Tíminn - 19.03.1975, Síða 3

Tíminn - 19.03.1975, Síða 3
Miðvikudagur 19. marz 1975. 3 Geymsluþol kartaflna minna en áður var — almennur fundur um málið f Þykkvabæ i ljds hefur komið, sérstaklega hin siðari ár, að geymsiuþol og al- mennt heilbrigði kartaflna hefur farið mjög dvinandi. Hvort hér er um aðkenna rangri áburðarnotk- un, vöntun á snefilefnum I jarð- veginum, stórvirkri vélvæðingu við upptökustörf og fl. eða annað þviumiikt, er ekki gott að fullyrða neitt um. Hins vegar er ljóst, aö eitthvað róttækt verður að aðhaf- ast I þessu efni til að finna viöun- andi lausn á þessum vandamál- um I náinni framtlð. A síðasta búnaðarþingi, og enn fremur 1973, var samþykkt álykt- un þess efnis að stórauka Allar gjald- eyristekjur skilaskyldar Vegna hinnar óhagstæðu þró- unar gjaideyrismála hefur við- skiptaráðuneytinu þótt rétt að vekja athygliá giidandi ákvæðum laga og reglugerða um gjald- eyrismeðferð, þar á meöal um gjaldeyrisskil. Er þetta gert I sér- Jóhannes Elíasson bankastjóri lótinn Jóhannes Ellasson. SJ—Reykjavlk. Jóhannes Ellasson bankastjóri viö <Jt- vegsbankann lézt I Reykja- vlk á mánudagskvöld 54 ára að aldri. Jóhannes fæddist að Hrauni I öxnadal 19. mai 1920. Hann stundaði nám við Menntaskólann á Akureyri og lauk laganámi frá Háskóla tslands 1947. Jó- hannes starfaði fyrst I for- sætis- og menntamálaráðu- neytinu og stundaði jafn- framt málflutningsstörf. Hann varð bankastjóri tJtvegsbankans 1957. Jó- hannes starfaði mikið að félags- og stjórnmálum. Hann var mörgum sinnum skipaður I nefndir af Alþingi til að vinna að ýmsum mál- um. Jóhannes sat um skeið allsherjarþing Sameinuðu þjóöanna. Formaður Sambands ungra framsóknarmanna var Jóhannesá árunum 1944- ’48 og átti þá sæti I miðstjórn flokksins. Hann gegndi ýms- um trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn og átti sæti I miðstjórn og fram- kvæmdastjórn er sviplegt lát hans bar að höndum. stakri auglýsingu, sem ráðuneyt- ið hefur gefið út. 1 auglýsingunni er lögð áherzla á það, að hvers konar gjaldeyris- tekjur og andvirði gjaldeyris- eignar séu skilaskyld til innlends gjaldeyrisbanka innan 20 daga frá því gjaldeyririnn komst I hendur eiganda. Þá er fjallað um fjárfestingar erlendis. Þar segir, að aðilum búsettum hér á landi sé óheimilt að kaupa fasteignir erlendis eða erlend verðbréf, nema að fenginni heimild gjald- eyrisdeildar bankanna. Siðan segir: „Aðili búsettur hér á landi, sem nú á fasteign erlendis eða verð bréf, skal tilkynna það skriflega gjaldeyriseftirliti Seðlabankans til skráningar ekki síðar en 1. ágúst n.k.” Auk framangreindra atriða er I auglýsingunni fjallað um erlend- ar lántökur, erlenda innstæðu- reikninga og inn- og útflutning skuldaskjala, seðla- og skipti- myntar. Sjálfvirk símstöð á Fáskrúðs- firði Miðvikudaginn 19. marz 1975 kl. 16.30 verður opnuð sjálfvirk slm- stöð á Fáskrúðsfirði. Svæðisnúm- er er 97, notendanúmer 5100-5299. Stöðin er gerð fyrir 200 nr., en fjöldi notenda er 136. Fjöldi sveitallna er 21 á 3 llnum. Fjöldi valllna til hnútstöðvarinnar á Reyðarfirði eru 7. tilraunastarfsemi og rannsóknir innan kartöfluræktunarinnar. Föstudaginn 2. þ.m. kl. 2 e.h. verður almennur fundur kartöflu ræktarbænda haldinn I þinghúsi Þykkbæinga til þess að ræða frek- ar þessi mál, og þar með að undirbúa að nokkru nánari að- gerðir til verndar uppskerunni á komandi árum. Kartöfluuppskeran var sem kunnugt er með langmesta móti sl. haust og