Tíminn - 19.03.1975, Side 1
ÆNGIR?
Áætlunarstaöir:
Blönduós — Sigiufjörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudaiur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
hólmur — Rif
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
£3
Efnahagsrdðstafanirnar á næstu grösum:
SKATTALÆKKUN,
MOTS VIÐ OSKIR
SEM KEMUR
LAUNÞEGA
Samdróttur opinberra framkvæmda, ráðstafanir vegna útgerðarinnar
og væntanlega skyldusparnaður
Ungur
sjómaður
drukknaði
19 ÁRA gamall háseti á neta-
bátnum Jóni Þórðarsyni frá
Patreksfirði féll fyrir borð að
morgni mánudags s.l. og
drukknaði. Maðurinn hét
Gústaf Smári Sigurðsson.
Er slysið varð, var bátur-
inn að veiðum á Breiðafirði.
Þegar nýbúið var að draga
inn netatrossu um kl. 11.30
varGústaf Smári á leið aftur
eftir skipinu. Þá skall alda á
þvi og haliaðist það mikið og
féll maðurinn útbyrðis.
Leitað var að Gústafi
Smára i háifa þriðju klukku-
stund, en hann sást ekki,
eftir að hann féll útbyrðis.
Gústaf Smári Sigurðsson
var búsettur á Patreksfirði.
Hann lætur eftir sig unnustu
og eitt barn.
TÍMINN hefur fregnað, að nú sé I
prentun frumvarp um breytta
skattheimtu, og er ekki ótrúlegt,
að það verði lagt fram á morgun.
Þar sem hér er um að ræða
skattalækkun, fylgir samdráttur
opinberra framkvæmda I kjölfar-
ið. Einnig er i burðarliðnum
frumvarp um ráðstafanir varð-
andi sjávarútveg, ráðstöfun
gengishagnaður og einföldun
millifærslu- og sjóðakerfis þess,
sem uppi hefur verið haldið.
Fleiri ráðstafanir eru til athugun-
ar, og verða þær væntanlega
gerðar heyrinkunnar áður en
langt um liður, þar á meðál
skyldusparnaður i einu eða öðru
formi. A hann að taka tii þeirra,
sem hafa ailhá eða há iaun.
Ákvörðun um láglaunabætur
mun frestast enn um sinn, þar eð
þau mál eru til umræðu við samn-
ingatilraunir verklýðsfélaga og
atvinnurekenda.
1 frumvarpi því, sem nú er i
prentun, er gert ráð fyrir skatta-
lækkun, sem á að koma mjög til
móts við það, er fulltrúar laun-
þegasamtakanna i landinu hafa
leitað eftir, og er gert ráð fyrir
lækkun bæði beinna og óbeinna
skatta. Svigrúm mun veitt til
þess, að lækkun óbeinna skatta
geti tekið til, hvort heldur vill,
söluskatts eða tolla. Fjölskyldu-
bætur verða tengdar skattkerfinu
á þann veg, að þeir, sem eiga rétt
á þeim, en ber þó að greiða skatt,
fá skattfrádrátt hækkaðan i stað
útborgaðra bóta. Verður skatta-
lækkun þessara aðila þeim mun
meiri sem nemur bótunum.
Ekki er að þessu sinni gert ráð
fyrir neinum sérstökum breyting-
um á skattheimtu af tekjum
kvenna, sem vinna utan heimilis.
Eins og kunnugt er eiga stjórn-
málaumræður frá alþingi að fara
fram annað kvöld, og verða þessi
mál væntanlega lögð þar fyrir.
Fyrsti fundur útvarpsráðs
Hið nýkjörna útvarpsráö kom saman til fyrsta fundar sins Igær og þá var þessi mynd tekin. A henni eru
taiið frá vinstri: Leó Löve, Stefán JúIIusson, Ellert Schram, sem kjörinn var varaformaður ráðsins,
Þórarinn Þórarinsson, sem kjörinn var formaður þess, ólafur R. Einarsson, Friðrik Sófusson, Auður
Auðuns, semkjörin var ritari og Pétur Guöfinnsson, framkvæmdastjóri sjónvarpsins. — Tlmamynd:
Róbert.
