Tíminn - 23.04.1975, Qupperneq 1
TARPAULIN
RISSKEMMUR
niii
Bílsturtur
Dælur
Drifsköft
HF HORÐUR GUNNARSSON
SKULATÚNI 6 -SIMI (91)19460
92. tbl. — Miðvikudagur 23. april 1975 — 59. árgangur
Landvélarhf
Nýtt leikhús
í Reykjavík
— Félag ísl. leikritahöfunda fær inni
í Hótel Loftleiðum fyrir leiksýningar
Gsal—Reykjavík. — Akveöiö hef-
ur verið að setja á fót nýtt leikhús
i Reykjavik, og veröur það innan
veggja Hótels Loftleiöa, nánar
tUtekiö i ráðstefnusal hótelsins.
Þaðer félag Islenzkra leikritahöf-
unda sem stendur að baki leik-
hússins og þessa dagana er verið
að æfa leikrit sem frumsýnt verð-
ur 10. mai n.k. I þessu nýja leik-
húsi. Leikritið, sem þá verður
sýnt, nefnist „Hlæðu, Magdalena
hlæðu”og erhöfundur þess Jökull
Jakobsson. Leikritið er einþátt-
ungur og hefur Hrafn Gunnlaugs-
son sett það á svið, en Jökull og
Hrafn hafa átt mikinn þátt i þvi
aö koma þessu leikhúsi á laggirn-
ar.
— Ég veit nú ekki hversu
virðulegt nafn má gefa þessu,
sagði Jökull Jakobsson er Timinn
hafði tal af honum i gær, — þetta
er nú I smáum stil og það má lita
á þetta sem höfundarleikhús. Við
verðum þarna með ýmiss konar
„smotteri”, sem kannski á ekki
beint erindi inn i stóru leikhúsin.
Jökull sagði, að buast mætti við
að hlé yrði gert á leikhússtarf-
seminni i sumar, en hafizt handa
af fullum krafti á hausti kom-
anda. Sagði Jökull, að i þessu
nýja leikhúsi yrði mögulegt að
gera ýmsar tilraunir. Kvað Jökull
hótelstjórnina vera mjög áhuga-
sama um þessa starfsemi, og i
raun hefði Erling Aspelund átt
hugmyndina að þessu leikhús-
starfi, er þessi mál hefði borið á
góma I fyrra.
Jökull sagði, að óhætt væri að
segja, að töluvert framboð væri á
leikhúsverkum.
Sjálfstæðis-
meirihlutinn
vildi ekki að
BÚR hefði frum-
kvæði að við-
ræðum við
togaramennina
BH—Reykjavik. —Sú tillaga
komfram á fundi borgarráðs i
gær, að Bæjarútgerð Reykja-
vikur hefði frumkvæðið að þvi,
að teknar yrðu upp sjálfstæðar
viðræður við undirmenn á
stóru togurunum til þess að
freista þess að leysa verkfall
það, sem togarasjómenn eiga
nú i. Málaleitan þessi skyldi
upp tekin til þess að freista
þess að koma i veg fyrir að
vinna stöðvist hjá fiskverkun
Bæjarútgerðarinnar, þar eð
efni er á þrotum og fyrirsjáan-
legt, að öll vinna stöðvast á
föstudag hjáBÚR.ef ekki verð-
ur gripið til úrræða, svo sem
þessara.
Þessari tillögu hafnaði
meirihluti ihaldsins i borgar-
ráði með öllu, og hlaut hún að-
eins fylgi þeirra Kristjáns
Benediktssonar og Sigurjóns
Péturssonar.
Erling Aspelund, hótelstjóri,
sagði að ráðstefnusalurinn væri
upplagður fyrir minni háttar leik-
sýningar og myndi hann henta
ágætlega i þessu tilraunaleikhúsi.
— Þeir voru með sérstakt leik-
rit i huga sem gerizt á bar, og þar
sem áhorfendurnir eru hluti leik-
ritsins. í ráðstefnusalnum er fyrir
aðstaða til aö setja- upp slíkt
verk.
