Tíminn - 19.03.1975, Page 13

Tíminn - 19.03.1975, Page 13
Miðvikudagur 19. marz 1975. TÍMINN 13 Umsjón: Hjálmar W. Hannesson Jón Sigurðsson Þjóðnýting innflutningsverzlunar? I ljósi efnahagsþróunarinnar nii að undanförnu herðir Alþýðubandalagið áróðurinn fyrir allsherjarþjóðnýtingu inn- flutningsverzlunarinnar. Að vísu er hér um að ræða gamal- gróið stefnumál sósíalista sem ekki er lengur full vissa fyrir að allir forystumenn Alþýðu- bandalagsins fylgi af heilind- um, en því er ekki að leyna að þetta slagorð hljómar betur þegar erfiðleikar steðja að, enda er svo yfirleitt um allar róttækar hugmyndir um um- byltingar frá rfkjandi skipan þjóðmála. A það skal bent þegar að fyrir þvi er engin vissa að þjóðin hafi endanlega fundið hina beztu lausn i þvi skipulagi sem nií er á innflutningi til landsins. Þegar gjaldeyrisvarasjóðurinn er svo til tómur og tvær gengisfelling- ar hafa riðið á þjóðina á hálfu ári, þá er engin furða að menn spyrji: Er eitthvað að sem að- eins róttækar breytingar geta ráðið bót á? En það er einmitt fyrst og fremst hlutverk hóf- samra umbótamanna að stuðla að lagfæringum og framförum án þess að binda sig í, hvort sem er, byltingaróðagot eða fast- heldnisblindni. Innantóm orð 1 sem stytztu máli má segja, að um sé að velja þrjá kosti varðandi skipulag innflutnings- verzlunarinnar: í fyrsta lagi opinbert eftirlit með verzlunar- frelsi og almenn hagstjórn rlkisvaldsins. Fyrsti kosturinn, algert frelsi, er raunar aðeins fögur orð en innantóm. Reynslan kennir okk- ur að umfram allt höfum við engin efni á sliku stjórnleysi. Þjóðin á einfaldlega ekki nægan gjaldeyri til að heimila slikt enda hefur t.d. verið eftirlit og stjórnun á gjaldeyrismálum hérlendis alla tið, þótt frelsi hafi rikt um vöruval og magn o.s.frv. Þessi kostur verður sið- an enn óraunhæfari ef tillit er tekið til nauðsynlegrar toll- vemdar á ýmsum sviðum enda þótt efnahagssamvinna Is- lendinga við aðrar þjóðir geri ráð fyrir að dregið verði úr henni. A svipaðan hátt getum við auðvitað ekki komizt hjá þvi að gjaldeyrisöflunin i út- flutningsatvinnuvegunum hafi bein áhrif á skipulag og aðstöðu innflutningsins, og fleira mætti telja, tekjuskiptinguna i land- inu, hagsveiflustjórn o.fl. Ómengað afturhald Annar kosturinn er sá sem Alþýðubandalagsmenn veifa nú svo mjög. A þvi leikur tæplega vafi að gallar einokunar- og haftakerfisins eru miklu meiri og alvarlegri en allir þeir kostir sem menn hafa tint til að fegra þennan valkost. Þessir gallar valda þvf að einokunarkerfið yrði umsvifalaust óþolandi i samfélagi sem vill kenna sig við frelsi fólksins. Þessir gallar eru einkum sem hér segir: 1. Vegna þess hve rekstrarein- ingin yrði stórvaxin, mun skriffinnsku- og annar, - kostnaður aukast mjög, jafn- vel þótt sparnaðar yrði gætt. Það er margföld reynsla að stór rekstrareining leiðir af sér mikla og dýra yfirbygg- ingu, en af þessu leiðir sérstaka verðlagshækkun. 