Grófleg misnotkun íhaldsins:
Afhendir Heimdalli einhverjar
beztu byggingalóðir borgarinnar
vilyrði til handa starfsmönnum stjórnarrdðsins svikið
HHJ-Rvik — Borgarráð
samþykkti með þremur
atkvæðum ihaldsfulltrú-
anna á fundi sinum i gær
að úthluta fjölbýlishúsa-
lóðunum við Hagamel
51, 53 og 55 til Heimdall-
ar, félags ungra sjálf-
stæðismanna i Reykja-
vik, Tillaga um að
Byggingarsamvinnufé-
lag starfsmanna stjórn-
arráðsins fengi þessar
lóðir hlaut atkvæði borg-
arráðsmannanna
Kristjáns Benediktsson-
ar og Sigurjóns Péturs-
sonar.
Þessi lóðaúthlutun á sér all-
langan aðdraganda. Byggingar-
samvinnufélag starfsmanna
stjórnarráðsins var lengi búið að
falast eftir þessum lóðum, og
hafði reyndar fengið vilyrði fyrir
þeim s.l. vor. S.l. sumar gerðist
það hins vegar, að Heimdallur
stofnaði byggingarfélag og krafð-
ist þess fljótlega af flokksbræðr-
unum I borgarráði, að svikið yrði
vilyrðið, sem hafði verið gefið
starfsmönnum stjórnarráðsins,
og lóöirnar yrðu afhentar
„BYGGUNG”, en svo nefnist
byggingarfélag Heimdallar. Ein-
hverjum af ráðamönnum Sjálf-
stæðisflokksins mun hins vegar
hafa fundizt slik meðferð málsins
ankannaleg, og þess vegna dróst
ákvörðun á langinn.
Umræddar lóðir eru á mjög
góðum og eftirsóttum stað i borg-
inni, enda mun nokkuð á fjórða
hundrað manns hafa gengið i
Heimdall, gegn loforði um úr-
valsbyggingarlóð á bezta stað i
borginni.
Eftir atkvæðagreiðslu um þetta
mál i borgarráði gerði Kristján
Benediktsson grein fyrir bókun
þeirri, sem hér fer á eftir, en að
henni stóðu, ásamt Kristjáni, þeir
Sigurjón Pétursson og Björgvin
Guðmundsson.
Bókunin er svolátandi:
,,Sú ákvörðun meirihluta borg-
arráðs að láta „Byggingarfélag
ungs fólks” fá tii ráðstöfunar fjöl-
býlishúsalóðirnar nr. 51, 53 og 55
við Hagamel, er að okkar dómi
mjög úmælisverð.
Hér er um að ræða tiltölulega
nýstofnað félag, scm þar að auki
setur þá skilmála fyrir félagsað-
ild, að viökomandi sé jafnframt I
Heimdalii eða eitthverju öðru fé-
lagi ungra Sjálfstæðismanna.
Um framangreindar lóðir
sóttu fjölmargir aðilar, m.a.
nokkur byggingarsamvinnufélög,
sem skipuð eru ungu fólki, eru öll-
um opin og starfa samkvæmt sér-
stökum lögum.
Við teljum það hreint siðlcysi
hjá borgarráðsmönnum Sjálf-
stæðisflokksins að sniðganga
þessa aðila með öllu, en afhenda
eitthvert bezta, og jafnframt
eftirsóttasta by ggingarsvæði,
sem völ er á I borginni, til bygg-
ingaféiags, sem setur félags-
mönnum sinum þá skilmála, að
þeir skuli jafnframt ganga I
Heimdall. Hér er farið inn á var-
hugaverða ■ braut, þar sem
beinllnis er verið að nota aðstöðu.
sem borgararnir allir eiga jafnan
rétt á, til framdráttar pólitlsku
félagi Sjálfstæðisflokksins”.
Til þess að sýna, hvers eðlis
byggingarfélágið „BYGGUNG”
er, skal hér að lokum birtur kafli
úr viðtali, sem Morgunblaðið átti
viö formann þess, Þorvald nokk-
urn Mawby, og birt var i Morgun-
blaðinu 10. september 1974.
Blaðamaður Mbl. spyr, hvort
Byggung starfi eingöngu I
Frh. á bls. 15
Byggingarlöðirnar eru á einhverjum bezta stað I Reykjavlk, rétt norðan viö Sundlaug Vesturbæjar.
Bygg'ngarsamvinnufélagi starfsmanna stjórnarráösins hafði verið veitt vilyrði fyrir lóðunum, en það
var svikið, þegar Heimdellingar fóru á stúfana og heimtuðu lóðirnar. — Tlmamynd: Róbert.