Erling sagði, að þeir væru
mjögspenntir fyrir þessari starf-
semi, og það væri vilji hjá hótel-
stjórninni til að aðstoða þessa
menn væri þess einhver kostur.
Myndin hér að neðan er úr ráð-
stefnusal Hótel Loftleiða.
VESTAAANNAEYJAR:
ÍÞRÓTTAAAIÐSTÖÐIN RÍS
AF GRUNNI Á EINU ÁRI
— Kostar þrjú hundruð
og fimmtíu milljónir króna
gébé—Reykjavik. — Bygging
sundlaugar og iþróttamiðstöðvar
i Vestmannaeyjum, hefst i byrjun
júni i ár, og er áætiaö að hægt
verði að taka báðar byggingarnar
I notkun eftir eitt ár. — Það eru
danskir verktakar, sem hafa tek-
ið þetta verk að sér, sagði
Magnús Magnússon bæjarstjóri i
Vestmannaeyjum. — Ekki hefur
enn verið endanlega ákveðinn
staður fyrir iþróttamiðstööina, en
áætlaður kostnaður er þrjú
hundruð og fimmtiu milljónir
króna.
— Danska fyrirtækið flytur allt
efnið i bygginguna hingað, en
burðurinn i henni er lintrésbogar
og svo málmklæðning, sagði
Magnús. — Astæðan fyrir þvi að
svona er byggt, er einfaldlega sú
að spara tima. Eins og kunnugt er
fór sundlaugin i Vestmannaeyj-
um undir hraun og hefur engin
sundkennsla verið þar siðan.
— Danirnir eru aðalverktak-
amir, en það fer svo eftir sam-
komulagi við þá, hvort eða hvaða
verkþætti við getum tekið að okk-
ur I sambandi við bygginguna,
sagði Magnús.
— Sundlaugin, sem verður
innilaug, verður 11x25 mtr. að
stærð, en auk þess veröur
áhorfendarými. Iþróttavöllurinn I
húsinu verður 20x40 mtr, auk
rýmis fyrir allmarga áhorfendur.
Allt húsið verður tæplega þrjú
þúsund fermetrar. Byrjað verður
á framkvæmdum i júni-byrjun,
og er áætlað að unnt verði að taka
sundlaugina i notkun um miðjan
mai 1976, en fþróttavöllinn um 15.
júni, sagði Magnús bæjarstjóri. —
Þetta kostar 350 milljónir króna,
sagði Magnús ennfremur og mun
rikið greiða nálægt þriðjung
heildarverðsins á móti Vest-
mannaeyjabæ.
Framhald á 5. siðu.
Uppsögn Kolbeins afturkölluð!
Verkfallsmenn gótu ekki tekið afstöðu
í gærkvöldi þar sem bréf kaupfélags-
stjórans höfðu ekki borizt aðilum
Gsal-Reykjavik— Oddur Sigur-
bergsson, kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Arnesinga aftur-
kallaði i gær uppsögn Kolbeins
Guönasonar, og þar með er
lausn fengin á svonefndu Kol-
beinsmáli, — en verkfall vegna
uppsagnar hans hefur staðið i
réttar þrjár vikur, og tóku þátt I
þvi rúmlega 20 starfsmenn
smiðja við K.A. Verkfallsmenn
hafa allt frá fyrsta degi mót-
mælaaðgerða sinna staðið fast á
ákvörðun sinni að hefja ekki
störf aftur fyrr en umsóknin
væri gerð ógild. 1 gær skrifaði
Oddur Sigurbergsson, kaup-
félagsstjóri svo Kolbeini Guðna-
syni bréf, þar sem hann skýrði
honum frá þvi að hann hefði
afturkallað uppsögnina.
Bréf Odds til Kolbeins fer hér
á eftir:
„Hr. Kolbeinn Guðnason
Selfossi
Ég afturkalla hér með upp-
sögn yðar, sem sett er fram i
bréfi dags. 25. marz s.l.
Astæður til hinnar breyttu af-
stöðu minnar eru tilgreindar i
bréfi til Snorra Sigfinnssonar,
dags. i dag, sem fylgir i afriti.
Virðingarfyllst,
pr.pr. Kaupfélag Árnesinga
Oddur Sigurbergsson”
Bréf Odds til Snorra er birt á
bls. 3.