2. Slik innflutningsstofnun yrði þegar i stað notuð sem tekju- lind fyrir rikið i fjáröflun þess, en vöntun valkosta og heilbrigðrar samkeppni mun kalla fram gamalkunnar einokunaraðferðir I verðlagn- ingu. 3. Einhæfni, stirðni og tregða kæmi I stað fjölbreytni og framtaks. Breytingar á varn- ingi og smekk verða aldrei séðar fyrir, og er þvi fyrir miklu að sem flestir láti málið til sin taka, standi á eigin fót- um og taki sjálfir áhættu. Þegar valdinu er þjappað saman á eina hönd verður hreinlega enginn hvati til að bregðast við breyttum að- stæðum, möguleikum eða óskum og smekk fólksins. 4. Af þessu öllu leiðir að magn og gæði þjónustu mundi minnka hrapallega. 5. Núverandi skipan hvilir á mjög flóknum samleik inn- flytjenda og neytenda, þar sem innflytjendur taka á sig áhættu við að reyna að svara óskum og þörfum fólksins. Hafa verður t.d. hugfast að það kemur fyrir litið að flytja inn vörur ef enginn vill eða getur keypt þær. Einokunar- kerfið byggist hins vegar á valdboði, á þvi að rikið reynir að fyriskipa fólkinu þarfir og smekk. 6. Gifurleg samþjöppun valds ætti sér stað á hendur fárra embættismanna sem verða, eins og aðrir slikir, i reynd óháðir vilja fólksins i landinu. 7. Rikiseinokunar- og haftakerf- ið er bein andstaða við þá al- mennu meginreglu i efna- hagsmálum að valdið til ákvörðunar á að vera þar sem áhættan af rekstrinum er, og þar sem óskirnar birtast frá fólkinu, neytendum eða kaup- endum. Timabundin höft gegn goðgá Þetta ófullkomna yfirlit sýnir að þjóðnýting innflutnings- verzlunar er ómengað afturhald og yrði engum til hagsbóta, nema þeim embættismönnum sem fengju góða stóla til að sofa I, auk rikissjóðs sem fyndi þama enn eina matarholuna til að fara I vasa fólksins. Það er annað mál að athuga ber gaumgægilega allar leiðir til að bæta og laga núverandi skipan betur að ríkjandi ástandi hverju sinni. Það er t.d. engin goðgá að gripið sé til timabund- inna hafta á nokkrum sviðum þegar þjóðarbúinu er hætt og ráðrúm þarf til að rétta það við. Það er hin mesta skammsýni i islenzkum stjórnmálum að halda uppi einhliða áróðri gegn höftum sem tímabundnu neyðarúrræði, og t.d. nú myndi almenningur efalaust sætta sig viö einhver slik viðbrögð meðan aðstæður þjóðarbúsins eru sem verstar. 1 annan stað ber að lita vel á þá hlið málanna hvort ekki er rétt að gera auknar kröfur til innflutningsfyrirtækja en nú er, til þess að hindra spákaup- mennsku og tryggja betur hag kaupenda og neytenda. Það er t.d. óhæfa aðekki sé þess krafizt af innflytjendum véla og bifreiða að þeir hafi fullkomna varahlutaþjónustu og viðgerða- aðstöðu. Sama gildir varðandi fjárhagsstöðu innflutningsfyrir- tækjanna og lánsþol þeirra. Ráðstafanir verst gegnir þegar Loks hefur það komið berlega Iljós.bæði í Vinstristjórninni og núverandi stjórn, að stjórnvöld hafa allt of takmarkað vald til að gripa til nauðsynlegra að- gerða þegar sýnt er að i óefni stefnir og gjaldeyrisstaðan hriðversnar. Vafalaust er hyggilegt að auka vald við- skiptamálaráðherra eða Seðla- bankans, eða beggja i samein- ingu, til að hindra eða a.m.k. hægja verulega á gjaldeyrisaf- greiðslu um nokkurt skeið, þeg- ar verst gegnir. I meginatriðum