Tíminn - 19.03.1975, Page 2
2
TÍMINN
Miðvikudagur 19. marz 1975.
AAiðvikudagur 19. marz 1975
m
Vatnsberinn (20. jan.—18. febr.)
Þaö viröist ekki vera auövelt aö ná sambandi viö
þig i dag, en þú skalt samt foröast aö loka þig
inni i skel, reyna aö hrista af þér sleniö, hversu
erfitt sem þér finnst þaö og lita bjartari augum á
lifiö og tilveruna.
Fiskarnir (19. febr.—20. marz.)
Þessi dagur á sennilega eftir aö veröa þér
minnisstæöur. Þú færö einhverjar fréttir, sem
sennilega eiga eftir aö vefjast fyrir þér, en það
rætist fljótlega úr þvi. Svo fær dagurinn óvæntan
endi i kvöld.
Hrúturinn (21. marz—19. april)
Það litur út fyrir, aö samvizkan sé ekki sem
allra bezt i dag, og þetta er nokkuð, sem þú verö-
ur að gera upp við þig. Þetta er samt ákaflega
hagstæöur dagur, og þá sérstaklega til að undir-
skrifa samninga og skuidbindingar.
Nautið (20. april—20. mai)
Þetta er góður dagur, og þaö er eitthvaö sam-
eiginlegt átak, þar sem þú átt hlut aö máli, sem
gefur sérlega góöa raun og verður sérstaklega
þér ánægjulegt. Eldra fólk, liklega hjón, kynnu
að æskja upplýsinga hjá þér.
Tviburarnir (21. mai—20. júni)
Þetta er afskaplega rólegur dagur, hreppilegur
til andlegra umþenkinga eöa samskipta viö hugs
andi fólk. Það færir þér lika þá ró, sem þú hefur
gott af. Kvöldið er heppilegast i fámenni, helzt út
af fyrir þig.
Krabbinn (21. júni—22. júli)
Þú ættir helzt ekki að taka þér fyrir hendur i dag
annað en það allra bráðnauðsynlegasta. Þú skalt
ekki hafa hátt um einhverjar áætlanir, sem þú
hefur á prjónunum, þvi að það er hætt við þvi, aö
einhver bregöist trúnaöi þinum.
Ljónið (23. júlí—23. ágúst)
Þú skalt treysta öörum i dag, sérstaklega skalt
þú ekki draga i efa heíöarleika annars fólks.
Hugsanlegt, að heilsufarsvandamál láti .á sér
bæra, og nú skaltu láta verða af þvi aö le.ita þér
lækninga og það varanlegra.
Jómfrúin (24. ágúst—22. sept.)
Þetta er heppilegur dagur til þess að fara á
mannamót og blanda geði viö annað fólk. Þér er
alveg bráðnauðsynlegt að hrista af þér slenið og
sletta úr klaufunum einstaka sinnum. Varaöu
þig á einhverjum, sem vill þér illt.
Vogin (23. sept.—22. okt.)
Snöggur á fætur i dag og notaðu hann vel til aö
breyta eitthvaö til. Feröalög eöa útúrdúr i ann-
ari mynd — eitthvað, sem á ekkert skylt við
gráma hversdagsleikans, verður þér til góös og
sérstakrar ánægju i dag.
Sporðdrekinn (23. okt.—21. nóv.)
Komdu ekki nálægt fjármunum, sem þér hefur
veriö trúað fyrir — alls ekki i dag! Foröist þú
þetta verður dagurinn afskaplega ánægjulegur
fyrir þig, og alls ekki útilokað aö þú hagnist á
viöskiptum i einhverri mynd.
Bogmaðurinn (22. nóv.—21. des.)
Þaö getur vel verið, aö þér finnist þú hafa
heppnina meö þér — en það er samt sem áður
fráleitt af þér aö vera aö þvinga i gegn eitthvað
sem allir aðrir eru á móti. Þú skalt hugsa máliö,
þú veröur annarrar skoðunar siöar.
