Tíminn - 19.03.1975, Side 12
12
TÍMINN
Miðvikudagur 19. marz 1975.
tefja hann — horföi aðeins á hann með aðdáun og
virðingu. Hann virtist miklu unglegri en endranær,
þegar hann skálmaði um með úfið hárið og kinnarnar
rjóðar af ákafanum. Á kvöldin sat hann heima og las
,,Álandstíðindin".
Telpan, sem var nýfarin aðganga, hljópofttil hans, og
tók í buxnaskálmarnar, gægðist undir blaðið og skríkti
framan í hann. Þá dró hann fæturnar að sér og lyfti
blaðinu hærra, en Katrín flýtti sér að taka barnið. Hún
óttaðist, að óvitinn væri honum til ama, og sú gremja,
sem hún hélt, að hann byggi enn yfir í leynum hugans
vegna tilveru þessa barns, kynni að brjótast fram. En
svo bar það við sunnudag nokkurn, að Katrín brá sér eitt-
hvaðfrá stutta stund. Þegar hún kom aftur, sá hún sjón,
sem gladdi hana stórlega og eyddi öllum slíkum
áhyggjum, Hún kom inn, án þess að Einar yrði hennar
var. Hann stóð á miðju gólf i og lyfti telpunni hátt á loft
og sagði „Ó,-hó, ó-hó". Hún hló og skríkti og greip
andann á lofti í hvert skipti sem hann lyfti henni upp, en
þegar hann lét hana síga niður á gólfið, kallaði hún:
„AAeia, meia". Katrín hopaði þegjandi út og reikaði
kringum húsið og gerði sér erindi út í garðinn sinn. Hvers
vegna dylur hann alltaf állar blíðar tilf inningar, eins og
það sé skömm að láta þær í Ijós? hugsaði hún. En henni
var léttar í skapi en henni hafði verið langan tíma.
„Heyrðu Einar", sagði hún ofur varlega einn vor-
daginn. „Viltu ekki bjóða kunningjunum að drekka með
þér kaff ibolla, áður en þú lætur úr höfn? Það má kallast,
að þú sért húsbóndinn hér,og í rauninni ber þér að bjóða
þeim heim á afmælisdaginn þinn, þó að við höfum nú
raunar aldrei gert það". ~
Það vottaði snöggvast fyrir óþolinmæðinni gömlu í
augnaráði hans, en svo tók hann sig á og sagði:
„Jú; ef þig langar til þess'.
Þetta var meiri tilhliðrunarsemi en Katrín hafði þorað
að gera sér vonir um. Hún tók nú til óspilltra málanna að
baka kökur og kaffibrauð og undirbúa boðið, sem hún
vissi, að myndi auka stórum álit og tiltrú sonar hennar í
byggðarlaginu. Þau urðu að skipta fólkinu í tvo hópa —
bjóða þorpsbúum fyrri daginn en þeim, sem bjuggu uppi
á ásunum, þann seinni. Það var svo litill húsakostur á
Klif inu, að f leiri komust þar ekki inn í einu.
Þegar Katrín stóð við baksturinn, kom Einar og rétti
henni tíu mörk. Hún varð svo undrandi að henni varð
orðfall. Hún stóð bara andspænis syni sínum með deigið
á höndunum og kom sér ekki einu sinni að því að taka við
þessum stóra seðli. Þá lagði hann hann á borðið og gekk
út. Ein dóttir Lydíu var fengin til þess að hlaupa
hús úr húsi og bjóða fólki til veizlunnar. Einar kom
snemma heim, rakaði sig og hafði fataskipti og fór síðan
niður í þorpið að fá lánaða bekki handa gestunum að
sitja á.
Katrín varð glaðari en orð frá lýst, þegar hún sá, að
hann tók að sér húsbóndaskyldurnar af fullri röggsemi
— beið gestanna fyrir dyrum úti, bauð þeim inn og leiddi
þá til sætis. Hann hafði meira að segja keypt sígarettur,
sem hann hélt óspart að mönnum. Að unga fólkinu gaf
hann sig lítið þótt það væri jaf naldra honum — hann sat
hjá þeim, sem rosknir voru og ráðsettir, og Katrin veitti
því athygli, að þeir hlustuðu vel eftir öllu, sem hann
sagði. Hún botnaði ekkert í umræðuefni þeirra, enda
snerist það allt um skip af ýmsum gerðum,
burðarmagn og rúmlestir, ganghraða og f lutningsgjöld.
En hún sá sér til ánægju, að Einar var vel heima i þessu
öllu.
Viku síðar lét Einar kapteinn úr höfn í fyrsta skipti.
