Tíminn - 08.04.1975, Page 6
6
TIMINN
Þriöjudagur g. aprll 1975.
Borgarstjóri Birgir tsleifur Gunnarsson þakkar Junior Chamber fyrir fánagjöfina.
Junior Chamber hreyfingin í Reykjavík
Gefur fána í skólana í Reykjavík og
dreifir um allt land riti um fánann og
reglur um notkun hans
SJ-Reykjavik — Junior Chamber
hreyfingin i Reykjavík áfhenti i
gær, fimmtudag, á hádegisverð-
arfundi að Hótel Loftleiðum, fána
til notkunar i öllum barna- og
gagnfræðaskólum i Reykjavik.
Einnig hefur hreyfingin látið gera
upplýsingarit um sögu fslenzka
fánans og reglur um hann, sem
dreift verður til allra tiu ára
barna i skólum landsins í vetur og
siðan næstu ár. Birgir ísleifur
Gunnarsson borgarstjóri veitti
viðtöku gjafabréfi vegna fánanna
á fimmtudaginn og fól Kristjáni
Gunnarssyni fræðslustjóra um-
sjón með þvi að þeim yrði vcl
fyrir komið i skólunum, margir
skólastjórar úr Reykjavik voru
einnig viðstaddir.
Hugmyndin um að gefa skólun-
um i Reykjavik islenzka fánann
kom fyrst upp hjá Junior
Chamber Reykjavilc 1971, en ekki
hafa verið til fánar í öllum skól-
unum. Skriður komst á fram-
kvæmd málsins 1972 og var
ákveðið að afhenda fánana á
þjóðhátiðarárinu 1974. Einnig var
ákveðið að gefa út upplýsingarit
um sögu islenzka fánans og regl-
ur hans, og lét frú Auður Stefáns-
son i té margvisleg gögn um is-
lenzka fánann, en hún hefur unnið
mikið starf i samvinnu við skáta-
hreyfinguna við ' kynningu is-
lenzka fánans. Skrifaði Hersteinn
Pálsson ritgerð um islenzka fán-
ann, sem er uppistaðan i upplýs-
ingabæklingnum sem Junior
Chamber Reykjavik gefur út.
Fundur var haldinn með skóla-
stjórunum i Reykjavik og þeim
kynnt málið og lögðu þeir til að
bæklingnum yrði dreift til 10 ára
deilda skólanna. 10 ára börn á
landinu eru nú um 4500 og voru að
þessu sinni prentuð 5000 eintök af
bæklingnum. Auglýsingastofan
Argus sá um uppsetningu og
teikningu á fánabæklingnum,
sem var prentaður i Kassagerð
Reykjavikur. Fánabæklingnum
hefur þegar verið dreift á mörg-
um stöðum. 16 Junior Chamber
félög eru á landinu og sjá þau um
dreifinguna, en þar sem slik félög
starfa ekki verður ritið sent beint
i skólana.
Fánarnir og fánastengur með
þeim voru keyptir i Dansk Fane-
fabrik, þeir eru fyrir alllöngu
komnir til landsins en voru ekki
leystir úr tolli vegna þess að f jár-
öflum félagsmanna gekk erfið-
legar en búizt hafði verið við.
Fánakaupin og útgáfa bæklings-
ins kostuðu rúmlega 750.000 kr.
Enn vantar 200.000 kr. til að ljúka
greiðslu alls þessa verkefnis. Ný-
lega fékk hreyfingin skammtima-
lán til að greiða toll af fánunum
áður en hann hækkaði verulega.
Áður hafði þess verið farið á leit
við Fjármálaráðuneytið að að-
flutningsgjöld yrðu felld niður en
án árangurs.
Áhaldahús Reykjavikurborgar
setur fánana upp i skólum
Reykjavikur.
Það er von félaga i Junior
Chamber Reykjavik að verkefni
þetta mælist vel fyrir og verði til
þess að efla islenzka fánann og
Bæklingur Junior Chamber
virðingu hans hjá almenningi.
Mun JC hreyfingin sinna þessu
verkefni sinu eins og unnt er i
framtiðinni, m.a. sjá um útgáfu
fánabæklingsins árlega.