Steingeitin (22. des.—19. jan.)
Þetta er þinn dagur, og hann ósvikinn. Þér mun
meira aö segja finnast allir óvenju samvinnu-
fúsir og liprir i dag, — og þá skaltu lika sýna þin-
ar betri hliðar, en vikja neikvæöu og kröfuhörðu
eöli þinu til hliöar.
Bændur - Bændaefni
Eignarjörð min Múlastekkur i Skriðdal er
til sölu nú þegar ef viðunandi tilboð fæst.
Semja ber við eiganda jarðarinnar Krist-
björgu Sigurðardóttur, Selási 3, Egils-
stöðum. Simi 1199.
Áður en ýtt er á flot I dag vill
Landfari Itreka það, hversu
kærkomin honum eru stutt og
gagnorð bréf, og allra helzt, ef
menn vildu lika leggja þar viö
nöfn sin, fremur en að nota aö-
eins skirnarnafn, upphafsstafi
eöa þá dulnefni. Oft er fólk meö
einhvern hálfgildis feluleik, þótt
ekki sé nokkur ástæöa til annars
en að nota fullt nafn. Þaö er
sjaldnast nokkur ástæöa til þess
að dyljast, þótt fólk segi skoöun
sina afdráttarlaust.
óboðleg
fjáröflunarleið
Fyrsta bréfið er samt þvi
miöur ekki með fullu nafni. Sá,
sem það skrifar nefnir sig Borg-
firöing:
„Mér þykir stjórn Frjáls-
iþróttasambands Islands hafa
gripið til óheillaráös, Iþrótta-
hreyfingunni til fjárhagslegs
framdráttar, meö þessari siga-
rettupakkasöfnun, og ég vil
byrja á þvi, að þakka kunningj-
um mlnum i Stafholtstungum
fyrir að ljósta þessari ráðagerö
upp og taka afdráttarlausa af-
stöðu gegn henni.
Að minum dómi geta Iþrótta-
hreyfingin og ungmennafélags-
hreyfingin ekki verið þekktar
fyrir svona fjáröflunarleiö. Það
er illa fariö, ef þeir eru margir,
sem finnst sjálfsagt aö taka viö
peningum, hvernig sem þeir eru
fengnir. Þaö ber I sér ógæfu og
ruglar siöferðisvitund fólks.
Sem betur fer hef ég orðið þess
greinilega var, aö margir eru
sömu skoðunar og ég um þetta,
og ég vona, aö iþróttahreyfingin
sé ekki svo heillum horfin, að
þessi fjáröflunaraöferð hafi
framgang. Sígarettureykingar
og Iþróttalif á ekki neina sam-
leið.
Einhvers staöar sá ég þvi
kastað fram, að ungmenna-
félögum færist ekki aö amast
viö þessari sigarettupakkasöfn-
un, þvi að sum þeirra fengu
mest af peningum sinum af
fylliriisböllum I félagsheimil-
um. Ég tek undir þaö, að ekki er
nándarnærri nógu vel aö þvi
gætt, hvers konar samkomur
eru haldnar í fjáraflaskyni I
félagsheimilunum af ýmsum
aðilum. En ég hafna lika alger-
lega þeirri röksemdafærslu að
ein misgerð geri aöra eitthvaö
skárri. Fylliriissamkomur I
félagsheimilum I hagnaðar-
skyni og sigarettupakkasöfnun-
in er tveir ávextir af sama
trénu, og hvorugur þeirra er
boðlegur æskulýöshreyfingu,
sem metur sig nokkurs. Þetta
eru óvönduð meðöl og annaö
verður ekki notað hinu til af-
sökunar. Það væri jafnlágkúru-
legt og siðlitið og þegar stjórn-
málamaöur afsakar sinar gerö-
ir eöa sinna manna með mis-
brestum andstæðinga sinna,
þegar einn dómur ætti yfir hvort
tveggja að ganga.