Sfðari hluta dags i gær ræddi
Timinn við-Kolbein Guðnason,
bifvélavirkja, og kvaðst hann
ekki hafa fengið bréf Odds i
hendur, en engu að siður færi
ekki á milli mála að kaupfélags-
stjórinn hefði breytt afstöðu
sinni.
— Það er alltaf ánægjulegt
þegar skynsamleg afstaða er
tekin til mála. Þaðer mannlegt
að gera mistök, en það þarf
manndóm til að viðurkenna
þau, og þvi fyrr sem mistökin
eru viðurkennd þvi meiri mann-
dóm sýnir viðkomandi, sagði
Kolbeinn Guðnason.
1 gærkvöldi var haldinn fund-
ur hjá verkfallsmönnum, og
náðum við tali af Snorra Sig-
finnssyni, trúnaðarmanni bif-
vélavirkja á fundinum.
Sagði Snorri, að verkfalls-
menn gætu ekki tekið afstöðu i
málinu þar sem þeim hefðu ekki
borizt nein skjöl varðandi aftur-
köllun uppsagnar Kolbeins
Guðnasonar.
— Það kom mér dálitið undar-
lega fyrir sjónir að lesa yfir
bréf, sem persónulega var stilað
til min, á ritstjórnarskrifstofum
eins dagblaðanna i Reykjavik,
en það er að visu samkvæmt
fyrri vinnuaðferðum kaup-
félagsstjóra i þessu máli, sagði
Snorri.
Verkfallsmenn munu ekki
taka afstöðu til afturköllunar
kaupfélagsstjóra á uppsagnar-
bréfi Kolbeins fyrr en aftur-
köllunarbréfið og bréf það er
Oddur Sigurbergsson hefur rit-
að Snorra Sigfinnssyni, hefur
borizt þeim i hendur.
VIÐ HÖFUM
KEYPT ÁFENGI
FYRIR 3.850
KRÓNURÁ
HVERT
MANNSBARN
SÍÐAN UM
ÁRAMÓT A
I DAG
gébé Rvik — Ráðamenn a
Reyðarfirði og Seyðisfirði biða nú
spenntir eftir að Færeyingar taki
ákvörðun um, hvorn staðinn þeir
ætli að hafa fyrir afgreiðslustað
bilaferjunnar Smyrils. Akvörðun
um þaðmál.verður tekin i Thors-
havn i Færeyjum, eftir hádegi i
dag. Eftir að fyrstu fréttir komu
af því að bilaferjan myndi koma
hér vikulega i sumar, gerðist fólk
mjög áhugasamt um þær ferðir
og sl. fimmtudag pöntuðu hvorki
meira né minna en tvö hundruð
manns farrými með ferjunni og
far fyrir tæplega fimmtiu bif-
reiðar, að sögn Steins Lárussonar
forstjóra ferðaskrifstofunnar Úr-
val.
Ekki er þó enn ákveðið, hve
mörg farrými Úrval hefur að
selja i vikulega, sagði Steinn, en
ákvörðun um það verður tekin
fljótlega. Eimskipafélag íslands
verður aðalumboðsaðili bilaferj-
unnar hér, og mun Úrval sjá um
alla fyrirgreiðslu farþega hér á
landi.
BH—Reykjavík.— Verkfall flugmanna hófst á miönætti i nótt eftir
að flugmenn höfðu hafnað beiðni flugfélaganna um að verkfallinu
yrðifrestað. Takist samningar ekki, liggur allt flug niöri fram á að-
faranótt sunnudagsins.
Samningafundur hófst hjá sáttasemjara klukkan 16 i gær og var
honum enn ólokið, er blaðið fór i prentun. A sáttafundi i fyrrakvöld
fóru flugfélögin þess á leit, að flugmenn frestuöu verkfallinu, en
þeim tilmælum var hafnað. Sá fundur stóö til klukkan fimm i gær-
morgun.
Nokkrar aukaferðir voru farnar I gær, innanlands og til útlanda.
Myndin er tekin á Reykjavikurflugvelli i gærkvöldi. Timamynd:
Róbert.