbakafelli á Snæfellsnesi.
Ur vatni frá ölkeldu er talið
járnútfellingar að vænta við kol-
sýruiblöndun, og úr vatni frá
Bjamarfosskoti þyrfti að fjar-
lægja útleyst járn fyrir áfyllingu
og dreifingu.
Annað atriði, sem áherzla er
lögð á I skýrslunni, er gildi öl-
keldna sem heilsulinda.
„Kransæðasjúklingar geta hag-
nýtt sér kalkrikt ölkelduvatn,
sem I sumum tilfellum getur
bjargað lifi þeirra. Einnig er slikt
ölkelduvatn heilsulind fyrir
nýrnasjúklinga vegna þvagörv-
andi eiginleika þess. Bikarbónat-
innihald ölkelduvatns verkar vel
á sykursjúka, þar sem langvar-
andineyzla vatns, sem inniheldur
kalsium-natriumbikarbónat,
skapar minni insúlinþörf”. Eru
þar sérstaklega nefndar til
ölkeldurnar við Bjarnarfosskot,
Lýsuhól, ölkeldu, Vallahnúk og
Glaumbæ.
Enn fremur segir i skýrslunni:
„1 heitu og kolsýruriku vatni
ölkeldna eru jafnframt fólgnir
möguleikar til lækningar ýmissa
hjartasjúkdóma, en við slfka
meðferð þyrftu sjúklingar að
vera undir ströngu eftirliti
lækna.” í þessu sambandi eru
sérstaklega nefndar ölkeldurnar
við Lýsuhól og Glaumbæ, þó með
þeim fyrirvara, að gera þyrfti
fyllri koldioxiðákvarðanir á vatn-
inu þaðan.
Erlisöm heilbrigðisþjónusta í Önundarfirði:
FERÐALÖG Á HRAÐBÁTI,
VÉLSLEÐA OG SKÍÐUM
KSn-Flateyri. S.l. viku var tiðar-
far mjög slæmt I önundarfirði og
jafnframt voru miklar annir hjá
lækni og hjúkrunarkonu Flat-
eyrarlæknishéraðs. Hjúkrunar-
konan, Sigurveig Georgsdóttir,
býr i Holti, en það er handan ön-
undarf jarðar. Læknirinn, Jens
Guðmundsson, býr á Þingeyri, en
þaðan er yfir tvo firði og eina
heiði að fara til Flateyrar. S.l.
viku gegndi Sigurveig starfi á
Flateyri alla daga nema einn. Til
að sinna starfi sinu þessa viku
varð Sigurveig að fara með vél-
sleða, bilum, hraðbáti, fiskibát-
um og á skiðum. Jens var á Flat-
eyri 3 daga vikunnar og notaði á
ferðalögum sinum vélsleða, bila,
fiskibáta og flugvél.
Sem dæmi um annir og ferðalög
læknisins má geta þess, að um
miðnætti á mánudaginn var hann
kominn heim á Þingeyri af Flat-
eyri. Um tveim timum siðar, að-
faranótt þriðjudags er hann
kallaður til sjúklings á Þingeyri
og vakir y-fir honum nóttina. Að
morgni flýgur hann með sjúkling-
inn suður til Reykjavikur, á
Reykjavikurflugvelli skiptir hann
um flugvél og flýgur að Holti i ön-
undarfirði og gegnir störfum á
Flateyri þriðjudaginn siðdegis.
Kominn var hann heim á Þing-
eyri um kvöldmatarleytið, en var
kallaður aftur til Flafeyrar kl.
21,00. Þá var færð orðin mjög
erfið og komst hann með hjálp
vegagerðar til Flateyrar klukkan
tvö aðfaranótt miðvikudags. Þar
starfaði hann siðan miðvikudag-
inn og komst heim á Þingeyri um
kvöldmat.
Hjúkrunarkonan, Sigurveig,
starfar með lækninum i Flat-
eyrarlæknishéraði, en sinnir auk
þess sjúklingum þann tima, sem
læknirinn er ekki þar. Ferðalög
hennar vegna starfsins eru oft
erfið, þótt ekki þurfi hún venju-
lega að fara nema um önundar-
fjörð.
Sigurveig er eiginkona séra
Lárusar Guðmundssonar i Holti.
Meðal þeirra farartækja, sem
hún notar á ferðum sinum er
hraðbátur er þau eiga. S.l. mið-
vikudag komu þau á hraðbátnum
til Flateyrar i sæmilegu veðri.
Hins vegar hvessti mjög siðdegis,
og var þá meðfylgjandi mynd
tekin, er verið var að bjarga báti
þeirra frá skemmdum i Flateyr-
arhöfn.
Bátur þessi, sem er rúmlega
hálfrar milljónar króna virði var
mjög hætt kominn i höfninni, m.a.
brotnaði hliðarrúða, borðstokkur
rifnaði og tjaldhús bilaði. Var
mesta mildi, að báturinn skyldi
ekki sökkva i þeim hamförum,
sem á honum dundu á timabili.
Er lægði, tókst séra Lárusi að
komast um borð og ræsa vél báts-
ins og sigla út úr höfninni, en þar
var sjólagið verst. Til marks um,
hve höfnin hér er slæm i norð-
austanátt, má geta þess, að séra
Lárus sigldi bátnum siðan áfalla-
laust yfir fjörðinn, en vélbáturinn
Kristján f.ylgdi honum þó yfir i
öryggisskyni.
Vert er að taka fram i sam-
bandi við hinar erfiðu ferðir
læknis og hjúkrunarkonu, að
margir leggja þeim lið. Má þar
nefna Vegagerð rikisins, Land-
helgisgæzluna, starfslið Vængja,
bæði i Reykjavik og á Flateyri,
bændur og sjómenn, auk fjölda
annarra einstaklinga. Er einkar
ánægjulegt, hve samtaka allir
þessir aðilar eru við að leggja
þeim lið I erfiðu starfi.