Junior Chamber er samtök
manna á aldrinum 18-40 ára, sem
starfa að viðskiptum. Forseti
Reykjavikurdeildarinnar er nú
Jón A. Marinósson, en landsfor-
seti hreyfingarinnar er Vilhjálm-
ur Grimsson. Verkefni, sem
hreyfingin vinnur að, eru ætið
valin með það i huga að þau séu
til hagsbóta fyrir viðkomandi
heimabyggð.
Múrarar vilja, að ekki sé
dregið úr gatna- og
holræsagerð
AÐALFUNDUR i Múrarafélagi
Reykjavikur var haldinn 24. marz
sl., og var þar gerð ályktun þar
sem i segir meðal annars:
„Vegna hins ótrygga ástands i at-
vinnumálum byggingariðnaðar-
manna skorar aðalfundur Múr-
arafélags Reykjavikur á borgar-
og sveitarstjórnir að draga ekki
úr gatna- og holræsagerð, svo út-
hlutun lóða geti farið fram með
eðlilegum hætti”.
Fyrirboðar atvinnuleysis leyna
sér ekki, segir ennfremur i álykt-
uninni. Árið 1973 var úthlutað i
Reykjavik einni, lóðum undir 667
ibúðir, en árið 1974 er þessi út-
hlutun komin niður i 370 ibúðir.
Þá skorar fundurinn á hæst-
virta rikisstjórn að gera nú þegar
ráðstafanir til að tryggja Hús-
næðismálastofnun rikisins
nægjanlegt fjármagn, svo að
hægt verði að fullgera þær ibúðir,
sem nú þegar eru i byggingu. í
þessu sambandi má benda á, að i
Reykjavik árið 1973 var fjöldi
lána, sem úthlutað var úr Veð-
deild Landsbanka Islands 938, —
en ekki nema 547 árið 1974, eða
um 42% færri lán en árið áður.
Hvernig er hægt
að týna bílum?
GSAL-Reykjavik — Mörg eru
þess dæmin, að menn hafi týnt
íyklum sinum og öðrum smáhlut-
um, en þess eru færri dæmi að
menn týni bilum sínum! Undan-
farið hefur þó mátt heyra auglýs-
ingu frá rannsóknarlögreglunni,
þar sem auglýst var eftir týndum
bíl. Oft er auglýst eftir stolnum
bflum, — en hvernig fara menn
eiginlega að þvi að týna bilunum
sinum ?
— Eigandi bilsins var i þessu
tilviki drykkjumaður og hafði
skilið bilinn eftir vestur i bæ, en
farið á fyllerí og gjörsamlega
gleymt hvar hann hefði skilið bil-
inn eftir i bænum, var okkur sagt.
Sennilega hefði maðurinn alveg
gleymt þvi að hann ætti bil, ef
Leiðrétting
í GREIN um Sigurð Eggerz sem
birtist i Timanum á skirdag var
meinlegur linuruglingur i ræðu,
sem Siguröur flutti um Þórberg
Þórðarson. Birtist þvi sá hluti
greinarinnar aftur:
Að þvi er snertir Þórberg Þórð-
arson, þykir mjer leitt, að stjórn-
in skuli hafa kipt burt af fjárlög-
unum styrknum til hans. Jeg
held, að það hafi ekki verið rjett,
þvi að maðurinn hefir sýnt mik-
inn áhuga i að safna orðum úr al-
þýðumáli. Hann hefir haft aðstoð-
armenn úti um allar sveitir til
þess að safna orðum. Hefir hann
svo sett þetta i kerfi. Að þessu
hlýtur að verða mikið gagn, þvi
að hann hefir náð ýmsum orðum,
sem annars hefðu glatast.
Jeg skal játa, að jeg hefi veitt
manni þessum litla eftirtekt. En
nú nýlega hefir hann skrifað bók,
sem heitir: „Brjef til Láru”. Þó
jeg sje vitanlega ekki samdóma i
maðurinn sem seldi honum bilinn
á sinum tima, hefði ekki verið
farinn að lengja eftir greiðslum
varðandi kaupin. Seljandi bilsins
hafðiað lokum upp á kaupandan-
um, sem þá hafði gjörsamlega
gleymt þvi hvar hann hefði skilið
bilinn eftir.