enn meiri en hún var haustið 1971, sem var algjört met- ár þá, eða um 130 þúsund tunnur. A fundinum I Þykkvabæ, sem haldinn er að tilhlutan Búnaðar- félags Djúpárhrepps og yfirmats- manns garðávaxta, Eðvalds B. Malmquist, verða erindi flutt af ráöunautunum Óla Val Hanssyni, Agnari Guðnasyni, Kristni Jóns- syni, tilraunastjóra á Sámsstöð- um, og fl. frá leiðbeiningaþjón- ustu Búnaðarfélags Islands. Þá kemur á fundinn til viðræðna for- stjóri Grænmetisverzlunar land- búnaðarins, Jóhann Jónasson. Mun þetta vera I fyrsta skipti, sem boðað er til sérstaks fundar á Suðurlandi varðandi þessa bú- grein, enda virðist áhugi rikjandi meðal kartöfluframleiðenda um aö fjölmenna og kynna sér þessi vandamál frekar, um leið og þeir fá tækifæri til að bera saman bækur sínar og ræktunarreynslu slðustu ára, hver frá sinu byggðarlagi. Óþarft er að taka fram, að allir, er rækta eða hafa með kartöflu- framleiðsluna að gera á einn eða annan hátt, eru velkomnir á þennan fund I Þykkvabænum, sem hefst stundvlslega kl. 2 e.h., sem áður getur. n U I Stórkostlegur sparnaður Orkumálin hafa verið mjög ofarlega á baugi I umræðum á Alþingi undanfarnar vikur og mánuði. A fundi I sameinuðu þingi I gær upplýsti Gunnar Thoroddsen orku- og iönaðar- ráðherra, I tilefni fyrirspurnar um hitaveituframkvæmdir I nágrenni Reykjavlkur, þ.e. Kópavogi, Garðahreppi og Hafnarfirði, að áætluð ollu- notkun til húshitunar á þessu svæði væri 52 milljónir litra á ári. Fyrir þá oliu þyrfti að greiða 1050 milljónir króna. Vatnsnotkun á öllu svæðinu væri hins vegar áætluð 6,7 milljónir tonna, og fyrir það þyrfti einungis að greiða 264 milljónir króna. M.ö.o. myndu sparast 800 milljónir króna á ári, ef hitaveita væri komin á allt svæðið. Samsvarandi sparnaður fyrir Reykjavlk, er talinn nema nærri 3000 milljónum króna á ári. Þaö þarf þvi eng- um að koma á óvart, þótt orkumálin taki mikinn tlma I störfum Alþingis. Styttist í hitaveitu á Suðurnesjum 1 þessum sömu umræðum upplýsti orkumálaráöherra, að unnið væri að undirbúningi Hitaveitu Suðurnesja, en sem kunnugt er, var frumvarp um hana samþykkt á Alþingi skömmu fyrir áramót. Sagði ráðherrann, aö stefnt væri að þvi að ljúka framkvæmdum við hitaveitu á Suðurnesjum árið 1978, og nú lægi fyrir til- laga um áfangaskiptingu verksins, svohljóðandi: ARIÐ 1975 Lokið verði við virkjun, aðalæð og allt að 50% af dreifi- kerfi fyrir Grindavík. auk þess sem unniö verði aö hönnun varmaskiptistöðvar og að- færsluæðar. ARIÐ 1976 Unniö verði áfram viö dreifi kerfi i Grindavlk, en jafn- framt verðihafin vinna við að- færsluæðar og dreifikerfi fyrir Njarðvik og Keflavlk, og stór hluti þess tekinn i notkun. ARIÐ 1977 Framkvæmdum verði lokið 1 Grindavik, Keflavlk og i Njarðvlkum, ásamt nauðsyn- legri virkjun við Svartsengi. ARIÐ 1978 Lokið verði við aðfærsluæð- ar og dreifikerfi fyrir Sand- gerði, Gerðar og Voga. Þetta eru ánægjuleg tíðindi. Stjórnarandstaðan hefur gagnrýnt núverandi rlkis- stjórn fyrir aðgerðarleysi i orkumálum, en sú gagnrýni á ekki við rök að styðjast. Framundan eru miklar fram- kvæmdir I raforku- og hita- veituframkvæmdum. -a.