er ljóst að þriðji kosturinn: eftirlit og al- menn hagstjórn með frjálsu og f jölbreytilegu framtaki einstaklinga og félaga, er far- sælastur, en á þvi kerfi geta einnig verið ýmsir hnökrar sem þjóðin hefur ekki efni á að látnir séu viðgangast. — JS Aðhald fjölmiðlanna I lýðræðisþjóðfélögum er nauðsynlegt, að milli kjörinna rikisstjórnenda, hvar i flokki sem þeir standa, og kjósenda, riki traust. Slikt traust er m.a. tryggt með þvi, að þeir einir veljist til æðstu forystu, sem vilja vel, hugsa fyrst um al- mannaheill, þó það sé gert eftir mismunandi hugmyndakerfum, að ráðamenn láti ekki þröngan einkahag sinn sitja i fyrirrúmi. Fólkið verður að geta treyst þvi, að forystan sýni gott fordæmi. Kjósendur sitja alltaf i dómarasætimeð vissu millibili i kjörklefunum. Hugmyndin er sú, að til þess að verða kjörinn til æðstu forystu þurfi viðkom- andi að hafa sýnt hvað i' honum býr, m.a. sannsýni og heiðar- leika. Þannig verða allir stjórn- málamenn að ganga i gegnum mörg „hreinsunarstig”, ef svo má að orði komast. Sem betur fer, er sagan um það ólygnust, að hið venjulega á Vesturlöndum er, að til æðstu metorða veljast ekki skálkar. Reynslan er þó þetta góð vegna þess, að áhrifamenn hafa yfir- leitt ekki komizt hjá þvi að leggja gerðir sinar undir dóm ýmissa hópa, svo sem frétta- manna. Þrátt fyrir mörg og erfið ,,hreinsunar”þrep, kemur það fyrir, að óheiðarlegir stjórn- málamenn i lýðræðisrikjum komast I æðstu valdaaðstöðu. Er skemmst'að minnast Nixons Bandarikjaforseta og nokkurra samstarfsmanna hans. Vilji svo slysalega til, að slikir menn nái valdaaðstöðu og gerist brotlegir I þeim embættum, er þeim tókst að ná i með þvi að slá ryki I augu almennings, reynir mjög á aðra þætti en kosningar innan lýðræðiskerfanna. Þá reynir t.d. á fjölmiðlana, stjórnarandstöðu og sterka sið- feröisvitund almennings. Hér verður ekki fjallað um aðhaldshlutverk stjórnarand- stöðu og sterkrar siðferðisvit- undar almennings. Hinsvegar verður litillega fjallað um hið þýðingarmikla hlutverk fjöl- miðlanna. Blöðin Tlmaritaútgáfa á 19. öld hafði miklu hlutverki að gegna i frels- isbaráttu Islendinga. Vakning áttisérstað. Baldvin Einarsson, Fjölnismenn og Jón Sigurðsson komu allir boðum sinum til ís- lendinga i timaritum sinum, prentuðum i Kaupmannahöfn. Siðan færist útgáfan til landsins. Isafold, Þjóðólfur og fleiri blöð koma til sögunnar. A 20. öld verða svo þau dagblöð til, sem enn koma út. Visir kemur út 1910, Morgunblaðið 1913, Timinn 1917, Alþýðublaðið 1919 og Þjóð- viljinn á 4. áratugnum. 011 eru þessi dagblöð túlkend- ur ákveðinna stjórnmálavið- horfa nú á dögum. Það er ein- mitt eitt af sérkennum Islenzka stjórnmálakerfisins, að ekki eru til óháð dagblöð. Óháð, sterk dagblöð eru mjög mikil aðhalds- og lýðverndunar- tæki. Til dæmis voru það hin óháðu, virtu dagblöð I Banda- rlkjunum, Washington Post og New York Times, sem einkum flettu ofan af Watergatemálinu og Pentagonmálinu og sýndu fram á óhugnanlegan misskiln- ing valdamanna á lögum. Ekk- ert islenzkt dagblað hefur öðlast sess óháðs, sterks fjölmiðils og er það miður. 