Um sumarið kom Saga AAalm heim úr hinni löngu
brúðkaupsferðsinni og settist að í nýja húsinu. Hún hafði
farið af skipinu einhvers staðar í Svíþjóð og kom ein
heim um miðjan sláttinn. Katrín var á leið niður að Bát-
víkinni og leiddi Gretu litlu við hond sér, er hún sá hana
koma á móti sér. Hún blygðaðist sín fyrir barnið
og svipaðist um, eins og til þess að vita, hvort nokkur tök
væru á að komast hjá að mæta Sögu. En svo beit hún á
jaxlinn, tók þéttar utan um hönd barnsins og gekk
hnarreist á móti henni. Saga horfði niður fyrir tærnar á
sér og birtist ekki síður miður sín. En samt nam hún
staðar, rétti Katrínu höndina og reyndi að láta eins og
ekkert væri.
„Komdu sæl, Katrín. Hvernig líður þér?"
„Þolanlega", svaraði Katrín þurrlega. Hún horfði
hvasst á þessa ungu konu, sem nú var farin að gæla við
Gretu. Hún var búin að hætti sumargesta; í Ijósum
þunnum kjól, með hvíta skó á fótum, Ijósrauða sólhlíf í
hendinni og handklæði á handleggnum. Systir hennar,
barn að aldri, sem átti að vera henni til skemmtunar í
einverunni í nýja húsinu, var með henni. Þrátt fyrir nýja
skrúðann fannst Katrínu einhvern veginn, að Saga hefði
glatað nokkru af fegurð sinni. Hún var mögur og
líkaminn, sem áður var mjúkur og ávalur, var nú orðinn
beinaber og hörundið strengt og iitlaust. Óeðlilegt lát-
bragð hennar bar órækt vitni um taugaveikl-
un.
K
I
K
U
B
B
U
R
' Hæ, Haddi, þvi
ferðu ekki á verk-
stæði og lætur rétta
MIÐVIKUDAGUR
19. marz
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veröurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Him-
inn og jörð” eftir Carlo
Coccioli. Séra Jón Bjarman
les þýöingu sina (23).
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphornið.
17.10 Ctvarpssaga barnanna:
„Vala eftir Ragnheiði Jóns-
dóttur. Sigrún Guðjóns-
dóttir les (5).
17.30 Framburðarkennsla i
dönsku og frönsku.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Spurt og svarað. Svala
Valdimarsdóttir leitar
svara við spurningum hlust-
enda.
20.00 Kvöldvaka. a. Einsöng-
ur. Jón Sigurbjörnsson
syngur islenzk lög. ólafur
Vignir Albertsson leikur á
pianó. b. Siðustu klerkarnir
i Klausturhólum. Séra Gisli
Brynjólfsson flytur fyrsta
erindi sitt. c. Visur og kvæði
eftir Pálinu Jóhannesdótt-
ur.Valborg Bentsdóttir les.
d. , Sýslumaðurinn sálugi.
Pétur Sumarliðason flytur
frásöguþátt eftir Skúla Guð-
jónsson á Ljótunnarstöðum.
e. Huldufólkssaga.
Guðmundur Bernharðsson
frá Ingjaldssandi segir frá f.
Um isienzka þjóðhætti. Ámi
Björnsson cand. mag flytur
þáttinn. g. Kórsöngur.
Kammerkórinn syngur.
Söngstjóri: Rut L. Magnús-
son.
21.30 Ctvarpssagan: „Köttur
og mús” eftir Gunter Grass.
Þórhallur Sigurðsson
leikari les ( 5).
22.00 Fréttir. Veðurfregnir.
Lestur Passiusálma (45).
22.25 Bókmenntaþáttur i um-
sjá Þorleifs Haukssonar.
22.55 tslandsmótið I hand-
knattleik, fyrsta deild. Jón
Asgeirsson lýsir i Laugar-
dalshöll.
23.15 Djassþáttur. Jón Múli
Ámason kynnir.
23.55 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
19. marz
18.00 Iiöfuðpaurinn Banda-
riskur teiknimyndaflokkur.
Þýðandi Stefán Jökulsson.
Fólk á færibandi Sólun
framhaldsmynd. Dverg-
svinið. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
18.45 Gluggar Bresk fræðslu-
myndasyrpa. Þýðandi og
þulur Jón O. Edwald.
19.10 Illé
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Nýjasta tækni og visindi
Fólk á færibandi Sóli
hjólbarða Hvitvoðungs-
kvaðri Einingahúsgögn Föt
Umsjónarmaður Ornólfur
Thorlacius.
21.00 Vargurinn Sovésk bió-
mynd frá árinu 1973.
Þýðandi Hallveig Thorlac-
ius. Myndin greinir frá
litlum dreng, sem elst upp
hjá frænda sinum og ömmu
í fjallabyggð i Kasakstan.
Eitt sinn tekur frændinn
hann með sér i sauðaleit og
finna þeir úlfsgreni. Þeir
drepa alla ylfingana, nema
einn,sem drengurinn fær að
taka heim með sér til
fósturs. Seinna verða deilur
miklar og skærur i hér-
aðinu, frændi drengsins
lendir i útistöðum við
héraðshöfðingjann, og
einnig kemur úlfurinn
tamdi mikið við sögu.
22.35 Dagskrárlok.