Rannsóknarlögreglan auglýsti
siðaneftir týnda bilnum, og hann
kom i leitirnar stuttu siðar. Þess
má geta að. kaupin á bilnum
gengu til baka.
— Það kemur stundum fyrir að
menn týna bilunum sinumsvona
sjálfir, ef þeir „detta illilega i
það” og gleyma þvi, hvar þeir
skildu við bilinn, sagði rannsókn-
arlögreglumaður er við töluðum
við.
honum um ýmislegt, sem er i
bókinni, sýnir hún eigi að siður,
að maðurinn er hreinn andans af-
burðamaður. Hann minnir mig á
suma stóra rithöfunda frakk-
neska. Jeg er þvi sannfærður um,
að Þórbergur er einn af þeim
mönnum þjóðarinnar, sem hvað
mest má búast við af sem rit-
höfundi. — Og jeg legg enn
áherslu á, að jeg dæmi hann hjer
eingöngu sem listamann.
Þetta meðal annars styður að
þvi, að jeg vil ekki kippa styrkn-
um af þessum fátæka manni, sem
á mjög örðugt uppdráttar. Jeg
hefi tekið þetta fram hjer, af þvi
að blöðin hafa svo vendilega
þagað um þessa bók, að þau hafa
vart getið hennar. En jeg trúi
ekki, að lengi verði hægt að þegja,
þvi að höfundurinn er alt of mikill
andans maður til þess.
Að siðustu vil jeg gera það að
tillögu minni, að máli þessu verði
visað til stjórnarinnar, og hún láti
sjerfræðinga athuga það og leggi
svo skýrslu um rannsóknina fyrir
næsta þing.
Félag einstæðra
foreldra stofnað
á Isafirði
1 BYRJUN marzmánaðar var
haldinn stofnfundur Félags ein-
stæðra foreldra á ísafirði.
Tuttugu og fimm manns mættu á
stofnfundi og var stjórn félagsins
kosin og skipa hana: Bára Guð-
mundsdóttir, formaður, Guðbjörg
Arnadóttir, varaformaður og
meðstjórnendur Þyri Simonar-
dóttir, Sesselja Ingólfsdóttir og
Bjarndis Friðriksdóttir. Félagið
mun starfa i tengslum og eftir
sömu starfsreglum og Félag ein-
stæðra foreldra á Reykjavikur-
svæðinu, svo og Suðurnesjadeild
FEF.
Tilgangur þess er að vinna að
hagsmunamálum einstæðra
mæðra og feöra með það fyrir
augum, að réttur og aðstaöa
barna þeirra sé ekki fyrir borð
borinn, gagnvart stjórnvöldum og
öðrum, sem um þau mál fjalla og
á allan hátt að bæta uppeldisað-
stöðu þeirra barna, sem ekki
njóta samvista við báða foreldra,
eins og segir i lögum félagsins.
Fram kom á fundinum, hversu
mikil þörf er fyrir barnaheimili á
Isafirði og mun helzta baráttumál
félagsins nú verða að fá bætt úr
þvi ófremdarástandi, sem er á
þeim málum i bæjarfélaginu.
Félagar geta orðið einstæðir
foreldrar sem hafa forræði barna
sinna og sömuleiðis verður leitað
eftir þvi að safna styrktarfélög-
um, enda hefur mikill velvilji og
áhugi verið á félagsstofnun þess-
ari á Isafirði. Einstæðir foreldrar
i nærliggjandi byggðarlögum við
Isafjörð eiga og rétt til aðildar að
félaginu.
JÓHANNES JÓHANNESSON heldur málverkasýningu á „loftinu”, Skólavöröustig 4, í húsi þvi er Helgi
Einarsson, glerverzlunarmaöur er meö verzlun sina. Jóhannes sýnir 28 vatnslitamyndir, sem hann
hefur gert I frlstundum slnum I skammdeginu I vetur.
Sýning Jóhannesar stendur yfir I tvær vikur og er opin almenningi á venjulegum verzlunartlma, 9—6.