1 íslandssögu Heimis Þor- leifssonar segir: „Aður var minnzt á flokksblöð, en um 1920 mótast slik ártíðurstækni. Framsóknarmenn og Alþýðu- flokksmenn stofnuðu fyrst sin flokksblöð, Timann og Alþýðu- blaðið, en stuðningsmenn borgaraflokkanna töldu sig þá lika þurfa örugg málgögn og keyptu m.a. Morgunblaðið. Ólafur Thors, formaður Sjálf- stæðisflokksins, sagði eitt sinn: „Reynslan hefir sýnt, að fylgi Sjálfstæðisflokksins stendur i réttu hlutfalli við útbreiðslu Morgunblaðsins,” en slfk um- mæli sýna trú manna á -gildi trausts málgagns. Á hinn bóg- inn voru óháð dagblöð ekki til á Islandi, og var það ónejtanlega til tjóns frjálsri skoðanamynd- un. Ikrafti fjármagns sins náðu hægri menn brátt forystu i kapphlaupi flokksblaðanna um útbreiðslu.” (Bls. 186) Útvarpið og sjónvarpið Rikisútvarpið hóf starfsemi sina 1930. Var fljótlega þannig um hnútana bundið, að það skyldi gæta „hlutleysis” (óhlut- drægni?) i hvivetna þegar um þjóðfélagsmál var að ræða. Þó urðu t.d. útvarpsumræður frá alþingi, þættirnir um daginn og veginn o.fl. þess valdandi, að skoðanamyndun varð ekki alveg eins einhæf og áður. Hlustendur gátu dregið sinar ályktanir sjálfir. Þó var það að- eins að litlu leyti, þar sem flokksmálgögnin túlkuðu á sina visu það, sem þar kom fram. Sjónvarpið hefur nú starfað i 9 ár á Islandi. Það er öflugasti fjölmiðill nútimans, fjölmiðill, sem flytur lifandi efni inn i stof- ur, inn á gafl heimilanna. Á undanförnum fáum árum hafa æ beturmenntaðir einstak- lingar ráðizt til starfa hjá rikis- fjölmiðlunum, útvarpi og sjón- varpi. Það hefur gert þessa fjöl- miðla beinskeyttari aðhalds- tæki. Um málefni hefur verið fjallað á gagnrýnni hátt en áður. Sérstaklega hafa fréttamenn sterkasta fjölmiðilsins, sjón- varpsins, verið ákveðnir I að fá svör við spurningum sinum. Það er ómetanlegt Islenzku lýð- ræði, ef hinir sterku rikisfjöl- miðlar, útvarp og sjónvarp. verða til þess að draga úr hinni einhæfu skoðanamyndun, sem flokksmálgögnin öll gefa og veita ráðamönnum öflugra að- hald I störfum sinum en hingað til hefur þekkzt. Jón og séra Jón? A föstudagskvöldið var, kom fram i sjónvarpsþættinum „Kastljós”, að svo virtist sem gjaldeyrisyfirfærslur vegna bilakaupa hefðu farið fram, eft- ir að búið var að taka fyrir slika yfirfærslur. Það er undarlegt, að skjáspyrli skyldi ekki takast, þrátt fyrir itrekaðar tilraunir, að fá einhvern úr „kerfinu” til þess að upplýsa þessi mál. Hverju er verið að leyna? Kannski engu, en hver láir þeim, sem nú spyrja? Það er einmitt i svona tilvikum sem sterkir, óháðir fjölmiðlar sanna gildi sitt. Fjölmiðlar á borð við þau bandarisku stórblöð, sem nefnd voru hér að ofan, hefðu þegar I stað gert marga menn út af örkinni til þess að komast til botns i málinu og reyna að sanna eða afsanna þær sögu: sagnir um óheiðarlega fenginn stórgróða nokkurra áhrifa- manna, sem nú heyrast i borg- inni. Slikt er nauðsynlegt til þess að viðhalda trausti innan stjórnmálakefisins. H.W.H.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.