í fyrri daga var ýmsu til
leiðar komið meö frjálsum
framlögum, sjálfboðavinnu og
gjafavinnu ýmiss konar. Meö
þvi vannst það tvennt, að mál-
efnum var þokaö áleiöis og
menn uxu af framlagi sinu og
urðu betri og nýtari menn og
þegnar. Þaö lögmál hefur ekki
neitt breytzt. En hugarfariö
viröist hafa mengazt eins og nú
er komizt að oröi. Þaö þyrfti aö
hreinsa sorann úr sálinni, svo aö
enginn léti sér til hugar koma
svona fjáröflun I nafni menn-
ingarlegrar hreyfingar”.
Hugsun og orðafar
H. Kr.skrifar örstutt bréf um
málfar á slðum Timans og
finnst sem gerr mætti hugsa og
betur gera:
,,í Timanum 7. marz var talað
um stóran bor, sem kominn
væri til landsins, en siðan er
sagt, að tiltekið skip hafi náö i
hann til Texas. Ef borinn er
hingað kominn, hefur honum þó
verið náð frá Texas — sóttur
þangaö. — Eöa hvað?
Svo er talaö um dagvistunar-
heimili. Hvaða munur er á vist
og vistun? Eöa er hann enginn?
Ég hélt, að vist væri dvöl —
vistun væri ráðstöfun I vist.
Dagvistarheimili væri stofnun,
sem tæki til vistar að deginum.
Vistunarstofnun væri t.d. ráðn-
ingarskrifstofa.”
Skuggi og glæta
S.E. skrifar:
„Um langt skeið hafa Banda-
rikjamenn háð og siðan stutt að
hryllilegum styrjöldum I Asiu,
haldið þar við völd hinum verstu
mönnum, að manni sýnist, og
beðið við það mikinn álits-
hnekki. Enn virðast hinir valda-
mestu menn I Bandarikjunum
við það heygarðshornið að
draga 'þetta ógeð á langinn.
Þeir vilja ekki láta sér segjast
við þann skugga, sem þessar
styrja.ldir i Asíu hafa varpað á
land þeirrá og þjóð.
En i þessu myrkri er það
ljósbjarmi, að verulegur hluti
bandarisku þjóðarinnar hefur
fyrir löngu fengið ógeð á þess-
um styrjöldum, sem ofan á ann-
að hafa verið tilgangslausar, og
nú er von til þess, að Banda-
rikjaþing láti ekki þvæla sér til
þess að leggja fram nýjar fjár-
fúlgur til styrjaldarreksturs,
sem aðeins getur haft I för með
sér auknar þjáningar og meiri
tortimingu. Þetta gleður.”
Auglýsið í TÍMANUM
^KNvrn^v
MUNIÐ
i íbúðarhappdrætti H.S.Í.
2ja herb. ibúð að
| verðmæti kr. 3.500.000.-
^ Verðmiðakr. 250.
r
i
'&Vtðct
I BEKKIR *
! OG SVEFNSÓFAR
I
I
vandaðir og ódýrir — til
sölu aö öldugötu 33.
Upplýsingar I sima 1-94-07.
J
ÁLFNAÐ ER VÉRK
ÞÁ HAFIÐ ER
^SAMVINNUBANKINN
Auglýsið
i
Tímanum
*** ^ ^ ^ >
Ég vil vera með
í hinum nýja Bókaklúbbi AB. Vinsamlega skrdið nafn mitt ó
félagskró Bókaklúbbs AB og sendið mér jafnframt Fréttabréf
AB og aðrar upplýsingar um bækur d Bókaklúbbsverði.
nafn
nafnnúmer
heimiliifang
Nú er rétti tíminn til
að láta yfirfara og
stilla GM-bifreiðina
i hinni nýju og
glæsilegu þjón-
ustumiðstöð okkar
að Höfðabakka 9.
Pantið tíma hjá
verkstjóra i síma
SAMBANDIÐ VÉLADEILD
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
HÖFÐABAKKA 9. Símar: Verkst.: 85539 Verzh 84245-84710