þ. Gæzlufangelsi og geðrannsókn BH-Reykjavik. Atján ára piltur, Sæmundur G. Jónsson, hefur ver- ið úrskurðaður i 60 daga gæzlu- varðhald. Hér er um að ræða pilt- inn, sem uppvis hefur orðiö að þvi undanfarnar vikur að ráðast að mönnum með hnif á lofti og veita þeim áverka. Alls munu árásar- mál hans vera sjö talsins á tveim siðustu árum, og mun hann nú sæta geðrannsókn. Er við ræddumvið rannsóknar- lögregluna I Reykjavlk i gær, var þess sérstaklega getið, að piltur- inn hefði jafnan verið undir áhrif- um áfengis, er árásirnar voru framdar, en það væri vitnisburð- ur þeirra, er til þekktu, að hann væri hinn dagfarsprúðasti, en mætti ekki áfengi bragða, svo að ekki rynni á hann æði það, er hann fremdi árásirnar I. Annars var ekki margt I frétt- um hjá lögreglunni I gær, utan hvað blaðið var beðið að skora á almenning að gæta eigna sinna sérstaklega vel fyrir hjúunum, sem illræmd eru orðin af hnupli sinu, og eru sannarlega ekki við eina fjölina felld i þeim efnum, þvi að þau gripa yfirleitt hvað- eina, sem hægt er að hafa á brott með sér, og eru fatnaður og mat- væli þar sizt undanskilin. Loðnan í Faxaflóa BH-Reykjavlk. — Loðnan veidd- ist aðallega i norðanverðum Faxaflóa á þriðjudag. en ekki var kunnugt um afla hjá bátum, þeg- ar viö höfðum samband við loðnu- löndunarnefnd. Hins vegar mátti á mönnum heyra, að afli væri góður á þessum slóðum. Loðnan er ekki veidd annars staðar um þessar mundir. DEILUAÐILAR OG BAKNEFNDIR Á STÖÐUGUM FUNDUM SATTASEMJARI ríkisins hélt á þriðjudag fundi með deiluaðilum kjarasamninganna. Hófst fyrri fundurinn kl. 14 og stóð fram til kl. 18. Þá var fundi slitið til að samninganefndirnar gætu haft samband við svokallaðar bak- nefndir og var aftur boðað til sáttafundar kl. 21. Baknefnd ASI var kölluð á fund meö samninganefndinni s.l. mánudag og voru þeir baknefnd- armanna, sem eru utan af landi, beðnir að vera til taks I Reykjavik næstu daga til skrafs og ráða- gerða. Bendir það til þess að ein- hverjar ákvarðanir séu á döfinni varðandi kjarasamningana. AFMÆLiSFAGNAÐUR AAÍR Á HÓTEL BORG SOVÉZKU listamennirnir, sem dvcljast hér á landi þessa dagana á vegum MtR, koma fram á kvöldfagnaði félagsins að Hótel Borg á fimmtudagskvöld, 20. marz, þar sem öllum er heimill aðgangur. Listamennirnir eru: Bassa- söngvarinn Vltall Gromadski, balalækasnillingurinn Boris Feoktistof, Svetlana Zvonaréva planóleikari og þjóðdansaparið Gaílna Sjein og Vladimir Víbor- nof. Þetta fólk skemmti á 25 ára af- mælissamkomu MIR, Menning- artengsla Islands og Ráðstjórn- arrlkjanna, I sal Menntaskólans við Hamrhlið á sunnudaginn var 16. marz, og var frábærlega vel fagnað af áheyrendum og áhorf- endum, sem voru eins margir og húsrúm frekast leyfði. A sam- komu þessari söng einnig Karla- kórinn Fóstbræður undir stjórn Jóns Asgeirssonar tónskálds, og ávörp fluttu Vilhjálmur Hjálm- arsson menntamálaráöherra, Sergei • Stúdenetski, aöstoðar- fiskimálaráðherra Sovétrikjanna og formaður félagsins Sovétríkin — Island, og Margrét Guðnadóttir prófessor. Iðnnemar andsnúnir málmblendiverksmiðju Mjög er þessa dagana rætt um fyrirhugaða málmblendiverk- smiðju I Hvalfirði, og sýnist sitt hverjum. Um þetta mál var fjall- aö á fundi sambandsstjórnar Iðn- nemasambands tslands um helg- ina, og hefur blaðinu borizt svo- látandi sámþykkt frá INSt: „Sambandsstjórnarfundur Iðn- nemasambands Islands, haldinn 15.-16. marz s.l., lýsir yfir algerri andstöðu6inni gegn fyrirhugaðri byggingu málmblendiverksmiðju Union Carbide á Grundartanga I Hvalfirði, og skorar á alþingis- menn að stöðva nú þegar alla samninga við auðhringinn Union Carbide. Einnig vill sambands- stjðrn vara viö ásælni erlendra auðhringa I Islenzkar orkulindir.”

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.